Morgunblaðið - 31.07.2008, Síða 19
geta verið sjúkdómsvaldandi
stytta þær geymsluþol grænmet-
isins. Ef ekki á að neyta grænmet-
isins strax skal setja það í lokuð
ílát og geyma í efstu hillu í kæli-
skáp. Það tryggir bæði ferskleika
grænmetisins og ver það fyrir
mengun.
4 Meðhöndlun matvæla
Hreinlæti skal vera í fyrirrúmi við
meðhöndlun matvæla. Hættan á
að matvæli innihaldi sýkla er allt-
af til staðar og þeir geta borist á
milli matvæla með höndum,
hönskum og áhöldum. Því skal þvo
hendur oft og nota ávallt hrein
áhöld. Sýklar hætta að vaxa og
fjölga sér í kulda og því skal
geyma mat við 0 til 4°C. Matar-
afganga og tilbúinn mat sem ekki
á að neyta strax skal kæla strax,
en sýklar fjölga sér hratt við
stofuhita. Ef ekki eru hafðar gæt-
ur á er hætta á krossmengun
baktería milli matvæla. Er þá til
að mynda átt við þegar bakteríur
berast úr hráum kjúklingi yfir í
eldaðan mat sem tilbúinn er til
neyslu. Því er mikilvægt að nota
sérstök áhöld og skurðarbretti
fyrir mismunandi matvæli, til
dæmis kjöt og grænmeti. Til að-
greiningar er góð hugmynd að
hafa áhöldin og skurðarbrettin í
mismunandi lit, eftir því fyrir
hvers konar hráefni þau eru.
5 Umbúðir Ekki er sama í
hvers konar umbúðum matur er
geymdur. Umbúðir úr plasti og
gleri má nota aftur og aftur, en
hafa þarf í huga samsetningu mat-
vælanna og að sýrustig sé ekki
mjög frábrugðið því sem áður var
í ílátunum. Álpappír hentar vel ut-
an um ost, smjör, kjöt og þess
háttar matvæli. Hins vegar er
best að geyma ávexti, grænmeti
og brauð í plastfilmu. Öll matvæli
má geyma í glerílátum en athuga
skal fyrst hvaða hitastig glerið
þolir. Óráðlegt er að geyma mat-
væli í mikið litskreyttum leir-
ílátum. Ýmislegt bendir til þess að
þau gefi frá sér mikið magn af
blýi og öðrum efnum sem haft
geta skaðleg áhrif. Röng notkun
umbúða getur leitt til þess að
óæskileg efni úr umbúðum berist í
matvæli og geta þau valdið heilsu-
tjóni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 19
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Trine Lundgaard Olsen
farsími nr. +45 61 62 05 25
netfang: tlo@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Borgartúni 26 // 105 Reykjavík // Sími : 570 1200 // Fax : 570 1209 // vbs.is
TILKYNNING
VBSFJÁRFESTINGABANKIHF.BIRTIRLÝSINGARVEGNATÖKU
VÍXLAFLOKKA MEÐAUÐKENNINVBS080814,VBS081016,
VBS 09 0205 OGVBS 09 0416TILVIÐSKIPTA HJÁ OMX ICE
VBS Fjárfestingabanki hf. hefur birt lýsingar vegna töku fjögurra
víxlaflokka til viðskipta hjá OMX Nordic Exchange Iceland hf..
Flokkur VBS 08 0814 gefinn út 10. janúar 2008 með gjalddaga 14. ágúst
2008 að uppæð kr. 400.000.000, nafnverðseining
kr. 5.000.000 (ISIN IS0000016830).
Flokkur VBS 08 1016 gefinn út 12. júní 2008 með gjalddaga 16. október
2008 að uppæð kr. 100.000.000, nafnverðseining
kr. 10.000.000 (ISIN IS0000018216).
Flokkur VBS 09 0205 gefinn út 10. janúar 2008 með gjalddaga 5. febrúar
2009 að uppæð kr. 400.000.000, nafnverðseining kr. 5.000.000 (ISIN
IS0000016855).
Flokkur VBS 09 0416 gefinn út 12. mars 2008 með gjalddaga 16.apríl
2009 að uppæð kr. 150.000.000, nafnverðseining
kr. 10.000.000 (ISIN IS0000017598).
Víxlarnir eru vaxtalausir og óverðtryggðir.
Víxlarnir verða teknir til viðskipta þann 31. júlí 2008 hjá OMX ICE.
Lýsingarnar má nálgast á prentuðu formi hjá útgefanda, VBS
Fjárfestingabanka hf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík og á vefsetri útgefanda
www.vbs.is í 12 mánuði frá dagsetningu tilkynningar þessarar.
Umsjónaraðili er VBS Fjárfestingabanki hf.
Reykjavík, 31. júlí 2008
úr bæjarlífinu
Uppáhaldsverslunin þessa dagana er
Fjölsmiðjan hérna á Akureyri. Þar
eru mublur, þar eru bækur, þar eru
alls konar gripir sem eru á algjörlega
ómissandi verðlagi. Þar er líka hægt
að fá bílaþvott á góðu verði. Af nógu
er að taka, og allt má þar finna. Ég
keypti mér t.d. um daginn þennan
fína Yamaha skemmtara, líklega
módel 1978 eða hér um bil, fyrir
slikk. Þess háttar tæki sem meira að
segja nágranninn elskar.
Tveir norðanmenn, báðir Þing-
eyingar og Akureyringar, eiga það
sammerkt að hafa gefið út bækur á
sumrinu sem hafa farið undarlega
hljótt. Hjálmar Freysteinsson læknir
og Björn Þorláksson fréttamaður.
Hjálmar gaf út kvæðabók með limr-
um og kallar hana Heitar lummur.
