Morgunblaðið - 25.07.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 25.07.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SKÁLD og rit- höfundar skilja iðulega eftir sig viðamikil bóka- söfn, handrit í metravís og alls- kyns pár sem endar á skjala- söfnum eftir þeirra dag. Að- gengi að gögn- unum er misgott og iðulega einungis fyrir fræðimenn. Sýning í Írsku þjóðarbókhlöðunni á minnisbókum, handritum og allra- handa gögnum úr fórum írska skáldsins William Butler Yeats (1865-1939) þykir sýna hvernig hægt er að beita hefðbundinni framsetn- ingu í bland við hugvitssamlega margmiðlun til að gæða verkin lífi og undirbyggja skilning gesta á lífi og verkum skáldsins. Blaðamaður The New York Times segir sýninguna á meira en 1.000 hlutum sem tengjast Yeats frekar líkjast vefsíðu sem hægt sé að ganga um en hefðbund- inni sýningu. Auk Yeats sjálfs má heyra ýmis skáld lesa ljóð hans, kvikmyndir um skáldið eru sýndar og hægt er að fletta minnisbókum hans og handritum á snertiskjám. Persónuleg skjöl Yeats taka nær fjóra tugi hillumetra í Írsku þjóðar- bókhlöðunni. efi@mbl.is Stafrænn Yeats William Butler Yeats BANDARÍSKA leikkonan Sarah Jessica Parker hefur tekið að sér starf kynnis í nýrri, banda- rískri raunveru- leikaþáttaröð sem gengur út á að finna besta bandaríska myndlistarmann- inn. Þættirnir munu koma til með að heita American Artist, þ.e. Bandarískur myndlistarmaður. Hugmyndin að baki þáttaröðinni, líkt og með fjölda annarra sem kenna sig við raunveruleika, er að smala saman 12 ungum myndlistar- mönnum og láta þá glíma við ólíka stíla, stefnur og miðla myndlistar. Þeir munu falla úr keppni einn af öðrum, skv. ákvörðun dómnefndar sem skipuð verður „sérfræðing- um“, að því er fram kemur í frétt dagblaðsins Guardian. Að lokum stendur einn uppi sem „bandaríski listamaðurinn“. Þættirnir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni Bravo en fyrirtæki Parker, Pretty Match- es, framleiðir þá. Myndlistar- keppni í sjónvarpi Parker Áhugasöm um myndlist. PARQUES Majeures er franskur leik- og gjörn- ingahópur sem sérhæfir sig í sýningum á nýstárlegri hreyfi- myndlist. Hópurinn setti upp sýninguna Skin & The Whales um síðustu helgi á Húsavík og í kvöld og annað kvöld, föstu- dags- og laugardagskvöld, verður sýningin sett upp í Nor- ræna húsinu í Reykjavík. Hefj- ast sýningar klukkan 20 og taka um 40 mínútur. Verkið er eftir Marc Joseph Sigaud og skiptist í þrjá hluta. Þriðji hlutinn, Whales, varð til eftir ferð hans til Húsavíkur fyrir tveimur árum. Að- gangur á sýninguna er ókeypis. Leiklist Hvalir í franskri hreyfimyndlist Marc Joseph Sigaud Í SUMAR stendur Tónlistar- félag Ísafjarðar fyrir dagskrá í menningarhúsinu Hömrum, undir yfirskriftinni Sumar í Hömrum. Í kvöld, föstudags- kvöld, klukkan 20 opnar rúm- enski ljósmyndarinn Octavian Balea sýningu á verkum sín- um, undir yfirskriftinni Engill og brúða. Uppistaðan er mynd- ir sem tengjast Goldberg- tilbrigðum Bachs. Finnski harmóníkuleikarinn Terhi Sjöblom kemur fram á opnuninni en á morgun klukkan 16.00 heldur hún tónleika í Hömrum. Aðgangur er ókeypis en lista- fólkið hlaut styrk úr Norræna menningarsjóðnum til Íslandsferðarinnar. Menningardagskrá Ljósmyndir og nikkutónverk Octavian Balea Á SJÖUNDU og síðustu tón- leikum sumartónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, á morgun, laugardag, klukkan 15 kemur fram kvartett söngkonunnar Maríu Magnúsdóttur. Kvart- ettinn flytur eigin útsetningar á tónlist Joni Mitchell frá ár- unum 1968 til 1980. Auk Maríu skipa kvartettinn þeir Eðvarð Lárusson á gítar, Ingólfur Magnússon á bassa og Jón Óskar Jóns- son á trommur. María Magnúsdóttir útskrifaðist frá Tónlistar- skóla FÍH í vor og vinnur að sinni fyrstu plötu. Aðgangur á tónleikana er ókeypis. Djass Flytja tónlist eftir Joni Mitchell María Magnúsdóttir TÓNLISTARHÓPURINN Njúton kemur fram á hádegistónleikum á morgun í Ketilhúsinu á Akureyri og frumflytur tvö ný verk auk þriggja annarra. Nýju verkin eru 4 eftir Þráin Hjálmarsson, nema við LHÍ, og Estremadura eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, liðsmann hljómsveitarinnar Amiinu. Hin verk- in sem flutt verða eru Pes eftir Þur- íði Jónsdóttur, Stjörnumuldur eftir Karólínu Eiríksdóttur og Arnold eft- ir Ragnhildi