Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 12
Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is VONIR standa til að fimm til átta þúsund manns sæki Landbúnaðarsýninguna á Gaddstaðaflötum við Hellu sem hefst nú á föstudaginn og stendur til sunnudags. Sveinn Sigmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsam- bands Suðurlands, segist vita að ráðgerðar séu rútuferð- ir á Hellu norðan af landi og að nokkrir grænlenskir bændur hyggist láta sjá sig. Hann segir þó ekki von á mjög mörgum erlendum gestum og að erfitt sé að spá fyrir um hve margir munu heimsækja sýninguna. Sveinn segist hafa orðið var við mjög góða stemningu fyrir sýningunni og segir vel stutt við bakið á Búnaðar- sambandinu í tengslum við hana. „Það er ákaflega mas- sífur hópur sem stendur með okkur í þessu,“ segir hann þakklátur fyrir veittan stuðning. Margt á seyði Ýmis búgreinafélög koma að sýningunni sem og þjón- ustuaðilar landbúnaðarins, skólar og söfn svo eitthvað sé nefnt. „Við sýnum búfé, þarna verður vélasýning og mat- vælafyrirtækin munu kynna vörur sínar,“ segir Sveinn um dagskrá sýningarinnar. Auk þessa verður boðið upp á hrútaþukl, fjárhunda- og gangtegundasýningar, ómmæl- ingar sauðfjár og ýmis skemmtiatriði. Þá verða hin ár- legu töðugjöld á Hellu hluti af dagskránni. Sýningin er haldin í tilefni aldarafmælis Búnaðarsam- bands Suðurlands og er ætlað að kynna fagfólki og leik- mönnum íslenskan landbúnað og sögu hans, stöðu og framtíðarhorfur. Þegar Búnaðarsamband Suðurlands átti fimmtugs- og sjötugsafmæli voru haldnar sýningar af sama tagi og blásið er til í ár. Þar sem um mikið stórafmæli að ræða er haldið upp á tímamótin með ýmsu móti. Meðal annars kom bókin Saga Búnaðarsambands Suðurlands í 100 ár út í vikunni í tilefni af afmælinu. Fyrstu eintök hennar voru afhent á mánudaginn síðastliðinn. Töðugjöldin verða hluti dagskrárinnar Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Í HNOTSKURN » Búnaðarsamband Suðurlands var stofnað 6.júlí árið 1908 og var Sigurður Guðmundsson frá Selalæk fyrsti formaður þess. » M.a. munu Ingó og Veðurguðirnir skemmta,Hundur í óskilum, Álftagerðisbræður o.fl. » Miðaverð á sýninguna er 2.000 kr. en ókeypiser fyrir börn 14 ára og yngri. Vonast eftir 8.000 gestum á landbúnaðarsýningu INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir utanríkis- ráðherra Íslands fundaði með utanríkisráðherr- um aðildarríkja NATO í Brussel í gær þar sem fjallað var um hið alvarlega ástand í Georgíu og Suður-Ossetíu. Ingibjörg Sólrún sést hér ásamt Þorsteini Ing- ólfssyni í fastanefnd NATO í Brussel, Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu, og Stefano Stefanini, fastafulltrúa Ítalíu hjá NATO. NATO Ástandið í Georgíu í brennidepli INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra segir íslensk yfirvöld munu líta sömu augum og áður flug rússneskra herflugvéla innan íslensks loftrýmis þrátt fyrir að Rússar hafi gert innrás inn í sjálfstætt ríki, Georgíu. Ingibjörg Sólrún segir að- gerðir Rússa í Georgíu mjög harka- legar með því að þeir fari inn fyrir al- þjóðlega viðurkennd landamæri. „Þetta hefur ekki gerst síðan Sovét- ríkin liðu undir lok og allir hljóta að líta það mjög alvarlegum augum,“ segir hún. „Ég sé enga ástæðu til að líta [flug rússneskra véla við Ísland] öðrum augum. Georgíumálið er sér- mál á Kákasussvæðinu sem þarf að leysa með sérstökum hætti. Á [NATO]-fundinum varaði ég við að farið yrði út í orðræðu sem myndi kynda undir öfgakenndri þjóðernis- hyggju sem væri líkleg til að stig- magna deilur í stað þess að leysa þær. Það á við á báða bóga.“ Ingibjörg segir að aðild Georgíu að NATO hafi ekki verið til umræðu á fundi NATO nú. „Það mál snýst um hvort Georgía eigi að fara inn í aðlög- unarferli að NATO eða ekki og ég er þeirrar skoðunar að hverju ríki sé auðvitað í sjálfsvald sett hvort það sæki um aðild að NATO. Ríki þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að komast inn í bandalagið og það gerir Georgía ekki eins og er. Um það snýst málið en ekki hvort öðrum líkar aðild eða mislíkar.