Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er miðvikudagur 20. ágúst, 233. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8,21.) Ferjukot í Borgarfirði var eittsinn í alfaraleið. Ferjukot stendur á bökkum Hvítár við gömlu bogabrúna, sem smíðuð var fyrir átta áratugum. Nú hefur verið sett upp laxveiðisögusafn í Ferjukoti og varðveittar minjar um merkilega tíma. Þar var eitt sinn soðinn niður lax í stórum stíl. Laxinn, sem veidd- ist í Hvítá, var kóngafæði. Fyrst var hann fluttur niðursoðinn til bresku hirðarinnar og síðan ferskur. Var hann þá settur á ís, fluttur til hafnar, siglt með hann á þilfari Gullfoss til Englands og síðan með lest til hirð- arinnar. Fiskurinn gat þá verið orð- inn nokkurra vikna gamall, en aldrei barst kvörtun um gæði. Þannig segir í það minnsta Þorkell Fjeldsted, bóndi í Ferjukoti, frá. Þorkell er haf- sjór fróðleiks um sögu Ferjukots og laxveiðina í Hvítá. Þorkell tók á móti Víkverja og fjölskyldu hans í liðinni viku. Laxveiðisögusafnið er skemmtilega sett upp og með leið- sögn Þorkels lifnar það við. x x x Í Ferjukoti var lengi verslun viðþjóðveginn og bensínstöð. Mörg ár eru liðin frá því að henni var lokað og hefur hún verið varðveitt óbreytt. Þorkell fer á flug þegar hann er spurður um flöskur, sem standa þar í hillum og á er letrað að innihaldi fjósalykt. Fyrir einhverjar kosning- arnar tappaði hann fjósalykt fyrir stuðningsmenn Samfylkingarinnar á rauðar flöskur, en á bláar fyrir sjálf- stæðismenn. Framsóknarmenn fá sérstaka útgáfu þar sem kúaskítur er líka utan á flöskunni. Segir Þor- kell að ekki þurfi nema rétt að sprauta yfir þær úr úðabrúsa til að kalla fram lyktina. x x x Í Ferjukoti var laxinn seldur ístykkjatali og segir Þorkell að hærra verð hafi fengist ef engin voru möskvaförin. Hann tiltekur ekki ástæðuna, en bærinn var í eina tíð þrautalending veiðimanna, sem voru með öngulinn í rassinum og vildu komast hjá þeirri sneypu að koma fiskilausir heim. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Reykjavík Frosti Reyr fædd- ist 14. apríl. Hann vó 15 merkur og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ármann Halldórsson og Hlín Sig- urþórsdóttir. Nýirborgarar Krossgáta Lárétt | 1 orsakast, 4 lína, 7 kvendýrið, 8 vömb, 9 reið, 11 skylda, 13 ljúka, 14 árstíð, 15 lesti, 17 takast, 20 hlass, 22 traf, 23 læsum, 24 dýrið, 25 tekur. Lóðrétt | 1 orðrómur, 2 að aftanverðu, 3 fífl, 4 rithátt, 5 úldin, 6 arka, 10 lævís,12 flýtir, 13 sprækur, 15 hamingja, 16 malda í móinn, 18 hökum, 19 auður, 20 heiðurinn, 21 líkams- hlutinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 getspakur, 8 kaldi, 9 aggan, 10 pál, 11 teina, 13 særir, 15 skass, 18 stöng, 21 tek, 22 riðla, 23 akurs, 24 kappsfull. Lóðrétt: 2 efldi, 3 skipa, 4 aðals, 5 ungar, 6 skot, 7 snýr, 12 nes, 14 ætt, 15 sort, 16 auðna, 17 staup, 18 skarf, 19 ötull, 20 gust. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e6 2. d3 d5 3. De2 dxe4 4. dxe4 e5 5. Rf3 Rc6 6. c3 Rge7 7. Rbd2 g6 8. g3 Bg7 9. Bg2 O–O 10. O–O h6 11. Rc4 Be6 12. Be3 Dc8 13. b4 f6 14. b5 Rb8 15. Bc5 He8 16. Rh4 g5 17. Bxe7 Hxe7 18. Rf5 He8 19. Rce3 Rd7 20. Bf3 Kh7 21. Bh5 Hf8 Staðan kom upp á helgarmóti Tafl- félagsins Hellis og Taflfélags Reykja- víkur sem lauk fyrir skömmu. Sig- urvegari mótsins, Davíð Kjartansson (2304), hafði hvítt gegn Sverri Þor- geirssyni (2102). 