Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elín Jósefsdóttirfæddist í Orm- skoti, Vestur- Eyjafjallahreppi, Rangárvallasýslu, þann 11. ágúst 1923. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 6. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jósef Jóhanns- son, bóndi í Orms- koti, f. í Efstakoti, V-Eyjafjallahreppi, þann 29. október 1889, d. 26. október 1962, og kona hans Guðrún Hann- esdóttir, f. í Vesturkoti í Skeiða- hreppi, Árnessýslu, þann 19. maí 1888, d. 1. september 1974. Elín átti níu systkini. Þau voru Jóhann Axel, f. 1916, d. 1961, Sigríður, f. 1917, d. 2005, Guðmundur, f. 1918, d. 1988, Óskar, f. 1919, d. 2006, Viggó, f. 1922, Jóhanna, f. 1924, d. 1928, Margrét, f. 1926, d. 1996, Guðjón, f. 1920 og Jóhann- es, f. 1930, d. 2008. Af systk- inunum eru tveir bræðranna því enn á lífi. Elín giftist Guðbrandi Jónssyni, sjómanni og síðar starfsmanni Áburðarverksmiðjunnar hf. Hann fæddist í Hvestu, Ketildalahreppi, Vestur-Barðastrandasýslu, þann 12. júní 1923 og lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 27. október 2007. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, bóndi í Hvestu, f. 30. október 1877, d. 7. júlí 1955, og síðari kona hans Sesselja Guðbrands- dóttir f. 9. apríl 1880, d. 22. febrúar 1942. Dóttir þeirra er Jóna Sesselja, f. 2. júlí 1945, gift Ás- birni Einarssyni. Börn þeirra eru Einar Jón, kvæntur Elísabetu Reykdal Jóhannesdóttur, og Elín Björk, gift Gísla Jóhanni Halls- syni. Barna- barnabörnin eru fimm: Ásbjörn, Einar Gísli, Jóna Björk, Jóhannes og Elías Páll. Elín ólst upp í Ormskoti. Um tvítugsaldurinn flutti hún til Reykjavíkur og þar bjuggu þau Guðbrandur lengst af á Lang- holtsvegi 2. Hún stundaði ýmis störf á yngri árum en vann síðan hjá versluninni Geysi við fata- breytingar og tjaldasaum. Áhuga- málin tengdust flest öll heimilinu, fjölskyldunni og barnabörnunum. Þau Elín og Guðbrandur fluttu á Hrafnistu í Reykjavík fyrir rúm- um tveimur árum. Var Elín þá komin með Alzheimer-sjúkdóm- inn og dvaldi hún síðustu mán- uðina á Alzheimerdeild Hrafn- istu. Elín verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 13. Í dag kveðjum við tengdamóður mína, Elínu Jósefsdóttur. Það er margs að minnast eftir langa og ánægjulega samfylgd. Það var sum- arið 1965 að ég kynntist Jónu einka- dóttur Elínar. Þær mæðgur bjuggu þá á Langholtsvegi 2 en Guðbrandur, tengdapabbi, stundaði sjómennsku og var löngum að heiman á togurum eða síldarbátum. Tveimur árum síðar gengum við Jóna í hjónaband og hún flutti til mín til Manchester á Eng- landi. Þetta hafði þau áhrif, að tengdamamma sat að mestu ein eftir í búinu. Guðbrandur ákvað þá að hætta ævistarfi sínu á sjónum árið eftir og fór að vinna í Áburðarverksmiðjunni. Því má segja, að hjónaband dóttur- innar hafi ekki haft minni áhrif á líf þeirra en hennar. Þegar ég kynntist tengdamömmu varð mér fljótt ljóst, að hún hafði lítt gaman af fjölmenni og kunni best við sig heima við. Mér þótti það því töluvert afrek hjá henni að drífa sig í heimsókn til okkar eftir að fyrsta barnabarnið fæddist í Man- chester árið 1968. Þetta var fyrsta flugferð hennar og flugferðir þá voru ekki eins auðveldar og í dag. Þurfti hún til dæmis að bíða hálfan dag á flugvellinum í Glasgow eftir tengi- flugi. Þarna kom strax í ljós einstakur áhugi hennar á barnabörnum sínum, og þar sem hún var flestum stundum heima við, urðu samskiptin mikil. Dvöldu þau mjög oft hjá afa og ömmu og líkaði vel. Stjanaði hún við þau og lét sér til dæmis ekki