Gísladóttur. Berglind María Tómasdóttir, list- rænn stjórnandi Njúton, segir að greina megi áhrif Amiinu í verki Maríu. Á tónleikunum leikur með Njúton önnur Amiinu-kona, Hildur Ársælsdóttir, á sög. Tónleikarnir eru hluti af Listasumri á Akureyri og hefjast kl. 12. Á sunnudaginn heldur Njúton tónleika heima hjá Berglindi í Reykjavík, á Grettisgötu 18, og verða þar flutt verk eingöngu eftir konur. „Við erum með sérstakt kvennaverkefni til styrktar Hlað- varpanum, menningarsjóði kvenna á Íslandi,“ segir Berglind. Tónleikarn- ir eru haldnir í samstarfi við Ingi- björgu Magnadóttur myndlistar- mann og eru áhugasamir hvattir til að banka upp á á Grettisgötunni hjá Berglindi. Hún lofar persónulegri stemningu, áheyrendur verði í mik- illi nálægð við hljómsveitina. Hversdagslegir hlutir fá líf Aftur til Akureyrar. Á morgun kl. 17 verður opnuð myndlistarsýning tveggja þýskra kvenna, Önnu K. Mields og Lindu Franke, í Deigl- unni. Hún ber yfirskriftina The Living House og þema hennar er „leyndardómurinn í hversdags- legum hlutum“, að því er segir á vef- síðu Listasumars. „Hvað ef þessir hversdagslegu hlutir fá sitt eigið líf? Er munur á trúnni á hið leyndar- dómsfulla og yfirnáttúrulega og há- tækni og funksjónalisma?“ spyrja Anna og Linda. helgisnaer@mbl.is Listakonur í öndvegi Njúton í Ketilhúsi og heimahúsi Ís í augað Anna Mields og Linda Franke fá sér ís með sínum hætti í rjóma- blíðu á Akureyri. Þær fremja gjörning í Deiglunni kl. 17 á morgun. Vefsíða Listasumars á Akureyri: listasumar.akureyri.is Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is BANDARÍSKI myndlistarmaðurinn og -kennarinn Creighton Michael heillaðist af íslensku landslagi á ferð sinni um landið fyrir fjórum árum. Nú hefur hann snúið aftur en þó ekki sem ferðamaður því hann er að setja upp sýningu í Hafnarborg sem opn- uð verður á morgun kl. 15. Sýningin heitir Bylgjulengdir. Á efri hæð Hafnarborgar blasir við framandlegt landslag dökkleitra forma sem við fyrstu sýn minna á hraunmola. Þarna er verkið „Rap- sody“ á ferð. Við nánari skoðun kem- ur í ljós að formin eru reipi hjúpað torkennilegu efni. Creighton upp- lýsir að reipið sé hjúpað blöndu úr pappír og blýi. Þetta sé því í raun teikning, nánar tiltekið „dimensional drawing“ eða „víddarteiknun“. Hann segir íslenskt hraun ekki innblástur verksins heldur vörður sem víða má finna á Íslandi. Þær hafi hann séð í fyrsta sinn á ævinni þegar hann heimsótti Ísland og hrifist mjög af. Sagnahefðin líka með Vörðurnar á gólfi salarins í Hafn- arhúsi eru, líkt og þær sem dreifðar eru um landið, innbyrðis ólíkar og allavega að stærð. Creighton segist hafa orðið snortinn af friðsældinni og kraftinum í íslenskri náttúru og fundið fyrir yfirþyrmandi tilfinningu andspænis henni, tilfinningu fyrir einveru. Pappírs- og blýblanda Creightons vísar ekki aðeins í teikn- ingu í sinni frumstæðustu mynd heldur einnig í bókmenntahefð Ís- lendinga, Íslendingasögurnar. „Þetta snýst að miklu leyti um vinnu- ferlið,“ segir Creighton um verk sín, hann spinni af fingrum fram, teikni nær ósjálfrátt. Því til dæmis sýnir hann blaðamanni verk á pappír sem eiga að fara á veggi Hafnarborgar og StartArt á Laugavegi, m.a. grafík- myndir þrykktar með blýlit, ris- myndir þrykktar upp úr blýverkum á pappír og ljósmyndagrafíkverk unnin upp úr víddarteikningunum. Eitt verk verður að öðru, hver myndaröð saga af teikniferli. Sjón er vissulega sögu ríkari. Teikningin vegsömuð Creighton Michael sækir innblástur til Íslands í tví- og þrívíðum teikningum Í HNOTSKURN » Alta L. Price, aðstoðar-maður Creightons, segir m.a. um verkið „Rapsody“: „Uppruni orðsins er líka at- hyglisverður – það á rót sína að rekja til gríska orðsins „rhapsoidia“ sem táknar framsögn söguljóða, það teng- ist sögninni „rhaptein“ sem þýðir að sauma eða sauma saman og „aidein“, að syngja.“ » Creighton Michael út-skrifaðist frá Háskólanum í Washington með MFA-gráðu í myndlist árið 1978. Hann hef- ur unnið til margra verðlauna, m.a. hlotið golden Foundation for the Arts Grant árið 2000 og Pollock Krasner-styrk 1985. Frekari fróðleikur á creightonmichael.com. Morgunblaðið/Frikki Víddarteikningar Creighton Michael við verk sitt „Rapsody“ í Hafnarborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.