Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 89
LAUGARDAGUR 18. apríl 2009 61
FÓTBOLTI Aðeins rétt rúmlega þrjár
vikur eru þar til boltinn fer að
rúlla í efstu deild karla á Íslandi
og KSÍ er enn án styrktaraðila á
deildina.
Eins og kunnugt er gaf Lands-
bankinn frá sér markaðsréttinn
af efstu deildum karla og kvenna
sökum mikils kostnaðar. Forystu-
menn KSÍ hafa sagst vera bjart-
sýnir á að finna nýjan styrktarað-
ila og á því hefur engin breyting
orðið.
„Ég er mjög bjartsýnn á að nýr
styrktaraðili verði kominn í næstu
viku,“ sagði Geir Þorsteinsson,
formaður KSÍ, við Fréttablaðið í
gær. Hann staðfesti að sambandið
hefði verið í viðræðum við nokkur
fyrirtæki en vildi ekki nefna neitt
þeirra á nafn.
„Viðræður eru á viðkvæmu stigi
en ganga vel. Þetta fer vonandi að
klárast,“ sagði Geir.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að viðræður á milli KSÍ og Ölgerð-
arinnar séu langt komnar. Geir
vildi ekki staðfesta það. Fari svo
að samningar við Ölgerðina náist
koma margir nafnamöguleikar til
greina enda fjölbreytt fyrirtæki.
Nöfn eins og Ölgerðar-deildin,
Egils-deildin eða einfaldlega malt
og appelsín-deildin. - hbg
KSÍ enn án styrktaraðila fyrir efstu deildirnar:
Verður það malt og app-
elsín-deildin í sumar?
GEIR ÞORSTEINSSON Er bjartsýnn á að semja við styrktaraðila fyrir efstu deildirnar í
knattspyrnu í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson hefur valið landsliðið sem
mætir Hollandi í vináttulandsleik
á laugardaginn næstkomandi.
Leikurinn fer fram í Kórnum og
hefst klukkan 14.
Bæði lið leika á EM sem fer
fram í Finnlandi í sumar. Holland
er í A-riðli en Ísland í B-riðli. Síð-
ast þegar þessi lið mættust vann
Holland, 2-1, en Ísland hefur þó
unnið fjóra af sex landsleikjum
þjóðanna.
Ellefu leikmenn leika með
liðum á Norðurlöndunum en ein
þeirra, Rakel Hönnudóttir, er
reyndar hætt að spila með Brönd-
by í Danmörku vegna meiðsla. - esá
Landsliðið valið:
Aldrei fleiri at-
vinnumenn
SIGURÐUR RAGNAR Valdi ellefu atvinnu-
menn í landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LANDSLIÐSHÓPURINN
Sem mætir Hollandi
Þóra B. Helgadóttir Kolbotn
Guðbjörg Gunnarsdóttir Djurgården
Katrín Jónsdóttir Valur
Edda Garðarsdóttir Örebro
Guðrún Sóley Gunnarsd. Djurgården
Margrét Lára Viðarsdóttir Linköping
Dóra María Lárusdóttir Valur
Hólmfríður Magnúsdóttir Kristianstad
Erla Steina Arnardóttir Kristianstad
Ásta Árnadóttir Tyresö
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir Örebro
Erna Björk Sigurðardóttir Breiðablik
Sara Björk Gunnarsdóttir Breiðablik
Rakel Logadóttir Valur
Guðný Björk Óðinsdóttir Kristianstad
Harpa Þorsteinsdóttir Breiðablik
Rakel Hönnudóttir Bröndby
Hallbera Guðný Gísladóttir Valur
ÍÞRÓTTIR Í gær var 69. íþróttaþing
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands sett á Hilton Hótel Nord-
ica í Reykjavík. Mörg mál verða
tekin fyrir á þinginu og verður
einnig kosið til embættis forseta,
framkvæmdastjórnar og vara-
stjórnar ÍSÍ.
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ,
gefur áfram kost á sér og fær
ekki mótframboð að þessu sinni.
Ellefu manns sækjast eftir kjöri
í framkvæmdastjórn þar sem tíu
manns sitja. Fimm sækjast eftir
kjöri í þrjú sæti varastjórnar ÍSÍ.
- esá
Íþróttaþing ÍSÍ um helgina:
Ólafur fær ekki
mótframboð
ÓLAFUR RAFNSSON Verður áfram forseti
ÍSÍ.
2.990.-
3.990.-
2.990.- 2.990.- 690
3.990.- 3.990