Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ómar Garðarsson
VESTMANNAEYINGAR segja
venjulega þegar þjóðhátíð nálgast
að straumurinn liggi til Eyja. Hafi
það einhvern tímann átt við er það
núna því eftir því sem næst verður
komist eru milli 6.000 og 7.000
manns á leiðinni á þjóðhátíð sem að
sögn kunnugra er meira en elstu
menn muna. Vel er spáð fyrir
helgina þannig að fátt ætti að koma í
veg fyrir að allir skemmti sér í Herj-
ólfsdal um verslunarmannahelgina.
Hefur legið við handa-
lögmálum við að tjalda
Tryggvi Már Sæmundsson,
framkvæmdastjóri þjóðhátíðar, hef-
ur haft í mörg horn að líta und-
anfarnar vikur. Þó sumum finnist
seint ganga að koma upp mannvirkj-
um í Herjólfsdal voru hofið, myllan,
Herjólfur allan sólarhringinn.
Þegar Tryggvi er spurður um
dagskrána segir hann þjóðhátíð-
arnefnd bjóða upp á landsliðið í gríni
og tónlist í Dalnum og auðvitað verði
brennan, flugeldasýningin og
Brekkusöngurinn á sínum stað.
Þessi þrjú atriði ásamt hvítu tjöld-
unum og gestrisni heimamanna er
það sem gerir þjóðhátíðina að ein-
stakri skemmtun sem stendur af sér
alla samkeppni. Við höfum líka alltaf
lagt áherslu á öfluga gæslu.“
Að lokum sagðist Tryggvi hafa
góða tilfinningu fyrir þjóðhátíðinni í
ár. „Veðurspá er ein sú besta sem
við höfum séð í mörg ár og straum-
urinn liggur klárlega hingað þetta
árið. Margir koma ár eftir ár og ég
gef gestum á þjóðhátíð hiklaust 9 í
einkunn. Þeir eru frábærir. Ég óska
þeim öllum gleðilegrar hátíðar með
ósk um að allir snúi heilir heim.“
vitinn, sviðin á stóra og litla pallinum
komin upp í gær. „Þetta hefur geng-
ið vel síðustu dagana og það léttir
störfin að fá svona gott veður,“ sagði
Tryggvi í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Við erum að ganga frá götum
fyrir hvítu tjöldin sem setja sinn svip
á hátíðina. Þetta verður allt tilbúið
þegar gestirnir byrja að streyma í
Dalinn en við leyfum tjöldun eftir kl.
átta á fimmtudagskvöld. Það er oft
handagangur í öskjunni þegar tjöld-
un hefst því margir eru fastheldnir á
stæðið sitt sem í sumum tilfellum
hafa erfst mann fram af manni.
Stundum hefur legið við handalög-
málum en nú ætti það að heyra sög-
unni til.“
Tryggvi er óvenju bjartsýnn á að-
sókn en loftbrú verður frá Bakka og
Reykjavík til Eyja fimmtudag og
föstudag og sömu daga gengur
Búast við 6–7 þúsund manns í Eyjum
Í mörg horn að líta við undirbúning þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum Útlit er fyrir gott veður
Morgunblaðið/Sigurgeir
Þjóðhátíð Bjartur Týr og Páll Eydal leggja hönd á plóg við undirbúning í Eyjum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
MENGUNIN í Reykjavíkurtjörn
verður tekin til umfjöllunar hjá heil-
brigðisyfirvöldum í borginni eftir
nýja mengunarskýrslu um ástand í
tjörninni, þar sem lýst er þung-
málmamengun, saurgerlamengun
og fleiru. Hjá heilbrigðiseftirlitinu
eru niðurstöður skýrslunnar litnar
alvarlegum augum og það sem ger-
ist á næstunni er að efni hennar
verður kynnt hjá heilbrigðisnefnd
borgarinnar og í framhaldinu er
reiknað með aðgerðaáætlun. Árný
Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur seg-
ir að verið sé að skoða skýrsluna
nánar, en hún var unnin af Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs (NK) og
Umhverfis- og samgöngusviði
Reykjavíkur. Það er hinsvegar óvíst
hvenær eitthvað og hvað verður gert
til að hreinsa tjörnina, sem Hilmar
Malmquist forstöðumaður NK lýsir
sem „fúlum pytti með aumu lífríki“.
Tjörnin er samkvæmt skýrslunni
menguð af þungmálmum, en þar er
um að ræða blý, sink og kopar. Þessi
mengun mun hafa borist í tjörnina í
áranna rás frá bílaumferð og götu-
mannvirkjum með ofanvatni. Þá er
ótalin saurgerlamengun, sem rakin
er bæði til manna og fugla. Bendir
Hilmar á að ástand tjarnarinnar sé
skólabókardæmi um hvernig vatn
geti orðið mengun að bráð í stór-
borgarumhverfi. Smádýr eins og
vatnaflær þrífast ekki lengur í tjörn-
inni, sömuleiðis síkjamari sem áður
hélt vatninu hreinu.
Síkjamarinn verði
endurheimtur
En þótt tjörnin sé mjög menguð
er ekki þar með sagt að ekki sé hægt
að hreinsa hana. Í skýrslunni eru
settar fram tillögur til úrbóta sem
miða m.a. að því að endurheimta sík-
jamara með gróðursetningu plönt-
unnar á tveim stöðum í tjörninni.