Hafi einhver efasemdir um gæðin í
skruddunni er nóg að benda á síðasta
kvæðið, Eftirmæli að hætti Þing-
eyings:
Í húminu um haustkvöldin mild
má limrurnar lesa að vild
fram og tilbaka
meðan fuglarnir kvaka.
Hver limra er leiftrandi snilld.
Yrkisefni Hjálmars nafna eru marg-
vísleg og fyndin en Björn skrifar um
efni sem allir hafa hugleitt og flestir
hafa skoðun á. Nefnilega karpið um
náttúruspjöll og náttúrunýtingu; með
álverum eða með náttúrunni. Þær
knýjandi spurningar sem tilheyra
umræðunni hefur Björn sett í skáld-
sögubúning, en Náttúrubörn er hans
þriðja skáldsaga. Vert er að mæla
með báðum bókunum hér.
Í Fjölsmiðjunni vinnur ungt fólk á
krossgötum í lífinu. Oftast þegar ég
hef komið þangað er Erlendur Krist-
jánsson fv. handboltakappi að ráð-
leggja ungmennunum og stýra skút-
unni. Þar er mjög góður andi og alveg
óhætt að mæla með því að fólk bregði
sér í hrönnum niður á Óseyri.
Knattspyrnuundrið á Grenivík hefur
átt hug minn um nokkra hríð.
Örsmáa liðið út með firði er nú komið
í 4. sæti í 2. deild og nagar þannig
óbeint hælana á risunum KA og Þór
sem færast æ neðar töfluna í 1. deild.
Magnamenn hafa hirt hvert stigið á
fætur öðru í síðustu leikjum og þann-
ig yfirstigið 5 leikja taphrinu í upp-
hafi móts. Ég mæli með því að Magni
fylgi þessu prógrammi í kjölfarið: að
keyra á uppsveiflunni, hala inn fleiri
stig og fylgja toppliðunum eftir ef þau
misstíga sig. Það gæti til dæmis setið
í Aftureldingarmönnum að hafa tap-
að 1-0 fyrir Mögnunum á Grenivík
um daginn ...
Það gisti garður eyðiskóginn á torg-
inu og hefur ákveðið að staldra þar
við um sinn. Svo virðist sem bæj-
arbúar hafi tekið ástfóstri þessu af-
sprengi borgaralegrar óhlýðni og
hanga nú mínútunum saman á græna
blettinum á torginu. Miðað við við-
brögðin sem torfuuppátækið hefur
fengið er aldrei að vita nema fleiri
bæjarbúar fari nú að taka málin í sín-
ar hendur og geri andlitslyftingar á
bænum í sjálfboðavinnu. Það er ansi
hætt við að maður verði jafnvel að
mæla með því. Býður sig einhver
fram í að stöðva umferðina í Gilinu?
Svo mæli ég af krafti með því að fólk
skelli sér út í sólina og muni eftir að
taka Moggann með sér.
AKUREYRI
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Davíð Hjálmar Haraldsson ásérkennilegan vinahóp, sem
hann læðir stundum í limrur:
Kolgrímur Karlsson, fljóti,
keppir á sterku móti.
Vaskur og snar
verður hann þar
oft fyrir eigin spjóti.
Þá rifjaðist upp limra hjá Birni
Ingólfssyni, sem einu sinni sem
oftar var í gönguferð með hóp á
eftir sér. „Einhverjar konur, stutt-
stígar, kvörtuðu yfir fullmiklum
hraða á forystusauðnum. Þá orti ég
handa þeim limru sem þær gætu
raulað sér til hugarhægðar ef
leiðsögumaðurinn léti sér ekki
segjast:
Þarna er leiðindaskarfurinn ljóti
mig langar að kasta í hann spjóti.
Ef verð ég of sein
þá vel ég mér stein
og hendi í helvítið grjóti!“
Bjarni Stefán Konráðsson var
ekki seinn til að botna kveðskapinn
með orðunum: „...og það gerði
hún“:
Ég lúin í lófana spýtti
og lafmóð ég steinana nýtti
til seinustu ráða,
sá skyldi fá’ða
og Björn minn ég blessaðan grýtti.
Ég bjóst við að fá það nú frá’onum
formælt og óþvegið hjá’onum.
Og það kom á daginn
en það bætti haginn,
að það hægði nú örlítið á’onum.
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is
Af grjót- og
spjótkasti
DANSKIR eldri borgarar sem
hjóla í umferðinni nota yfirleitt
ekki hjálm. Fjöldi hjólreiða-
tengdra dauðsfalla á meðal ein-
staklinga, 65 ára og eldri, hefur
tvöfaldast í Danmörku undanfarin
ár. Vefrit Berlingske Tidende, seg-
ir að sérfræðingar séu hræddir um
að orsökin sé mótþrói aldurshóps-
ins gagnvart hjálmnotkun.
Árið 2007 létu 57 hjólreiðamenn
lífið á dönskum vegum og hjól-
reiðastígum. Það er 70% aukning
frá árinu 2006. Helmingur fórnar-
lamba var eldri en 65 ára, þar af
voru 50% sem létust af höfuð-
áverkum. Eldra fólk virðist ekki
vera duglegt að hjóla með hjálm.
Árið 2006 könnuðu Danir hjálm-
notkun á meðal eldri borgara og
kom þá í ljós að einungis 5% fólks,
60 ára og eldra, notar hjálm.
Það má því teljast óhætt að
benda hjólafólki á efri árum á
nauðsyn þess að hjóla með viðeig-
andi öryggisbúnað.
Þeir eldri sleppa
hjálminum
Hjálmlaus Það ættu allir að nota hjálm
á hjólinu, sama á hvaða aldri þeir eru.
Reuters