muna um að elda sinn matinn fyrir hvort þeirra, ef þau gátu ekki komið sér saman um matseðilinn. Eins prjónaði hún mikið og saumaði á þau föt. Eru enn til ull- arvettlingar og lopasokkar frá þeim tíma, og láta þeir lítið á sjá, þótt enn séu þeir í notkun. Þó tengdamamma hefði sig ekki mikið í frammi áttum við hinar skemmtilegustu samveru- stundir og samræður, þegar aðrir voru ekki að trufla okkur. Hún fylgd- ist vel með daglega lífinu og sá oft spaugilegar hliðar á hinum ýmsu mál- um. Var gaman að taka eftir því, hve margt var líkt með þeim mæðgum í þeim efnum. Á síðustu árum náði Alz- heimersjúkdómurinn tökum á tengdamömmu. Hvarf þá minnið smám saman. Þetta olli því, að tengsl hennar við barnabarnabörnin urðu því miður minni en ella og ég held, að hún hafi fundið verulega fyrir því. Hins vegar reyndist það þannig, að við gátum haldið áfram að sitja og spjalla saman þrátt fyrir sjúkdóminn. Umræðuefnið færist einfaldlega stöð- ugt nær bernsku hennar. Þannig mundi hún nöfn og atburði frá ung- lingsárunum í Ormskoti allt fram til hins síðasta og gat sagt frá þeim, þótt allt frá þeim tíma og til dagsins í dag væri týnt og grafið. Að lokum þakka ég tengdamömmu fyrir samfylgdina. Ég mun sakna hennar og hún skilur eftir sig stórt skarð í fjölskyldunni. Ásbjörn. Elín amma okkar er látin 84 ára að aldri. Eftir erfið veikindi fékk hún loks hvíld. Lengst af ævinni bjuggu amma og afi í lítilli risíbúð á Langholtsvegi 2. Þar bjó amma þeim heimili og ól upp einkadóttur sína, móður okkar. Vegna fjarveru afa okkar, sem lengst af var sjómaður, voru þær mæðgur mikið einar í kotinu og undu því vel. Lengsta hluta af ævinni vann amma hálfan daginn á saumastofunni í Geysi. Þar sá hún um fatabreytingar og saumaði tjöld. Þótti okkur systk- inunum mjög mikið sport í því að fara að heimsækja ömmu í vinnuna. Hætti hún ekki að vinna fyrr en á sjötugs- aldrinum. Amma og afi ferðuðust mikið um landið á sumrin með fjöl- skyldu og vinum og höfðu mjög gam- an af. Fannst ömmu mikill munur að ferðast, þegar þau létu verða af því að fá sér tjaldvagn. Farnar voru margar berjatínsluferðir á Vestfirðina, heimaslóðir afa, og þá sá amma um að verka berin. Minningin um kræki- berjasaftina, sem amma gerði, er góð og við eigum áreiðanlega ekki eftir að bragða svona saft aftur. Uppskriftin var hvergi til á blaði, en hún notaði örugglega extra mikinn sykur, sem hentaði ungu fólki vel. Amma prjón- aði mikið og saumaði á okkur föt. Var hún mjög smámunasöm í sambandi við þessa iðju. Eitt skipti þá ákvað ég, nafna hennar, að sauma mér pils fyrir eitthvert skólaball. Mislukkaðist það og þá var amma beðin að bjarga mál- um. Þá fékk unga stúlkan að heyra, að hún kynni ekkert að sauma og von- aðist amma eftir því, að hún myndi ekki gera svona lagað aftur. Amma skyldi sjá um saumana og ekkert svona bull aftur. Síðan mörgum árum síðar, þegar ég lærði klæðskurð og sýndi henni fyrsta kjólinn, sem ég saumaði í skólanum, var hver saumur skoðaður og athugað vel hvort þetta væri nógu vel gert, sem sagt, eins og hún var vön að gera. Fékk kjóllinn blessun hennar og þótti mér mikið vænt um. Margt kemur upp í hugann, þegar við horfum til baka á þann mikla tíma, sem við vorum með ömmu. Ofarlega í huganum eru næt- urgistingarnar á Langholtsveginum. Amma bjó alltaf til uppáhaldsmatinn okkar og eins og góðum systkinum sæmir, var það ekki sami maturinn hjá okkur. Var því alltaf tvíréttað, fiskibollur fyrir alla og kótiletta í raspi fyrir nöfnu hennar. Það eru margar dýrmætar