Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 23 MINNINGAR ✝ Ragnar Böðv-arsson fæddist á Langstöðum í Flóa 6. jan. 1920. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Sólvöllum 21. júlí 2008. Foreldrar hans voru Böðvar Friðriksson, f. 7. mars 1878, d. 31. maí 1966, og Jónína Guðmundsdóttir, f. 18. júlí 1878, d. 13. október 1940. Systkini Ragnars eru Guðmundur, Friðsemd, Óskar, Lilja, Reynir og Guðlaug sem lifir systkini sín. Hinn 25. desember 1949 giftist Ragnar Margréti Elínu Ólafs- dóttur, f. 24. júlí 1929, d. 25. febr- úar 2003, foreldrar hennar voru Ólafur E. Bjarnason og Jenný D Jensdóttir. Börn Margrétar og Ragn- ars eru, Ólafur f. 18.10.1949, kvæntur Ásrúnu Jónsdóttur eiga þau 3 börn og 7 barnabörn, Jón Karl, kvæntur Snjó- laugu Kristjáns- dóttur, eiga þau 4 börn og 7 barna- börn og stúlka and- vana fædd 3. sept 1962. Ragnar flutt- ist með foreldrum sínum til Eyr- arbakka þegar hann var 3 ára og bjó þar til æviloka. Hann var til sjós, starfaði við fiskvinnslu en lengst af starfaði hann við smíðar. Útför Ragnars fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14. Nú er komið að leiðarlokum hjá Ragnari Böðvarssyni skáfrænda mínum, en Raggi eins og ég kallaði hann alltaf var giftur móðursystur minni, en hún lést fyrir nokkrum ár- um. Þau bjuggu alla mína bernsku í næsta húsi við mína fjölskyldu og var samgangur mikill þar á milli og var Raggi mér alla tíð mjög góður og vildi hjálpa mér sem barni og ung- lingi að verða fullgildur þegn. Alltaf hvetjandi þegar ég var að keppa í íþróttum og þá spurði Raggi mig allt- af hvernig hefði gengið og sagði svo: æfingin skapar meistarann. Eins átti ég margar ferðirnar í kompuna hans undir stiganum og fékk lánaðan lykil no. 15 þegar ég var að laga hjólið mitt, skilyrðið var að skila honum að notkun lokinni. Þegar ég varð eldri og fór að vinna bæði til sjós og lands var hann áhugasamur um hvernig gengi með aflabrögð og fleira og eins um brölt mitt í hestamennskunni og hvert ég hefði verið að þvælast í hestaferðum eins og hann orðaði það. Raggi var alþýðumaður, vann allt- af hjá öðrum, tók ekki bílpróf, var trúr sinni pólitísku samfæringu, hafði ekki hátt en var fastur fyrir og lét ekki glamúr nútímans trufla sig við sín störf. Hann gerði ekki víð- reist, ferðaðist eitthvað innanlands eins og aðstæður leyfðu en aldrei til útlanda. Eyrarbakki var hans stað- ur, þangað flutti hann barn að aldri ásamt systkinum sínum, þar var hans lífshlaup við leik og störf. Raggi var afskaplega handlaginn maður, allt lék í höndunum á honum og vann hann lengi við smíðar og almennt við- hald. Snyrtimennska var honum líka í blóð borin og bar umgjörð í kring- um húsið hans, Silfurtún, glöggt vitni um snyrtimennsku og áhuga hans og Möggu frænku minnar á að hafa fínt og notalegt í kringum sig. Það var gott að fá að alast upp við að eiga annað heimili hjá Möggu og Ragga og eiga þar góða vini sem voru uppörvandi fyrir ungan dreng sem var að feta sín fyrstu spor í líf- inu. Takk Ragnar Böðvarsson. Að lokum vil ég votta frændum mínum þeim Óla og Kalla og fjöl- skyldum þeirra samúð mína. Ari Björn Thorarensen. Ragnar Böðvarsson ✝ Jóhanna Krist-jánsdóttir, mat- reiðslukona, fæddist í Stykkishólmi 12. ágúst 1913. Hún lést 24. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Súsanna Ein- arsdóttir frá Stykk- ishólmi, f. 4.12. 1890, d. 26.8. 1961, og Kristján Bjarni Árnason, sjómaður frá Lækjarbug í Fróðárhreppi, f. 4.9. 1886, d. 3.7. 1921. Systkini Jóhönnu eru 1) Lúðvík, f. 2.9. 1911, d. 1.2. 2000; 2) Ólafur, f. Guðmundsson, veitingamaður, f. 25.2. 1890, d. 24.11. 1965. Guðmundur Gaukur er kvæntur Maríu Guðmundsdóttir, versl- unarkonu, f. 15.9. 1944. Börn þeirra eru: 1) Vigfús, lögreglu- varðstjóri, f. 13.1. 1964, maki Lára Guðmundsdóttir, verslunarstjóri, f. 16.5. 1968. Börn þeirra Ólöf María, f. 22.7. 1988, Guðmundur Gaukur, f. 16.1. 1993, Kristján Ólafur, f. 1.6. 2003. 2) Guðfinna Jó- hanna, lögmaður, f. 14.4. 1969, maki Svanur Guðmundsson, leigu- miðlari, f. 3.11. 1959. Sonur Theo- dór Gaukur, f. 14.7. 1988. Faðir Kristján Þórarinsson, versl- unarmaður, f. 23.2. 1967. 3) Krist- ján, læknir, f. 19.2. 1975, maki Elín Anna Helgadóttir, læknir, f. 29.7. 1978. Sonur Ólafur Kári, f. 24.8. 2003. Útför Jóhönnu fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst kl. 15. 29.12. 1914, d. 25.11. 2007; 3) Stefán Gest- ur, f. 11.9. 1918; d. 5.2. 2001 4) Stein- grímur, f.12.1. 1921, d. 16.12. 2005. Hálf- systkini Jóhönnu, sammæðra eru: 1) Steinþór Magnússon, f. 9.11. 1926, d. 17.4. 1991; 2) Bergþóra Magnúsdóttir, f. 6.7. 1928, og 3) Hallveig Magnúsdóttir, f. 30.8. 1929. Jóhanna eignaðist einn son, Guðmund Gauk, land- vörð, f. 8.11. 1941. Faðir Vigfús Ég kem bæði fagnandi og frjáls, ég er ferðbúin, indæla vor. Ég vil fljúga yfir fjöll, yfir háls, ég vil finna mín æskunnar spor. (Sigríður Björnsdóttir frá Miklabæ.) Með fáeinum orðun vil ég minn- ast tengdamóður minnar. Jóhanna var skarpgreind, glæsileg og um- fram allt sjálfstæð kona. Hún þekkti vel mína fjölskyldu, þar sem hún 17 ára gömul fór sem kaupa- kona að Hesti í Borgarfirði til afa míns og ömmu, séra Eiríks Alberts- sonar og Sigríðar Björnsdóttur. Minntust þau með virðingu hversu dugleg og myndarleg hún var. Það kom mér skemmtilega á óvart að hún geymdi bréf frá ömmu minni sem var skrifað frá Hesti árið 1936. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Grundar frábæra umönnun. Að leiðarlokum þakka ég fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Guð blessi minningu Jóhönnu. María Guðmundsdóttir, Nú er Hannamma eins og hún er alltaf kölluð í fjölskyldunni lögð af stað í enn eina ferðina. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég man að við vorum að kveðja Hönnömmu sem var að fara út í heim. Það var eng- inn sem maður þekkti á þeim árum sem ferðaðist eins og hún en afi sem var þá dáinn hafði ferðast mik- ið og ritað ferðasögur úr öllum heimsálfum. Alltaf var gaman er hún kom aftur heim. Vildi Hann- amma alltaf vera gefa manni eitt- hvað hollt að borða en átti líka allt- af eitthvað gott til en helst varð maður að fá sér eitthvað hollt líka. Hannamma var frá Stykkishólmi og var ekki gömul er hún kvaddi föðurhúsin og fór að vinna fyrir sér. Minnist ég best starfa, sem hún sagði frá, er hún var kaupakona á Hesti í Borgarfirði hjá foreldrum móðurömmu minnar og áranna í Hreðavatnskála sem afi byggði og rak. Á þeim árum fæddist faðir minn og steig sín fyrstu skref. Sagði hún einhverntímann þegar pabbi var að koma úr veiðiferð og hafði ekkert veitt