Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 34
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
VILDARFE
OKKAR Fjölskyldan skemmtir sér í KöbenVið hjónin höfðum verið að plana og leggja drögað því að panta hina árlegu utanlandsferð okkar
með börnin til sólarlanda þegar við fengum
óvæntan tölvupóst þess efnis að hægt væri að fá
ferðir með Icelandair fyrir helmingi færri
Vildarpunkta en giltu venjulega. Við höfðum verið
dugleg að safna Vildarpunktum og ákváðum nú
að grípa svo hagstætt tækifæri og koma
dætrunum virkilega á óvart. Við pöntuðum því
samstundis vikuferð til Kaupmannahafnar og
gistingu fyrir fjölskylduna í eina viku og greiddum
fyrir þetta allt með Vildarpunktum.
Dætur okkar höfðu aldrei farið til annarra landa en
sólarlanda og við vorum því mjög spennt að bjóða
þeim í þessa ferð til Kaupmannahafnar. Við
héldum þessu alveg leyndu fyrir stelpunum þar til
við vorum öll komin út í bíl á brottfarardaginn.
„Hvert haldið þið að við séum að fara?“
spurðum við dæturnar þar sem þær sátu í
aftursætinu, spenntar af tilhlökkun
„Í Húsdýragarðinn?“ spurði önnur þeirra.
„Erum við að fara í sumarbústað?“ spurði hin.
Þær urðu svo sannarlega yfir sig kátar, þegar þær
heyrðu að við værum að fara í dýragarð og í
flottasta tívolí í heimi, í Kaupmannahöfn, og þarf
ekki að orðlengja, að við áttum ógleymanlega viku
saman í Köben, í sól og 25 stiga hita alla dagana.
Ekki spillti ánægjunni að fyrir flugfarið þurftum við
ekki að borga annað en flugvallarskattana og
gistingin kostaði ekki krónu, svo við nutum þess,
öll fjölskyldan að eiga kost á því að nota
Vildarpunktana sem við hjónin höfðum safnað.
Ásdís Björg Pálmadóttir
og Rúnar Gíslason.
U2 í Orlando fyrir Vildarpunkta
Eins og allir vita eru horfurnar í efnahagsmálum
ekkert sérdeilis spennandi þessa dagana og við
hjónin höfðum því ákveðið fyrir nokkru að
ferðast innanlands og bíða betri tíma með það
að bregða okkur út fyrir landsteinana. Við vorum
orðin fullkomlega sátt við þessa ákvörðun þegar
vinir okkar, sem eru búsettir í Florída, hringdu í
okkur og freistuðu okkar svo um munaði. Þau
voru búin að kaupa fjóra miða á tónleika í
Orlando með U2 sem verða í haust. Þau sögðu
að við yrðum að skella okkur; þetta væri
tækifæri sem við mættum ekki sleppa.
Við elskum auðvitað bæði Orlando og U2 en
fannst við eiginlega ekki hafa efni á svona
„lúxus“. Allir eru hálfsvartsýnir á framtíðina
vegna efnahagsástandsins. En þá komu
Vildarpunktarnir til bjargar – eins og oft áður.
Við fórum að kanna hvað við ættum marga
punkta og kom í ljós að við áttum saman næga
Vildarpunkta fyrir flugfari til Orlando og gistingu
allan tímann. Við slógum því til og ætlum að
skella okkur á tónleika með U2 í Orlando þrátt
fyrir kreppu og barlóm. Ég er sannfærð um að
stuðið á tónleikunum verður virkilega hressandi
og ferðin til Florida ógleymanleg fyrir okkur eins
og allar ferðirnar þangað hingað til. Þetta er enn
ein sönnun þess fyrir okkur hjónin að það getur
margborgað sig að safna Vildarpunktum í
Vildarklúbbi Icelandair.
Points.com
Ennþá meira val fyrir félaga
í Vildarklúbbi Icelandair
Vildarklúbbur Icelandair er í samstarfi við
points.com, Vildarpunktamiðlun á netinu
þar sem fólki bjóðast ótal nýir mögu-
leikar til að nýta Vildarpunktana sína.
