Morgunblaðið - 31.07.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 15
ERLENT
EHUD Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, tilkynnti í gær, að hann
hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri
sem leiðtogi Kadima-flokksins í
september nk. og myndi því segja af
sér embætti strax og nýr leiðtogi
hefði verið kjörinn.
Búist hafði verið við tilkynningu
frá Olmert þessa efnis en hún jafn-
gildir því, að hans pólitíska ferli sé
um það bil að ljúka. Á hann raunar
ekki annarra kosta völ vegna þeirrar
sakamálarannsóknar, sem nú stend-
ur yfir, en hann er grunaður um hafa
gerst sekur um spillingu og mútu-
þægni er hann hann var borgarstjóri
í Jerúsalem og gegndi embætti við-
skiptaráðherra.
Miklar getgát-
ur eru um líkleg-
an eftirmann Ol-
merts í embætti
og sigurvegara í
leiðtogakjörinu í
Kadima-flokkn-
um 17. september
nk. Þykir Tzipi
Livni utanríkis-
ráðherra standa
vel að vígi en hún
er nýtur mikilla vinsælda, og tveir
aðrir eru nefndir, þeir Shaul Mofaz,
samgönguráðherra og einn af þrem-
ur aðstoðarforsætisráðherrum, og
Avi Dicheter, fyrrv. yfirmaður ör-
yggislögreglunnar. svs@mbl.is
Ehud Olmert boðar afsögn
Í HNOTSKURN
» Ehud Olmert varð for-sætisráðherra í Ísrael að
loknum kosningum í apríl 2006
en þá vann Kadima-flokkurinn
góðan sigur.
» Þetta sama sumar áttu Ísr-aelar í stríði við Hizbollah-
hreyfinguna í Líbanon og þótti
það hin mesta sneypuför.
» Til að kóróna klúðrið hef-ur Olmert síðan verið sak-
aður um spillingu.
Ehud
Olmert
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
TAKIST Verkamannaflokknum að
ná aftur vopnum sínum, sannfæra
kjósendur um afrek sín við stjórnar-
taumana síðustu ellefu árin og útmála
íhaldsmenn þannig að þeir séu úr
takti við áskoranir næstu ára þá á
stjórn Gordons Brown möguleika á að
halda völdum, þvert á allar kannanir.
Þetta er öðrum þræði inntak um-
deildrar greinar Davids Milibands ut-
anríkisráðherra Bretlands í blaðinu
The Guardian í gær, þar sem hann lít-
ur yfir farinn veg og þau mistök sem
stjórnir Tonys Blair og Brown hafi
gert á liðnum árum (sjá ramma).
Miliband minnist hins vegar ekki
einu orði á Brown forsætisráðherra
og væna nokkrir samherja þess síð-
arnefnda utanríkisráðherrann unga
um að ýta undir orðróm um að látið
verði sverfa til stáls á komandi flokks-
þingi, þar sem andstæðingar Browns
muni geri atlögu að honum.
Neitar að svara spurningum
Þau viðbrögð Milibands að vísa frá
ítrekuðum spurningum á blaða-
mannafundi með Franco Frattini, ut-
anríkisráðherra Ítalíu, í gær um hvort
hann muni sækjast eftir leiðtogasæt-
inu hafa ekki slegið á vangaveltur þar
um, að því er fram kemur á vef The
Daily Telegraph.
Var þar einnig haft eftir nánum,
ónafngreindum samherjum Browns
að með greininni hefði Miliband ekki
einvörðungu sýnt fram á dómgreind-
arskort, heldur einnig afhjúpað að
þar færi eiginhagsmunaseggur,
ótryggur flokkshagsmunum.
Fremstur í goggunarröðinni
Dagblaðið The Independent hefur
hins vegar eftir félögum Milibands að
ætlunin sé ekki að minna á að hann sé
fremstur í goggunarröðinni komi til
þess að Brown verði settur af. Málið
snúist um að minna á þá staðreynd að
forsætisráðherrann hafi reynst mátt-
vana í gagnsókn sinni
gegn fylgisaukningu
íhaldsmanna, undir
forystu Davids Cam-
eron, þar sem al-
menningur sé einfald-
lega hættur að hlusta
á leiðtogann.