að á matseðlinum í Hreðavatnsskála hefði verið lax og afi hefði farið fyrir matinn niður í Norðurá og veitt. Hefði það verið eins eðlilegt og þegar maður fer út í búð í dag og kaupir lax. En þetta var fyrir minn tíma og man ég bara eftir þegar Hannamma sá um mötuneytið í aðalútibúi Búnaðar- bankans í Austurstræti. Þangað var alltaf gott að koma og átti hún allt- af sandköku handa mér en uppá- haldið hjá mér var rúllutertan sem hún bakaði þegar ég átti afmæli. Hannamma var ekki bara dugleg að ferðast til útlanda heldur fór hún víða innanlands og fór ég með henni mörg sumur í orlofsbúðir á Laugarvatni. Man ég eftir þegar ég og systir mín fórum með henni í rútu þangað. Það var föstudags- kvöld og ansi skemmtilegur bíl- stjóri undir stýri. Rútan átti að leggja af stað frá BSÍ klukkan níu um kvöldið en seinkaði eitthvað. Þegar við komum niður úr Kömb- unum var stoppað við Hótel Hvera- gerði og komum við á áfangastað um eittleytið um nóttina. Þótti Hönnömmu ferðin hafa gengið vel þó hægt hafi verið ekið en hún tók aldrei bílpróf og ferðaðist mest á tveim jafnfljótum. Fyrsta íbúðin hennar var á Víði- melnum og uppi á fjórðu hæð bjó hún stærsta hluta lífs síns. Hún keypti svo þjónustuíbúð þegar hún var búinn að vera á eftirlaunum um tíma. Bjó í henni í gott ár en ákvað síðan að flytja aftur á Víðimelinn. Það átti betur við hana að labba stigana. Fór ég einu sinni í norska húsið á Stykkishólmi og hékk þar uppi mynd af föður hennar glímukóng- inum. Dó hann þegar amma var ung en amma átti kraftmikil systk- ini sem hún hélt árlega þorrablót fyrir. Kom þá saman ansi skemmti- legur og hress hópur. Ég fluttist svo til Stokkhólms um tíma og var þá erfitt að kveðja en Hannamma var þá hætt að vinna og kom í heimsókn. Hafði hún á sínum yngri árum verið við nám í matreiðslu í Svíþjóð og þekkti þar vel til. Fórum við víða, mest fót- gangandi og átti ég fullt í fangi að halda í við hana sem aldrei blés úr nös þó ég væri oft lúinn. Nú er ég kveð Hönnömmu í síð- asta sinn þá þakka ég henni sam- fylgdina og ég og mín fjölskylda óskum henni góðrar ferðar. Vigfús Guðmundsson. Látin er hún amma mín Jóhanna Kristjánsdóttir. Hún Hanna amma eins og hún var ávallt kölluð var fædd í Stykkishólmi1913 og lifði því langri og viðburðaríkri ævi. Hún ferðaðist alla tíð mikið bæði utan– sem innanlands og aflaði sér mikillar reynslu i gengum lífið sem hún miðlaði ötullega til mín í gegn- um árin. Ég á margar og góðar minningar um hana ömmu. Síðustu dagana eftir andlát hennar hef ég rifjað upp og hugsað um allar þær góðu stundir sem ég átti með ömmu og þótt erfitt að setja aðeins nokkrar þeirra niður á blað í kveðjuskyni við hana því þær voru svo margar og fjölbreyttar. Mínar fyrstu minn- ingar um hana ömmu sem lítill strákur eru frá Víðimelnum þar sem hún bjó lengst af. Þar dvaldi ég oft hjá henni í góðu yfirlæti þar sem hún sagði mér bæði sögur af fólki sem hún hafði hitt fyrir í gegnum lífið sem og ferðasögur sínar. Oftar en ekki gengum við niður í miðbæ, gegnum gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu og niður að tjörn til að gefa öndunum. Á bakaleiðinni var svo iðulega komið við á Hressó og hún bauð uppá heitt kakó og köku. Minni- stæður er einnig sá tími á hverju ári er jólin fóru að nálgast en eins og alltaf hjá Hönnu ömmu lagði hún mikið upp úr að hafa fínt hjá sér og halda stórar og fínar veislur . Löngum stundum eyddum við í að skreyta jólahúsið hennar, skreyta piparkökur og skrifa jólakort. Síð- ar meir þegar hún var farin að sjá verr og ég orðinn eldri var það ávallt fyrsta verk að loknum próf- um fyrir jól að fara til ömmu og að- stoða hana við innkaupin og jóla- kortin. Bessastaðakökurnar hennar ömmu voru svo einnig einn af hápunktum hátíðarinnar hverju sinni. Amma var ákaflega hraust kona sem sjaldan varð misdægurt þrátt fyrir háan aldur. Aðdáunarvert var hve lengi hún entist við að búa upp á fjórðu hæð og ganga þessar tröppur oft á dag, vel fram yfir ní- rætt. Jafnvel síðustu árin var ég oft að hitta hana á gangi hér og þar um Vesturbæinn þar sem hún fór í sína göngutúra, þá endurnýjuðum við gamlar stundir og gáfum öndunum saman eins og í gamla daga og þá með langömmubarninu Ólafi Kára sem var henni ákaflega kær. Ég er einstaklega þakklátur ömmu minni fyrir allar þær góðu minningar sem hún hefur gefið mér og minni fjöl- skyldu í gegnum tíðina, þakklátur fyrir þá ómældu gjafmildi sem hún hefur sýnt mér, eiginkonu og syni. Að hafa fyrir tilviljun komið frá út- löndum þar sem ég er nú búsettur og eytt með ömmu hennar síðasta degi verð ég eilíflega þakklátur fyr- ir: Takk fyrir allt, amma mín. Kristján Guðmundsson. Við andlát Jóhönnu Kristjáns- dóttur föðursystur minnar er hún sú síðasta af fimm alsystkinum sem kveður. Foreldrar þeirra Súsanna og Kristján stofnuðu ung heimili í Stykkishólmi og þar voru þau öll fædd. En sorgin knúði snemma dyra því að faðir þeirra Kristján Árnason dó sumarið 1921. Hann var á skipi sem var á veiðum úti fyrir Flateyri, er hann veiktist af lungnabólgu, var fluttur í land, lést og var grafinn þar fjarri ættingj- um. Það leið hálfur mánuður þar til dánarfregnin barst fjölskyldunni. Ekkjan stóð þá ein uppi með barna- hópinn, sem yfirvöld vildu segja til sveitar, en fyrir harðfylgni tókst henni að halda fjölskyldunni sam- an. Systkinin urðu ung að standa á eigin fótum og fóru öll eins fljótt og þau gátu að vinna. Amma mín Sús- anna giftist nokkrum árum síðar Magnúsi Árnasyni. Þau bjuggu lengstum á Seljum og Hraunhálsi í Helgafellssveit og eignuðust 3 börn. Hanna, eins og hún var alltaf kölluð af okkur í fjölskyldunni, var bráðmyndarleg til allra verka. Hugur hennar varð fljótt bundinn öllu sem laut að mat og átti það eft- ir að verða hennar ævistarf. Mörg sumur var hún matráðskona í Hreðavatnsskála hjá Vigfúsi Guð- mundssyni og oft sagði hún frá því er hún tók á móti tignum gestum með litlum fyrirvara. Þá kom sér vel að geta gripið í nýjan lax úr Norðuránni, því að ekki var sama matarúrvalið og er í dag og geymsluaðferðirnar frumstæðari. En frænka mín var algjör snilling- ur í að elda góðan mat og bera hann lystilega fram. Hennar aðalstarfs- vettvangur varð síðar í Búnaðar- banka Íslands, þar sem hún sá um mötuneyti. Hún bar hag bankans og starfsfólksins mjög fyrir brjósti og alltaf var hún með hugann við það hvernig hún gæti sem best glatt starfsfólkið með góðum mat. Þau föðursystkini mín voru öll góðir vinir og hittust oft og var það ekki síst fyrir tilstilli Hönnu sem var dugleg að kalla í þau og halda þeim og okkur fleirum í