Morgunblaðið - 31.07.2008, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í BorgarbíóSími 462 3500
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
The Strangers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Meet Dave kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
The Incredible Hulk kl. 10:10 B.i. 12 ára
The Love Guru kl. 6 - 8 - 10 B.i.12ára
The Strangers kl. 10:10 B.i.12ára
Mamma Mia kl. 6 - 8 LEYFÐ
The Dark Knight kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Hellboy 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Sex and the City kl. 6 - 9 B.i. 14 ára
650kr.
650kr.
“Svona á að gera hrollvekjur!”
- Stephen King
FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA
PAN´S LABYRINTH.
eee
- Tommi - kvikmyndir.is
eeee
- V.J.V./TOPP5.is/FBL
SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
FRÁ VERÐLAUNA-LEIKSTJÓRA
PAN´S LABYRINTH.
eee
- Tommi - kvikmyndir.is
eeee
- V.J.V./TOPP5.is/FBL
650k
r.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
HANN ER SNILLINGUR Í ÁSTUM
NÝJASTA GRÍNMYND MIKE MYERS
SEM FÆRÐI OKKUR AUSTIN POWERS MYNDIRNAR
“…einhver besta teiknimynd sem ég hef séð.” – kvikmyndir.is
“…ein besta mynd sumarsins…” –USA Today
“…meistarverk.” – New York Magazine
FRÁ MANNFÓLKINU SEM FÆRÐI OKKUR
„FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- T.V. - Kvikmyndir.is
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
650k
r.
650kr.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARÍÓI
SUMA diska þarf einfaldlega að
hlusta á oftar en aðra til að vita í
raun og veru hvað þar er um að
ræða. Fyrsti diskur hljómsveit-
arinnar Andrúms er slíkur, en
hann er níðþungur og útpældur.
Hér er ekk-
ert léttmeti
á ferð en
langt því frá
að það sé
neikvætt. Á
disknum eru
einungis 6
lög en fyrsta
lag og jafnframt titillag disksins
slagar hátt í 12 mínútur, og er því
diskurinn rúmar 48 mínútur að
lengd þrátt fyrir fá lög.
Það gefur augaleið að það er
ekki beint verið að feta slóð dæg-
ursmella og skyndibitamenningar
nútímans með því að hefja fyrstu
plötu nýrrar sveitar á „epísku“ ríf-
lega 11 mínútna verki, því strax í
upphafi er mikils krafist af hlust-
endum. Andrúm fer fram á ein-
beitingu og óskipta athygli, og ef
hlustandi veitir þeim áheyrn og
gengur að þessum skilmálum eru
launin svo að segja handan hæð-
arinnar.
Þegar skilgreina á tónlist And-
rúms koma sveitir sem hafa áber-
andi gítarleik og kaflaskipt lög
upp í hugann. Það væri helst að
nefna Pink Floyd og Led Zeppel-
in, en Andrúm hljómar þó engan
veginn eins og þær sveitir. Söng-
konan Jóna Palla hefur heilmikið
með sérstöðu bandsins að gera,
því ljúf og stundum tregafull rödd
hennar dregur úr hefðbundnum
rokksveitaklisjum og gerir upplif-
unina af tónlistinni nýja. Þarna
eru jú vissulega róleg stef sem
byggjast upp og vinna sig í væl-
andi gítarsóló, en með hennar
rödd í blöndunni detta manni
einnig í hug hljómsveitir eins og
Portishead og Mazzy Star sem
skarta rólegum og dreymandi
söngkonum með ósvikna og per-
sónulega nálgun í söngstíl sínum.
Hljómur plötunnar er hlýr og
mjúkur en það keyrir ekki um
þverbak svo útkoman verði litlaus
og óspennandi. Þvert á móti hefur
upptökumaðurinn Aron Arnarson
náð að fanga mýkt lagasmíðanna
en spenna og kraftur heldur sér,
og verður að segjast að það gangi
meistaralega upp. Lögin renna
flest saman á plötunni og tel ég að
það sé hárrétt nálgun þegar um
tónlist eins og þessa er að ræða.
Það ýtir enn fremur undir að plöt-
una þurfi að hlusta á í heild sinni
frá upphafi til enda.
Ef til vill er helsti galli og kost-
ur plötunnar sá sami: Hér standa
engin lög öðrum framar. Fólk sem
leitar fremur að góðum lögum
gæti fælst frá, því lögin eru hvert
og eitt hluti af stærra samhengi.
Platan er svolítið meira eins og
bók en plata að því leyti, en góða
bók les maður frá upphafi til enda
en kíkir ekki á einstaka kafla.
Platan er þó ansi góð við mismun-
andi aðstæður, og hefur undirrituð
bæði spilað hana við akstur, við
tiltekt (hátt!) og í rólegheitaveislu
(lágt). Hún virðist eiginlega næst-
um öðlast sjálfstætt líf eftir að-
stæðum og þess vegna svo erfitt
að fjalla um hana.
Stysta lag plötunnar, hið 5 mín-
útna „Report“ verður að teljast
best heppnaði samruni seiðandi
raddar Jónu Pöllu og grípandi gít-
arrokks og tilvalið fyrir „lagaóða“
að hlusta á það til að fá bragðið.
Næsta skref er svo að sjálfsögðu
að verða sér út um diskinn og
hlusta á hann í heild sinni, við að-
stæður að eigin vali.
Níðþungur og útpældur
TÓNLIST
Geisladiskur
Andrúm – Andvakar
Ragnheiður Eiríksdóttir
BÚIÐ er að stilla upp hljómsveit-
unum sem fram koma á hátíðinni
Innipúkanum um Verslunarmanna-
helgina. Armband sem gildir bæði
kvöldin kostar 3.900 kr en einnig má
fá aðgang að dagskránni stakt kvöld
með því að borga 2.000 kr við inn-
ganginn.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Hann verður inni Benni Hemm Hemm fer á svið á föstudagskvöldið.
Uppröðun
klár fyrir
Innipúkann
Föstudagur:
20.00 Soundspell
20.45 Boys In A Band
21.30 Morðingjarnir
22.20 Múgsefjun
23.20 Benni Hemm Hemm
00.20 Megas og Senuþjófarnir
01.30 Hjálmar
Laugardagur
20.00 Grjóthrun
20.45 Dísa
21.30 Geir Ólafs
22.20 Hjaltalín
23.20 Dr. Spock
00.30 Sprengjuhöllin
01.20 FM Belfast
Dagskráin