Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 11 FRÉTTIR iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 Útsala 50% afsláttur FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is BÍLAUMBOÐIÐ Ræsir hf. tilkynnti í gær til Vinnumálastofnunar að 57 starfsmönnum verði sagt upp hjá fyrirtækinu vegna rekstrarerfið- leika. Þar af eru 49 fastráðnir starfs- menn og átta sumarstarfsmenn. Ræsir hefur umboð fyrir Mercedes Benz-bifreiðar og flutti í nýtt hús- næði við Krókháls í Reykjavík fyrir um ári. Óábyrgt að gera þetta ekki Geir Zoëga stjórnarformaður sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fundur yrði haldinn um kvöldið þar sem ástæður uppsagn- anna yrðu útskýrðar fyrir starfsfólki. Fulltrúar verkalýðsfélaganna VR og FIT yrðu viðstaddir ásamt trún- aðarmönnum starfsfólks sem gæfu því leiðbeiningar að því loknu. Geir sagði viðsnúning hafa orðið í rekstri félagsins. „Við erum að reyna að komast hjá gjaldþroti. Það væri óábyrgt af stjórninni að gera þetta ekki eins og staðan er í dag. Við vilj- um finna lausn svo að sem flestir haldi vinnunni,“ sagði hann, en vildi ekki útskýra rekstrarerfiðleikana nánar að svo stöddu. Skammt er stórra högga á milli í atvinnulífinu um þessar mundir. Í gær bárust fréttir af gjaldþroti bygg- ingavörufyrirtækisins Mest og hóp- uppsögn hjá Byggingafélaginu Kambi, sem var tilkynnt í júlí. Í júní voru svo miklar hópuppsagnir í flug- geiranum. Í gær var skipaður skipta- stjóri þrotabús Mest, Steinunn Guð- bjartsdóttir hæstaréttarlögmaður. Skv. upplýsingum frá Borgar- lögmönnum, þar sem Steinunn starf- ar, verður innköllun á kröfum í búið auglýst á næstunni, en eftir það hafa kröfuhafar tveggja mánaða frest til að lýsa kröfum sínum í búið. Fleiri hópuppsagnir framundan Aðspurður segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, að ekki sé ann- að að sjá í spilunum en að hóp- uppsögnum og gjaldþrotum muni fara fjölgandi. „Á sumrin er líka mest um að vera, svo ég reikna með að við munum sjá meira af þessum ísjaka sem er undir yfirborðinu, þegar fer að hausta.“ Hjá samtökunum hafi fólk veður af mörgum fyrirtækjum sem hafi verið að segja upp og ansi margir starfsmenn séu enn að vinna í uppsagnarfresti. Hann búist frekar við slíku hjá smærri og meðalstórum fyrirtækjum. Stærri verktakar séu í blönduðum verkefnum en t.d. ekki einungis starfandi á íbúðamarkaði. Morgunblaðið/Frikki Vinnupallar og kranar Framkvæmdir eru víða í gangi, en þó hefur hægt á. Rekstur margra fyrirtækja er orðinn mun erfiðari en hann var fyrir ári. Rís ísjakinn í haust?  57 sagt upp hjá Ræsi hf. vegna rekstrarerfiðleika  31,3% aukning greiðslna úr Ábyrgðarsjóði launa frá fyrra ári  Skiptastjóri þrotabús Mest skipaður í gær ALLNOKKRIR félagsmenn VR missa vinnuna við hópuppsögn Ræsis hf. Gunn- ar Páll Pálsson, formaður VR, segir skráð at- vinnuleysi meðal félagsmanna þó mjög lítið nú í samanburði við atvinnuleysi undanfarinna ára. 275 félagsmenn í VR greiddu félagsgjöld af atvinnuleysisbótum í júní, sem svarar til 0,96% fé- lagsmanna. Það megi hins vegar að ein- hverju leyti skýra með því að VR sér ekki lengur um afgreiðslu at- vinnuleysisbóta eins og áður var, heldur Vinnumálastofnun. Verið geti að stofnunin veki ekki athygli fólks á því jafnmikið og VR gerði, að merkja þurfi sérstaklega við ef fólk ætlar að greiða félagsgjöld af atvinnuleysisbótum. Því geti verið að atvinnulausir sem hafa verið félagar í VR séu eitthvað fleiri. 0,96% án atvinnu í VR Gunnar Páll Pálsson HJALTI Már Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Mest, segir Glitni verða stærsta kröfuhafann í þrotabú fyr- irtækisins. Einn- ig séu aðrir að- ilar sem eigi stórar kröfur. Þeir séu bæði innlendir og erlendir en hann geti ekki talið þá upp að svo stöddu í stærðarröð. Það sé ekki tímabært á þessu stigi málsins. Eftir eigi að stilla bókhald fyr- irtækisins af fram til þessa dags. Það geti tekið nokkurn tíma og verði gert undir handleiðslu ný- skipaðs skiptastjóra. Tíma þurfi til að vinna úr málunum áður en meira sé hægt að gefa upp. Glitnir á stærstu kröfurnar Hjalti Már Bjarnason Eftir Andra Karl andri@mbl.is INNBROTUM á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað að meðaltali um tuttugu á mánuði ef born- ir eru saman fyrstu sjö mánuðir ársins við sama tíma í fyrra. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins tekur fram að sveiflur séu í þessum málum en seg- ist jafnframt ánægður með hvert stefnir. „Við sjáum í þessum tölum að eitt og annað sem við er- um að gera virðist bera árangur.“ Fyrstu sjö mánuði ársins voru framin 1.015 inn- brot á höfuðborgarsvæðinu, eða 145 brot á mán- uði. Á sama tíma í fyrra hafði verið tilkynnt um 1.173 innbrot eða um 167 á mánuði. Árið 2002 voru það svo 225 innbrot á mánuði. „Þetta er það sem hefur verið að gerast á undanförnum árum, inn- brotum virðist vera að fækka. Þetta virðist vera á réttri leið og okkur þykir það ánægjulegt,“ segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri. Fullnýting lagaheimilda skilar árangri Stefán segir að eiginlega megi skipta þeim sem stunda innbrot í tvo hópa. Annars vegar vímu- efnafíkla sem fjármagna eigin neyslu með inn- brotum og hins vegar menn í skipulagðri glæpa- starfsemi, sem hann segir hafa aukist jafnt og þétt á umliðnum árum. „Mismunandi aðferðir þarf til að takast á við þessa tvo hópa og það sem við höfum m.a. verið að gera er að efla okkar grein- ingarvinnu. Við sjáum til dæmis að hluti af þessari skipulögðu starfsemi birtist í því að þjófarnir reyna að koma þýfinu úr landi með einföldum póstsendingum.“ Áhersla hefur verið lögð á að fullnýta heimildir laga til að beita gæsluvarðhaldi þegar kemur að innbrotum og segir Stefán það einnig skipta máli. „Það skilar því að skilvirknin í þessum málum er meiri og við náum að taka þá úr umferð fyrr sem eru hvað virkastir. Þetta voru margir tugir ef ekki hundruð mála bara á síðasta ári þar sem við beitt- um þessari aðferðafræði, þ.e. að leggja kröfu fyrir dómstóla um að menn sem grunaðir voru um inn- brot og önnur sambærileg auðgunarbrot væru úr- skurðaðir í svonefna síbrotagæslu. Fyrir vikið voru þeir fljótt og vel ákærðir og dæmdir til refsi- vistar.“ „Stundum setjum við í þann stóra“ Stór þjófnaðarmál hafa einnig verið upplýst með öflugu eftirliti með póstsendingum úr landi. Hákon Sigurjónsson lögreglufulltrúi segir send- ingar þýfis úr landi hafa byrjað smátt en um þess- ar mundir sé þetta líkt og vera í botnlausri tunnu. Sérstaklega er fylgst með sendingum til Pól- lands, Litháen, Slóvakíu, Lettlands, Rúmeníu og Búlgaríu. Það er sökum þess að þýfismál hafa komið upp í tengslum við öll löndin. Hákon segir gífurlega miklu af verkfærum stolið til að senda utan en einnig fatnaði, tölvum, símum – raunar öllu sem hægt er að selja. „Við erum þarna í hálf- gerðu geri. Við erum að dorga og stundum setjum við í þann stóra“ Innbrotum hefur fækkað  Tveir hópar brjótast aðallega inn, fátækir fíklar og skipulagðir glæpahópar  Mismunandi aðgerðum þarf að beita og hefur greiningarvinna verið stórefld Í HNOTSKURN »Hluti þess hóps sem er í innbrotum erað fjármagna eigin fíkniefnaneyslu. Þessu fólki býðst að nýta samkomulag milli lögreglunnar og SÁÁ, sem tryggir því pláss hjá SÁÁ. »Þar sem margir eru á faraldsfæti umhelgina er gott að búa vel að húsnæði sínu. Innbrot hafa verið fremur tíð um verslunarmannahelgar liðinna ára. »Betra er að hringja einu sinni of oft ílögregluna en að sleppa því. ÁBYRGÐARSJÓÐUR launa ábyrgist greiðslu vangoldinna launa, bóta vegna slita á ráðningarsamningi, orlofs, bóta vegna vinnuslysa og lífeyrissjóðsiðgjalda. Á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 borgaði Ábyrgðarsjóður launa út 283 milljónir króna, að sögn Unnar Sverrisdóttur, lög- fræðings hjá Vinnumálastofnun. Á sama tímabili þessa árs voru hins vegar greiddar út 371,5 milljónir, sem er 31,3% aukning. Á öllu árinu 2007 var óskað eftir orlofs- greiðslum úr sjóðnum vegna nítján fyrirtækja sem ekki gátu greitt það út sjálf, en sá fjöldi getur verið vísbending um fjölda fyrirtækja sem eru að komast í þrot, þótt þau séu ekki endilega búin að lýsa sig gjaldþrota. Það sem af er þessu ári hefur verið óskað eftir orlofs- greiðslum úr sjóðnum vegna 34 fyrirtækja. Að sögn Hugrúnar Jóhann- esdóttur hjá Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu voru 1.324 á atvinnuleysisskrá þar í gær. Það er að hennar sögn lítið miðað við fjölda nýskráninga að undanförnu, en vel hefur gengið að finna fólki nýja vinnu. Ábyrgðarsjóður launa borgar mun meira út

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.