Einnig er velt upp þeim möguleika
að fjarlægja efsta hluta setlagsins úr
allri tjörninni en það er hugmynd
sem á rætur að rekja til aldamót-
anna 1900. Sagt er frá því að skyn-
samlegast sé að miða við að fjar-
lægja efsta 50-60 cm lagið, þ.e. þann
hluta setlagsins sem er mengaður.
Minnt er á að slík aðgerð sé þó tíma-
bundin lausn á vandanum. Þar sem
uppsprettur mengunar verða að lík-
indum áfram til staðar mun mengun
tjarnarinnar sækja í fyrra horf með
tíð og tíma.
Einnig er lagt til að borgin hætti
að gefa fuglum á tjörninni brauð þar
sem þeir drita brauðinu aftur í tjörn-
ina og ýta þar með undir örveruflór-
una. Þá þarf að kanna hugsanlega
skólplosun í yfirborðsvatn af flug-
vallarsvæðinu í Reykjavík og fyr-
irbyggja hana. Ekki er aðeins búist
við að magn örvera minnki í kjölfar-
ið, heldur einnig að það dragi úr
styrk næringarefna.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Mengun Blý, kopar og sink auk saurgerlamengunar að ógleymdu „venjulega ruslinu“ er hið daglega brauð fugla á tjörninni nú um stundir.
Borgin tekur málið fyrir
Mengunin í Reykjavíkurtjörn hefur breytt henni í „fúlan pytt með aumu lífríki“ og
borgin ætti að hætta að gefa öndunum brauð og fjarlægja mengað botnset úr henni
Á MEÐAN bensínsverð hækkar
jafnt og þétt fylgir gasverð á Íslandi
heimsmarkaðsverði ekki eins stíft
eftir. Að sögn Péturs Andréssonar
hjá Gasfélaginu hf hefur markaðs-
verðið hækkað samhliða olíuverði
auk þess sem hækkandi flutnings-
kostnaður og gengisbreytingar taki
sinn toll. Því sé innistæða fyrir því
að smásöluverð hækki líka hjá end-
ursöluaðilum. Mestar sviptingar
hafa verið hjá Olís en þar kostaði
áfylling á 10 kg gaskút í plasti 3.490
krónur í apríl en hafði hækkað upp í
5.141 krónu í júní. Það hefur þó
lækkað aftur síðan og stendur í
4.360 krónum í dag. Hjá N1 og Skelj-
ungi hefur verð á samskonar kútum
verið óbreytt síðan í apríl og kostar
gasið 3.965 kr. á N1 og 4.395 kr. hjá
Skeljungi. unas@mbl.is
Gasið hækkar
minna en
bensínið
ÁRNI Jónsson söngvari er lát-
inn, 82 ára að aldri. Árni fæddist
12. maí 1926 að Hólmi í Austur-
Landeyja-
hreppi, sonur
hjónanna Jóns
Árnasonar og
Ragnhildar
Runólfsdóttur.
Árni lagði
stund á söng-
nám í Mílanó
árin 1953 til
1954 og fór
þaðan í framhaldsnám í söng- og
óperuskóla Símonar Edward-
sens í Stokkhólmi árin 1954 til
1959, auk tónfræðináms hjá And-
ers Biberg prófessor. Árni söng
bæði í óperum og á fjölda tón-
leika heima og erlendis. Hann hóf
störf hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga 1962 og starfaði
þar til ársins 1989 er hann hóf
störf hjá Skattstofunni í Reykja-
vík. Þar starfaði hann allt til árs-
ins 1996 er hann fór á eftirlaun.
Hann sat í skólanefnd tónlistar-
skólans í Garðabæ um árabil og
hlaut viðurkenningu bæjar-
félagsins fyrir störf sín að menn-
ingarmálum. Eftirlifandi eigin-
kona Árna er Bjarney Tryggva-
dóttir og eignuðust þau fjóra
syni, Tryggva Guðmund, Jón,
Val og Ragnar. Fyrir átti hann
Sigurjón með fyrri eiginkonu
sinni Sjöfn Sigurjónsdóttur.
Andlát
Árni
Jónsson
Hvaðan kemur mengunin?
Ofgnótt fosfórs, köfnunarefnissam-
banda, lífræns kolefnis, blaðgræna,
saurgerla, enterókokka og blýs er
fyrst og fremst rakin til áhrifa mann-
lega athafna við tjörnina, en einnig
til áhrifa fugla.
Þarf að fylgjast náið með?
Mjög bágt ástand í saurgerlaflóru
gefur að mati skýrsluhöfunda fullt
tilefni til að fylgjast grannt með
gerlamagninu, sérstaklega þarf að
fylgjast með Vatnsmýrartjörn.
Ástand þungmálma er þokkalegt á
heildina litið að blýi undanskildu.
Kopar er einnig á mörkum þess að
hafa mengandi áhrif. Því er mælt
með tíðari mælingum á blýi og kop-
ari en fyrir aðra málma.
Grafast þarf fyrir um hvort bein los-
un á skólpi eigi sér stað af flugvall-
arsvæðinu eða öðrum nærliggjandi
svæðum, segir í mengunarskýrsl-
unni.
S&S