Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Kristján Jónsson og Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur BARACK Obama, forsetaframbjóðandi Demó- krataflokksins bandaríska, hvatti í gær til ein- ingar þjóðanna beggja vegna Atlantshafsins. Bandaríkjamenn ættu hvergi betri bandamenn en í Evrópu og þótt komið hefði til deilna og aftur myndu verða deilur síðar myndu byrðar sem fylgdu því að vera borgarar allrar jarð- arinnar halda áfram að binda þjóðirnar saman. Hann sagði enga þjóð, sama hve stór og voldug hún væri, geta sigrast af eigin ramm- leik á nýjum ógnum eins og alþjóðlegri hryðju- verkavá eða hlýnun loftslags. Obama heldur í dag til Frakklands og síðan til Bretlands á morgun. En í gær var hann í Þýskalandi, Berl- ínarbúar og ferðamenn í borginni tóku honum ákaflega vel, og voru umferðarteppur til að mynda tilfinnanlegar um alla borg. Haft var á orði að viðbrögðin líktust því helst að rokkstjarna væri á ferð en ekki forsetaefni í ríki handan við Atlantshafið. Vegfarendur héldu á lofti skiltum með nafni Obama eða hin- um frægu áhrínsorðum hans: „Yes We Can.“ Þá sást einnig til gárunga með skilti með áletr- unum á borð við „Obama sem kanslara.“ Fyrri hluta dags átti Obama fundi með Ang- elu Merkel, kanslara Þýskalands, Frank-Walt- er Steinmeier utanríkisráðherra og Klaus Wowereit, borgarstjóra Berlínar. Um 1.000 lögreglumenn voru í viðbragðsstöðu seinni- partinn, en klukkan fjögur að staðartíma tók fólk að streyma að svæðinu hjá Sigursúlunni í skemmtigarðinum Tiergarten, þar sem Obama hugðist flytja ræðu sína klukkan sjö. Þegar Obama loksins hóf upp raust sína höfðu safnast saman um 200.000 manns í garð- inum. Megininntak ræðunnar var á þá leið að þjóðir heims ættu að sameinast í að leggja meðbræðrum sínum lið. Rífa yrði niður múra á milli gamalla bandamanna beggja vegna hafs- ins, milli ríkra þjóða og fátækra, milli kynþátta og ættbálka, milli innfæddra og innflytjenda, kristinna, múslíma og gyðinga. Snúi bökum saman „Í Evrópu eru allt of margir nú þeirrar skoð- unar að Bandaríkin eigi fremur nokkra sök á því sem miður fer í heiminum en að þau séu afl sem geti gagnast við að gera hann aftur betri,“ sagði Obama. „Í Bandaríkjunum gera sumir lítið úr þætti Evrópu í að tryggja öryggi okkar og framtíð, neita að sá þáttur sé mikilvægur. Hvorugt sjónarmiðið er í samræmi við sann- leikann – þann að Evrópumenn axla nú stærri byrðar og meiri ábyrgð á hættusvæðum í heim- inum, að á sama hátt og herstöðvar sem Bandaríkjamenn reistu á nýliðinni öld koma enn að gagni við að tryggja öryggi þessa meg- inlands færir þjóð okkar enn miklar fórnir fyr- ir frelsið um allan heim.“ Obama lagði áherslu á að Evrópa og Banda- ríkin sneru bökum saman svo sigrast mætti á hryðjuverkum og uppræta öfgastefnuna sem þar byggi að baki. Þar vitnaði hann í söguna og minntist á Berlínarloftbrúna eftir seinni heimsstyrjöld og samstarf vestrænna þjóða sem leiddi til sigurs á Sovétmönnum í kalda stríðinu: „Þjóðir heims – lítið á Berlín! Lítið á Berlín, þar sem Þjóðverjar og Bandaríkja- menn lærðu að vinna saman og treysta hvorir öðrum innan þriggja ára frá því að þeir áttust við á vígvellinum.“ Ræðu hans var tekið með kostum og kynjum en þó misjafnlega eftir efninu. Julia Neisert, sem vinnur við almannatengsl, sagði nánast hafa slegið þögn á mannfjöldann þegar Obama ræddi um nauðsyn þess að senda fleiri her- menn til Afganistans til að sigra Talíbana. Þjóðverjar hafa mörg þúsund hermenn í Afg- anistan en neita að senda þá til suðurhérað- anna þar sem mestu átökin fara fram og Bandaríkjamenn bera hitann og þungann af aðgerðunum. „Hann sagði dálítið um allt … frá ástandinu í Darfúr til útbreiðslu kjarnavopna til loftslags- breytinga,“ sagði hún. „Því óljósari sem hann var í tali þeim mun öflugri urðu fagnaðarlæt- in.