Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 21
MINNINGAR
✝ Ragnar Vigfús-son fæddist á
Vopnafirði 14. sept-
ember 1951. Hann
lést í Vest-
mannaeyjum 8.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Friðrik Vigfús Sig-
urbjörnsson, f. 25.
júní 1915, d. 20. maí
2000, og Vilborg
Stefanía Sigurð-
ardóttir, f. 24. sept-
ember 1921, d. 4.
febrúar 1969. Bræð-
ur Ragnars eru Stefán Georg, f.
1940, og Ólafur Vilhelm, f. 1944,
d. 1998.
Ragnar kvæntist 21. apríl 1973
Önnu Jóhannesdóttur, f. 4. des-
ember 1954, þau slitu samvistir
árið 2000. Foreldrar Önnu eru Jó-
hannes Hjálmarsson og Ólöf Páls-
dóttir. Synir Ragnars og Önnu
eru: 1) Vigfús Már, f. 1974, kvænt-
ur Margith Eysturtun, f. 1977,
börn börn eru Andrias, f. 2001, og
Arndís 2004, þau eru búsett í Dan-
mörku. 2) Sigþór Viðar, f. 1978, í
sambúð með Elsu Auði Sigfús-
dóttur, f. 1980. Sonur Sigþórs er
Alexander Máni, f. 2005. 3) Jó-
hannes Óli, f. 1982, í sambúð með
Lenu Rögnvaldsdóttur, f. 1987. 4)
Ragnar Þór, f. 1991.
Ragnar fæddist á
Vopnafirði og ólst
þar upp til 16 ára
aldurs er hann flutti
að heiman og fór til
sjós. Árið 1972 flutt-
ist Ragnar til Ak-
ureyrar og hóf þar
búskap með Önnu,
þau gengu svo í
hjónband 21. apríl
1973. Ragnar starf-
aði hjá bygging-
arfyrirtækinu
Smára hf. og einnig
hjá dótturfyrirtæki þess sem hét
Afl við ýmis verkamannastörf.
Árið 1975 fluttust þau til Vopna-
fjarðar og þar bjuggu þau til árs-
ins 1984 þegar þau fluttu aftur til
Akureyrar. Hóf Ragnar þá störf
hjá Slippstöðinni og starfaði þar
til ársins 1987. Þá réð hann sig
sem Baadermaður á frystitog-
arann Sléttbak EA 304 og þar
starfaði hann til ársins 2001 er
hann flutti til Reykjavíkur og fór
þar að vinna við ýmis störf allt til
dauðadags.
Útför Ragnars verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður í Vopnafjarðarkirkjugarði
fimmtudaginn 21. ágúst.
Mitt skip er lítið, en lögur stór
og leynir þúsundum skerja.
En granda skal hvorki sker né sjór
því skipi, er Jesús má verja.
(Þýð.Vald. V. Snævarr)
Elsku pabbi minn.
Mig langar að minnast þín í fáum
orðum. Ég ólst upp með þér og
mömmu til níu ára aldurs en þá
skildi leiðir ykkar mömmu. Stuttu
seinna fluttir þú til Reykjavíkur.
Þar með slitnaði samband okkar um
nokkurt skeið uns við tókum upp
þráðinn að nýju 2005 og vorum við í
góðu sambandi hvor við annan upp
frá því. Síðasta stund sem ég átti
með þér var í maí síðastliðnum og er
ég mjög þakklátur fyrir þá stund.
Þú varst mjög handlaginn maður og
allt sem þú tókst þér fyrir hendur
lék í höndum þér. Eftir þig liggja
margir fallegir útskornir munir,
sem við bræðurnir eigum eftir þig
og eru okkur mjög dýrmætir. Þú
hjálpaðir mér í gegnum mín veik-
indi þar sem ég gat alltaf hringt i
þig og fengið leiðbeiningar og voru
þessi símtöl mér mikils virði.
Hinsta kveðja. Þinn sonur
Ragnar Þór Ragnarsson.
Öll eigum við það sameiginlegt
sem í þennan heim fæðumst, við
mætum allslaus. Aðstæðurnar sem
okkur mæta eru jafn misjafnar og
mennirnir eru margir. Það er einnig
afar misjafnt hvernig hverjum og
einum tekst að vinna úr því sem
hann hefur og hvaða leið hann fetar
í lífinu. Lífið er enginn dans á rós-
um, enginn kemst frá því án þess að
takast á við erfiðleika. Á þessu var
engin undantekning hjá honum
Ragnari. Hann átti sína góðu daga
og eins þurfti hann að glíma við erf-
iða tíma, eins og vil öll þurfum að
gera. Sem betur fer voru góðu dag-
arnir fleiri hjá honum en þeir
slæmu.
Ragnari kynntist ég þegar ég var
unglingur, þegar hann varð mágur
minn. Með okkur Ragnari tókust
góð kynni og við urðum ágætis-
félagar. Ég varð þess aðnjótandi að
vinna með honum þegar hann flutt-
ist til Akureyrar og svo síðar á lífs-
leiðinni þegar leiðir okkar lágu aft-
ur saman þegar við urðum
skipsfélagar í tæp 10 ár og ekki
bara skipsfélagar heldur deildum
við saman klefa. Sú sambúð var góð.
Ragnar hafði góðan dreng að
geyma. Hann var góðhjartaður,
hjálpsamur og vildi öllum vel. Ragn-
ar villtist örlítið af leið í lífinu hin
síðari ár og sigldi á móti ólgusjó.
