Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 42
18. apríl 2009 LAUGARDAGUR2
Vorsýning Myndlistaskólans í
Reykjavík, þar sem nemendurnir,
610 talsins, sýna verk sín, verður
opnuð í dag.
Klukkan 13 verður opnuð sýning á
verkum nemenda skólans , unnum
í anda Magnúsar Pálssonar mynd-
listarmanns, í Listasafni Íslands
við Fríkirkjuveg. Klukkan 14 verð-
ur svo opnuð sýning í húsakynn-
um Myndlistaskóla Reykjavíkur að
Hringbraut 121, þar sem nemend-
ur skólans á aldrinum 3 til 85 ára
sýna verk sín.
Meðal annars munu nemendur á
myndlista- og hönnunarsviði sýna
verkefni úr lokaáfanga og gefst
gestum tækifæri til að búa til arki-
tektahatta, renna leir, skoða tengsl
myndlistar og stærðfræði og taka
ljósmyndir með mörg hundruð ára
gamalli aðferð. Einnig kemur út
annað tölublað af myndasögublað-
inu AAA!!! með sögum eftir nem-
endur skólans.
Námskynning verður á Mótun,
leir og tengd efni, sem er nýtt
tveggja ára nám á háskólastigi við
skólann. Sjá nánar um dagskrána
á www.myndlistaskolinn.is. - rat
Voruppskera
listnema
Kynning verður á náminu Mótun sem er
nýtt tveggja ára nám við skólann.
MYND/MYNDLISTASKÓLINN Í REYKJAVÍK
Menningar- og sögutengd ganga
um Gerðavelli verður farin í
dag. Gengið verður um sögusvið
Grindavíkurstríðs, Junkara og
búskapar í Grindavík.
Menningargangan í dag er í boði
Grindavíkurbæjar og Saltfisks-
setursins og hefst klukkan 13 við
Stóru-Bót, þar sem nýtt söguskilti
verður vígt. Gangan tekur 1 til 2
klukkutíma en stoppað verður
víða á leiðinni og fræðst um sögu
staðanna. Ómar Smári Ármanns-
son og Sigrún Franklín munu sjá
um fræðsluna.
„Þetta er sjötta söguskiltið
sem verður vígt hér á svæðinu,“
segir Sigrún. „Ómar Smári á veg
og vanda af þeim, teiknar kortin
og aflar upplýsinganna sem hann
setur á skiltin. Á þessu svæði sem
við göngum um í dag er heilmikil
saga, til dæmis um Junkerana svo-
kölluðu. Það voru þjóðverjar sem
voru hér á svæðinu á 14. og 16. öld
en þarna sjást minjar eftir gerði
þar sem þeir héldu sig. Svo er
mikil saga um Grindavíkurstríðið
og virkið þar sem Íslendingar,
Danir og þjóðverjar tóku sig til
undir forystu Jóhanns Breiða og
drápu Englendinga sem voru þar
árið 1532,“ segir Sigrún.
Gangan er liður í viðburða-
og menningardagskrá Saltfisks-
setursins og Grindavíkurbæjar og
verður mikið um að vera í Grinda-
vík í dag í tengslum við Ferða-
fögnuðinn. Nánar má kynna sér
dagskrána á www.grindavik.is.
- rat
Menningarganga
um Gerðavelli
Hestarétt á Skyggni. MYND/ÓMAR SMÁRI ÁRMANNSSON
Hestaáhugamenn fyrir norðan
þurfa ekki að láta sér leiðast
í dag. Þeir ættu að skella sér í
reiðhöllina á Akureyri þar sem
stórveislan Fákar og fjör fer
fram.
Stórveislan Fákar og fjör verð-
ur haldin í reiðhöllinni á Akur-
eyri í dag, laugardaginn 18. apríl.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Akureyrar hafa skipuleggjendur
mótsins orðið varir við gífurleg-
an áhuga fyrir mótinu og því að
vænta góðrar stemningar.
Veislan hefst klukkan hálfníu
um kvöldið með formlegri vígslu-
athöfn á reiðhöll Léttis og tveggja
tíma sýningaratriðum. Þar munu
nokkrir af bestu ræktendum og
keppendum landsins sýna listir
sínar með sinn besta hestakost.
Samkvæmt fréttinni munu jafn
mörg góð hross og knapar líklega
ekki hafa komið saman á Norður-
landi í langan tíma.
Fyrr um daginn verður Gunnar
Arnarsson í Auðsholtshjáleigu með
ræktunarspjall á léttu nótunum. Þá
mun Eyþór Einarsson, kenndur við
Syðra-Skörðugil, vera með kennslu
í byggingardómum, bæði bóklega
og verklega.
Um helgina er Skíðalandsmót
Íslands líka haldið í Hlíðarfjalli.
Mótið hófst í gær, föstudag, og
stendur fram á sunnudag. Það er
því nóg um að vera á Akureyri
þessa helgina fyrir alla fjölskyld-
una. - hhs
Hestaveisla á Akureyri í dag
Í dag fer stórveislan Fákar og fjör fram í
reiðhöllinni á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
VIÐEYJARSTOFA er opin frá klukkan 13.30 til 17.00 í dag og
hægt að fá sér kaffi og með því. Boðið verður upp á fría leiðsögn
um eyjuna frá 13.15 og frá 14.00 til 16.30 er opinn smíðavöllur
fyrir börnin.
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
Kolaportið er OPIÐ
laugardaga og
sunnudaga
frá kl. 1100-1700
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki