Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
226. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
FJÖRUG OG FRÓÐLEG
ÁR ERU FRAMUNDAN
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Stebbi Hilmars rót-
ar fyrir son sinn Leikhúsin í landinu
Komdu í leikhús
Skilaboðaskjóðan >> 29
Reuters
Herlið Röð rússneskra skriðdreka
býr sig undir brottflutning frá Gori.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
segir enga ástæðu til að líta flug
rússneskra véla við Ísland öðrum
augum nú en áður, þrátt fyrir deil-
ur Rússa og Georgíumanna sem nú
hafa staðið yfir í um tvær vikur.
Ingibjörg tók þátt í neyðarfundi
utanríkisráðherra Atlantshafs-
bandalagsríkjanna (NATO) sem
haldinn var í Brussel í gær vegna
ástandsins í Georgíu. Ingibjörg
segir aðgerðir Rússa í Georgíu
harkalegar og að þær séu litnar
mjög alvarlegum augum þar sem
Rússar hafi farið yfir alþjóðlega
viðurkennd landamæri, nokkuð sem
ekki hafi gerst frá því að Sovét-
ríkin liðu undir lok. Á fundinum
hafi hún varað við því að kynt yrði
undir öfgakenndri þjóðernishyggju
sem gæti magnað deilur í stað þess
að leysa þær.
Að loknum fundinum í gær sagði
framkvæmdastjóri NATO, Jaap de
Hoop Scheffer, m.a. að starfsemi
samstarfsráðs NATO-ríkjanna sem
sett var á laggirnar árið 2002 yrði
fryst í ljósi þess að Rússar tregð-
uðust nú við að draga herlið sitt út
úr Georgíu. Utanríkisráðherra
Rússlands segir yfirlýsingu NATO
hlutdræga. | 12, 13
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sat neyðarfund NATO í Brussel
Rússum voru send skýr skilaboð
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
EIGENDUR íbúðarhúsnæðis til
sölu leita nú allra leiða til þess að
hafa tekjur af því, meðan fasteigna-
kaupamarkaður er daufur. Fram-
boð á leiguíbúðum hefur aukist
mjög að undanförnu að sögn leigu-
miðlara og í júlí varð mikil aukning
í leiguíbúðalánum hjá Íbúðalána-
sjóði. Þá voru 1,9 milljarðar króna
lánaðir út á leiguhúsnæði, en það
sem af er ári hefur sú upphæð verið
um eða undir milljarði á mánuði.
Það gæti verið tilfallandi en gæti
líka verið merki um aukna spennu.
Ekki ódýrt leiguhúsnæði
Leigumiðlarar verða varir við
aukin umsvif byggingaverktaka,
sem kynna sér leigumarkaðinn,
spyrjast fyrir um verð og auglýsa
eignir til leigu. Nýjar og dýrar
íbúðir eru að koma inn á markað-
inn.
„Ég held að það séu stórar íbúðir
að bætast við á markaðinn, sem
þarf að borga mikið fyrir á mánuði.
Það er ekki mín tilfinning að það sé
að bætast mikið við af ódýru leigu-
húsnæði á markaðinn. Ég held að
menn hafi stórlega ofmetið þennan
stóra lúxusmarkað, ekki síst fyrir
eldra fólk sem er að minnka við
sig,“ segir Gísli Örn Bjarnhéðins-
son, framkvæmdastjóri Búseta.
Verktakarnir leigja út
Framboð hefur aukist gríðarlega mikið á leigumarkaði
Verktakar leitast við að koma ónotuðum eignum í „vinnu“ Í HNOTSKURN»Verktakar gera Búseta til-boð í hverri viku um íbúðir
sem nota megi til útleigu.
» Íbúðir byggðar til sölu erustórar miðað við það sem
þekkist á leigumarkaði og
leigan há eftir því.
»Tekur markaðinn tíma aðná jafnvægi í verði á þess-
um íbúðum, segja aðrir.
Þreifa á markaðnum | 4
VÉSTEINN Hafsteinsson þjálfaði eistneska kringlukastarann Gerd Kanter
til sigurs á Ólympíuleikunum í Peking, því Kanter landaði gullverðlaun-
unum. Vésteinn grét af gleði eftir að ljóst varð að Kanter hafði unnið gull-
ið, en Kanter kastaði kringlunni lengst 68,82 metra í gær. „Það hefur verið
draumur að þjálfa kringlukastara sem myndi vinna á Ólympíuleikunum,“
sagði Vésteinn eftir sigur lærisveins síns.
Stór stund fyrir Véstein á Ólympíuleikunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
STEFNT er að því að auka fram-
leiðslu lúðuseiða um helming á veg-
um Fiskeldis Eyjafjarðar. Ætlunin
er að Fiskey framleiði milljón seiði
innan þriggja ára.
Fiskeldi Eyjafjarðar hefur meira
en 20 ára reynslu í lúðueldi en fyr-
irtækið var stofnað 1987. Ytri skil-
yrði þess hafa batnað til muna á
árinu. Fyrirtækið selur nú seiðin á
hærra verði en áður auk þess sem
veiking krónunnar hefur skilað því
meiri tekjum fyrir afurðina.
Arnar Freyr Jónsson fram-
kvæmdastjóri segir Fiskey leiðandi
í lúðueldi á heimsvísu. » 11
Lúðueldi í sókn
„VIÐ teljum að það sé komið að
höfuðborgarsvæðinu núna,“ segir
Gunnar Einarsson, formaður Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu um fund stjórnar sam-
takanna í vikunni með samgöngu-
nefnd Alþingis. Snerist fundurinn
m.a. um samgönguframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu og var nefnd-
armönnum bent á að einungis 20%
vegafjár færu til höfuðborgarsvæð-
isins, þrátt fyrir að þar væri fólks-
fjölgun langmest.
„Þarna áttu menn hreinskiln-
islegar samræður um nauðsyn þess
að laga ástandið á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Gunnar og vonar
að fundurinn hafi opnað augu
nefndarmanna fyrir vanda svæð-
isins.
Núna er komið að
höfuðborgarsvæðinu
ÍSLENSKA krónan hefur veikst
mest allra gjaldmiðla heims á þessu
ári að gjaldmiðlum Simbabve og
Túrkmenistan undanskildum, að
því er segir í skýrslu Deutsche
Bank. Þá segja skýrsluhöfundar að
stærð íslenska bankakerfisins mið-
að við verga landsframleiðslu sé
slík að erfitt væri fyrir Seðlabank-
ann að þjóna sem lánveitandi til
þrautavara. Flytti einn eða tveir
bankanna úr landi mundi þessi
þrýstingur minnka. » 14
Þriðja mesta lækkunin