Morgunblaðið - 31.07.2008, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er fimmtudagur 31. júlí, 213. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð
yðar, lifið eftir boðorðum mínum og
haldið lög mín og breytið eftir þeim.
(Esk. 20, 20.)
Víkverji kom sæll og glaður úrsumarfríinu sínu í gær, á heit-
asta degi sumarsins hingað til. Fríið
var sérlega vel heppnað og kauði
státar nú af dálaglegri hestamanna-
og bændabrúnku en Víkverji var
staddur á „Costa del Suðurland“ nær
allan júlímánuð. Já, á Suðurlandi, á
Íslandi þar sem sumarið er.
x x x
Víkverji hefur aldrei skilið afhverju Íslendingum dettur í
hug að flýja til útlanda loksins þegar
sumarið kemur til okkar. Sumarið á
Íslandi er það besta sem hann veit,
náttúran og veðrið eru hreinasta
undur og í augum Víkverja er alltaf
gott veður á íslensku sumri. Ef það
rignir einhver ósköp þá er minnsta
mál að hoppa upp í bíl og keyra í ann-
an fjórðung.
x x x
Veðrið er vissulega margbreyti-legt á Íslandi og Víkverja grun-
ar að Sunnlendingar hafi verið
heppnari en aðrir það sem af er
sumri – sem leiðir hugann að því eina
sem skyggði á annars sólbakað líf
Víkverja, eina sjónvarpsefninu sem
hann fylgdist grannt með í fríinu;
veðurfréttum. Hefur lesandi góður
tekið eftir því að á Íslandskorti
Veðurstofu Íslands virðist oft vera
frekar lítill hiti á Suðurlandi sam-
kvæmt grafíkinni? Og skyldi hann
vita hvernig á því stendur? Víkverji
hefur svar við því: Veðurstöðin er
Stórhöfði úti á ballarhafi – ekki
Hella, ekki Flúðir. Veðurspáin sem
hímdi yfir Suðurlandsundirlendinu á
kortinu á hádegi í gær, þ.e. Stór-
höfða, hljóðaði upp á 15 stiga hita.
Þegar Víkverji steig af ströndinni á
„Costa del Suðurland“ í gær var hit-
inn 28 stig. Aðeins 13 stiga munur!
x x x
Víkverji vill þó ekki fara mjög háttmeð málið, kannski má hann
þakka fyrir að Veðurstofan kjósi
Stórhöfða sem fulltrúa Suðurlands á
kortum sínum. Annars myndi gósen-
landið fyllast enn meira en ella, nóg
er víst samt. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Danmörk Emilía Lindberg
fæddist 19. apríl. Hún vó
4.260 g og var 54 cm löng.
Foreldrar hennar eru Rakel
Lindberg Jónsdóttir og
Ómar Þ. Árnason.
Reykjavík Gísli Erik fæddist
29. júní kl. 20.59. Hann vó
4.205 g og var 54 cm langur.
Foreldrar hans eru Jón Ólaf-
ur Valdimarsson og Sigríður
Elsa Kristjánsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 skadda,
4 megnar, 7 siða,
8 grobbs, 9 sníkjudýr,
11 nytjalanda, 13
glens,14 reikar, 15 ill-
menni, 17 spírar,
20 skeldýr, 22 vind-
hviðan, 23 fingur,
24 glatar, 25 vitlausa.
Lóðrétt | 1 fótþurrka,
2 ástundar, 3 einkenni,
4 samsull, 5 les, 6 blómið,
10 fjandskapur, 12 eðli,
13 guggin, 15 úr því að,
16 ber, 18 áfanginn,
19 byggja, 20 flanar,
21 hermir eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mannsefni, 8 buddu, 9 tíbrá, 10 tól, 11 tunga,
13 arinn, 15 harms, 18 örmum, 21 kot, 22 losti, 23 urinn,
24 mannalæti.
Lóðrétt: 2 aldin, 3 nauta, 4 eitla, 5 nebbi, 6 ábót, 7 háin,
12 góm, 14 rór, 15 hold, 16 raska, 17 skinn, 18 ötull,
19 meint, 20 munn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2
b6 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 Bb7 7. e3 d6 8.
