Morgunblaðið - 25.07.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 25.07.2008, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Séra BirgirSnæbjörnsson, prestur og prófast- ur á Akureyri, fæddist á Akureyri 20. ágúst 1929. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfara- nótt fimmtudagsins 17. júlí síðastliðins á sjötugasta og ní- unda aldursári. Foreldrar Birgis voru Snæbjörn Þor- leifsson, bifreiðaeft- irlitsmaður á Akureyri, f. 22. mars 1901, d. 24. október 1959 og Jóhanna Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 9. desember 1895, d. 17. júní 1983. Systkini Birgis: Erla, f. 21. október 1927, d. 10. mars 1929 og Þorvaldur, rafvirkjameistari á Akureyri, f. 30. ágúst 1930. Hálf- systir samfeðra: Hulda Sigrún starfsstúlka, f. 19. maí 1923. 25. nóvember 1961 kvæntist Birgir Sumarrósu Lillian Eyfjörð Garðarsdóttur húsfreyju, f. 15. september 1928. Foreldrar henn- ar voru Garðar Júlíusson verka- maður, f. 20. júlí 1901, d. 20. febr- úar 1986 og Sigurveig Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. sept- ember 1901, d. 19. júní 1989. Börn Birgis og Sumarrósar eru: 1) Jóhanna Erla guðfræðinemi, f. Háskóla Íslands 31. janúar 1953. Hann var vígður 15. febrúar sama ár sóknarprestur í Æsustaða- prestakalli. Í júní sama ár voru honum veittir Æsustaðir. Veittur Laufás við Eyjafjörð 3. júlí 1959. Sr. Birgir var skipaður sókn- arprestur í Akureyrarprestakalli 26. október 1960 og prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi frá 15. júní 1986. Hann lét af prófasts- störfum 1. janúar 1999 og emb- ætti sóknarprests 31. ágúst sama ár. Frá 15. febrúar 2000 til 1. júlí var sr. Birgir svo skipaður sókn- arprestur í Möðruvallaprestakalli. Hann var stundakennari við Odd- eyrarskóla 1961 til 1990 og Gagn- fræðaskóla Akureyrar frá 1960 til 1992. Stundakennari við Háskól- ann á Akureyri nokkra vetur. Sr. Birgir sinnti margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum. Hann vann að barnaverndarmálum á Akureyri, auk æskulýðsmála. Var í stjórn Karlakórs Bólstaðarhlíð- arhrepps, Karlakórsins Geysis og Sambands norðlenskra karlakóra. Birgir var að auki meðlimur í Geysiskvartettinum. Sr. Birgir var jafnframt formaður Héraðs- nefndar Eyjarfjarðarprófasts- dæmis frá 1986 til 1999 og í stjórn Prófastafélags Íslands frá 1988 til 1999. Árið 2005 kom út bókin „Því ekki að brosa“ sem geymir glettin minningarbrot Birgis úr farsælu lífi hans og starfi. Útför sr. Birgis fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. 26. maí 1963, maki Magnús Einar Finns- son véltæknifræð- ingur, f. 21. júlí 1959, d. 13. febrúar 2005. Börn þeirra eru: a) Arnaldur Birgir tæknifræðinemi, f. 2. nóvember 1980, maki Anna Guðrún Árnadóttir sjáv- arútvegsfræðingur, f. 10. nóvember 1982. b) Andri Freyr vél- stjóri, f. 3. júlí 1984, maki Inga Kristín Sigurgeirsdóttir nemi, f. 1. sept- ember 1987. c) Sigrún María kennaranemi, f. 21. janúar 1986. 2) Birgir Snæbjörn myndlist- armaður, f. 13. maí 1966, maki Sigrún Sigvaldadóttir, grafískur hönnuður, f. 7. apríl 1965. Dætur Birgis Snæbjarnar eru: a) Ásta Björk hjúkrunarfræðinemi, f. 25. febrúar 1985, maki Þorsteinn Gunnar Gunnarsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, f. 29. febrúar 1980. b) Berglind Rósa nemi, f. 16. apríl 1988. Börn Sig- rúnar eru: a) Úlfur Þorvarðarson nemi, f. 27. október 1990. b) Assa Þorvarðardóttir nemi, f. 22. júlí 1993. Sr. Birgir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní 1949 og guðfræðiprófi frá Elsku afi. Það er sannarlega mikill missir sem við höfum orðið fyrir við fráfall þitt. Ekki aðeins fyrir okkur fjöl- skylduna heldur líka fyrir marga aðra í bænum. Þú varst mjög góð- hjartaður og örlátur maður og margir eiga eftir að muna eftir þér sem prestsins sem skírðir, fermdir, giftir og jarðaðir þá og ástvini þeirra. Það gerum við barnabörnin þín einnig. Við munum eftir þér þar sem þú sast inni á kontornum þínum að semja ræður. Þegar þú komst og fórst úr vinnu með stóru presta- töskuna þína sem stendur enn bak við hurð í forstofunni tilbúin fyrir næsta prestsverk. Taskan sem var eins og forboðin fjársjóðskista fyrir okkur krakkana. Þar geymdir þú hempuna þína og prestakragann sem þú góðfúslega leyfðir okkur að leika okkur með og voru þær ófáar giftingarathafnirnar sem fóru fram á stofugólfinu heima hjá ykkur ömmu, því öll vildum við vera eins og þú, séra Birgir, sem við héldum að þekktir alla í bænum því þér var heilsað stanslaust af fólki þegar við fórum með þér út. Við grínuðumst oft með það krakkarnir að þú þyrftir helst að setja hanska á rúðuþurrk- urnar og vera alltaf með þær í gangi til að hafa undan við að heilsa öllum. Það var hreint ævintýri að fá að fara með þér í vinnuna. Þar leiddir þú okkur stundum upp í kirkjuturn þar sem við fengum að skoða okkur um og jafnvel hringja kirkjuklukk- unum, leyfðir okkur að leggja undir okkur skrifstofuna þína og fylgdist með okkur fara upp og niður í lyft- unni í safnaðarheimilinu. Fyrir okkur varstu þó meira en aðeins séra Birgir. Fyrir okkur varstu fyrst og fremst afi. Maðurinn sem sagði okkur skemmtisögur af sjálfum þér fyrir háttinn, fórst með faðirvorið með okkur og signdir okk- ur. Kenndir okkur kristileg gildi. Afi sem fór oft með okkur, jafnvel öll fimm frændsystkinin í einu, í bíl- túr og keyptir handa okkur Brynjuís og happaþrennur eða keyrðir með okkur hring inn í Eyjafjörð þar sem þú sagðir sögur úr sveitinni eða söngst með okkur áður en stoppað var í Vín þar sem keyptar voru jarð- arberjabombur handa börnunum. Einnig hafðir þú einstaklega gaman af því að fara með okkur að veiða og fórum við ófáar ferðir út á Krossa- nesbryggju með rækjupoka og varstu alltaf jafn hreykinn af okkur hvort sem við höluðum inn kola eða marhnút. Stundirnar sem við áttum með þér austur í heiði, þar sem þið amma byggðuð handa okkur para- dís, voru einstakar. Við viljum þakka þér fyrir allar góðu minningarnar sem þú hefur gefið okkur og viljum við kveðja þig með bæn sem við fórum alltaf með saman fyrir svefninn. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín barnabörn, Arnaldur Birgir, Andri Freyr, Ásta Björk, Sigrún María og Berglind Rósa. Ég var á bökkum laxveiðiár í Þist- ilfirði er ég frétti af andláti föður- bróður míns Birgis og hugsaði með mér að honum hefði nú þótt gott að vita af mér þar. Hann var mikill áhugamaður um laxveiði og stundaði hana á árum áður þegar hann átti tíma aflögu á sumrin. Mínar fyrstu minningar af frænda mínum eru frá heimsóknum hans til okkar í Löngumýri, en þá var hann prestur á Æsustöðum og seinna í Laufási. Hann birtist í frakka með barðastóran hatt og í skóhlífum og gaukaði ávallt nokkrum krónum að okkur systkinunum og var aldrei kallaður neitt annað en „Frændi“. Fjölskylda mín föðurmegin var þá ekki stór, bræðurnir tveir Birgir og pabbi, og amma Jó en afi Snæbjörn lést þegar ég var fjögurra ára. Hálf- systir þeirra Hulda bjó þá og býr enn í Reykjavík. Seinna var ég þess aðnjótandi að starfa með honum í kirkjunni hans á Akureyri en þá var ég félagi í Æskulýðsfélagi Akureyr- arkirkju. Birgir var sögumaður mik- ill og sagði gjarnan skemmtisögur af sjálfum sér og samferðamönnum sínum. Hann átti auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á hversdagslífinu og var óspar á sögurnar sem við hin fengum að njóta þegar fjölskyldan kom saman. Hann tók seinna saman safn af sögum sem voru gefnar út í bók fyrir nokkrum árum sem hann kallaði „Því ekki að brosa“. Á haustdögum 1955 þegar Birgir hafði verið sóknarprestur á Æsu- stöðum í u.