Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN EINS og flestir vita getur lífið verið breyti- legt og stormar geisa milli þess sem sólin skín. Þessa dagana eru því miður blikur á lofti um að þúsundir Íslend- inga muni standa frammi fyrir fjárhags- erfiðleikum næstu mánuðina og jafnvel árin. Það þarf ekki endilega að fylgja því skömm að lenda í fjárhagslegum áföllum eða erfiðleikum. Ástæðurnar eru sjálfsagt jafn margar og tilfellin. Þannig er málum háttað í okkar vina- og frændaþjóðfélagi að sumir fá lausn sinna mála hjá lánastofn- unum og fjármálafyrirtækjum á meðan hurðinni er skellt á nefið á öðrum. Það eru án efa fjöldamörg dæmi þess að það hafi verið gengið fjárhagslega milli bols og höfuðs á fólki sem hefði getað greitt úr sínum málum ef því hefði verið gefið tæki- færi til þess. Þegar fólk lendir í fjár- hagslegum áföllum og því er sam- tímis neitað um frekari viðskipti við bankana hópast að aðilar sem allir vilja fá sinn skerf af liggjandi bráð- inni og nánast allar skuldir fólks tvö- faldast hið minnsta. Þegar svo er komið getur viðkomandi oft lítið ann- að gert en að bíða aftökunnar með kvíðahnút í maganum. Í ljósi fréttaflutnings undanfarið tel ég þörf á því að benda beinum eða óbeinum kjölfestufjárfestum Glitnis, Jóhannesi og Jóni Ásgeiri, á að það er fjöldinn allur af einstaklingum og fjölskyldum að upplifa þær tilfinn- ingar um árásir og valdníðslu sem þeir hafa tjáð sig um opinberlega. Ástæður og uppruni tilfinninganna er kannski ekki sá sami en upplifunin getur engu að síður verið nákvæm- lega eins. Það sem greinir þá hins vegar frá öðrum fórnarlömbum ásókna er að þeir geta borið fyrir sig hendurnar með ráðningu hæfustu lögfræðinga. Tugþúsundir Íslendinga heyja gríðarlega baráttu dag frá degi við að afla tekna fyrir mat, húsaskjóli og öðrum nauðsynjum, en svo koma reikning- arnir. Þeir eru allir gamlir og fólk á ekki annarra kosta völ en að greiða þá reikninga sem eru komnir lengst í því ferli að selja ofan af því heimilið eða setja það á hausinn. Á meðan tikka aðrir reikningar, sem fólk getur ekki sinnt að svo stöddu, á vöxtum og gjöldum sem hvaða mafíósi sem er gæti státað sig af við félaga sína í undirheimum. Eru aðfarir að einstaklingum og fjölskyldum einkamál fjár- málafyrirtækja? Því miður enda fjárhagserfiðleikar allt of oft þannig að allar eignir fólks eru hirtar af þeim á útsöluverði í skjóli laga. Að auki hafa jafnvel myndast gríðarlegar skuldir sem eru flestar tilkomnar vegna drátt- arvaxta, innheimtugjalda og lög- fræðikostnaðar. Sumum endist ekki ævin til að greiða niður þetta tilbúna skuldabákn. Ef einstaklingar vilja hins vegar fá að sjá hvaða upplýs- ingar hafa verið notaðar við vinnslu og ákvarðanatöku varðandi það að knésetja viðkomandi frekar en að veita fyrirgreiðslur og leysa hnútinn þá koma allir að luktum dyrum, það sem gerist í banka fer ekki út úr banka. Sá sem hefur ekkert að fela hefur ekkert að óttast. Ég skora á ráða- menn þjóðarinnar að vinna að því að aðfarir að einstaklingum og fjöl- skyldum séu ekki einkamál fjármála- fyrirtækja. Ég vil benda á að okkar margróm- uðu forfeður voru margir hverjir ein- staklingar og fjölskyldur sem fannst að sér vegið í sínu heimalandi og kusu því að freista gæfunnar annars staðar. Þessu fólki tókst að byggja þetta land og koma upp heilli þjóð. Með áframhaldandi óréttlæti og óseðjandi peningagræðgi mun þjóðin án efa missa frá sér fjöldann