Be2 Rbd7 9. O–O O–O 10. b4 a5 11. Bb2
De7 12. Dc2 Re4 13. Hfd1 f5 14. d5 e5
15. Rd2 Rxd2 16. Dxd2 Ha7 17. f4 He8
18. Bh5 Hea8 19. Bf3 e4 20. Be2 Rf6 21.
h3 axb4 22. axb4 Bc8 23. Bd4 Bd7 24.
Db2 Kf7 25. Hxa7 Hxa7 26. Ha1
Hxa1+ 27. Dxa1 Dd8 28. Da7 Kg6 29.
Bd1 h6 30. Bb3 Be8 31. Db7 Bf7 32. Ba4
h5 33. Bc6 Bg8 34. Kf1 Bf7 35. Ke2 h4
36. Kd2 Kh7 37. Kc2 Bh5 38. Kd2 Bf7.
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Búdapest í
Ungverjalandi. Ungverski alþjóðlegi
meistarinn David Berczes (2458) hafði
hvítt gegn kollega sínum Hafizulhelmi
Mas (2386) frá Malasíu. 39. Bxb6! cxb6
40. Dxf7 Kh6 41. Kc2 g6 42. Kb3 Rg8
43. Be8 Re7 44. Df8+ Kh7 45. Bxg6+
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Alþjóðavæðingin.
Norður
♠KD964
♥10
♦Á32
♣9752
Vestur Austur
♠-- ♠G1052
♥DG962 ♥K75
♦876 ♦G1095
♣DG1083 ♣Á6
Suður
♠Á873
♥Á843
♦KD4
♣K4
Suður spilar 3G.
Bestu spilarar Evrópu strekkja í æ
ríkari mæli á stórmótin í Bandaríkjun-
um. Það er því tímanna tákn að sveit
skipuð pólskum og rússneskum spilur-
um skuli hafa unnið Spingold–útsláttinn
á sumarleikunum í Las Vegas. Sveitin
er kennd við Rússann Gromov, sem
spilar við Dubinin, en hitt öxulparið
mynda pólsku jaxlarnir Balicki og
Zmudzinski. Eftir langa hrinu af út-
sláttarleikjum mætti Gromov sveit
Wellands í 64 spila úrslitaleik og vann
naumlega, 135–125. Spilið að ofan er frá
þeim leik og þar hafði Welland betur.
Hann var sjálfur í austur og vakti á 1♠ í
þriðju hendi – stal sem sagt litnum af
NS, sem enduðu fyrir vikið í 3G.
Gromov var við stýrið og fékk út hjarta.
Spilið má vinna með því að dúkka hjarta
tvisvar, en Gromov var hræddur við
laufið og drap strax á ♥Á. Einn niður.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér finnst kannski að þú hafir
ekki mikið að segja við vissan aðila, en
það er gott að gefa eitthvað smá. Ósk um
velgengni myndi gleðja – ef þú meinar
það sem þú segir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stjörnurnar hafa gefið þér hæfileik-
ann til að bjarga deginum fyrir fólki.
Ekki síst þegar þú þekkir það lítið sem
ekkert. Þú færð örgustu fýlupúka til að
brosa.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert aðeins á eftir áætlun –
sem er allt í lagi. Vanalega ertu nokkrum
skrefum á undan öllum öðrum, svo njóttu
þess að vera í þeirra sporum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ertu hræddur um að missa af ein-
hverju ef þú segir ekki já við öllum til-
boðum? Treystu því að þú upplifir það
sem hentar þér og þú hefur þörf fyrir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur mikla þörf fyrir að versla.
Auðvitað eru nokkrir hlutir sem þú þarfn-
ast – en mjög fáir. Þú þarft frekar að losa
þig við dót, frekar en að bæta við.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það eru miklir straumar milli þín
og viss aðila. Það eru segulmagnað að-
dráttarafl sem þú gleymir ekki fyrr en þú
kemst aftur í návist þessarar manneskju.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Því sem þú vilt vita um vissa mann-
eskju er ekki auðvelt að komast að.
Hlustaðu vel og lestu í það sem er sagt –
og líka það sem ekki er sagt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú færð nýja sýn á sjálfan þig
og líf þitt hingað til. Þú minnist venjulegs
atburðar í lífi þínu og sérð skyndilega
hversu miklu máli hann skipti þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að láta minniháttar
rifrildi ekki hafa áhrif á þig. Einbeittu þér
að því sem þú vilt að gerist. Þá mun það
sem hentar þér skjóta upp kollinum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ekki allir sem gera sér
grein fyrir hversu mikla hæfileika þú hef-
ur því hógværðin þín hefur falið þá.
Leyfðu vinum þínum að monta sig af þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert tilbúinn til að hressa
upp á ástarlífið. Ef þú greinir sambandið
mun það auka tilfinningar sem þú hélst
þig ekki hafa. Þú prófar nýja hluti!
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Jæja, nú er tími til kominn að
hætta að dreyma og skrifa niður hagnýt
skref sem þú þarft að taka. Þau koma þér
þangað sem þú vilt fara. Fundur með
steingeit hjálpar.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
31. júlí 1980
Nóttin var sú hlýjasta sem vit-
að var um í Reykjavík, lág-
markshiti sólarhringsins var
18,2 stig. Daginn áður og
þennan dag fór hiti yfir 23
stig.
31. júlí 1991
„Börn náttúrunnar,“ kvik-
mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, var frumsýnd í Stjörnu-
bíói. Í aðalhlutverkum voru
Gísli Halldórsson og Sigríður
Hagalín. Myndin var sýnd
daglega í meira en eitt ár og
tilnefnd til Óskarsverðlauna.
31. júlí 1992
Fyrsta barnið fæddist eftir
glasafrjóvgun hérlendis. Þetta
var stúlka sem mældist 14
merkur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá…
Þórður Júlíus-
son, fyrrum út-
gerðarmaður á
Ísafirði, verður
níræður 4. ágúst
næstkomandi. Í
tilefni af því tek-
ur hann á móti
gestum laugar-
daginn 2. ágúst
kl. 15 í Oddfellowhúsinu. Allir eru
velkomnir og vonast Þórður til að
sem flestir sjái sér fært að fagna
þessum tímamótum með honum.
Blóm og gjafir afþökkuð.
90 ára
Hrefna Hreið-
arsdóttir verður
sextug 3. ágúst
næstkomandi. Í
tilefni af því tek-
ur hún á móti
vinum og vanda-
mönnum að
heimili sínu,
Dalsgerði 2d á
Akureyri, laugardaginn 2. ágúst
frá kl. 16 og fram á nótt.
60 ára
ÞRÍTUG er í dag Sigrún Ósk L. Gunnarsdóttir,
leikskólakennari. Hún er nú stödd í kóngsins
Kaupmannahöfn með manni sínum og börnum.
Ætla þau að fylkja liði í hið rómaða tívolí Kaup-
mannahafnar í tilefni dagsins og njóta dönsku
veðurblíðunnar. Eðlilega er fjölskyldan spennt og
lætur fregnir af tækjabilunum í tívolíum í Skandin-
avíu lítið á sig fá. Einnig stendur til að fara í tívolí-
ið í Sommerland, dýragarðinn í Kaupmannahöfn
og dvelja í sumarbústað en lítið verður um búðaráp
og þessháttar iðju vegna slaks gengis íslensku
krónunnar.
Afmæli Sigrúnar ber ósjaldan upp kringum verslunarmannahelgi
og segist hún því gjarna hafa haldið upp á afmæli sitt í útilegum fjarri
heimabyggðinni í Reykjavík. Þó Sigrún sé fædd í höfuðstað Íslendinga
á hún ættir að rekja til Aðalvíkur og hefur búið víða, meðal annars í
Danmörku og Bandaríkjunum. „Mamma hefur verið svo dugleg að
flytja gegnum tíðina og ég hef fylgt með,“ segir Sigrún um búsetu sína
um víða veröld.
Afmælisbarnið segist ekki hafa kviðið því að verða þrítug. „Ég
hlakkaði eiginlega bara til, þetta er svo virðulegt. Mig hefur alltaf
langað til að vera virðuleg,“ segir hún um innreið sína í fertugsaldur-
inn og hlær. Hún er þess fullviss að um þrítugt muni líf hennar umturn-
ast og hún taka gagngerum breytingum til hins betra. skulias@mbl.is
Sigrún Ósk L. Gunnarsdóttir þrítug
Komin á virðulegan aldur
;)Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is