Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 94
66 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. ágætt, 6. frá, 8. sigti, 9. skamm- stöfun, 11. tveir eins, 12. hroki, 14. svall, 16. tónlistarmaður, 17. eru, 18. stansa, 20. tveir eins, 21. djamm. LÓÐRÉTT 1. lengdareining, 3. klaki, 4. ófrægðar- pappír, 5. skítur, 7. ávöxtur, 10. óvild, 13. blaður, 15. yfirhöfn, 16. hugfólg- inn, 19. skammstöfun. LAUSN LÁRÉTT: 2. fínt, 6. af, 8. sía, 9. rek, 11. ðð, 12. dramb, 14. slark, 16. kk, 17. séu, 18. æja, 20. ff, 21. rall. LÓÐRÉTT: 1. yard, 3. ís, 4. níðbréf, 5. tað, 7. ferskja, 10. kal, 13. mas, 15. kufl, 16. kær, 19. al. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Gunnar Eyjólfsson. 2 Brenton Birmingham. 3 Ólafur F. Magnússon. Yrsa Sigurðardóttir Aldur: 45 ára. Starf: Verkfræðingur hjá Verkís. Stjörnumerki: Meyja. Fjölskylda: Ég á tvö börn, eiginmann og eitt barnabarn. Búseta: Ég bý úti á Seltjarnarnesi. Yrsa fær frábæra dóma fyrir bók sína Sér grefur gröf í breska stór- blaðinu The Indipendent. Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, er sem betur fer umhugað um að menn hafi staðreyndir á hreinu – ekki síst þær sem snúa að sér og sínu. Þannig er Stefán afkastamikill í framlögum sínum á Wikipedia-alfræðiorðabók- inni á netinu og hefur breytt ýmsu þar sem betur má fara. Þannig hefur Stefán lagað upplýsingar um Jón H.B. Snorrason, Hörð Jóhann- esson, lögreglustjórann á höfuð- borgarsvæðinu, það er sig sjálfan, auk þess sem Stefán hefur leiðrétt upplýsingar um Morfís-keppnina. En þar eru til dæmis tíundaðir þekktir einstaklingar sem hafa tekið þátt svo sem Sigmar Guðmundsson, Inga Lind Karlsdóttir, Sigurður Kári, Eyrún Magnúsdóttir, Stefán Pálsson, Ólafur Teitur, Gísli Marteinn og … Stefán Eiríksson. Fréttablaðið greindi frá því að hin einstæða hljómsveit Tiger Lillies væri væntanleg til landsins og ræddi af því tilefni við aðdáanda listamann- anna, hana Valdísi Óskarsdóttur kvikmyndagerðarmann. Valdís er ekki ein um að kunna að meta Tiger Lillies því uppselt er að verða á tónleika þeirra. Þá heyrist úr herbúðum Listahátíðar að mikil sókn sé í miða á Lhasa de Sela, Hjaltalín og Daníel Bjarnason auk þess sem uppselt er að verða á Deborah Voight. Kristrún Heiða Hauksdóttir, kynningarstjóri Þjóðleikhússins, hefur ákveðið að söðla um og ráðið sig til starfa hjá For- laginu. Er henni þar ætlað að fylla skarð Sifjar Jóhannsdótt- ur, sem er á leið í barneignarleyfi, og Atla Bollasonar sem ku vera á leið í nám. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég er að læra að ganga í þriðja skipti. Er kominn upp, er með fjög- urra punkta staf en get lítið hreyft mig,“ segir Jóhann Sigmarsson kvikmyndagerðarmaður – sem gegnir nafninu Jonni Sigmars. Jonni er að ganga í gegnum þá einstæðu lífsreynslu að læra að ganga í þriðja skipti á ævinni. Hinn 3. mars varð Jonni fyrir fólsku- legri og tilefnislausri árás en hann var þá á leið á Kaffi París með tölv- una sína. „Þetta var klukkan níu að kvöldi og þá kom einhver bíll fyrir aftan mig, flautaði og flaut- aði og ég sneri mér við og spurði hvað væri að? Þá kom einhver út og síðasta sem ég sá var að einhver hljóp að mér og henti mér af öllu afli niður í götuna. Svo stungu þeir af.