þ.b. eitt og hálft ár var honum fengið að skíra mig og 14 ár- um seinna að ferma mig í Akureyr- arkirkju. Seinna gifti hann okkur hjónin í stofunni hjá foreldrum mín- um, en í þá daga mátti ekki helst ekkert tilstand vera við slíkar at- hafnir. Birgir skírði börnin okkar fjögur og fermdi. Þrjú elstu börnin komu frá Englandi þar sem við bjuggum til að fermast í Akureyr- arkirkju og treysti hann mér til þess sjá um fermingarundirbúning þeirra og tók ég því hlutverki mjög alvar- lega og sá til þess að þau kynnu allar bænir og sálma sem krafist var af þeim. Birgir var hættur prestskap er kom að því að yngsta dóttirin fermdist. Hún fékk sína fermingar- fræðslu í hjá sóknarprestum okkar hér í Reykjavík en er fermingardag- urinn nálgaðist jókst sú löngun fermingarbarnsins að fá að fermast í kirkjunni þar sem hún var skírð. Það var því ákveðið að tala við Birgi og kanna hvort hann gæti tekið verk- efnið að sér. Hann tók vel í þá beiðni og eftir að hafa ráðfært sig við sókn- arprestinn okkar var ákveðið að at- höfnin færi fram í Akureyrarkirkju á skírdag árið 2004. Fjölskylda og vinir söfnuðust saman í kirkjunni og Birgir fermdi stúlkuna með dyggri aðstoð vinar okkar Jóns A. Baldvins- sonar vígslubiskups á Hólum. Þessi stund í kirkjunni verður lengi í minnum höfð sökum þess hve hún var persónuleg, látlaus og einlæg. Mig langar að leiðarlokum þakka frænda mínum samferðina. Hann mun um ókomna tíð eiga stóran sess í hjarta mínu og minningarnar sem ég og fjölskylda mín geymum um góðan mann munu ávallt vera með okkur. Rósu, Jóhönnu Erlu, Birgi Snæ- birni og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Margrét Þorvaldsdóttir. Séra Birgir Snæbjörnsson, ná- granni minn og vinur, er látinn. Margar góðar minningar fylla nú hug minn. Það mun vera nærfellt hálfur fimmti áratugur síðan kynni okkar sr. Birgis hófust. Áður þekkti ég hann rétt í sjón, en hafði oft heyrt hans getið og ætíð að góðu einu. Á þessu árabili var hann orðinn prest- ur hér á Akureyri, en sinnti oftar en einu sinni tímabundið störfum sókn- arprests í Möðruvallaklausturs- prestakalli. Fermdi hann á þessum árum tvö af börnum okkar hjóna og skírði eitt þeirra. Í þessum fáu minningarorðum mun ég þó hvorki rekja störf sr. Birgis á vegum kirkj- unnar né félagsmálastörf hans á öðr- um vettvangi. Það munu aðrir gera og geta betur en ég. Vel veit ég, að hann var hvarvetna mjög virtur og vinsæll prestur og eftirsóttur til starfa, einnig eftir að hann lét af embætti. Fyrir nokkrum árum sagði hann mér hve mörg börn hann hafði skírt. Man ég ekki þá tölu nákvæma, en hún mun hafa verið vel á sjötta þúsundinu. Segir þetta sína sögu um vinsældir sr. Birgis, en einnig það, að oft mun hann hafa komið þreyttur heim að dagsverki loknu. Þegar við hjónin fluttum til Ak- ureyrar, vildi svo til að sr. Birgir og Sumarrós kona hans urðu okkar næstu nágrannar. Vel veit ég, að ómetanlegt er það hverjum manni að búa við gott nágrenni, hvort held- ur er í sveit eða bæ. Rósa og Birgir tóku okkur strax tveim höndum og vildu allt fyrir