Morgunblaðið - 31.07.2008, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í GEGNUM árin hefur verið rætt
um að fylgifiskar verslunarmanna-
helgarinnar séu óhófleg áfengis-
neysla, vímuefnaneysla og nauðg-
anir. Fjölmiðlar keppast við að
telja upp tilvikin og í ár verður
ekki brugðið frá hefðinni.
Aldrei hafa komið upp jafn mörg
fíkniefnamál og árið 2006, vel á
annað hundrað, árið 2004 voru
skráð 105 fíkniefnabrot og í fyrra
voru málin um og yfir þrjátíu.
Erfiðara er að segja til um fjölda
kynferðisbrota, en engar nauðg-
anir voru tilkynntar um síðustu
verslunarmannahelgi og tvær árið
2006. Árið 2001 var tilkynnt um
ellefu kynferðisbrot í tengslum við
útihátíðina Eldborg.
Líkamsárásir hafa einnig verið
fremur margar í gegnum árin.
Árið 2006 var tilkynnt um átta
árásir – utan Reykjavíkur. Allar
voru þær minniháttar utan einnar.
Í fyrra var svo tilkynnt um sjö
árásir.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
VÆNTINGAR til verslunarmanna-
helgarinnar eru miklar og sama
hvert leitað er: til tilvonandi gesta,
mótshaldara eða lögreglu. Viðmæl-
endur Morgunblaðsins virtust marg-
ir hverjir horfa til síðasta árs en þá
einkenndi helst hátíðarhöld ágætis
veður og fá lögbrot.
Ef fer sem horfir er talið víst að
skipting fólks niður á skemmtanir
verði með svipuðu móti og í fyrra.
Fjölmennasta útihátíðin verður
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og bæj-
arhátíðirnar Ein með öllu á Akur-
eyri og Neistaflug á Neskaupsstað
munu draga marga að.
Mótshaldarar og lögreglan í Eyj-
um eru sammála um að hátíðin í ár
geti orðið sögulega fjölmenn. Til
merkis um það má nefna að um 50%
fleiri farþegar eru bókaðir í flug með
Flugfélagi Íslands til Eyja um
helgina. Þannig verða farnar 23
ferðir frá Vestmannaeyjum á mánu-
daginn kemur og uppselt í þær allar.
Herjólfur verður einnig þéttset-
inn. Uppselt er í ferðir í dag og á
morgun og svo aftur á mánudag og
þriðjudag. Einnig er að seljast upp í
ferðir á laugardag og sunnudag.
Sofið á milli sjö og tíu
Á Akureyri er einnig búist við
miklum fjölda. Sér í lagi ungu fólki,
eftir að tekin var ákvörðun um að
reka sérstakt tjaldsvæði fyrir átján
ára og eldri. Heyrst hefur af áhyggj-
um bæjarbúa vegna þessa, en hjá
íþróttafélaginu Þór, sem rekur tjald-
svæðið, reikna menn með að allt
gangi að óskum. Þó er gengið út frá
því að ekki verði mikið sofið á tjald-
svæðinu, nema helst á milli sjö og tíu
á morgnana. Reynslan hefur sýnt sig
að það eru rólegustu vaktir gæslu-
manna.
Fíkniefnaeftirlit um land allt
Hjá lögregluembættunum á Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum hefur
verið lögð mikil vinna í fíkniefnaeft-
irlit að undanförnu. Til dæmis hefur
betur verið fylgst með póst- og vöru-
sendingum og afskipti höfð af ein-
staklingum grunuðum um fíkniefna-
sölu. Um liðna helgi fengu embættin
aðstoð teymis fíkniefnalögreglu-
manna frá höfuðborgarsvæðinu.
Ríkislögreglustjóri sér um sam-
ræmt fíkniefnaeftirlit um helgina og
frá og með deginum í dag og fram
yfir helgi verða þrjú teymi fíknefni-
lögreglumanna og tollvarða með leit-
arhunda á ferð um landið.
Hvert á land heldur unga fólkið?
Mikill fjöldi verður á þjóðhátíð og sér-
stakt tjaldsvæði á Akureyri dregur að
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eldborg 2001 Unga fólkið flykktist á Eldborgarhátíðina árið 2001.
BLÓÐBANKINN býr sig þessa
dagana undir komandi versl-
unarmannahelgi. Sigríður Ósk
Lárusdóttir deildarstjóri segir að
einatt sé stefnt á að hafa birgða-
stöðuna góða fyrir svo stóra ferða-
helgi.
„Annars hefur gengið erfiðlega
að fá nægilega marga blóðgjafa
enda eru flestir föstu blóðgjaf-
arnir okkar í fríi. Svo fara margir
í ferðalög, jafnvel inn á mal-
aríusvæði, og eru þá úr leik í
nokkuð langan tíma.“
Hún segir þó að birgðastaða
Blóðbankans sé nokkuð góð og
þar á bæ ríki almenn bjartsýni
fyrir helgina. „Við þurfum helst
að fá svona 70 blóðgjafa á dag
fram að helginni og það er yf-
irleitt sá fjöldi sem kemur hingað
daglega,“ segir Sigríður.
Tölvukerfi Blóðbankans hrundi
um stundarsakir í gær en það
bitnaði lítið sem ekkert á starf-
seminni. haa@mbl.is Morgunblaðið/Frikki
Blóðbirgð-
um safnað
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
VÍSINDAMENN Íslenskrar
erfðagreiningar greindu í tímarit-
inu Nature í gær frá svonefndum
úrfellingum sem fundust við rann-
sókn á erfðamengi mannsins. Úr-
fellingarnar auka áhættu þeirra,
sem bera þær í erfðamenginu, á
því að fá geðklofa.