Á hinn bóginn hef-
ur blaðið eftir Mili-
band að hann útiloki
ekki að umræða um forystu Verka-
mannaflokksins hefjist á ný eftir sum-
arleyfi og tók þar með í sama streng
og Jack Straw, annar þungavigtar-
maður í flokknum, sem rætt hefur
verið um sem arftaka flokksleiðtog-
ans.
Þá neitaði Harriet Harman, vara-
leiðtogi flokksins og starfandi for-
sætisráðherra í leyfi Browns, því í
annað sinn í gær að hún sæktist eftir
leiðtogasætinu á næstunni.
Skrif Milibands valda
titringi í stjórn Brown
Breski utanríkisráðherrann minnist ekki á leiðtoga sinn
David Miliband Gordon BrownJack Straw
STUTT
Dómsmálaráð-
herra hefur skip-
að Helga Jóhann-
esson, hæsta-
réttarlögmann,
formann mats-
nefndar eign-
arnámsbóta og
Allan V. Magnús-
son, héraðsdóm-
ara sem varafor-
mann nefndarinnar. Skipunin gildir
í fimm ár frá 24. ágúst nk. að telja.
Helgi formaður
Helgi Jóhannesson
Eftir Helgu Mattínu Björnsdóttur
Grímsey | Sigurður Bjarnason eig-
andi Vélaverkstæðis S.I.B í Gríms-
ey er verktaki við færslu á garði
við höfnina og dýpkun. Þessum
framkvæmdum, sem hófust fyrir
rúmum mánuði, fylgir töluvert rót
og rask og miklir grjótflutningar.
Lengja á bryggjuna um 20 metra
til að skapa betra legupláss fyrir
bátana. Gamli garðurinn var tek-
inn og fyllingu komið fyrir til að
bora í gegnum og sprengja neð-
ansjávar. Sigurður sagði að ef allt
gengi að óskum yrðu verklok í
nóvember. Sigurði til aðstoðar er
bróðursonur hans Örn Ingi Magn-
ússon. „Jarðskjálftarnir við Gríms-
ey eru ekki allir okkur að kenna,“
sagði Sigurður að lokum, „þó við
frændur liggjum sterklega undir
grun eftir því sem gárungarnir
segja.“
Morgunblaðið/Helga Mattína
Á bryggjunni Örn Ingi Magnússon (til vinstri) og Sigurður Ingi Bjarnason
verktaki vinna hörðum höndum að hafnarframkvæmdum í Grímsey.
„Jarðskjálftarnir eru
ekki okkur að kenna“
TALSMAÐUR neytenda, Gísli Tryggvason, hefur boðað
til sín á fundi fulltrúa olíufélaganna fjögurra, hvers um
sig, í byrjun ágúst í því skyni að ræða verðmyndun gagn-
vart neytendum á bensíni og díselolíu. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu.
Að gefnu tilefni hefur talsmaður neytenda nýverið
boðað fulltrúa olíufélaganna fjögurra á fundi í byrjun
ágúst auk tengdra félaga með sjálfvirkar dælustöðvar.
Um er að ræða eftirfarandi olíufélög á neytendamark-
aði: Atlantsolíu, N1 ásamt Ego, Olís ásamt ÓB og loks
Skeljung ásamt Orkunni.
Metið verður hvort verðmyndun feli í sér brot gegn neytendum. Í frétta-
tilkynningu segir að Gísli boði til fundarins „í því skyni að fá upplýsingar
um verðmyndun á olíu á neytendamarkaði í ljósi umræðu sem lengi hefur
staðið og fer vaxandi með flökti á gengi og heimsmarkaðsverði á olíu.“
Olíufélög boðuð á fundi
Gísli Tryggvason
FJÖGUR ungmenni sem tálmuðu
umferð við Grundartanga eru
grunuð um að hafa stolið fatnaði
frá Orkuveitunni. Í fréttatilkynn-
ingu frá OR segir að enginn kannist
við að hafa gefið fatnaðinn en þó
segja ungmennin starfsmann Orku-
veitunnar hafa fært þeim fatn-
aðinn. Þá höfðu þau í fórum sínum
álstengur sem eigandi tjaldleigu
segir að hafi verið stolið frá sér.