22. Bg6+! Kh8 hvítur hefði unnið drottninguna eftir 22…Kxg6 23. Re7+. 23. Dh5 Hd8 24. Re7 og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir 24… Db8 25. R3f5. Hvítur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Alslemmur þvers og kruss. Norður ♠DG10 ♥D53 ♦DG ♣ÁG643 Vestur Austur ♠– ♠– ♥ÁK862 ♥G10974 ♦K9 ♦Á8765432 ♣K109875 ♣– Suður ♠ÁK98765432 ♥– ♦10 ♣D2 Suður spilar 7♠, doblaða. Spil dagsins kom upp í sveitakeppni í Svíþjóð um miðja síðustu öld. Nafn- greindir leikendur eru Wernerhjónin, Einar og Britt, og þekktasta par Svía á þessum tíma, Lilliehook og Wohlin. Wernerhjónin voru í NS á öðru borð- inu og enduðu í 7♠, sem fórn yfir 7♥. Vestur kom út með ♥Á og slemman vannst með þvingun í laufi og hjarta. Sagnhafi tók einfaldlega öll trompin og neyddi vestur niður á ♣K10 í lokin. Á hinu borðinu varð Lilliehook sagnhafi í 7♦ í austur. Einhvern tíma á langri leið hafði norður doblað laufsögn vesturs og suður kom því út með ♣D. Það var dýrt útspil. Lilliehook lagði kónginn á drottninguna og trompaði ásinn. Þegar hjartalegan kom í ljós síðar var ekki um annað að ræða en að treysta á lauf- ið og Lilliehook trompsvínaði fyrir gos- ann. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú veist hvað þú vilt, svo það er heimskulegt að biðja um eitthvað annað eða minna. Trúðu því að þú getir fengið akkúrat það sem þú óskar þér og heim- urinn færir þér það. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það sem þú verður beðinn um nú myndi flokkast sem greiði sem verður aldrei goldinn. Það þýðir ekki að þú eigir að neita. Það er gott að gefa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Orkan í sambandinu þínu er frá- bær. Það sem áður var erfið vinátta er nú léttir. Hjón takast á við áskoranir með samvinnu. Og grannar hætta að kýta. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hellingur af upplýsingum mun berast þér eftir leiðum undirmeðvitund- arinnar. Til að nýta þær sem best skaltu halda meðvituðu leiðunum jákvæðum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Er á brattann að sækja? Það þýðir ekki að þú eigir að gefast upp. Haltu áfram af enn meiri krafti. Gerðu upp for- tíðina til að fá sem mest út úr framtíðinni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú hefur gleymt einhverju sem þú munt muna rétt upp úr hádegi. Kannski afmæli eða verkefni. Leiðréttu mistökin fyrir sólarlag til að koma í veg fyrir skaða. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Allir eru að pæla það sama: „Hvað fæ ég út úr þessu?“ Ef þú veist ekki svarið skaltu ekki reyna að selja eitthvað eða koma á framfæri. Þá færðu ekkert. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Síminn hringir, þú færð í sí- fellu netpóst og margt annað truflar ein- beitinguna. Gerðu eitthvað þrennt að gagni og þá er dagurinn ekki ónýtur. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Skrifaðu niður það sem kemur fyrir þig og hvernig þér líður með það. Það fær þig til að finna fyrir sjálfum þér, hversu klár þú ert og til í stórræði. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Dagurinn fer í að vera ann- aðhvort yfirmáta spenntur eða orðlaus af undrun. Leyfðu ástvinum að eiga í sínum átökum. Þú hittir manneskju sem breytir lífi þínu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þegar þú trúir á hæfileika þína kennir þú öðrum að hafa trú á þér. Það er ekki hroki – í alvöru! Með listrænni sýn er nauðsyn að hafa gott sjálfsmat. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú er skapandi og vilt einungis eiga viðskipti við þá sem kunna að meta þína sýn og þitt skapferli. Því er ráð að velja það fólk af stakri kostgæfni. Stjörnuspá Holiday Mathis 20. ágúst 1898 Veitinga- og gistihúsið Valhöll á Þingvöllum var vígt. Nafn sitt dregur húsið af búð Snorra Sturlusonar sem stóð skammt frá þeim stað þar sem húsið var fyrst, en það var flutt á núverandi stað árið 1930. 20. ágúst 1933 Fjórir menn komu á bíl að Mýri í Bárðardal eftir fimm daga ferð úr Landsveit í Rang- árvallasýslu. „Er þetta í fyrsta skipti að bíll fer Sprengisand- sveg landsfjórðunganna á milli,“ sagði í Morgunblaðinu. 20. ágúst 1942 Sjö manna áhöfn vélbátsins Skaftfellings bjargaði 52 Þjóð- verjum af kafbátnum U-464 sem Catalina-herflugvél með bækistöð í Skerjafirði hafði sökkt 175 sjómílur suður af Hornafirði. 20. ágúst 1982 Átján manna hópur kleif Eld- ey, þar á meðal fyrsta konan sem það gerði, Halldóra Fil- ippusdóttir. Eyjan var fyrst klifin, svo vitað sé, árið 1894, síðan um 1940 og 1971. 20. ágúst 1982 Um þrjú hundruð marsvín komu að landi við Rif á Snæ- fellsnesi og voru langflest þeirra rekin á haf út. Hafði ekki áður tekist að bjarga svo mörgum marsvínum. 20. ágúst 1995 Hópur erlendra ferðamanna lenti í hrakningum á norð- anverðum Vatnajökli. Átta voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús vegna ofkælingar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist þá … „ÉG verð í rólegheitum með konunni minni í sum- arbústað austur á Eiðum,“ segir Þórhallur Braga- son, bóndi á Landamótsseli í Þingeyjarsveit og að- stoðarskólastjóri, sem á sextugsafmæli í dag. Yngsta dóttir Þórhalls og konu hans Helgu Arn- heiðar Erlingsdóttur verður hjá þeim. Þau hjónin eiga þrjár dætur og fjögur barnabörn. Undirbúningur er hafinn fyrir næsta skólaár, en Þórhallur segist þó láta sig hafa það að skrópa á afmælisdaginn. Hann starfar í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði og segir skólastarfið það helsta sem er á döfinni. „Nú er bara framundan að kenna. En svo eru það auðvitað göngur og réttir og sauðfjárrækt. Ég hef gaman af kindum og gaman af því að skoða féð á haustin og spá í hvað er ræktunarhæft og hvað ekki.“ Þórhallur áætlar að senda um hundrað lömb í sláturhús í haust. Áhugamál og störf Þórhalls eru samofin, en utan þess sem hann kennir og sinnir búskapnum hefur hann gaman af því að grípa í veiði- stöng og kasta fyrir fisk. „Ég fer oft að veiða með dóttursyni mínum, við förum í silungsveiði í vötn og læki. Við höfum í mörg ár farið eina ferð í Ölvesvatn á Skaga. Það varð hins vegar ekkert af því í sumar vegna útlandaferða og svo vorum við auðvitað hræddir við ísbirni líka,“ segir hann léttur í bragði og útilokar ekki að einhverjar veiði- ferðir gætu verið framundan. onundur@mbl.is Þórhallur Bragason er sextugur í dag: Skrópar á afmælisdaginn ;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.