Eins og sönnum sjómanni tókst
Ragnari um síðir að sigla inn á lygn-
ari sjó og líf hans tók aftur að breyt-
ast til betri vegar og það hægðist
um. Sú sigling tók sinn toll og var
honum án efa þung og sársaukafull
á köflum. Á þeim tíma fór hann
verst með sjálfan sig. Það var erfitt
að horfa upp á. Þegar svo loks
hægðist um í lífi Ragnars og hann
virtist sigla lygnan sjó, kannski inn í
betri tíma, þá kom kallið. Þegar ég
fékk þær fréttir að kallið hefði kom-
ið og Ragnar kvatt þennan heim
kom upp í huga mér ljóð eftir Krist-
ján frá Djúpalæk:
Loks hefur brimið borið
minn bát inn á lygnan vog.
Hrakti mig vítt um hafið
þó hörð væru áratog.
Skapstyrk og skyggni reynir
mörg skammdegisnóttin löng.
Glettin er gýgur sjávar
og guðanna reiði ströng.
Svartasta sortann gegnum
þó sindraði stjarna ein:
Von eygði voginn kyrra,
er vindurinn snarast hvein.
Bök þeirra beygir lúin,
sem berjast við rok og straum.
– Hlé, ég hallast að þóftu
og hverf inn í morgundraum.
Ragnar hefur lokið sinni siglingu,
hans bíða önnur og ný verkefni á
þeim stað þar sem við öll endum
fyrr eða síðar. Ég er þakklátur fyrir
þau ár sem við Ragnar áttum sam-
leið í lífinu. Það fór ávallt vel á með
okkur og ég mun leggja mig allan
fram um að varðveita allar þær
góðu minningar sem ég og fjöl-
skylda mín eigum um hann. Og þótt
Ragnar hafi komið jafn allslaus inn í
þennan heim þá yfirgaf hann ekki
þennan heim allslaus. Ragnar skilur
eftir sig ummerki sem hann getur
verið stoltur af, hann átti börn og
barnabörn. Synir Ragnars sakna
föður síns og geta verið þakklátir
fyrir þann tíma sem þeir áttu með
honum. Barnabörnin sem aldrei
kynntust afa sínum verða að láta sér
sögur af afa duga. Og þegar þannig
er komið er gott að hafa eftirfarandi
máltæki hugfast sem segir: „Hver
minning er dýrmæt perla.“
Ég og fjölskylda mín vottum son-
um Ragnars og fjölskyldum þeirra
dýpstu samúð.
Páll Jóhannesson.
Ragnar Vigfússon
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu, dóttur og systur,
HJÖRDÍSAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Furulundi 6c,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimaþjónustunnar
á Akureyri og starfsfólks Sjúkrahúss Akureyrar
fyrir góða ummönnun.
Héðinn Ósmann Skjaldarson,
Kristján Hjörtur Oddgeirsson,
Oddgeir Kristjánsson, Ingibjörg Haraldsdóttir,
Baldvin Kristjánsson,
Guðfinna Jóna Kristjánsdóttir, Gunnþór Oddgeirsson,
Halldóra Kristjánsdóttir, Hannes C. Pétursson,
Helga Hólmfríðardóttir, Anton Gunnarsson,
Óskdís Kristjánsdóttir
og systkinabörn.
✝
Okkar ástkæri
PÁLL JÓHANNESSON
húsasmíðameistari,
Aðalstræti 47,
Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar
föstudaginn 15. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrönn Vagnsdóttir.
✝
Elsku móðir mín, tengdamóðir og systir,
DÓRA BJARNADÓTTIR,
Torfufelli 35,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
föstudaginn 8. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Aðalheiður L. Gunter, Kristján L. Júlíusson,
Anna Bjarnadóttir,
Bjarni J. Bjarnason, Arnþóra Sigurðardóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTÍN SIGÞRÚÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR,
Kambastíg 8,
Sauðárkróki,
sem lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki
laugardaginn 16. ágúst, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. ágúst
kl. 14:00.
Sigrún Ívarsdóttir, Steinn Ágúst Baldvinsson,
Anna Ívarsdóttir, Örn Ingólfsson,
Kristín Sigþrúður Björnsdóttir, Skúli Skúlason,
Aðalbjörg Jóna Björnsdóttir, Valur Júlíusson,
Hafdís Hrönn Björnsdóttir, Valdimar Júlíusson,
Auður Björnsdóttir, Stefán Magnússon,
Ingunn Berglind Arnardóttir, Peter Eliassen,
Lilja Rut Arnardóttir, Eyjólfur Þorkelsson,
Ívar Dan Arnarson
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJÖRG KARLSDÓTTIR,
Stella,
frá Reyðarfirði,
Heiðargerði 53,
sem lést miðvikudaginn 13. ágúst, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. ágúst
kl. 15.00.
Skúli Hreggviðsson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Marta Sjöfn Hreggviðsdóttir,
Jóhann Hreggviðsson, Kristín Lára Hjartardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, bróðir, mágur og frændi,
ÓÐINN SNORRASON,
Hraunbæ 107,
Reykjavík,
lést á Landspítala, Hringbraut, laugardaginn 23. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Ingvi Rafn Óðinsson,
Karólína Snorradóttir og fjölskylda,
Jón Snorrason og fjölskylda,
Júlíus Snorrason og fjölskylda,
Berglind Snorradóttir og fjölskylda,
Elísabet Una Jónsdóttir og fjölskylda.
✝
Okkar yndislega eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA ÞÓRSDÓTTIR,
húsfreyja á Bakka,
Svarfaðardal,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 13. ágúst 2008, verður jarðsungin
frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 13:30.
Jarðsett verður í Tjarnarkirkjugarði.
Ingvi K. Baldvinsson,
börn og fjölskyldur.