“ Á leiðtogafundi NATO í Rúmeníu í apríl á þessu ári, með þátt- töku forsætis- og utanríkisráðherra Íslands var samþykkt yfirlýsing um að Georgía ásamt Úkraínu ætti rétt á aðild að NATO þótt ríkin fengju þá ekki formlega aðild að umsóknarferl- inu. orsi@mbl.is Breytir engu um Birnina Harkaleg innrás Rússa í Georgíu varpar ekki nýju ljósi á flug Rússavéla við Ísland Í HNOTSKURN »Ingibjörg Sólrún Gísla-dóttir telur að fyrst og fremst séu það ríkin sjálf sem ráði því hvort þau sæki um að- ild að NATO svo framarlega sem þau uppfylli réttu skil- yrðin. »Á leiðtogafundi NATO ívor var samþykkt yfirlýs- ing um að Georgía m.a. ætti rétt á aðild að NATO. Skýr skilaboð til Rússa mbl.is | Sjónvarp 12 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FYRSTU eintökin af afmælisritinu Búnaðarsamband Suðurlands 100 ára, eftir Pál heitinn Lýðsson, sagn- fræðing í Litlu-Sandvík, voru af- hent í fyrrakvöld í Reiðhöllinni á Hellu. Þar efnir Búnaðarsamband Suðurlands (BSSL) til veglegrar landbúnaðarsýningar um næstu helgi. Guðbjörg Jónsdóttir, formað- ur BSSL, afhenti fyrstu tvö eintök- in þeim Þorfinni Þórarinssyni á Spóastöðum, fyrrverandi formanni BSSL, og Elínborgu Guðmunds- dóttur, ekkju höfundar bókarinnar. Páll Lýðsson vann að ritun og frágangi bókarinnar síðustu ævi- daga sína en hann lést af slysförum 8. apríl síðastliðinn. Lýður Pálsson sagnfræðingur, sonur Páls heitins og Elínborgar, tók þá við ritstjórn bókarinnar og gekk frá henni til prentunar. Hann sagði í ávarpi í til- efni af útkomu verksins að Páli hefði verið falið árið 2002 að rita aldarafmælisrit Búnaðarsambands- ins. Aðalkaflar bókarinnar hafi ver- ið ritaðir 2005 og 2006. Þá tók við yfirlestur sem 20 einstaklingar önnuðust. Í fyrra voru ritaðir auka- kaflar, um búnaðarsambandið í dag og þróun sunnlensks landbúnaðar. Lýður ritaði lokakafla bókarinnar. Bókin er 350 blaðsíður og fæst hjá Búnaðarsambandi Suðurlands á Selfossi. Fyrsta sagnfræðiverkið sem kom út eftir Pál Lýðsson var aðalkaflar Sögu Búnaðarsambands Suður- lands sem kom út 1959 í tilefni af 50 ára afmæli búnaðarsambandsins. Ljósmynd/Guðmundur Karl Mæðgin Lýður Pálsson og Elínborg Guðmundsdóttir með fyrstu eintökin af bók Páls Lýðssonar um 100 ára sögu Búnaðarsambands Suðurlands. Svanasöngur sagnaþular LÖGREGLAN á höfuðborgar- svæðinu mun tefla fram eitt- hundrað lög- reglumönnum á Menningarnótt og hafa allan var- ann á sér gagn- vart hverskyns óspektum og hugsanlegum skrílslátum eftir að formlegri dag- skrá lýkur. Lögreglan hvetur líka fólk til að koma í bæinn með strætó eða leigubílum til að létta á gatna- kerfinu. Þáttaskil verða í dagskránni að lokinni flugeldasýningunni sem hefst stundvíslega kl. 23:08 og segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá LHR að þá muni verða aðskiln- aður þeirra sem ætla að verða eftir í borginni og hinna, sem fara heim eftir dagskrána. „Við munum taka mjög fast á þeim sem verða til óþurftar, þ.e. unglingum undir áhrif- um áfengis og börnum sem mega ekki vera úti. Við munum taka á mál- um með mjög svipuðum hætti og við gerðum með góðum árangri í fyrra.“ Árni Friðleifsson, varðstjóri hjá LHR, segir ágætis reynslu komna á umferðarstjórn á Menningarnótt, þótt að þessu sinni sé stærra svæði helgað dagskránni. „Við gerum ráð fyrir því að loka Þingholtunum að hluta til,“ segir hann. „Að lokinni flugeldasýningu höfum við stillt um- ferðarljós á gul blikkandi ljós og stýrt umferðinni út úr bænum. Það tók um eina klukkustund að greiða úr umferðinni og við vonumst til að gera enn betur núna.“ Einnig verður öflugt lögreglueft- irlit við fjölmenna útitónleika á Miklatúni sem hefjast kl. 19 og lýkur klukkan 23. Gæslan verður öflug Lögreglueftirlit á Menningarnótt Geir Jón Þórisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.