Morgunblaðið - 25.07.2008, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson og
Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
BARACK Obama, forsetaframbjóðandi Demó-
krataflokksins bandaríska, hvatti í gær til ein-
ingar þjóðanna beggja vegna Atlantshafsins.
Bandaríkjamenn ættu hvergi betri bandamenn
en í Evrópu og þótt komið hefði til deilna og
aftur myndu verða deilur síðar myndu byrðar
sem fylgdu því að vera borgarar allrar jarð-
arinnar halda áfram að binda þjóðirnar saman.
Hann sagði enga þjóð, sama hve stór og
voldug hún væri, geta sigrast af eigin ramm-
leik á nýjum ógnum eins og alþjóðlegri hryðju-
verkavá eða hlýnun loftslags. Obama heldur í
dag til Frakklands og síðan til Bretlands á
morgun. En í gær var hann í Þýskalandi, Berl-
ínarbúar og ferðamenn í borginni tóku honum
ákaflega vel, og voru umferðarteppur til að
mynda tilfinnanlegar um alla borg.
Haft var á orði að viðbrögðin líktust því helst
að rokkstjarna væri á ferð en ekki forsetaefni í
ríki handan við Atlantshafið. Vegfarendur
héldu á lofti skiltum með nafni Obama eða hin-
um frægu áhrínsorðum hans: „Yes We Can.“
Þá sást einnig til gárunga með skilti með áletr-
unum á borð við „Obama sem kanslara.“
Fyrri hluta dags átti Obama fundi með Ang-
elu Merkel, kanslara Þýskalands, Frank-Walt-
er Steinmeier utanríkisráðherra og Klaus
Wowereit, borgarstjóra Berlínar. Um 1.000
lögreglumenn voru í viðbragðsstöðu seinni-
partinn, en klukkan fjögur að staðartíma tók
fólk að streyma að svæðinu hjá Sigursúlunni í
skemmtigarðinum Tiergarten, þar sem Obama
hugðist flytja ræðu sína klukkan sjö.
Þegar Obama loksins hóf upp raust sína
höfðu safnast saman um 200.000 manns í garð-
inum. Megininntak ræðunnar var á þá leið að
þjóðir heims ættu að sameinast í að leggja
meðbræðrum sínum lið. Rífa yrði niður múra á
milli gamalla bandamanna beggja vegna hafs-
ins, milli ríkra þjóða og fátækra, milli kynþátta
og ættbálka, milli innfæddra og innflytjenda,
kristinna, múslíma og gyðinga.
Snúi bökum saman
„Í Evrópu eru allt of margir nú þeirrar skoð-
unar að Bandaríkin eigi fremur nokkra sök á
því sem miður fer í heiminum en að þau séu afl
sem geti gagnast við að gera hann aftur betri,“
sagði Obama. „Í Bandaríkjunum gera sumir
lítið úr þætti Evrópu í að tryggja öryggi okkar
og framtíð, neita að sá þáttur sé mikilvægur.
Hvorugt sjónarmiðið er í samræmi við sann-
leikann – þann að Evrópumenn axla nú stærri
byrðar og meiri ábyrgð á hættusvæðum í heim-
inum, að á sama hátt og herstöðvar sem
Bandaríkjamenn reistu á nýliðinni öld koma
enn að gagni við að tryggja öryggi þessa meg-
inlands færir þjóð okkar enn miklar fórnir fyr-
ir frelsið um allan heim.“
Obama lagði áherslu á að Evrópa og Banda-
ríkin sneru bökum saman svo sigrast mætti á
hryðjuverkum og uppræta öfgastefnuna sem
þar byggi að baki. Þar vitnaði hann í söguna og
minntist á Berlínarloftbrúna eftir seinni
heimsstyrjöld og samstarf vestrænna þjóða
sem leiddi til sigurs á Sovétmönnum í kalda
stríðinu: „Þjóðir heims – lítið á Berlín! Lítið á
Berlín, þar sem Þjóðverjar og Bandaríkja-
menn lærðu að vinna saman og treysta hvorir
öðrum innan þriggja ára frá því að þeir áttust
við á vígvellinum.“
Ræðu hans var tekið með kostum og kynjum
en þó misjafnlega eftir efninu. Julia Neisert,
sem vinnur við almannatengsl, sagði nánast
hafa slegið þögn á mannfjöldann þegar Obama
ræddi um nauðsyn þess að senda fleiri her-
menn til Afganistans til að sigra Talíbana.
Þjóðverjar hafa mörg þúsund hermenn í Afg-
anistan en neita að senda þá til suðurhérað-
anna þar sem mestu átökin fara fram og
Bandaríkjamenn bera hitann og þungann af
aðgerðunum.
„Hann sagði dálítið um allt … frá ástandinu í
Darfúr til útbreiðslu kjarnavopna til loftslags-
breytinga,“ sagði hún. „Því óljósari sem hann
var í tali þeim mun öflugri urðu fagnaðarlæt-
in.“
Reuters
Aðdáendur Barack Obama heilsar fólki sem hlýtt hafði á ræðu hans við Sigursúluna í Berlín í gær. Fólkið kom víða að, Þjóðverjar, Bandaríkjamenn og fólk frá öðrum Evrópulöndum var í hópnum.