okkur gera. Aldrei var sr. Birgir heldur spar á þakk- lætið, væri honum greiði gerður, hversu smávægilegur sem hann var. Sýnir það glöggt ljúfmennskuna sem var svo ríkur þáttur í eðli hans. Sr. Birgir var oft manna glaðastur í góðra vina hópi, hafði reynt margt og kynnst mörgum, meðal annars kynlegum kvistum sem hann sagði sögur af. Hann sagði skemmtilega frá. Jafnan dró hann fram það já- kvæða, er segja mátti um viðkom- andi persónu og lét aldrei falla hnjóðsyrði um nokkurn mann. Eins og títt er um góða sögumenn sagði hann þó líklega flestar sögurnar af sjálfum sér og sparaði stundum ekki að lýsa óförum sínum. Var þá ekki laust við að áheyrendum þætti hann færa söguna nokkuð í stílinn, en hann brosti sínu góðlátlega brosi eða hló við og fékk þá aðra til að gjöra slíkt hið sama. Í bók sinni „Því ekki að brosa“ segir hann frá ýmsu í létt- um dúr. Varð sú bók vinsæl og eft- irsótt. Í stuttu máli má segja um sr. Birgi að hann var góður maður í þess orðs fyllstu og bestu merkingu. Held ég að það hljóti allir að hafa fundið sem hann þekktu. Þessi minningarorð eru nú þegar orðin fleiri en þeim var ætlað að verða. Er þó margt ótalið. Hef ég til dæmis ekki nefnt sönginn, sem var svo ríkur þáttur í eðli sr. Birgis og lífi hans, en hann söng áratugum saman með Karlakórnum Geysi og Geysiskvartettinn, sem hann mynd- aði ásamt félögum sínum, þekkja víst flestir, svo vinsæll sem hann var. En hér skal staðar numið. Ég vil að lokum þakka af alhug hin löngu og góðu kynni. Við Dóra sendum Rósu, eiginkonu sr. Birgis, börnum þeirra og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu séra Birgis Snæbjörnssonar. Arnsteinn Stefánsson. Við Birgir Snæbjörnsson tilheyrð- um sömu stórfjölskyldunni í aldar- fjórðung. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að kynnast honum vel. Hann vann að sjálfsögðu öll prests- verk sem tengdust mér og mínum. Hann hefur snert líf mitt með sér- stökum hætti, eins og þúsunda ann- arra samferðamanna sinna. Síðasta barnið sem hann skírði var sonar- sonur minn og síðasta fjölskyldu- veislan sem hann tók þátt í var stúd- entsveisla dóttur minnar þann 17. júní. Með örfáum kveðjuorðum þakka ég samferðina og sendi Rósu, Jóhönnu, Bibba, öllum aðstandend- um, ættingjum og vinum dýpstu samúðarkveðjur. Birgir var einstak- lega góður maður og gegnheill. Í lundarfari hans og háttalagi var meiri hlýja og velvilji en almennt fyrirfinnst hjá besta fólki. Hann var fæddur til að gegna ævistarfi sínu. Hann var auk þess annálaður sagna- maður og frægur húmoristi. Engan hef ég þekkt sem naut víðtækara trausts í brjóstum samborgara sinna. Ef boðberar trúar og fegurra mannlífs í veröldinni gætu komið til skila nærveru Birgis Snæbjörnsson- ar, ríkti friður á jörðu og mann- gæska. Bjarni Hafþór Helgason Ekki er fjarri lagi þótt staðhæft sé, að sprenging hafi orðið í guð- fræðideild Háskóla Íslands haustið 1949 þegar sex stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri innrit- uðust í deildina og hófu þar nám. Fáum árum áður voru prófessorar deildarinnar fleiri en nemendurnir, svo viðbrigðin urðu mikil. Allir luku sexmenningarnir embættisprófi og gengu í þjónustu kirkjunnar. Og prófastar urðu þeir allir áður en starfstíma þeirra lauk. Nú hefir sá fyrsti verið kvaddur til hinstu ferðar. Sr. Birgir Snæbjörns- son fyrrv. prófastur á Akureyri er horfinn úr hópnum. Birgir var ein- stakt ljúfmenni. Góðvild, mann- gæska og hjálpfýsi voru eiginleikar, sem hann var gæddur í ríkum mæli og ekki gleymist það hvílíkur húm- oristi hann