Sökuð um að stela
fatnaði og áli
Í GREIN sinni í dagblaðinu The
Guardian rekur Miliband nokkur
af mistökunum sem hann telur
flokk sinn, Verkamannaflokkinn,
hafa gert á undanförnum miss-
erum.
Umbætur á heilbrigðisþjónust-
unni hefðu að hans mati átt að
hefjast fyrr, en þau skref sem
flokkurinn hefur stigið í þeim efn-
um hafa ekki verið óumdeild og
nokkur ónáægja verið með ýmsa
þætti heilbrigðisþjónustunnar.
Miliband telur einnig að standa
hefði átt betur að undirbúningi
uppbyggingarinnar í Írak að lok-
inni innrásinni í mars 2003 í því
skyni að tryggja að friður héldist í
landinu eftir átökin.
Stjórnir Tonys Blairs og Gordons
Browns hefð áttu að færa meira af
valdi sínu til einkageirans, taldi
Miliband, án þess að skýra það
nánar.
Bretar þurfi einnig að grípa til
aðgerða til að draga úr losun kol-
díoxíðs um leið og skilvirkni orku-
kerfisins verði aukin.
Lækka þurfi orkureikninga
heimilanna en eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær er viðbú-
ið að gasverð hækki mjög, sam-
hliða því sem hratt gengur á gas-
og olíubirgðir Breta í Norðursjó.
Hefðu átt að draga frekar úr valdi ríkisins
LABRADORTÍKIN Ísabella hefur þrjá hvíta tígris-
hvolpa á spena. Hún gekk hvolpunum í móðurstað því
móðir þeirra vildi ekki gangast við þeim þegar þeir
fæddust á sunnudag. Öll búa þau í dýragarði í Kansas.
AP
Milt er móður hjarta
MINNISVARÐI um hjónin Kristófer
Þorvarðarson, bónda og póst á
Breiðabólstað á Síðu, og eiginkonu
hans Rannveigu Jónsdóttur hús-
freyju og þrettán börn þeirra var
reistur í Rannveigarlundi á Síðu sl.
laugardag.
Athöfnin fór fram í einstöku blíð-
viðri á nær fjögur hundruð manna
ættarmóti afkomenda þeirra hjóna.
Eftir setningu mótsins í Prests-
bakkakirkju var lagður blómsveigur
á leiði hjónanna og leiði séra Þor-
varðar Jónssonar, föður Kristófers.
Að svo búnu var haldið í Rannveig-
arlund þar sem minnisvarðinn var
afhjúpaður. Gróðursettar voru trjá-
plöntur í lundinum og í kjölfarið var
kaffisamsæti með fjölbreyttri dag-
skrá í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á
Kirkjubæjarklaustri.
Rannveigarlundur er á skógar-
jörðinni Prestsbakkakoti. Af skaft-
fellskri gestrisni er öllum boðið að
koma í lundinn og njóta þar hvíldar
og næðis. thorbjorn@mbl.is
Reistur Ólafía Jakobsdóttir og
Rannveig Jónsdóttir afhjúpa
minnisvarðann.
Forfeðra
minnst á Síðu
LÖGREGLAN á Sauðárkróki hefur
fengið lettneskan mann úrskurð-
aðan í farbann vegna gruns um að
hann hafi stolið vörum úr þremur
fyrirtækjum í Skagafirði, að and-
virði allt að 500 þúsund króna á
tveggja mánaða tímabili. Maðurinn
var starfsmaður hreingerningafyr-
irtækis sem annaðist þrif í viðkom-
andi fyrirtækjum, og er hann sterk-
lega grunaður um að hafa nýtt sér
aðstöðu sína við brotin. Maðurinn,
sem er á þrítugsaldri, var úrskurð-
aður í farbann til 8. september og
miðar rannsókn málsins vel.
Í farbanni
vegna þjófnaða