Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 41
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Oft hef ég farið á þessum árstíma
að veiða svartfugl. Nú er útlit fyrir
að ég geti blandað þeirri veiðiferð
saman við annað ferðalag vestur
á Suðureyri við Súgandafjörð,“
segir Dúi þegar hann er inntur
eftir áformum sínum um helgina.
„Fyrirtækið Fiskaklettur býður
ferðamönnum upp á sjóstangaveiði
á Suðureyri og Róbert Schmidt,
vinur minn, starfar þar sem leið-
sögumaður. Ég er á förum vestur
að skoða þessa starfsemi og taka
upp kynningarefni. Fer með vin-
konu minni sem heitir Lena og
geri ráð fyrir að Róbert slái upp
matarveislu, því hann er afbragðs
kokkur,“ bætir hann við og hlakkar
greinilega til.
Dúi hyggst fljúga vestur og taka
hólkinn með. Þegar minnst er á
nýlega sjónvarpsmynd af Austfirð-
ingi á svartfuglsveiðum sem fór
illa í Skandinava segir hann hóg-
vær: „Við reynum að gera þetta af
stakri hófsemi og virðingu fyrir
bráðinni. Í mínum huga er það
vorboði að láta hafgoluna leika um
kinn, þefa af sjávarseltu og ná sér
í nýmeti.“
Atvinnuleysið er ekkert að hrjá
Dúa. „Ég er með dálítið af verk-
efnum erlendis. Er að vinna fyrir
franska sjónvarpið og hef gert að
jafnaði þrjár myndir á ári fyrir
það frá 2001. Svo var ég að ljúka
við íslenska fuglamynd sem hefur
verið nokkur ár í smíðum. Henni er
ætlað að fara með áhorfandann út
í móa og svipta hulunni af því sem
þar gerist á vorin. Hún er að mestu
tekin í friðlandinu í Flóa, sem býr
yfir fjölskrúðugu fuglalífi. Ég
hafði gott fólk með mér í því verk-
efni, til dæmis Jóhann Óla Hilmars-
son fuglafræðing, sem þekkir þetta
svæði eins og baðherbergið heima
hjá sér.“ gun@frettabladid.is
Hafgola, selta og nýmeti
Vorloftið heillar Dúa Landmark, kvikmyndagerðarmann, úr borgarysnum út í dreifbýlið. Hann hefur ný-
lokið við vormynd um mófugla og er væntanlega kominn vestur á firði þegar þetta birtist.
Vorlegur Dúi Landmark á leið út úr bænum á vit ævintýranna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FYRIRLESTUR um hulduefnið fer fram í Öskju, náttúru-
fræðihúsi Háskóla Íslands, í dag klukkan 14. Árdís Elíasdóttir,
stjarneðlisfræðingur við Princeton-háskóla í Bandaríkjunum,
flytur erindi um rannsóknir sínar á þessu dularfulla efni.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Verð kr. 99.900
– 12 nætur með morgunverði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
á Hotel Betania **+ í 12 nætur með
morgunverði. Sértilboð 21. maí til 3.
júní.Aukagjald fyrir einbýli kr. 34.000.