var þegar gleðin sat að völdum. Við útskrift á stúdentsprófi var það föst regla að piltarnir klæddust smóking. En á þeim árum var erfitt að fá hentugt efni í slíkan fatnað. Þá greip faðir Birgis, Snæbjörn Þor- leifsson, til þess ráðs að panta sjálf- ur fataefni fyrir son sinn. Og svo var pöntunin rífleg að nóg var eftir í smókinga sem nokkrir bekkjar- bræður og vinir Birgis nutu góðs af. Undirritaður var í þeim heppna hópi og aldrei fékk ég að borga neitt fyrir það mikla drengskaparbragð. Birgir var góður söngmaður og tók mikinn þátt í sönglífi lengst af ævi sinnar. Í skólanum söng hann bæði í skólakórnum og í tvöföldum kvartett, sem á tímabili starfaði inn- an bekkjarins. Hann var einstakur skólaþegn. Alla sex veturna í MA mætti hann hvern einasta dag og aldrei of seint. Það segir sína sögu. Sem prestur og prófastur naut hann verðskuldaðra vinsælda alla tíð. Betri vinur og drengilegri starfsbróðir er vand- fundinn. Guð blessi þær ljúfu og björtu minningar, sem hann lætur eftir sig. Eiginkonu hans, Sumarrós Garð- arsdóttur, börnum þeirra og öðrum ástvinum sendi ég hlýjar og einlæg- ar samúðarkveðjur. Björn Jónsson. Í Jóhannesarguðspjalli (1, 47) er þetta ritað: Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: „Hér er sannur Ísraelíti, sem eng- inn svik eru í“. Þegar ég les þessa fögru lýsingu Frelsarans kemur mér í hug minn kæri bekkjar- og starfsbróðir séra Birgir Snæbjörnsson. Um persónu hans lék heiðríkja gleði og góðvildar. Þau einkenni voru honum meðfædd og eðlislæg og snar þáttur í allri skaphöfn hans. Hann stundaði nám við Mennta- skólann á Akureyri í sex vetur og sótti hverja einustu kennslustund og kom aldrei of seint. Fátt sannar bet- ur samviskusemi hans og viljafestu. Hann var í hópi okkar sem braut- skráðumst stúdentar frá MA vorið 1949. Við söknum hans nú en mun- um jafnan minnast hans með virð- ingu og einlægri þökk. Birgir var gleðivaki og hafði forustu um sam- fundi okkar á Akureyri er við fögn- uðum tímamótum sem stúdentar. Hann var gæddur glaðhýrri glettni, var næmur á hið sérstæða í fari manna og kunni manna best að segja á fjörugan hátt frá því eða skemmti- legum atvikum. Að loknu stúdentsprófi hóf hann nám í guðfræði við Háskóla Íslands og lauk þar prófi í janúar 1953 og vígðist prestur 15. febrúar það ár. Hann þjónaði í tveimur prestaköll- um í sveitum norðanlands og stund- aði jafnan búskap bæði á Æsustöð- um og í Laufási. Árið 1960 var hann skipaður sóknarprestur og einnig var hann prófastur í Eyjafjarðarpró- fastsdæmi auk þess sem hann þjón- aði tímabundið ýmsum nágranna- sóknum og einnig annaðist hann prestþjónustu í Grímsey. Mörg trúnaðarstörf voru honum einnig falin. Öll prestsþjónusta fórst hon- um vel. Hann tónaði manna fegurst enda gæddur prýðilegri söngrödd. Boðun hans var björt og byggð á einlægri trú hans á kærleika Guðs í Jesú Kristi. Hann var félagsfús og virkur vel á víðum vettvangi ýmissa félagsmála og um leið reyndist hann vinur bæði í gleði og raun. Hið fjöl- breytta og margbrotna lífsstarf afl- aði honum dýrmætrar reynslu sem hann miðlaði mörgum til heilla. Hið stóra var að sr. Birgir var samt ávallt hinn sami, heill og sannur. Hann tók þátt í starfsemi ýmissa kóra og einnig var hann félagi í hin- um vinsæla Smárakvartett á Akur- eyri sem fór víða og gladdi fólk með söng sínum. Séra Birgir var farsæll maður í lífi og starfi, hollur og trúr þjónn kirkjunnar. Í öllu ávann hann sér vinsældir starfssystkina, safnaða Birgir Snæbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.