Morgunblaðið - 21.08.2008, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 1. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
227. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
SEGJA PÓSTMÓDERN-
ÍSKAN AULABRANDARA
DAGLEGTLÍF
Draumar og
hugmyndir á flug Leikhúsin í landinu
Allir í leikhús
Óvitar >> 35
Enn vantar 200 starfsmenn á frí-
stundaheimili Reykjavíkurborgar.
Helmingi fleiri starfsmenn hafa þó
verið ráðnir en á sama tíma í fyrra.
Formaður ÍTR segir reynsluna þá
að margir starfsmanna séu náms-
menn sem séu ráðnir á síðustu
stundu á haustin. » 4
200 starfsmenn vantar
á frístundaheimili ÍTR
Jarðskjálfti varð í nágrenni
Hveragerðis í gærkvöld upp úr
klukkan hálfsjö. Jarðskjálftinn var
2,5 á Richter-skalanum. Upptökin
voru um 3 kílómetra norðaustan við
Hveragerði og hann fannst vel þar.
Fáeinir minni skjálftar mældust í
kjölfarið. Þessir skjálftar eru eft-
irskjálftar eftir Suðurlands-
skjálftann í vor.
Skelfur við Hveragerði
Íslenskt leikhús hefur verið á far-
aldsfæti í gegnum tíðina og er nú í
sókn erlendis, en eina leiðin til að
reka sjálfstætt leikhús á Íslandi er í
gegnum útrás.
Íslenskt leikhús
er í sókn erlendis
Innan tíðar mun hefjast vinna við
hlutafélagavæðingu Sparisjóðs
Mýrasýslu. Endanleg framtíð sjóðs-
ins mun ráðast af ákvörðunum hlut-
hafafunda félagsins.
VIÐSKIPTI
Endanleg framtíð
SPM er óljós
Róbert Guðfinnsson, fyrrverandi
stjórnarformaður SH, hefur snúið
sér að túnfiskeldi í Mexíkó. Hann
býr nú í Phoenix í Arizona í Banda-
ríkjunum.
Stundar nú tún-
fiskeldi í Mexíkó
GRÍÐARLEGUR viðbúnaður var á
Barajas-flugvelli í Madríd í gær eft-
ir að farþegaflugvél fórst í flugtaki
og varð alelda á svipstundu.
Spænsk yfirvöld staðfestu seint í
gærkvöldi að 153 hefðu látist og 19
væru illa særðir og einhverjir enn í
lífshættu. Rúmlega 20 börn voru
meðal farþega vélarinnar sem var á
leiðinni til Kanaríeyja. Samkvæmt
upplýsingum utanríkisráðuneytisins
benti ekkert til þess í gærkvöldi að
Íslendingar hefðu verið um borð í
vélinni.
Flugvélin hafði skömmu áður
reynt að komast á loft en hætt við
vegna tæknilegra örðugleika. | 15
AP
Slys Gríðarlegur fjöldi fólks kom að
björgunarstarfinu í Madríd í gær.
153 látnir
í flugslysi
Mörg börn voru í vél-
inni sem fórst í Madríd
Eftir Andrés Þorleifsson
andresth@mbl.is
TVEIR rúmenskir járnsmiðir létu
lífið við Hellisheiðarvirkjun um
klukkan sjö í gærkvöldi. Að sögn
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
báru endurlífgunartilraunir ekki ár-
angur. Talið er að mennirnir hafi
farið inn í súrefnislausu gufulögnina
sem sjá má á myndinni hér að ofan
og liggur austan við stöðvarhúsið.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu er það almennt svo að
fari fólk inn í súrefnislaust rými
missir það mjög fljótt meðvitund og
kann þá að látast úr súrefnisskorti.
Virðist þessi lýsing vera helsta
tilgáta slökkviliðs í málinu.
Höfðu unnið að ámóta verkefni
Guðbergur Ástráðsson er verk-
stjóri hjá Altaki vélsmiðju, en
mennirnir unnu á vegum þess verk-
takafyrirtækis. Hann segir mennina
hafa unnið að svipuðu verkefni áð-
ur. Þá hafi umrædd lögn ekki verið
í notkun síðan í júní síðastliðnum og
ekki hafi fleiri verið að vinna með
mönnunum að þessu verkefni. Þeir
höfðu ekki verið lengi á landinu.
Lögreglan á Selfossi, sem fer
með rannsókn slyssins ásamt
Vinnueftirlitinu, vildi ekki greina
nánar frá tildrögum slyssins að svo
stöddu.
Fjölmennt lið, lögregla og sjúkra-
lið frá Selfossi og Reykjavík, mætti
á vettvang, auk þess sem teymi á
vegum Rauða krossins kom á stað-
inn og veitti þeim starfsmönnum
sem vildu áfallahjálp.
Tveir létust í vinnuslysi
Tveir rúmenskir járnsmiðir létu lífið við Hellisheiðarvirkjun Taldir hafa látist
úr súrefnisskorti í gufulögn Höfðu unnið að svipuðum verkefnum áður
Í HNOTSKURN
»Um 300 manns vinna hjáýmsum verktakafyr-
irtækjum við byggingu Hellis-
heiðarvirkjunar.
»Aðallega er verið að vinnavið byggingu mannvirkis
sem kallast varmastöð, sem er
heitavatnsframleiðslueining
er taka á í notkun á næsta ári.
Morgunblaðið/Golli
Banaslys Talið er að mennirnir hafi farið inn í þessa súrefnislausu gufulögn við stöðvarhúsið, misst meðvitund og í kjölfarið látið lífið vegna súrefnisskorts.