Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 36
MENNING 2
ÚTSKRIFTARSÝNING
LISTA HÁSKÓLANS
Á KJARVALSSTÖÐUM
Á sumardaginn fyrsta, fimmtu-
daginn 23. apríl verður opnuð
sýning með verkum 73 útskriftar-
nema úr myndlistardeild og hönn-
unar- og arkitektúrdeild Lista-
háskóla Íslands á Kjarvalsstöðum.
Verk nemenda á sýningunni er
afrakstur þriggja ára BA-náms
við Listaháskólann, þar sem mark-
miðið hefur verið að skapa nem-
endum aðstöðu til að mennta sig
sem listamenn og gera þá reiðu-
búna að takast á við viðtæk við-
fangsefni á skapandi og gagnrýn-
inn hátt með forvitni, áræði og
framsækni að leiðarljósi segir í
tilkynningu frá skólanum.
Meðal þeirra fjölbreyttu verka
sem verða á Kjarvalsstöðum eru
vídeóskúlptúrar, ljósmyndir,
furðuverur, innsetningar, úti-
verk, klippimyndir, draumfarir,
málverk, teikningar, gjörningar,
veggspjöld og rannsóknarstofa.
Sýningarstjórar eru Finnur Arnar
Arnarsson, Kristján Örn Kjartans-
son og Kristján Eggertsson.
Sýningin stendur til 3. maí og
aðgangur er ókeypis.
F ramtíð Tónlistarhússins er ráðin. Fjármagn er nú tryggt til að ljúka byggingunni þótt allt sé
óráðið um umferðarframkvæmdir sunnan við húsið
og allt flæmið frá rótum Arnarhóls að Miðbakka
suður að Hafnarstræti bíði endurskipulags: hótel,
nýbygging Landsbankans, fjármálamiðstöð og fleiri
byggingar sem til stóð að byggja á svæðinu eru nú
minnisvarðar á pappír.
Borgarstjóri hefur varpað fram þeirri hugmynd
að Listaháskólinn rísi á þessu svæði en rektor
Listaháskólans hafnaði henni þegar í stað. Ekki
er þó útséð að það fyrirtæki sem hugðist reisa
skólann og standa fyrir frekari uppbyggingu vestan
Rauðuvíkur lifi fjármálakreppuna af.
Þegar hefur verið lýst áhuga ríkis og borgar að
auka opinbera starfsemi í húsinu: þar verði sýninga-
raðstaða fyrir Íslensku óperuna og þangað flytjist
starfsemi Íslenska dansflokksins úr Borgarleikhúsi
eftir 2012. Vandséð er að þar muni mikið um:
aðsókn að sýningum Dansflokksins hefur verið
heldur dapurleg hin síðari misseri. Víst bráðvantar
Borgarleikhúsið aðstöðu ef heldur áfram jafn
góðum gangi þar í rekstri eftir þennan vetur. Þrír
salir kæmu til nota fyrir danssýningar í húsinu eftir
umfangi en vafasamt er að binda húsnæði þar undir
skrifstofur og æfingaaðstöðu fyrir flokkinn.
Óperan á nú í vandræðum með að koma fleiri en
einni sviðsetningu á svið. Þegar litið er til áhorf-
enda og umfangs starfsemi óperu og listdans vakn-
ar sú spurning hvort þeirri starfsemi sé ekki betur
fyrir komið aftur undir væng Þjóðleikhússins og
þá frekar dregið þar úr leikstarfsemi. Ef litið er til
sviðsetningafjölda Þjóðleikhúss í upphafi 1950 og
nú kemur í ljós að fjöldi sviðsetninga nú er tvöfalt
meiri.
Má spyrja hvort ekki sé skynsamlegt að draga úr
styrk Þjóðleikhúss til leikstarfsemi og auka sem því
nemur við styrki til sjálfstæðra leikhópa?