„Rokkstjarna“ boðar einingu
Í HNOTSKURN
»John F. Kennedy Bandaríkjaforsetiflutti fræga ræðu í Vestur-Berlín
1963. Borgin var þá umlukt múrum a-
þýskra stjórnvalda. Kennedy gagnrýndi
þá sem ekki skildu hvað deilt væri um í
kalda stríðinu. „Látum þá koma til Berl-
ínar,“ sagði hann.
» Í lokin sagði Kennedy að allir frjáls-ir menn, hvar sem þeir byggju, væru
í reynd Berlínarbúar. „Þess vegna er ég,
sem frjáls maður, hreykinn af því að
segja: Ich bin ein Berliner.“
200.000 manns fögnuðu Barack Obama ákaft þegar hann flutti ræðu sína í Berlín í gær
SVAVAR Knútur
Kristinsson, tónlistar-
maður, er á tónleika-
ferðalagi í Berlín og
var viðstaddur ræðu
Obama.
,,Það var ótrúleg
stemning á svæðinu,
ekki ósvipuð því og
rokkstjarna væri
komin á staðinn,“
sagði Svavar Knútur.
„Hér voru allra þjóða kvikindi og senni-
lega meira af útlendingum en Þjóð-
verjum. Fólk var að koma hingað sér-
staklega frá Bandaríkjunum og öðrum
Evrópulöndum, bara til þess að sjá
hann. Fólk sagði við mig: „Ég vil geta
sagt barnabörnunum að ég hafi verið
hér“.“
Svavar sagði meirihluta viðstaddra
hafa verið ungt fólk. Víða mátti sjá skilti
með nafni Obama og setningum eins og
„Barack’n roll“. ,,Alls staðar mátti sjá
bjórsölustanda, sölumenn með ýmsan
varning eins og stuttermaboli með mynd
Obama, derhúfur og annan varning.
Menn bera líka svo miklar vonir til
hans,“ sagði Svavar.
„Það var ótrúleg
stemning á svæðinu“
Svavar Knútur
Kristinsson
ÍTALSKA þingið samþykkti í gær
ný og hert lög um innflytjendur,
m.a. verða tekin fingraför af síg-
aunum, öðru nafni Roma-þjóðinni.
Segja ráðamenn í Róm ýmist að
markmiðið sé að draga úr glæpum
á götunum, hafa uppi á ólöglegum
innflytjendum eða sjá til þess að
sígaunabörn gangi í skóla.
Jacques Barrot í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins sagði
ítölsk stjórnvöld fullyrða að ekki
yrði spurt um þjóðerni eða trú þeg-
ar fingraför yrðu tekin. Fullyrt hef-
ur verið að aðeins verði tekin
fingraför af þeim sígaunum sem
ekki geti framvísað skilríkjum.
Heimildarmenn segja að í reynd
séu þau tekin af þeim öllum.
Margir Ítalar líta niður á
sígauna. Um sl. helgi fundust lík
tveggja sígaunastúlkna á baðströnd
í Napólí, þær höfðu drukknað. Fólk
á ströndinni lét það ekki trufla sig í
sólbaðinu að líkin lægju um hríð
rétt hjá þeim. kjon@mbl.is
Reuters
Afskipt Sígaunar við hreysi sitt í útjaðri Rómar bíða eftir aðstoð Rauða
krossins. Um 150.000 sígaunar eða fólk Roma-þjóðarinnar búa á Ítalíu.
Fingra-
för af
sígaunum
að rauði þráð-
urinn í svallinu
hefði verið hlut-
verkaleikur þar
sem fangabúðalíf
í valdatíð nasista
hefði verið fyrir-
mynd.
„Ég sé engan
raunverulegan
grundvöll fyrir
þeirri tilgátu að þátttakendur [í
svallinu] hafi gert gys að fórnar-
lömbum Helfararinnar,“ sagði dóm-
arinn. Mosley, sem er 68 ára, við-
urkenndi að hann væri háður svo-
nefndu kvalalostakynlífi. En mynd-
birtingin hefði verið „hræðilegt áfall“
og auðmýking fyrir eiginkonu sína
og syni. kjon@mbl.is
BRESKA götublaðið News of the
World var í gær dæmt til að greiða
60.000 pund, nær 10 milljónir króna,
í miskabætur fyrir að birta myndir
og frásögn af fimm stunda kynsvalli
Max Mosley, forseta Alþjóðaaksturs-
íþróttasambandsins (FIA), með
fimm vændiskonum í London í mars.
Niðurstaða dómara hæstaréttar
var að blaðið hefði brotið gegn frið-
helgi einkalífs Mosleys. Frásögn
blaðsins byggðist á leynilegri mynd-
bandsupptöku einnar vændiskon-
unnar og birti blaðið hluta upptök-
unnar á netinu.
Mosley er sonur Sir Oswalds Mos-
leys, sem fyrir seinni heimsstyrjöld
var leiðtogi breska fasistaflokksins
er átti samstarf við þýska nasista.
Gefið var í skyn í News of the World
Dæmt fyrir myndir
af svalli Mosleys
Brot gegn friðhelgi einkalífsins
Max Mosley