Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Íslendingum erannt um orð-spor sitt á sviði fiskveiði- stjórnunar. Við viljum gjarnan sýna umheiminum að við stjórnum veiðum með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Slíkt skiptir raunar æ meira máli fyrir íslenzkan sjávar- útveg, því að fyrirtæki og neyt- endur sem kaupa íslenzkan fisk víða um heim gera vaxandi kröfu um að það sé vottað og staðfest að veiðarnar séu um- hverfisvænar og sjálfbærar. Í fréttaskýringu Helga Bjarnasonar í Morgunblaðinu í gær kom fram að ekkert sam- komulag er um veiðar úr ýms- um deilistofnum, þ.e. fiskistofn- um sem er að finna bæði í íslenzkri lögsögu og utan henn- ar eða í lögsögu annarra ríkja. Þar ber fyrstan að telja mak- rílinn, nýja nytjastofninn sem hefur komið sjávarútveginum vel sem óvænt búbót á erfiðum tímum. Útgerðir og sjómenn keppast nú við makríl- veiðarnar, í óþökk þeirra ríkja sem til þessa hafa veitt makríl: Noregs, Færeyja og Evrópu- sambandsins. Íslandi hefur ekki verið boðið til samninga um makrílveiðarnar fremur en fyrri ár, þótt nú fari varla leng- ur á milli mála að makríllinn eigi heima í íslenzkri lögsögu. Það er eðlilegt að íslenzkur sjávarútvegur nytji fisktegund, sem er að finna í íslenzkri lög- sögu og geri kröfu um hlutdeild í alþjóðlegu sam- komulagi um veið- arnar. Við þurfum þá auðvitað að vera reiðubúin að sýna sömu tillitssemi og við krefjumst af öðrum, ef stofnar, sem fyrst og fremst hafa fundizt í íslenzkri lögsögu, breyta göngum sínum og fara að veiðast hjá nágrönnunum. Við verðum að vera sjálfum okkur samkvæm. Sömuleiðis þurfum við að standa okkur betur í því að leita alþjóðlegs samkomulags um aðra deilistofna, sem í raun eru veiddir stjórnlaust. Þetta á sér- staklega við um grálúðu og karfastofna. Hafrannsóknastofnunin tel- ur grálúðustofninn í sögulegu lágmarki og vill að mjög verði dregið úr veiðum á honum. Engu að síður hefur sjáv- arútvegsráðherra úthlutað ís- lenzkum skipum einhliða kvóta, sem er þrefaldur sá kvóti, sem stofnunin telur forsvaranlegt að öll strandríkin taki. Svipað ástand er í karfanum. Strandríkin, þar á meðal Ís- land, gefa út einhliða kvóta sem er langt umfram alla vís- indalega ráðgjöf. Vissulega þarf að halda fram íslenzkum hagsmunum í alþjóð- legum samningum um deili- stofna. En við getum ekki geng- ið fram af of mikilli óbilgirni. Það mun bæði koma niður á fiskistofnunum og á orðspori Íslands. Óbilgirni kemur bæði niður á fiski- stofnum og orðspori Íslands} Ábyrg fiskveiðistjórnun Tilhneigingin tilað klípa af neytendum getur verið sterk, sér- staklega þegar þeir eru varnarlausir og geta ekki leitað annað. Þetta á við um einstaklinga, sem panta vörur með litlu verðmæti að utan og fá þær sendar til Ís- lands í pósti. Þeir greiða álög- ur á álögur ofan. Á slíka smá- pakka er lagður virðisaukaskattur og tollur og þar við bætist svokallað um- sýslu- eða tollmeðferðargjald að upphæð 450 krónur. Við- skiptavinurinn hefur þegar greitt póstburðargjald á send- ingarstað. Hann er látinn greiða virðisaukaskatt af sendingargjaldinu. Síðan þarf hann að borga sérstaklega fyrir að fá að borga hin op- inberu gjöld. Í þetta kerfi skortir hins vegar samræmi og jafnræði gagnvart borgurunum. Fjöldi manns fær í viku hverri smá- pakka að utan án þess að lúta þessari tollmeðferð. Hér er um að ræða áskrifendur að er- lendum tímaritum. Í raun er enginn munur á því að fá í pósti smápakka með bók eða smá- pakka með er- lendu tímariti. Þeir sem fá hin er- lendu tímarit þurfa hins vegar hvorki að borga virðisauka- skatt, toll né umsýslugjald. Gjaldheimta af þessu tagi myndi fylla pósthús landsins af viðskiptavinum, sem þá fengju mánaðar- eða jafnvel vikulega að reiða fram um- sýslugjaldið. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur nú lagt til að gjöld á smápakka verði felld niður. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að nú sé „ákveðin vinna farin í gang í [fjár- mála]ráðuneytinu til að kanna grundvöll fyrir þessari breyt- ingu“. Einn grundvöllur hlýt- ur að vera sá að Ísland er eina landið á Evrópska efnahags- svæðinu, sem ekki hefur fellt niður opinber gjöld af smá- pökkum. Ef þetta nær fram að ganga féllu ekki bara niður virð- isaukaskattur og tollur af um- ræddum pökkum, sjálfu um- sýslugjaldinu yrði stefnt í voða. Gjaldagleðin og smápakkarnir}Neytendur í álögum E nn er lokið miklum hróker- ingum í borgarstjórn. Það var erfið ákvörðun fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að slíta meirihlutasamstarfinu, en auð- vitað verður hún sem nýr oddviti að standa á sinni sannfæringu. Ef hún á að axla ábyrgð- ina verður það að vera á hennar forsendum. Mér fannst athyglisvert þegar fréttist úr herbúðum Vinstri grænna að Ólafur F. Magnússon væri reiðubúinn að hætta sem borgarfulltrúi og víkja fyrir Margréti Sverr- isdóttur. Hann var reyndar ekkert að deila því með Margréti. Marsibil Sæmundardóttir varaborgar- fulltrúi Framsóknarflokksins lýsti því síðan yfir að hún styddi ekki meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og bar því við að hún vildi held- ur endurvekja Tjarnarkvartettinn. Varaborgarfulltrú- inn vildi því ráða fyrir aðalborgarfulltrúann! En var Tjarnarkvartettinn nokkurn tíma raunhæfur möguleiki? Ef marka má orð nánustu stuðningsmanna Ólafs var aldrei gert slíkt tilboð. Var það ein gróusag- an? Mér skilst að málið hafi verið lagt þannig upp í við- ræðum innan minnihlutans þennan morgun, að Óskar Bergsson ætti að hringja í Ólaf og tilkynna honum að hann myndi aldrei mynda meirihluta með Sjálfstæð- isflokknum. Þá fyrst myndi Ólafur segja af sér! Eru það „klækjastjórnmál“? Og mitt í þessari orrahríð kviknar aftur áhugi fjölmiðla á skólagöngu Gísla Marteins Baldurssonar! Nú er það vegna þess að hann ætlar í meistaranám í borgarfræðum til Edinborgar og hyggst sækja borgar- stjórnarfundi þaðan. Að vísu hefur verið rifjað upp að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir lék sama leikinn þegar hún var borgarfulltrúi og lærði til Evrópusambandsins við London School of Economics. Þá sótti hún aðeins þrjá af ell- efu fundum borgarstjórnar, þáði þó laun sem borgarfulltrúi. Gott og vel. Maður skyldi ætla að hún hefði þá skiln- ing á ákvörðun Gísla Marteins. En öðru nær. „Menn verða bara að meta það sjálfir,“ sagði hún í fréttum útvarpsins í gær. Og dró fram að hún hefði „þjónað“ í sextán ár í borgarstjórn, eins og það gerði útslagið um að hún verðskuldaði að fara utan í nám. Stöldrum aðeins við, hefði ekki nýst borgarbúum betur ef Ingibjörg Sólrún hefði menntað sig áður en hún settist í stól borgarstjóra? Og er ekki skynsamlegt af Gísla Marteini sem borg- arfulltrúa að bíða ekki með þá ákvörðun í tólf ár að mennta sig í borgarfræðum? Maður skyldi ætla að áhyggjuefnin væru önnur og meiri í borgarstjórn. Pétur Blöndal Pistill Hrókeringar og klækjastjórnmál Umsvifin í Helguvík aukast jafnt og þétt FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is F ramkvæmdir vegna ál- versins í Helguvík hafa gengið vel og sam- kvæmt áætlun síðan fyrsta skóflustungan var tekin hinn 6. júní síðastliðinn. Þær eru ekki langt á veg komnar svo merkjanlegt sé og enn eru ekki margir verkamenn að störfum, en umfangið mun fara vaxandi með hverjum mánuðinum fram að verk- lokum, sem til stendur að verði sum- arið 2010. Í sumar hefur fyrst og fremst ver- ið unnið að jarðvegsframkvæmdum, þ.e. grafið fyrir grunni