Rannsóknin var unnin í sam-
vinnu við Landspítalann, Háskóla
Íslands, Evrópusambandsstyrkta
rannsóknahópinn SGENE og aðra
samstarfsaðila um víða veröld.
Um það bil einn af hverjum
5.000 ber slíkar úrfellingar í erfða-
mengi sínu og geta þær allt að
fimmtánfaldað líkur á því að við-
komandi einstaklingur greinist
með geðklofa.
Úrfellingarnar verða við kyn-
frumuskiptingu og þær geta því
erfst frá foreldrum til barna.
Rannsóknin er sú fyrsta sinnar
tegundar sem sýnir fram á slík
tengsl milli geð-
sjúkdóma og úr-
fellinga í erfða-
mengi. Að sögn
getur uppgötv-
unin orðið fyrsta
skrefið að þróun
erfðagreining-
arprófa til notk-
unar samhliða
hefðbundinni
greiningu geð-
klofa. Þá er vonast til að þessi upp-
götvun leiði til þess að hægt verði
að greina einstaklinga og hefja
meðferð við geðklofa fyrr en áður.
Opnar möguleika
„Við byrjuðum einfaldlega á því
að leita að úrfellingum í erfða-
mengi Íslendinga og þegar þær
fundust var athugað hvort þær
tengdust geðklofa. Það kom á dag-
inn að þrjár þeirra gerðu það og
juku töluvert líkur á geðklofa.
Þá voru sex aðrar þjóðir athug-
aðar og í ljós kom að þetta er ekki
sér-íslenskt fyrirbrigði,“ segir Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar.
Hann bætir við: „Þetta er spenn-
andi því hingað til hefur reynst erf-
itt að finna stökkbreytingar sem
tengjast sjúkdómum í heila. Þó
þessar úrfellingar sem við segjum
frá í dag [í gær] skýri ekki nema
lítinn hundraðshluta af tilfellum af
geðklofa þá opna þær þann mögu-
leika að við finnum fleiri. Með smá
heppni gætum við svo búið til
erfðagreiningarpróf sem myndi
hjálpa til við greiningu á geðklofa.“
Kári segir ekki mega gleyma því
að geðklofi sé sjúkdómur sem hafi
áhrif á hugsun og tilfinningar. „Sú
staðreynd að við höfum nú fundið
erfðavísa sem tengjast óeðlilegri
hugsun og tilfinningum veitir þann
möguleika að í gegnum rannsóknir
gætum við mögulega myndað
skilning á því hvernig hugsun virk-
ar. Hún er það sem skilgreinir
okkur sem dýrategund og ein-
staklinga.“
Varpa ljósi á orsakir geðklofa
Ný rannsókn sýnir að úrfellingar í erfðamengi mannsins auka líkur á geðklofa
Vona að uppgötvunin leiði til að hægt verði að greina einstaklinga fyrr en áður
Í HNOTSKURN
»Vísindamenn Íslenskrarerfðagreiningar greindu í
tímaritinu Nature í gær frá
uppgötvun úrfellinga í erfða-
mengi manna sem tengjast
geðklofa. Slíkt tengsl hafa
hingað til verið óþekkt.
»Rannsóknin var unnin ísamvinnu við Landspítala,
Háskóla Íslands og ýmsa sam-
starfsaðila um víða veröld.
» Í gegnum tíðina hefurreynst erfitt að greina
stökkbreytingar sem valda
sjúkdómum í heila.
»Úrfellingar eru sjaldgæf-ar stökkbreytingar í
erfðamengi og rannsóknir
hafa hingað til að mestu
beinst að algengum stökk-
breytingum.
Kári
Stefánsson
Ofbeldi, dóp
og nauðganir
TILKYNNT var um eld í yfirgefinni
saltsölu við höfnina í Keflavík í gær-
dag. Mikill hiti var í brunanum en
slökkvistarf gekk vel.
Þrír 15 ára drengir voru yfir-
heyrðir seinna um daginn. Þeir
höfðu sést á vappi við gömlu saltsöl-
una fyrr um daginn og á þeim fund-
ust kveikjarar. Málið er enn í rann-
sókn. haa@mbl.is
Yfirheyrðir
vegna bruna
LÆKNAR felldu kjarasamning,
sem gerður var fyrr í mánuðinum,
með 57% atkvæða. Rúmur helm-
ingur félagsmanna greiddi atkvæði.
Að sögn Gunnars Ármannssonar,
lögfræðings í samninganefnd
Læknafélags Íslands, fól samning-
urinn í sér of litla hækkun á grunn-
launum og launum almennt. Um var
að ræða 4,14% hækkun en Gunnar
segir að samninganefndin hafi talið
að hærra yrði ekki komist öðruvísi
en að selja önnur réttindi. Of
snemmt sé að segja til um hvort
grípa þurfi til þeirra ráða nú.
Reiknar með að viðræður verði
teknar upp að nýju í haust
Gunnar reiknar með að viðræður
hefjist að nýju í haust. Fyrst þurfi að
tilkynna fjármálaráðuneytinu um
höfnun samningsins en síðan verði
Læknafélagið að ákveða framhaldið.
„Það er of snemmt að segja hver
næstu skrefin við samningaborðin
verða.“ ylfa@mbl.is
Læknar
felldu
nýgerðan
kjarasamning
FJÖGUR innbrot voru tilkynnt til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
í fyrradag og fyrrinótt. Fartölvu var
stolið úr íbúð í miðborginni og á
sama svæði hvarf geislaspilari úr
húsnæði skemmtistaðar.
Þá var tölvubúnaði stolið úr fyrir-
tæki í Hlíðunum og í sama hverfi
gerðist einhver svo bíræfinn að stela
þurrkara úr sameign. haa@mbl.is
Innbrot
í borginni