allan af duglegum frumkvöðlum sem munu kjósa að gerast þegnar annarra landa. Hver veit hvað það fólk sem þegar er farið hefði getað áorkað í þágu íslenskrar þjóðar? Erum við í fjallgöngu upp á líf og dauða? Það hefur víðtæk áhrif að knésetja fólk. Einstaklingar geta lagst í þung- lyndi og aðstæður eins og ofdrykkja, heimilisofbeldi, upplausn í fjöl- skyldum og jafnvel á endanum sjálfsvíg geta fylgt því þegar mann- eskja er komin í svo vonlausa stöðu að það virðist ómögulegt að sjá til sólar. Hluti barnanna okkar þarf að alast upp við þessar aðstæður sem er þjóðfélaginu ekki til framdráttar þegar fram líða stundir, því fleiri því verra. Það hlýtur að vera til einhver millivegur á milli umburðarlyndustu vinstristefnu og harðasta frumskóg- arlögmáls. Við erum ekki í fjallgöngu upp á líf og dauða þar sem þarf að skilja hina særðu eftir. Fyrirtæki sem ekki geta axlað þá ábyrgð að versla með líf almennra borgara eiga að snúa sér að öðrum vettvangi viðskipta. Fyrirtækjum og stofnunum er þó ekki einum um að kenna. Þau vinna innan lagalegs ramma sem er samþykktur af Al- þingi. Svo má spyrja sig að því hvort það sé siðferðilega rétt að gera allt sem lögin heimila. Í því samhengi má benda á söguna um Hróa hött. Hrói höttur var þjófur og skemmd- arverkamaður. Fólk sem kannast við söguna um hann lítur samt sem áður á hann sem hetju því hann barðist gegn oki og kúgun sem var framfylgt í skjóli laga þeirra sem réðu ríkjum. Siðferðiskenndin segir flestum okkar hvað er rétt að gera og hvað ekki. Viðskipti eins og þau sem margir hafa átt við fyrirtæki og stofnanir hér á landi er hæglega hægt að flokka sem fjárhagslegt ofbeldi, sama hverjum er um að kenna. Til ykkar allra Halldór Gunnar Halldórsson skrifar um fjárhagserf- iðleika og inn- heimuaðferðir » Viðskipti eins og þau sem margir hafa átt við fyrirtæki og stofn- anir hér á landi er hæg- lega hægt að flokka sem fjárhagslegt ofbeldi … Halldór Gunnar Halldórsson Höfundur starfar sem smiður MÉR VAR brugðið við lestur fréttar á fréttavefnum visir.is föstudaginn 25. júlí sl. en þar birtist grein um afar léleg laun leiðbeinenda hjá íþrótta- og tóm- stundaráði Reykja- víkur. Í greininni var skýrt frá því að leið- beinandi hjá ÍTR, á aldrinum 20-25 ára, hafi í grunnlaun rétt undir 178.000 kr. Mér var brugðið af því að grunnlaun lögreglu- manns sem nýlega hefur lokið námi frá lögregluskóla ríkisins og vinnur 100% vaktavinnu eru 181.202 kr! Nánast sömu laun og leið- beinandi hjá ÍTR hef- ur. Fréttin á visir.is var í raun um þá staðreynd að leið- beinendur, á sama aldri, hjá vinnuskóla Reykjavíkur eru með rétt undir 149.000 kr. í grunnlaun. Lægsta upphæð grunnlauna í launatöflu Lands- sambands lögreglumanna er 138.513 kr.! Lögreglumenn hafa dregist aft- ur úr öðrum stéttum þegar kemur að launaþróun. Lögreglumenn hafa, líkt og aðrir opinberir starfs- menn dregist aftur úr stéttum á hinum almenna vinnumarkaði þeg- ar kemur að launaskriði. Lögreglumenn hafa, lögum skv, ekki verkfallsrétt. Lögreglumönn- um er skylt, lögum skv, að vinna yfirvinnu meira en almennt gerist meðal opinberra starfsmanna. Lögreglumönnum er óheimilt, lög- um skv, nema með sérstöku sam- þykki sinna yfirmanna að verja frí- tíma sínum í öðrum launuðum störfum. Lífaldur lög- reglumanna er tals- vert styttri en gerist meðal annarra laun- þega. Gríðarlegt brott- hvarf hefur verið úr röðum lögreglumanna allan þann tíma sem ég hef sinnt þessu starfi, sem telur á þriðja tug ára. Allan þann tíma hefur jafn- an verið sagt að þetta sé nú svo sem hægt að laga með því að koma fleiri lögreglunemum í gegnum lögregluskóla ríkisins. Einn starfs- félagi minn komst þannig að orði að ástandið væri svipað því að pípulagn- ingmaður uppgötvar að gat er á lögn hjá honum en í stað þess að finna og laga gatið ákveður hann að auka þrýstinginn á lögninni til að ná meira vatni út um endann á henni. Gott og blessað svo sem, en það sér hver maður að slíkt gengur ekki til lengdar. Hvað með alla fjárfest- inguna, sem lögð var í þá sem hverfa úr starfi? Af hverju er ekki reynt að halda í og nýta þá fjár- festingu lengur? Af hverju er ekki reynt að fá aftur til starfa þá sem horfið hafa úr stéttinni? Bæru slík vinnubrögð ekki vott um ráðdeild- arsemi og þar með í raun aðhald í ríkisrekstri? Eins og staðan er nú koma lærðir lögreglumenn, sem horfið hafa til annarra starfa, ekki aftur til starfa vegna þess að grunnlaunin eru einfaldlega alltof lág fyrir það álag og skerðingu persónufrelsis sem þeir verða fyrir sem velja sér það að starfa í lög- reglu. Í viðtali, sem birtist í fréttum RÚV föstudaginn 18. júlí s.l. sagði dómsmálaráðherra að mann- ekluvandi lögreglunnar leystist náttúrulega ekki nema menn fengjust til starfa í lögreglunni. Hverju orði sannara en stað- reyndin er bara sú að fáir fást til starfa, eða ílengjast í starfi, sem býður upp á rétt rúmar 181.000 kr. í grunnlaun. Þarna liggur vandi „pípulagningamannsins“ og rótin að „leku lögninni“. Grunnlaun lög- reglumanna þarf að leiðrétta. Spurningin, sem ég velti upp í grein í Fréttablaðinu 17. mars s.l, um „Að vera, eða vera ekki, í lög- reglunni?“ brennur enn á vörum margra starfsfélaga minna. Ég fullyrði – enn og aftur – aldrei eins oft og undanfarin misseri! Margir munu svara henni, hver fyrir sig, er nær dregur hausti og um leið og einhver mynd fer að komast á kjaraviðræður lögreglu- manna við hið opinbera. Áðurtilvitnaður starfsfélagi minn tók saman í eina setningu inntak lögreglustarfsins á þá leið að lögreglumönnum er ætlað að koma inn í aðstæður sem allir aðr- ir forðast. Ef ástandið er þannig að þú flýrð frá því þá kallar þú á lögregluna! Hvað fyndist þér les- andi góður sanngjarnt að fá í laun fyrir að sinna slíku starfi? Það er hægt að gera við leku lögnina. Það er hægt að snúa við þeim lögreglumönnum, sem hafa horfið frá starfi eða eru ákveðnir í að hverfa til annarra starfa og þar með endurheimta mikla og dýra fjárfestingu ríkissjóðs í menntun og þjálfun þessa fólks. Í haust ræðst það hvort gert verður við leku lögnina eða hún látin leka áfram. Pípulagnir í lögreglunni? Snorri Magnússon skrifar um laun lögreglumanna Snorri Magnússon » ...grunnlaun lögreglu- manns sem ný- lega hefur lokið námi frá lög- regluskóla rík- isins og vinnur 100% vakta- vinnu eru 181.202 kr! Nánast sömu laun og leiðbein- andi hjá ÍTR hefur. Höfundur er formaður Lands- sambands lögreglumanna. RÁÐNINGAMÁL í Kópavogi hafa vakið talsverð viðbrögð fjöl- miðla og almennings. Í Kópavogi ráða menn nefnilega og reka eins og um einkafyrirtæki væri að ræða. Nýlega var ráðið í nokkur af æðstu embættum bæj- arins án þess að stöðurnar væru auglýstar og virðist það vera orðin regla frekar en undantekning að svo sé. Sé litið til þess hefur á þessu kjörtímabili verið ráðið í fimm lyk- ilstöður hjá bænum, en þær eru: staða bæjarritara, sviðsstjóra skipu- lags- og umhverfissviðs, sviðsstjóra fræðslusviðs, sviðs- stjóra menningar- og tómstundamála og staða upplýsingafull- trúa, allt án auglýsinga. Þótt ekki finnist ákvæði í sveitarstjórn- arlögum sem beinlínis leggur þá skyldu á sveitarfélög að auglýsa störf laus til umsóknar, þá er það hins vegar talið vönduð og góð stjórnsýsla að gera slíkt. Þrátt fyrir þetta ákvæði má efast um lögmæti þess- ara ráðninga. Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/ 1996 er auglýsingaskylda skýr. Þannig er það klárt lögbrot ef rík- isstofnun auglýsir ekki allar lausar stöður. Í bæjarmálasamþykkt Kópa- vogsbæjar segir skýrt að starfs- menn bæjarins hafi réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem þýðir í raun að sú skylda hvílir á herðum bæjaryfirvalda í Kópavogi að auglýsa allar stöður. Í viðtali töldu bæjarstjóri og for- maður bæjarráðs það óheiðarlegt að auglýsa umræddar stöður því það hefði hvort eð er verið búið að ákveða hverjir fengju þær. Hvers konar vinnubrögð eru þetta? Ein- hver siðspilltur stjórmálamaður hefði auglýst stöðuna lausa til um- sóknar og valið svo þann sem honum best líkaði. Rökstutt svo valið með einhverju blaðri um reynslu og mannkosti. Gunnar og Ómar eru ekkert að klóra yfir siðspillinguna og kannski er það bara virðingarvert út af fyrir sig! Ómar Stefánsson, formaður bæj- arráðs, er jafnframt starfsmaður Kópavogsvallar. Ómar Stefánsson leggur ásamt Gunnari Birgissyni fram tillögu um hver eigi að gegna starfi sviðsstjóra menningar- og tómstundamála, víkur svo af fundi þegar tillagan er afgreidd þar sem þarna er verið að ráða yfirmann hans! Ómar er því í þeirri skemmti- legu stöðu að fá sjálfur að ákveða hver verður hans næsti yfirmaður. Ekkert vesen og engar auglýsingar. Það er enn í fersku minni þegar Gunnar réði Guðmund Gunnarsson, vin sinn og samherja, inn á bæj- arskipulag Kópavogs. Í stöðu sem hann bjó til fyrir þann ágæta mann. Auðvitað án auglýsingar og á hærri launum en kona sem gegndi sam- bærilegri stöðu. Það er líka í fersku minni þegar Gunnsteinn Sigurðsson réði sem for- maður ÍTK undirmann sinn úr Lindaskóla í stöðu verkefnisstjóra æskulýðs- og tómstundamála. Auð- vitað var hann bullandi vanhæfur, konan hafði unnið hjá honum um árabil og vísaði á Gunnstein sem meðælanda í starfið. Í því tilfelli var gengið fram hjá umsækjendum með meiri menntun og reynslu í mála- flokknum. Kópavogur er sveitarfélag. Vinnu- brögð í opinberri stofnun eiga að sjálfsögðu að vera gegnsæ og lýð- ræðisleg. Þau eiga að byggja á jafn- ræði og sanngirni. Það ætti að vera metnaður allra stjórnmálamanna að fara vel með vald sitt og virða þessar leikreglur lýðræðisins. Banana- lýðveldi er það kallað þar sem spillt- ir ráðamenn vaða uppi. Hvað er þá Kópavogur annað? Bananalýðveldið Kópavogur Guðríður Arn- ardóttir skrifar um stöðuráðningar í Kópavogsbæ » Vinnubrögð í op- inberri stofnun eiga að sjálfsögðu að vera gegnsæ og lýðræðisleg. Það ætti að vera metn- aður allra stjórnmála- manna að vinna sam- kvæmt því. Guðríður Arnardóttir Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna grein- um, stytta texta í samráði við höf- unda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starf- semi einstakra stofnana, fyr- irtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs ins. Formið er undir liðnum Senda inn efni ofarlega á forsíðu mbl.is. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.