“ Sem betur fer voru vitni og bílnúmer náðist. Lögreglan hafði þannig upp á misyndismönnunum og Jonni hefur kært. Afleiðingar árásarinnar eru þær að Jonni mjaðmagrindarbrotnaði og dvelur hann nú á sjúkrahótel- inu á Rauðarárstíg þar sem hann er í endurhæfingu. Hefur verið í göngugrind en styðst nú við staf. Að læra að ganga er ekkert nýtt fyrir Jonna. „Já, ég lærði náttúrulega að ganga þegar ég var lítill. Eins og flest önnur börn. Svo fékk ég heila- himnubólgu fimm ára gamall og lamaðist. Ég er með réttu rétthent- ur en varð að æfa mig í að gera allt með vinstri í staðinn,“ segir Jonni sem var rúmfastur í nokkra mán- uði í kjölfar heilahimnubólgunn- ar. Hann fór þaðan í hjólastól sem hann gat ekki einu sinni ýtt sjálfur og svo á hækjur. Og heilahimnu- bólgunni fylgdi að Jonni er spast- ískur. „Ég lærði fyrst að hoppa á einni löpp og svo kom þetta að ég gat farið að geta stigið með. Það var í annað skipti.“ Og nú er þriðja skiptið yfirstand- andi og Jonni gerir ráð fyrir því að nýju göngulagi fylgi nýr stíll. Jafnvel hattur og frakki. Jonni átti fertugsafmæli á spítalanum. Hann hefði gjarnan viljað halda upp á það annars staðar en fékk heim- sóknir. Jonni þurfti í kjölfar árás- arinnar að gangast undir uppskurð sem er í frásögur færandi: „Út af spasmanum stjórna ég ekki vöðv- unum hægra megin, fékk vöðva- krampa og þá gliðnaði brotið. Sem var ekki mjög gott,“ segir Jonni. Hann var því sprautaður niður með morfíni og þurfti að fasta 17 klukkutíma fyrir uppskurð. „Þeir þorðu ekki að svæfa mig út af spa- smanum þannig að ég var vakandi í uppskurðinum. Meðan þeir voru að bora í, negla, festa skrúfur og járnplötur í mjöðmina á mér. Ég fann ekkert fyrir þessu en var eins og í öðru herbergi að fylgjast með splattermynd þar sem blóðið sull- aðist úr mér.“ Jonni vinnur nú að næstu mynd sinni, Skarð, sem fjallar um vega- gerð úti á landi. Hann þekkir það að gera myndir án styrkja og bíður eftir grænu ljósi frá Kvikmynda- miðstöð Íslands. „Ég veit ekki hve- nær þetta gæti farið í tökur. Ég er að bíða eftir græna ljósinu. þarf maður ekki alltaf að hafa græna ljósið?“ segir Jonni – á kunnugleg- um tímamótum. jakob@frettabladid.is JÓHANN SIGMARSSON: UPPSKURÐUR MINN EINS OG SPLATTER-MYND Lærir að ganga þriðja sinni Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er nú unnið að því á bak við tjöldin að fá rappar- ann Sean John Combs, betur þekktan sem Puff Daddy eða Diddy, til landsins. Ekki þó til að halda tónleika heldur til að gera tónlistarmynd- band. Fréttablaðið hafði samband við stærstu framleiðslufyrirtæk- in í kvikmynda- og aug- lýsingageiranum og fékk staðfest hjá einu þeirra að það væri í samningavið- ræðum við aðila tengda rapparanum. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er veik staða krón- unnar ein helsta ástæðan fyrir því að leikstjórann Hype Williams langar að koma með verkefnið til Íslands. Krónan er nú í sögulegu lágmarki en gengi hennar gagnvart doll- aranum er 128,7, sam- kvæmt vef Kaup- þingsbanka. Sean John Combs er þekktur fyrir að gera íburðarmik- il myndbönd þar sem kostnaður nemur oft nokkrum tugum milljóna. Hann tilkynnti nýverið að ný plata væri væntanlega frá honum, sú fyrsta síðan Press Play kom út árið 2006. Disknum hefur verið gefið nafnið Last Train to Paris og er væntanleg í allar betri plötu- búðir þann 22. september. Sam- kvæmt fyrstu fréttum verður engin hörgull á þekkt- um gesta-röppurum, en meðal þeirra sem hafa verið nefndir til sögunnar má nefna Íslandsvininn 50 Cent og stórstjörnuna Kanya West. Leikstjóri myndbandsins, Hype Williams, er ákaflega vin- sæll meðal r&b-tónlistarmanna en meðal skjólstæðinga hans eru skötuhjúin Jay-Z og Beyoncé. Williams fékk sérstök heið- ursverðlaun á MTV-verð- launahátíðinni árið 2006. - fgg Unnið að komu Puff Daddy til Íslands HÁLFA LEIÐ TIL ÍSLANDS Sean John Combs er kominn hálfa leið til Íslands en nú standa yfir samningaviðræður um að gera mynd- band hér á landi. GESTASÖNGVARI Kanye West verður meðal gesta á nýjustu plötu Sean John Combs. „Nei, það hvarflar ekki að mér, það væri svona svipað og að skila Ólympíugullinu, þetta er æðsti heiður sem hægt er að veita íslenskum listamanni og eitthvað sem ég vann mér inn löngu áður en ég fór að vas- ast í þessu framboði,“ segir Þráinn Bertels- son, frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum bank- ar hreyfingin ansi fast á alþingisdyrnar og Þráinn á raunhæfa möguleika á að komast inn á þing. Ef það gengur eftir myndi hann annars vegar þiggja laun sem heiðurslista- maður og hins vegar sem alþingismaður. Þráinn hefur hins vegar svör á reiðum höndum. „Ég afsalaði mér engum borgara- legum réttindum þegar ég tók við þessari viðurkenningu og hef ekki í hyggju að láta hana frá mér ef ég verð kjörinn inn á þing,“ útskýrir Þráinn sem segist líða alveg ágæt- lega í þeirri baráttu sem nú er fram undan. Þegar maður er að berjast fyrir réttlátum og góðum málstað sem fær góðan hljóm- grunn hjá fólki þá leiðir það af sjálfu sér að manni líður vel,“ segir Þráinn og bætir því við að fátt hafi komið honum á óvart í því pólitíska karpi sem nú einokar alla helstu fjölmiðla landsins. „Nema kannski þessi spurning, hvort ég ætli að afsala mér þess- um launum. En hún hefði kannski ekkert átt að gera það því mannleg illska eða heimska eiga ekki að koma mér á óvart.“ - fgg Afsalar sér ekki heiðurslaunum listamanna EINS OG AÐ SKILA ÓLYMPÍUGULLI Það hvarflar ekki að Þráni Bertelssyni að skila heiðurslaunum listamanna verði hann kjörinn á þing. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI JONNI SIGMARS Í kjölfar fólskulegrar árásar sem leiddi til mjaðmagrindar- brots þurfti Jonni að læra að labba í þriðja skipti á ævinni. KÍKTU VIÐ Á IÐAVÖLLUM (áður Eden) Glæsilegt kaffihlaðborð laugardag og sunnudag frá kl. 14:00 Heitir réttir, brauðtertur, rjóma og súkkulaðitertur, kaffi, heitt súkkulaði, ávaxtasafi fyrir börnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.