minningar, sem við eigum eftir að varðveita og segja börnum okkar sögur frá þessum skemmtilega tíma. Hún amma okkar var einfari að eðlisfari og ekki mikil félagsvera. Var hún nægjusöm og það mátti aldrei hafa neitt fyrir henni. Þegar afi okkar veiktist sýndi hún mikinn styrk og stóð eins og klettur við hlið hans. En þegar veikindin fóru líka að há henni, þá náðu þau að hjálpa hvort öðru ótrúlega mikið, þótt hvorugt væri við góða heilsu. Fyrir rúmlega tveimur árum fluttu amma og afi á Hrafnistu í Reykjavík. Lést afi síðastliðið haust og hrakaði heilsu ömmu mikið fljótt eftir það. Viljum við færa öllu starfsfólki Hrafnistu, sem hugsaði um ömmu okkar og afa, okkar hjartans þakkir. Ömmu verður sárt saknað um ókomna tíð og minn- ing hennar mun lifa í hjörtum okkar að eilífu. Elín Björk og Einar Jón Elín Jósefsdóttir Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting Sumarfríið eða helgin 2 - 3 herb. vel búnar íbúðir á Akureyri. www.gista.is S: 694-4314. Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er tær snilld. Aukin orka, vellíðan, betri svefn og aukakílóin hreint fjúka. Uppl. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og auðveldur. Engin örvandi efni. Uppl. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Húsnæði í boði 3ja herb. íbúð í rólegri götu í 101 Björt 75 fm íbúð á 2. hæð í fallegu 3ja hæða húsi í Þingholtunum. Sérinngangur og góður garður. Verð 150 þús. Nánari uppl. veitir Kristján í síma 663 3132. Sumarhús Sumarhús til leigu í Borgarfirði Nýr 8-10 manna sumarbústaður til leigu í Borgarfirði, nálægt Húsafelli. Heitur pottur og gönguleiðir í fallegu umhverfi. Útsýni frábært. Uppl. í síma 435-1394 og 864-1394. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Ævintýralega létt stígvél Aðeins 440 g parið. Stærðir 38-46. S - XL Einstaklega þægileg til að hafa í bílnum, sumarbústaðnum eða í útileguna. Verð 3.710 kr. Jón Bergsson ehf. Kletthálsi 15, 110 Rvk. Sími. 588 8881. Til sölu fjórhjóladrifinn traktor Tvívirk ámoksturstæki - 28 hestöfl. Vélin er eins árs og lítið notuð. Hörkudugleg og skemmtileg vél. Upplýsinar í síma 895 3040. Tékkneskar og slóvenskar handslípaðar kristal- ljósakrónur. Mikið úrval. Frábært verð. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Bátar Skemmtibátur óskast Óska eftir að kaupa skemmtibát, verð allt að 8.0 m. Vinsamlega sendið tilboð á omarsig@simnet.is Bílar VW Bora Highline, kóngablár árg. '02, keyrður 92.000 fæst á yfirtöku láns. Lánið stendur í 1.058.000, afborgun 21.000 per mán. Góður og flottur bíll. Uppl. 847 0205. Matador hjólbarðar Sumar og heilsársdekká góðu verði. Hjólbarðaverkstæði Kaldasels ehf Kaldasel ehf, Dalvegi 16b, Kópavogi, s. 544 4333. 1.000.000 og 2 bílar Loaded X5 og Santa Fe á yfirtöku og milljón fylgir með. Nánari upplýsingar http://simnet.is/zazou/ Bílavörur Dekk á felgum og m/koppa til sölu 4 x góð 195/65R15 negld vetrardekk af Volkswagen Golf til sölu, á felgum og með koppa. Uppl. 696 7712. Selst ódýrt. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Pallhýsi Travel Lite, Pallhýsi Síðustu húsin komin heim. Tilbúin á bílinn, skemmtilegustu fríin. Ferðapallhýsi, Oddagötu 8 Rvk. s. 663 4646. Palomino Nýtt Bronco 1251 fyrir 6,5 feta pall. WC, gaseldavél, heitt og kalt vatn, sturta inni og úti, 220V tenglar, tilbú- inn í ferðalagið. Verð aðeins 1250 þ. Sími 898 3612. Óska eftir vantar 8-15 hp utanborðsmótor vantar 8-15 hp utanborðsmótor, sími 893 3185 og 861 8895.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.