og skipt út jarðvegi en fyrst verður steypt fyrir kerskálanum, stærstu byggingu ál- versins, innan tveggja mánaða. Vinna við aðrar helstu byggingar, skautsmiðju og steypuskála auk þjónustubygginga, s.s. skrifstofu- húsnæðis, lagers, verkstæðis o.fl, mun hefjast í lok þessa árs eða byrj- un þess næsta samkvæmt Ágústi F. Hafberg, framkvæmdastjóra við- skiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli. Um 800 manns að störfum þeg- ar vinnan stendur sem hæst Álverið í Helguvík spannar vítt at- vinnusvæði, allt frá Reykjanesbæ og Garði, þar sem ker- og steypuskálar munu standa, til Voga, Grindavíkur og Sandgerðis og hafa bæjaryfirvöld á Suðurnesjum almennt lýst yfir ánægju sinni með byggingu álversins og störfin sem við það skapist, bæði á meðan á byggingu þess stendur og eftir að starfsemi þess hefst. Um þessar mundir eru um 30-50 starfsmenn við vinnu á svæðinu eftir atvikum, en þeim mun brátt fjölga og verða orðnir ríflega 100 um næstu áramót. Umsvifin ná svo hámarki sínu mánuðina í kringum áramótin 2009-2010 þegar rúmlega 800 manns munu vinna við byggingafram- kvæmdir. Þá er enn ótalin vinna við hönnun og verkstjórn, sem kallar eft- ir um 200 starfsmönnum til viðbótar. Tækjabúnaðurinn er dýrastur Heildarkostnaður við þennan fyrsta hluta álversins í Helguvík er áætlaður um 80-90 milljarðar og er gert ráð fyrir að þar af verði kostn- aður í ár 12-15 milljarðar, en 25-35 milljarðar á hvoru ári 2009 og 2010. Langstærsti kostnaðarliðurinn, um helmingur, felst í framleiðslubúnaði og tækni en vinnulaun við fram- kvæmdir verða um 15% af heild- arkostnaði. Það eru Íslenskir aðalverktakar sem reisa álverið auk undirverktaka sem samið er við um sérstaka verk- þætti. Nú þegar eru um 600 manns á launaskrá hjá ÍAV og mun hluti þeirra vinna við Helguvík að sögn Eyjólfs Gunnarssonar fram- kvæmdastjóra. Hann segir marga starfsmenn fyrirtækisins vera af Suðurnesjum, enda ÍAV þegar með starfsstöð þar, og því megi búast við að hátt hlutfall þeirra sem vinni að byggingu álversins muni verða íbúar Suðurnesja. Vítamínsprauta á góðum tíma fyrir Suðurnesjamenn Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að jákvæðni ríki meðal bæjarbúa við upphaf fram- kvæmdanna þótt áhrifin á atvinnu- lífið fari hægt af stað fyrst um sinn. Það sé alveg ljóst að sama hvar verk- takafyrirtækin séu skráð þá sé hent- ugt fyrir þau að ráða heimamenn til vinnu. Þá sé tímasetning fram- kvæmdanna ekki síður hentug. „Það fjölgar enn í bænum og hvergi að maður finni fyrir öðru en uppgangi. Þrátt fyrir samdrátt á landsvellinum og raunar heimsvellinum þá er þetta enn mikið uppbyggingarsvæði.“ Morgunblaðið/RAX Grafið Í júní og júlí voru ýmsar jarðvegsframkvæmdir í Helguvík til und- irbúnings fyrir byggingarvinnuna sjálfa sem hefst fljótlega. ÁLVERIÐ í Helguvík hefur verið í undirbúningi frá árinu 2004 og verður það fyrsta álverið í heim- inum sem eingöngu er knúið raf- orku frá jarðvarma. Starfsleyfi hef- ur enn ekki fengist, en er í vinnslu hjá Umhverfisstofnun. Uppbygging álversins verður í tveimur áföngum og er sá fyrri nú í startholunum. Að honum loknum árið 2010 mun álverið framleiða um 150.000 tonn á ári, en 250.000 tonn þegar sá síðari verður gangsettur árið 2015. Gera má ráð fyrir talsverðum áhrifum á nágrannasveitarfélögin meðan á framkvæmdum stendur, bæði í aukinni atvinnu og eflingu viðskiptalífs almennt. Samkvæmt mati Norðuráls mun áhrifanna helst gæta í Reykjanesbæ, eða um 65%, en um 20% í öðrum sveit- arfélögum á Suðurnesjum og um 15% á höfuðborgarsvæðinu. Nýlega krafðist Landvernd þess af umhverfisráðherra að álverið færi í heildstætt umhverfismat. VÍÐTÆK ÁHRIF ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.