Morgunblaðið - 07.08.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2008 9
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
Öxnadalur | Ýmis bæjarfélög keppt-
ust við að halda fjölmennustu hátíð-
ina um verslunarmannahelgina en
fullyrða má að sú fámennasta hafi
farið fram á Hraundranga í Öxna-
dal. Þá skemmtu 12 manns sér sl.
sunnudag við að komast á tindinn á
rétt um 12 klst. frá 10.30 til 22.30.
Þegar mest var voru fjórir á toppn-
um í einu.
Ekkert fjöldamet var slegið í það
skipti, þar sem áður höfðu 18
manns farið í hópferð 1991 auk
þess sem árið 2003 hafði það gerst
að 10 manns voru í einu á toppnum.
Hins vegar er líklegt að aldurs-
forseti hópsins, Ragnar Sverrisson
kaupmaður á Akureyri, sé elsti
maður sem komið hafi á tindinn en
hann er 59 ára gamall. Reyndar
fullyrðir Þorvaldur Þórsson fjall-
göngugarpur að Ragnar sé sá elsti
sem hefur komist á toppinn.
Nicholas Clinch, Finnur Eyjólfs-
son og Sigurður Waage klifu
Hraundranga fyrstir 5. ágúst árið
1956. Eftir það hafa um 100 manns
komist á tindinn að sögn Þorvaldar.
„Hrúga en ekki fjall“
„Í sjálfu sér er ekki mikið klifur
fólgið í að komast á Hraundranga,“
segir Þorvaldur. „En það er var-
hugavert því það er mikið laust
grjót þarna. Þetta er hrúga sem
heldur að hún sé fjall, svo ég leyfi
mér að vitna í góðan mann. Þess
vegna þarf töluverða reynslu til að
fara þarna upp.“
Reyndar viðurkenna þeir Ragnar
og Þorvaldur að aðeins fjórir í
hópnum voru vanir klifurmenn.
Þessir fjórir sáu svo um að ferja
hina á tindinn og létu þannig gaml-
an draum þeirra rætast. Fyrir vikið
voru vönu klifurmennirnir lengi á
fjallinu. Til að mynda var Þorvald-
ur heila sex tíma á tindinum.
Ferðalangarnir fundu þar enga
gullkistu, ekki frekar en brautryðj-
endurnir fyrir 52 árum, en þeir
skráðu hins vegar nöfn sín í gesta-
bókina og gæddu sér á viskíinu sem
þar er geymt.
Tröllaskaginn vannýttur
„Tröllaskaginn er yfirhöfuð mjög
gott útivistarsvæði,“ segir Þorvald-
ur, „og ég fullyrði að það eru fá
svæði ef nokkur sem eru jafn-
fjölbreytt. Þar er margt hárra og
skemmtilegra fjalla. Á hverju ári
fara mörg hundruð manns á
Hvannadalshnúk og annað eins á
Heklu en þetta svæði stendur eftir
sem virkilega gott fjallasvæði sem
nánast er ósnortið.“
Tröllaskaginn hefur reyndar í
seinni tíð orðið æ vinsælla útivist-
arsvæði, og má sem dæmi nefna að
Glerárdalshringurinn, 24 tindar á
24 stundum, er orðinn vel þekktur.
Ljósmynd/Magnús Ingi Óskarsson
Klifurmenn Þorvaldur Þórsson og Jón Gunnar Þorsteinsson brostu sínu blíðasta á Hraundranga síðasta sunnudag.
Hópferð á Hraundranga
LÖGREGLA lagði hald á kannabis-
plöntur í húsi nokkru í Hlíðunum á
dögunum, en plönturnar voru rækt-
aðar í allra augsýn. Ekki er hægt að
segja til um hvort eigendur um-
ræddra plantna gleymdu að koma
þeim fyrir á afviknum stað, að sögn
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
en í það minnsta reyndist lögreglu-
mönnum það létt verk að koma auga
á kannabisplönturnar þar sem þær
blöstu við í glugga hússins þegar að
því var komið.
Húsráðendur reyndu að halda
uppi vörnum í málinu og sögðu að
hér væri einungis um að ræða sér-
stakar kryddplöntur og að afurðirn-
ar væru alfarið ætlaðar til matar-
gerðar. Lögreglumenn á vettvangi
vissu betur og fjarlægðu plönturnar.
Kannabis
fyrir allra
augum
Morgunblaðið/Júlíus
Reyndist lögreglu létt
Stórar
stærðir
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Þú minnkar
um eitt númer
Gallapils,
gallabuxur
og bolir
Nýjar
vörur
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56.
www.xena.is
SÉRVERSLUN
Stærðir 36- 44
GLÆSIBÆ S: 553 7060
Útsala
Útsala
Enn
meiri
afsláttur
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Útsalan hefst
á morgun
30-60%
afsláttur
VERÐHRUN
SÍÐASTA ÚTSÖLUVIKA