“ Reuters Aðdáendur Barack Obama heilsar fólki sem hlýtt hafði á ræðu hans við Sigursúluna í Berlín í gær. Fólkið kom víða að, Þjóðverjar, Bandaríkjamenn og fólk frá öðrum Evrópulöndum var í hópnum. „Rokkstjarna“ boðar einingu Í HNOTSKURN »John F. Kennedy Bandaríkjaforsetiflutti fræga ræðu í Vestur-Berlín 1963. Borgin var þá umlukt múrum a- þýskra stjórnvalda. Kennedy gagnrýndi þá sem ekki skildu hvað deilt væri um í kalda stríðinu. „Látum þá koma til Berl- ínar,“ sagði hann. » Í lokin sagði Kennedy að allir frjáls-ir menn, hvar sem þeir byggju, væru í reynd Berlínarbúar. „Þess vegna er ég, sem frjáls maður, hreykinn af því að segja: Ich bin ein Berliner.“ 200.000 manns fögnuðu Barack Obama ákaft þegar hann flutti ræðu sína í Berlín í gær SVAVAR Knútur Kristinsson, tónlistar- maður, er á tónleika- ferðalagi í Berlín og var viðstaddur ræðu Obama. ,,Það var ótrúleg stemning á svæðinu, ekki ósvipuð því og rokkstjarna væri komin á staðinn,“ sagði Svavar Knútur. „Hér voru allra þjóða kvikindi og senni- lega meira af útlendingum en Þjóð- verjum. Fólk var að koma hingað sér- staklega frá Bandaríkjunum og öðrum Evrópulöndum, bara til þess að sjá hann. Fólk sagði við mig: „Ég vil geta sagt barnabörnunum að ég hafi verið hér“.“ Svavar sagði meirihluta viðstaddra hafa verið ungt fólk. Víða mátti sjá skilti með nafni Obama og setningum eins og „Barack’n roll“. ,,Alls staðar mátti sjá bjórsölustanda, sölumenn með ýmsan varning eins og stuttermaboli með mynd Obama, derhúfur og annan varning. Menn bera líka svo miklar vonir til hans,“ sagði Svavar. „Það var ótrúleg stemning á svæðinu“ Svavar Knútur Kristinsson ÍTALSKA þingið samþykkti í gær ný og hert lög um innflytjendur, m.a. verða tekin fingraför af síg- aunum, öðru nafni Roma-þjóðinni. Segja ráðamenn í Róm ýmist að markmiðið sé að draga úr glæpum á götunum, hafa uppi á ólöglegum innflytjendum eða sjá til þess að sígaunabörn gangi í skóla. Jacques Barrot í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins sagði ítölsk stjórnvöld fullyrða að ekki yrði spurt um þjóðerni eða trú þeg- ar fingraför yrðu tekin. Fullyrt hef- ur verið að aðeins verði tekin fingraför af þeim sígaunum sem ekki geti framvísað skilríkjum. Heimildarmenn segja að í reynd séu þau tekin af þeim öllum. Margir Ítalar líta niður á sígauna. Um sl. helgi fundust lík tveggja sígaunastúlkna á baðströnd í Napólí, þær höfðu drukknað. Fólk á ströndinni lét það ekki trufla sig í sólbaðinu að líkin lægju um hríð rétt hjá þeim. kjon@mbl.is Reuters Afskipt Sígaunar við hreysi sitt í útjaðri Rómar bíða eftir aðstoð Rauða krossins. Um 150.000 sígaunar eða fólk Roma-þjóðarinnar búa á Ítalíu. Fingra- för af sígaunum að rauði þráð- urinn í svallinu hefði verið hlut- verkaleikur þar sem fangabúðalíf í valdatíð nasista hefði verið fyrir- mynd. „Ég sé engan raunverulegan grundvöll fyrir þeirri tilgátu að þátttakendur [í svallinu] hafi gert gys að fórnar- lömbum Helfararinnar,“ sagði dóm- arinn. Mosley, sem er 68 ára, við- urkenndi að hann væri háður svo- nefndu kvalalostakynlífi. En mynd- birtingin hefði verið „hræðilegt áfall“ og auðmýking fyrir eiginkonu sína og syni. kjon@mbl.is BRESKA götublaðið News of the World var í gær dæmt til að greiða 60.000 pund, nær 10 milljónir króna, í miskabætur fyrir að birta myndir og frásögn af fimm stunda kynsvalli Max Mosley, forseta Alþjóðaaksturs- íþróttasambandsins (FIA), með fimm vændiskonum í London í mars. Niðurstaða dómara hæstaréttar var að blaðið hefði brotið gegn frið- helgi einkalífs Mosleys. Frásögn blaðsins byggðist á leynilegri mynd- bandsupptöku einnar vændiskon- unnar og birti blaðið hluta upptök- unnar á netinu. Mosley er sonur Sir Oswalds Mos- leys, sem fyrir seinni heimsstyrjöld var leiðtogi breska fasistaflokksins er átti samstarf við þýska nasista. Gefið var í skyn í News of the World Dæmt fyrir myndir af svalli Mosleys Brot gegn friðhelgi einkalífsins Max Mosley

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.