Þegar rekstur á Tónlistarhúsi, í framkvæmd og
til framtíðar, er komin í opinbera forsjá er rétt að
menn staldri við og endurhugsi rekstraráætlanir
hússins, taki að ákveða hvernig listrænni og fjár-
málalegri stjórn þess verður háttað. Ekki veitir af
fyrirhyggju ef húsið á að vera tilbúið til notkunar
eftir tvö ár – 24 mánuði.
PISTILL
Páll Baldvin Baldvinsson
Reksturinn í
Tónlistarhúsi
Draumfarir. Úr myndbandsverkinu „Mara“ eftir Þórð Grímsson, útskriftarnema úr
myndlistardeild.
Nýir hæfileikar líta dagsins ljós
H
rólfur tók í vetur þátt í keppni
í Haldenstein og lenti í öðru
sæti í sinni rödd. Í framhaldi
af þeirri kynningu sem fékkst
með keppninni streymdu að
honum tilboð um vinnu: Leipzig, Aachen
og Salzburg. Eftir nokkra umhugsun og
með ráðum nýs umboðsmanns þar ytra,
Peter Seyfferth, ákvað hann að fara til
Aachen.
Hrólfur er þekktastur fyrir að hafa
stofnað og rekið Sumaróperuna, en hún
setti upp sex sýningar sumrin 2002-2007,
meðal annars í samstarfi við Listahátíð,
Þjóðleikhús, Borgarleikhús og Íslensku
óperuna. Hann segir að eftir að kreppti að
hafi verkefnin dottið upp fyrir og því hafi
verið einráðið að halda utan. Harkið hér
heima hafi einfaldlega ekki freistað þegar
stærri verkefni gufuðu upp, Íslenska óper-
an dró saman og jarðarfararsöngurinn
einn beið ungs manns. Fjölskylduaðstæð-
ur hafi líka breyst, frúin ætlar í nám og
heldur fjölskyldan öll út til nýrra ævintýra.
Hrólfur hefur hingað til ekki leitað mikið
út fyrir landsteinana.
Það eru fjölbreytt hlutverk sem buðust
honum hjá keppendum um vinnu hans:
Papagenó í Töfraflautunni, Pelleas í Pelleas
og Melisande, Figaro í Rakaranum í Sevilla,
alls tíu hlutverk; allt mjög stór. Þegar allt
var komið á borðið kaus hann Aachen. Af
samtali við Hrólf mátti ráða að það er í
raun það breiða svið sem kallar: „Debussy
er erfiður og hlutverkið mjög stórt, tekur
140 síður í 200 síðna handriti. Eins er Ford
í Falstaff spennandi og erfiður.“
Hrólfur slæst því í haust í hóp margra
íslenskra söngvara sem hafa fengið mennt-
un sína og reynslu hér en sækja sér fram-
haldsmenntun út og lenda þar í harðri
samkeppni um vinnu sem margir þeirra
fá. Heimalandið verður því gististaður og
þær nætur fáar sem þessir listamenn eyða
hér við undirbúning á flutningi fyrir þá
sem kostuðu menntun þeirra fyrst í stað
og fóstruðu þá fyrstu skrefin: íslenska
skattgreiðendur.
Hrólfur Sæmundsson
barítón er kominn með
samning við óperuna
í Aachen. Þrjú stór og
spennandi hlutverk bíða
hans: Papagenó, Pelleas
og Ford í Falstaff . Mozart,
Debussy og Verdi. Í
Aachen opnast honum
stökkpallur á svið víðar í
Evrópu.
MENNING PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
stórhlutverk í boði
OG SAMNINGUR Í HÖFN
Er ekki rétt að menn staldri við og endurhugsi rekstraráætlanir
Tónlistarhússins?
2009
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
Viltu vera vinur Gerðubergs? Kíktu á www.facebook.com!
18. apríl kl. 14
Cinzia D’Ambrosi ljósmyndari, verður með leiðsögn
um sýningu sína Myrkur sannleikur - Kolanámumenn í Kína.
Leiðsögnin fer fram á ensku og er á dagskránni Ferðafagnaður
sem Höfuðborgarstofa stendur fyrir á þessum degi.
www.ferdafagnadur.is