Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 46
18. apríl 2009 LAUGARDAGUR62
Gerðaskóli
Garðbraut 90, 250 Garði
www.gerdaskoli.is, gerdaskoli@gerdaskoli.is
Kennara vantar til starfa skólaárið 2009-2010.
Meðal kennslugreina eru:
• Almenn kennsla á yngsta-og miðstigi.
• Náttúrufræði á unglingastigi.
• Heimilsfræði.
• Textílmennt.
• Tónmennt.
Umsóknarfrestur er til 8. maí n.k. Nánari upplýsingar
veita skólastjórnendur.
Sími á skrifstofu skólans er: 422-7020.
Gerðaskóli er þriðji elsti grunnskóli landsins og byggir á gömlum grunni
en horfi r þó stöðugt til framtíðar. Mikil fjölgun nemenda hefur orðið á
undanförnum árum. Sveitarfélagið Garður hefur gefi ð út metnaðarfulla
skólastefnu sem gerð var í samráði við íbúana og framkvæmdir við
stækkun skólans eru hafnar. Fyrsti áfangi stækkunarinnar verður tekinn í
notkun næsta haust. Í Garðinum njóta íbúarnir þess að búa í dreifbýli en
jafnframt kosta þéttbýlisins vegna nálægðarinnar við höfuðborgarsvæðið.
» Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf, Ráðningarþjónusta • Fiskislóð 81 • 107 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Leitar þú að
starfsmanni?
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi.
Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna
réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við
ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Nýr hugbúnaður gerir leit mjög markvissa og tryggir að við finnum hæfasta
einstaklinginn til starfsins.
Enginn auglýsingakostnaður
Við sjáum um að auglýsa starfið eins og þörf krefur án þess að
til komi aukakostnaður.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir eða er sagt upp störfum innan þriggja mánaða
er ráðning í hans stað án endurgjalds.
Nánari upplýsingar
í síma 561 5900
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Starfsmaður óskast á lamineringarvél í
prentdeild. Við leitum eftir vandvirkum og
duglegum einstaklingi.
Starfið felur í sér vinnu við lamineringu
á filmum fyrir kröfuharðan markað.
Hæfniskröfur:
Samviskusemi, stundvísi og reglusemi.
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð.
Grunnkunnátta í íslensku og ensku nauðsynleg.
Umsóknafrestur er til 24. apríl 2009
Hægt er að sækja um starfið á vefsíðu Plastprents,
www.plastprent.is og í afgreiðslu Plastprents hf
Fosshálsi 17 – 25.
STARFSMAÐUR ÓSKAST
Plastprent hf. er leiðandi fyrirtæki í umbúðaiðnaði á Íslandi og
hefur í yfir 50 ár þjónað öllum sviðum atvinnulífsins.
Hjá fyrirtækinu starfar 90 starfsmenn sem þjóna viðskiptavinum
bæði innanlands og erlendis.
Plastprent hf. hefur vottað gæðakerfi samkvæmt ISO 9002
og BRC stöðlum.
LAUGAVEGUR 66 OG SMÁRALIND
KONUR OG MENN
GK Reykjavík óskar eftir starfsmanni í
fullt starf í verslun okkar í Smáralind
ásamt starfsmanni í hlutastarf í verslanir
á Laugavegi og Smáralind. Starfsmaður
þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendið umsókn með helstu upplýsingum á netfangið
heida@gk.is, merkt „starfsumsókn“ fyrir 30.apríl 2009. Farið verður með
umsóknir sem trúnaðarmál og öllum svarað.
GK Reykjavík var stofnað árið 1997 og rekur tvær verslanir. Rótgróna
verslun á Laugavegi 66 og nýlega verslun í Smáralind sem opnaði í
desember 2008. Báðar verslanirnar selja vandaða gæðavöru á bæði kyn.
Hæfniskröfur:
Reynsla af verslunarstörfum
Snyrtimennska
Samskiptahæfileikar
Ákveðni
Jákvæðni
Áhugi á tísku og hönnun
Filippa K I Patrizia Pepe I Dreams I GK Reykjavík I Lee I Wrangler I Rutzou
VIÐ ÓSKUM
EFTIR
STARFSFÓLKI