fjölskyld- unni veglegar veislur. Þá var ávallt glatt á hjalla og rifjaðar upp góðu minningarnar frá æskuárunum, en sjaldnast rætt um baslið og fátækt- ina sem þau fengu svo mjög að reyna ung. Hönnu var sérlega annt um yngsta albróður sinn Steingrím sem var á fyrsta ári er faðir þeirra lést. Hann bjó 50 ár í Svíþjóð, en auðnaðist að flytja vestur í Stykk- ishólm og búa þar 3 síðustu æviár- in. Hún heimsótti hann oft til Sví- þjóðar og dvaldi nokkrum sinnum hjá honum í Hólminum. Á milli mín og Hönnu var alltaf kært. Það var gott að vera í návist hennar. Hún var viðræðugóð, fylgdist vel með mönnum og málefnum, bjó yfir jafnaðargeði og sá ég hana aldrei skipta skapi. Hún hafði ríka samúð með þeim sem stóðu höllum fæti í þjóðfélaginu, en hafði andúð á þeim er rökuðu að sér miklum auði. Hún var alltaf vel á sig komin líkamlega og hélt góðri heilsu fram undir ní- rætt. Fyrir 4 árum vistaðist hún á Grund og var þar í nágrenni við sitt gamla heimili á Víðimelnum. Gauk- ur sonur hennar og Maja konan hans sinntu henni afar vel þessi síð- ustu ár. Ég kveð frænku mína með söknuði og þakka hennar alúðarvin- áttu. Véný Lúðvíksdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Látin er í hárri elli kær vinkona til margra ára, Jóhanna Kristjáns- dóttir eða Hanna okkar á Víðó eins og við fjölskyldan kölluðum hana. Fyrir rúmum þrjátíu árum flutti ég í stigaganginn hennar. Á Víði- mel 21 bjuggu nánast í hverri íbúð eldri borgarar og varð þetta alveg yndislegt samfélag fyrir mig rétt þrítuga manneskjuna. Það er mikil gæfa í lífinu að kynnast slíku mann- kostafólki eins og þarna bjó. Íbú- arnir höfðu nær allir búið þarna lengi og báru ómælda virðingu fyrir umhverfi sínu og húsnæði. Á fjórðu hæðinni bjó Hanna í fallegri íbúð sem búin var smekklegum húsbún- aði. Hún var mikil blómakona og var glugginn hennar í ganginum þakinn begoníum sem hvergi döfn- uðu betur en hjá henni. Hönnu var annt um heimilið og ekki síst stað- inn vegna þess hversu stutt var í alla þjónustu og í Búnaðarbankann í Austurstræti þar sem hún starfaði sem matráðskona í mörg ár. Hanna var hávaxin, flott kona sem tekið var eftir. Hún gekk mikið og hélt sér ávallt í góðu formi. Hún hafði unun af því að ferðast, bæði innanlands og utan. Minningarnar frá þessum ferðum voru henni ógleymanlegar og sagði hún okkur oft skemmtilegar ferðasögur. Á Víðimelsárunum stofnaði ég mína fjölskyldu og eftir að börnin tvö komust á legg fengu þau oft að skoða sig um hjá henni. Hún var barngóð með afbrigðum sem sýndi sig t.d. í því að hún setti lengi upp gamalt, fallegt jólahús með ljósi þrátt fyrir að ömmubörnin hennar væru orðin stór. Stundirnar í eld- húsinu á Víðó gleymast ekki. Alltaf eitthvað gott með kaffinu og hellt uppá með gamla laginu þ.e. í saum- aðan kaffipoka. Það besta og dýrmætasta var þó sonurinn, tengdadóttirin og ömmu- börnin þrjú. Hún bar mikla um- hyggju fyrir þeim öllum og fylgdist ávallt vel með öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þessar fáu línur eru ekki skrif- aðar í þeim tilgangi að rekja lífs- hlaupið heldur aðeins í þakklætis- skyni fyrir frábæra vináttu og góðvild í okkar garð í gegnum tíð- ina. Með innilegri hluttekningu, Sigrún L. Baldvinsdóttir. Jóhanna Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.