Þar er t.d. hægt að nota Vildarpunkta hjá
Icelandair til að greiða fyrir flugfar með
bandarískum flugfélögum eins og Delta,
American Airlines og Aeroplan, greiða
fyrir gistingu um allan heim og bílaleigu
eða kaupa t.d. gjafabréf hjá Amazon,
Best Buy, giftcertificates.com og
margt fleira.
Félagi í Vildarklúbbi Icelandair skráir sig
inn hjá points.com og tilgreinir um leið
hjá hvaða samstarfsaðila hann safnar
Vildarpunktum, í þessu tilfelli Icelandair,
og síðan er ekkert því til fyrirstöðu að
njóta ávaxtanna af Vildarpunkta-söfnun í
gegnum points.com.
Kynnið ykkur málið betur á
www.points.com
VILDARPUNKTAR
Í SAGA SHOP
Félagar í Vildarklúbbi Icelandair fá Vildar-
punkta þegar þeir versla í Saga Shop,
tollfrjálsri verslun Icelandair, um borð í vélum
Icelandair, í verslun Saga Shop í Leifsstöð
eða á vefsíðu Saga Shop. Fjöldi punkta
ræðst af fjárhæðinni sem verslað er fyrir og
má sjá töflu yfir punktafjöldann á vefsíðu
Vildarklúbbsins. Klúbbfélagar geta einnig
notað Vildarpunktana sína til að greiða fyrir
tilteknar, valdar vörur í Saga Shop. Þessar
Vildarvörur, sem sjá má hverju sinni á vefsíðu
Vildarklúbbsins, www.sagashop.is, verður að
panta fi mm virkum dögum fyrir brottför og
aðeins er hægt að afhenda rétthafa Saga-
kortsins Vildarvörurnar. Vildarpunktar verða
teknir af korthafa á frísvæði við Keflavíkur-
flugvöll stuttu fyrir brottför.
Saga Shop á netinu
Við viljum benda á að allar vörur, sem eru í
boði í Saga Shop, er hægt að panta fyrir-
fram á vefsíðu Saga Shop og fá þær
afhentar um borð í Icelandairvél eða í Saga
Shop versluninni í Leifsstöð þegar farið er
um Keflavíkurflugvöll. Panta þarf í síðasta
lagi 72 klukkustundum fyrir afhendingu vöru
um borð en fimm virkum dögum áður en
vara er sótt í verslun Saga Shop í Leifsstöð.
Athugið að vörurnar á netinu eru ekki allar til
um borð í flugvélum Icelandair.
Hilton Hhonors
GISTING Á GLÆSIHÓTELUM
FYRIR VILDARPUNKTA
Vildarklúbbur Icelandair hefur í samstarfi við
Hilton Hhonors opnað ótal nýja gistimöguleika
erlendis þar sem hægt er að nota Vildarpunka
til greiðslu. Félagar í Vildarklúbbnum, sem hafa
einnig skráð sig í fríðindaklúbb Hilton Hhonors,
geta þannig flutt Vildarpunkta yfir á punktareikn-
inginn sinn hjá Hilton Hhonors og notað þá
síðan til greiðslu fyrir gistingu sem pöntuð er í
gegnum Hilton Hhonors.
Hægt er að sækja um aðild að fríðindaklúbbi
Hilton Hhonors á heimasíðu Hiltonhótelanna
og eftir að sótt hefur verið um aðild er hægt að
flytja Vildarpunkta til Hilton Hhonors í gegnum
heimasíðu Vildarklúbbs Icelandair. Hægt er að
flytja að lágmarki 5.000 Vildarpunkta í einu og
verður fjöldi Vildarpunkta að hlaupa á 5.000.
Við mælum eindregið með að félagar kynni sér
verð og framboð á heimasíðu Hilton Hhonors
áður en punktar eru fluttir yfir. Það þarf um það
bil 30.000 Hilton Hhonors punkta (breytilegt
eftir hótelum) fyrir eina gistinótt á Hilton
hótelunum.
5.000 Vildarpunktar samsvara
10.000 Hilton Hhonors punktum.
10.000 Vildarpunktar samsvara
20.000 Hilton Hhonors punktum.
15.000 Vildarpunktar samsvara
30.000 Hilton Hhonors punktum.
20.000 Vildarpunktar samsvara
40.000 Hilton Hhonors punktum.
Kynnið ykkur möguleikana á
www.vildarklubbur.is