Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 37 GEISLAPLATA með lögum úr myndinni Mamma Mia! er komin á topp tónlistans og leysir þar 100 bestu lög lýðveldisins af hólmi. Á plötunni eru lög Abba sungin af Hollywood-stjörnum á borð við Meryl Streep, Pierce Brosnan, Col- in Firth og Stellan Skarsgård og virðist það vera blanda sem hugn- ast íslenskum plötukaupendum sér- lega vel, en skífan fer úr fjórða sæt- inu á toppinn. Á fimmtudaginn eftir viku, þann 7. ágúst kl. 20, geta þessir plötu- kaupendur svo hópast í Háskólabíó til þess að taka undir með Meryl og félögum á sérstakri „sing-along“ sýningu á myndinni. Elva Ósk Ólafsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir verða forsöngvarar en vitaskuld fá allir að syngja með sínu nefi. Slíkar gagnvirkar sýn- ingar eru þekktar ytra, Rocky Hor- ror Pictureshow hefur til dæmis gengið lengi á svona sýningum sums staðar, og svo er að sjá hvort íslenskir bíógestir fái nú í kjölfarið að vera virkari þátttakendur í bíó. Að öðru leyti eru litlar væringar á listanum. Þeir Örn Árnason og Óskar Pét- ursson taka þó gott stökk með Yf- irlitsbræður úr 26. sæti í það 12. og hástökkvarinn er Islandica sem fer úr 33. sætinu í það 15. með Ramm- íslenskt.                           !                  "  # $ $% %& %'() *+ , % '#  %'-./)%()         ! "# $ % &'!( &) *  $*+$ '$ ($ ,- . / .0$ !11 ) 2.!1   3 4 $5$ 67/!    8+$ 9$  :$ ;  $ ! "# 9$  :$ "! # $/$+        ! "    #$" % &   $'$  (%$ )  *+,'- #,'.'"  /"  / 01$$  $ 2*  3'4+,' 5  6 ,$ $7 $ 8'9) :   ; ' <" $=< >'?0 "'$0';-' @ A ;1 $ ;" -%$;- '                 "   %      &,0  12,  4  *5  12, 0 3 6%+ )  %   %% -./)  7%83            $%8.'(  ',9:;'<=    .0$ $/$+ !** < -$ =#  +  >$  ?%  =$ ) $2 8!** @ ; ! "# A ": 6<5$ $$B/! "-$1 < $    )$ $ $ '$  8$!-/ 4 #/ # /"  / AB;'" + $  )$ 5 7$ C' "$  >$' '  DEB$  2F,'$ * $G4;H" -'4# C' ''; H-$.' -  +" $9B$ I1 ;" - HH> $ AE"'$ " J   C"2  2I'G,'-% *+ H'D'G 39                    &,0 7%83 >%  !   6% ?  "  (,@ %   ?  >2>  "   ?  1,  (,@ %  *+   Ábreiður af Abba- klassík á toppinn Mamma Mia! Meryl Streep gleðst yfir velvilja íslenskra kaupenda. ÞAÐ er auðvelt að rugla lagalista þessarar viku saman við þann síð- asta, þar sem einu breytingarnar á topp fimm eru þær að Buff og Sálin hans Jóns míns skipta á þriðja og fjórða sætinu. Coldplay halda topp- sætinu með „Viva la Vida“, titillagi nýrrar geislaplötu sveitarinnar, en titillinn er á spænsku og útleggst „lifðu lífinu“. Á hæla þeirra kemur Hjaltalín sem fyrr með „Þú komst við hjartað í mér“ og Land og synir stoppa í fimmta sæti eftir mikil há- stökk í síðustu viku. Hástökkvarar Þeir Björn Jörundur, Daníel Ágúst og félagar í hinni fornfrægu sveit Nýdönsk halda áfram að skeiða upp listann og stökkva nú úr 14. sæti í það sjötta með lagið „Náttúru“ og virka þeir Nýdanskir hvað líklegastir til þess að ógna Coldplay á næstunni. Þá stekkur Duffy úr 31 sæti í það áttunda með „Warwick Avenue“. Hástökkvarinn er svo Páll Óskar sem stekkur úr 38. sæti í það tólfta með „Sama hvar þú ert“. Honum væri þá væntanlega sama þótt hann klifraði upp í toppsætið áður en yfir lýkur. Hins vegar er ekki eitt einasta nýtt lag á lista en það hlýtur að fara að koma tími á nýja smelli. asgeirhi@mbl.is Lifðu lífinu og komdu við hjörtu USHER rúllar vel af stað með „Intro“ að plötunni sinni; þetta er eins og nútímalegur söngleikur, einskonar hipphópera í anda R. Kelly en eiginlega betra. En svo „feidar“ lagið út og við taka sjötíu kvalafullar mín- útur þar sem Usher teygir lopann eins og röddina á sér. „Something Special“ er ágætt djassgítar r’n’b og Jay-Z á fína innkomu í „Best Thing“ en rest- in er að mestu hrikaleg. Verst er að þótt Usher hitti á allar réttu nóturnar þá er hann samt ekkert góður söngvari, hann er bara eins og einhver söngmaskína sem reynir að troða of mörg- um nótum að og er gersneydd tilfinningu. Tilfinningasnautt Usher – Here I Stand bmnnn Atli Bollason WE Sing. We Dance. We Steal Things. er þriðja hljóðversskífa bandaríska tónlistar- mannsins Jason Mraz. Platan hefur notið nokkurra vinsælda víða um heim að und- anförnu, og þá sérstaklega fyrsta smáskífu- lag hennar, „I’m Yours“, sem hefur til dæm- is komist á toppinn bæði í Svíþjóð og Noregi. Og skal engan undra því þar er á ferðinni hið fínasta lag, gríp- andi og melódískt. Aðrar lagasmíðar á plötunni eru einnig nokkuð frambærilegar, en fjölbreytninni er hins vegar ekki fyr- ir að fara, Mraz tekur litla áhættu og heldur sig á sykursætum nótum allt til loka. En ágæt plata, engu að síður. Svolítið sykursætt Jason Mraz - We Sing. We Dance...  Jóhann Bjarni Kolbeinsson DANGER Mouse, annar helmingur Gnarls Barkley, er hæfur taktsmiður og enn fremur táknmynd fyrir mátt internetsins – það eru bara fjögur ár frá því hann skaust upp á stjörnuhimininn með Gráa albúminu. Hann er ekki mjög ævintýragjarn á The Odd Co- uple en skilar flottum og stundum rokkuðum sálargrúvum sem bera plötuna algjörlega uppi. Cee-Lo er hins vegar ekki í jafngóðu formi, og í stað þess að heilla eins og hann gerði í „Crazy“ þá pirrar hann mann frekar. Söngurinn er eins- leitur, lagasmíðarnar ekki alltaf nógu kjarnmiklar og því miður er útlit fyrir að Gnarls Barkley verði „one hit wonder.“ Engin undur Gnarls Barkley – The Odd Couple bbmnn Atli Bollason GALLHARÐIR Dylanaðdáendur geta farið að núa saman höndum af eftirvæntingu því von er á ríflegum skammti af lögum frá meistaranum sem hafa fæst komið fyrir almenn- ingseyru til þessa. Um þrefalda geislaplötu, hvorki meira né minna, er að ræða og kallast pakkinn Tell Tale Signs. Er hér er ferðinni átt- unda platan í hinni svokölluðu „Bo- otleg“ útgáfuröð en undir henni hafa komið út plötur með sjaldgæfu efni og líka goðsagnakenndir tónleikar eins og „Royal Albert Hall“ tónleik- arnir frá 1966 en þeir voru fjórða út- gáfan í flokknum (fyrstu þrjár útgáf- urnar voru plötur með sjaldgæfum lögum, eins og tilfellið er nú). Útgáfudagur er 7. október og er það Columbia sem gefur út. Hægt er að sækja eitt lag frítt nú þegar í gegnum opinbera vefsíðu Dylan. Um er að ræða lagið „Dreamin’ of You“, lag sem Daniel Lanois upptöku- stýrði fyrir plötuna Time out Mind (1998). Lögin koma velflest frá síð- ustu tuttugu árum, bæði er um að ræða lög sem ekki hafa heyrst áður og svo lög sem hafa komið út áður, en eru í breyttum útgáfum. Mikið er sótt í plöturnar Time Out of Mind, Modern Times (síðasta hljóðvers- skífa Dylan), Oh Mercy og World Gone Wrong. Þá verða þarna lög sem birst hafa í kvikmyndum, t.a.m. „Huck’s Tune“ úr Lucky You, „Cross the Green Mountain“ úr Gods and Generals og samstarf Dyl- an við Ralph gamla Stanley, lagið „The Lonesome River“ úr Clinch Mountain Country. Þá er og að finna tónleikaupptökur frá Bonnaroo (2004), London (2000) og New York (1993). arnart@mbl.is Sjaldheyrður Dylan Vandfundinn Dylan Einhverjir fá þrefaldan geisladisk í jólasokkinn í ár. Þrefaldur diskur með sjaldgæfum Dylanlögum vænt- anlegur í október UNGSVEITIN Retro Stefson hefur verið nokkuð umtöluð undanfarin misseri en óskilgreinanlegt, gleði- ríkt og grípandi popprokk hennar hefur heillað margan tónlistar- áhugamanninn upp úr skónum. Sveitin er nú stödd í Sundlaug Sig- ur Rósar við upptökur ásamt þeim Benna Hemm Hemm og Árna Plús- einum og ganga þær hratt og vel fyrir sig að sögn talsmanns sveit- arinnar, Unnsteins Stefánssonar. „Við ákváðum að gefa okkur viku og kláruðum fimm lög á tveimur dögum,“ lýsir hann. „Annars höfum við nægan tíma en minna er um féð. En við komum vel undirbúin og lög- in voru meira og minna klár.“ Unn- steinn segir að sum lögin séu fjög- urra ára gömul, lög sem hann samdi fjórtán ára. Allt verður svo tekið upp á segulband og stafræn vinnsla er því engin. Stefnt er á að platan komi út fyrir jól, en það er kimi records á Akureyri sem gefur út. „Við tókum upp lag á eigin spýt- ur í Hljóðrita í janúar og það var dálítið stressandi verð ég að við- urkenna. Það lag, „Montana“ er að fara í spilun á útvarpsstöðvum. Baldvin hjá Kima hafði svo sam- band við okkur og það þrýsti á um að gera plötuna. Við þekkjum Benna og Árna vel og það að hafa svona bakhjarl eins og kima hefur góð áhrif á allt ferlið.“ arnart@mbl.si Gleðiríkt popp Í sumarskapi Krakkarnir í Retro Stefson njóta sumarsins í hljóðveri. Retro Stefson komin í hljóðver

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.