Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 72
44 18. apríl 2009 LAUGARDAGUR ALBERT EINSTEIN (1879-1955) LÉST ÞENNAN DAG. „Aðeins tvennt er óend- anlegt, alheimurinn og heimska mannsins, og ég er ekki viss um það fyrra.“ Albert Einstein var einn þekktasti vísindamaður 20. aldarinnar. Hann fékk Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1921. Hjálparsveit skáta í Kópavogi var stofn- uð fyrir fjörutíu árum af félögum skáta- félagsins Kópa. „Sveitin hefur síðan þá vaxið gífurlega, í upphafi vorum við í einu horni Hafnarskemmunnar en nú höfum við lagt alla skemmuna undir okkur,“ segir Íris Marelsdóttir, formaður hjálparsveitarinnar, sem hefur verið félagi í sveitinni í þrjátíu ár. Íris segir sveitina hafa þróast mjög bæði hvað varðar búnað, mannskap og þekkingu. „Við áttum í fyrstu aðeins einn bíl en eigum núna fimm stóra og vel útbúna bíla, tvo báta, tvo snjóbíla, auk kajaka og vélsleða,“ segir Íris en mest finnst henni þó muna um þá þróun sem hefur orðið á fatnaði þessi þrjátíu ár. „Mun auðveldara er að vera á fjöll- um í dag því í gamla daga var maður í bómullarstakk og lopapeysu. Í dag getur maður valið um flís, goretex, merinóull, þykkt og þunnt föðurland,“ segir Íris glaðlega og bætir við að einnig hafi til- koma GPS-tækisins orðið til að auðvelda allar ferðir á fjöll. Um þrjú hundruð félagar eru skráðir í Hjálparsveit skáta í Kópavogi en Íris segir um sextíu til áttatíu vera mjög virka í starfinu. Á síðasta ári sinnti sveitin sextíu útköllum en hjálparsveit- in sinnir útköllum á sjó, í fjöru og á landi auk þess sem starfandi er fjallasveit. „Við leggjum áherslu á að vera fjölhæf, fljót á vettvang og fagleg,“ segir Íris en mikil áhersla er lögð á góða fræðslu og fjölda námskeiða fyrir félaga sveitar- innar. Á afmælisárinu verður ýmislegt brallað. Fyrst af öllu verður þó haft opið hús í Hafnarskemmunni í dag þar sem boðið verður upp á ýmislegt skemmti- legt fyrir alla fjölskylduna. „Með þessum fræðsludegi viljum við þakka fyrir þann stuðning sem við höfum fengið í gegnum árin,“ segir Sig- urður Jónsson, sem er í þjálfunarráði sveitarinnar og hefur haft veg og vanda af því að skipuleggja viðburðinn. „Í öllum krókum og kimum skemmunnar verða fróðleiksmolar, verkleg kennsla, myndasýningar, örnámskeið og stuttir fyrirlestrar við allra hæfi,“ útskýrir Sig- urður en sem dæmi má nefna fyrirlestra um eldamennsku á fjöllum, hvernig skal klæða sig rétt, umfjöllun um GPS-still- ingar og ferðasögu með myndum. „Svo er búið að skipa barnapíunefnd þannig að börnin hafi eitthvað fyrir stafni meðan foreldrarnir hlusta á fyr- irlestra eða kynna sér annað sem er í boði,“ segir Sigurður en farið verður með börnin í bátsferðir, þau fá að nota klifurvegg og fara í ratleiki. Opið hús Hjálparsveitar skáta í Kópa- vogi verður í Hafnarskemmunni að Bryggjuvör 2 í dag frá klukkan 9 til 18 og er aðgangur ókeypis. Nánari upplýs- ingar um dagskrána má nálgast á vefsíð- unni www.hssk.is. solveig@frettabladid.is HJÁLPARSVEIT SKÁTA Í KÓPAVOGI: MEÐ OPIÐ HÚS Á 40 ÁRA AFMÆLI Gleði, fræðsla og fyrirlestrar TIL HJÁLPAR Íris Marelsdóttir, formaður Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, og Sigurður Jónsson sem hefur haft veg og vanda af því að skipuleggja opinn dag fyrir almenning, sem haldinn verður í dag í Hafnarskemmunni við Kópavogshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM timamot@frettabladid.is Þennan dag árið 1906 reið sterkur jarðskálfti yfir San Fransico í Bandaríkjunum. Skjálftinn, sem mældist um 8 stig á Richterskalanum, varð snemma morguns en hundruð manna dóu þegar fjöldi bygginga hrundi til grunna. Skjálftinn fannst allt frá suðurhluta Oregon- ríkis til Los Angeles. Miklir eldar brutust út í kjöl- far skjálftans en ekki reynd- ist unnt að slökkva þá þar sem vatnsæðar borgarinnar höfðu orðið fyrir skaða. Til að hefta eldana sprengdu slökkviliðsmenn upp heilu húsaraðirnar í borginni. Herlið var kallað út til að aðstoða við hjálparstarf en fékk einnig þau fyrir- mæli að skjóta alla þá sem reyndu að fara rænandi og ruplandi um skemmd og yfirgefin húsin. Hinn 20. apríl voru 20 þús- und flóttamenn, sem voru innilokaðir vegna eldanna, fluttir yfir á skipið USS Chicago. Hinn 23. apríl var búið að slökkva flesta eldana. Talið er að um 3.000 manns hafi dáið í hamförunum og að um 30 þúsund byggingar hafi eyðilagst. ÞETTA GERÐIST: 18. APRÍL 1906 Jarðskjálfti skekur San Fransisco Foreldrahús fagnar í dag tíu ára afmæli sínu en af- mælisdagurinn var 8. apríl síðastliðinn. „Við verðum með gleði og skemmtileg- ar uppákomur milli tvö og fimm í dag. Foreldrahús er í gömlu Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni 6 en við verðum bak við húsið með grillað- stöðu í dag. Við sýnum húsið, verðum með töframann, and- litsmálun og góðgæti fyrir alla,“ segir Díana Ósk Ósk- arsdóttir, IDCT áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá For- eldrahúsi. „Ástæðan fyrir að við höldum upp á afmælið er sú að Foreldrahús hefur verið að dafna og gera góða hluti. Vímulaus æska varð til fyrir 22 árum og Foreldra- hús út frá því. Fyrir tíu árum voru tekin 232 viðtöl við foreldra það árið en árið 2007 voru tekin hér 1.989 viðtöl það árið þannig að aukningin hefur verið gríð- arleg. Þá erum við bara að tala um viðtölin. Svo höfum við verið með sjálfsstyrk- ingarnámskeið sem færst hafa verulega í aukana og erum við með um 35 nám- skeið á árinu og förum með námskeið í skólana. Síðan er eftirmeðferð sem hefur líka blómstrað,“ útskýrir Díana Ósk og nefnir að ungmenni hafi vaxið í eftirmeðferð í sínu nýja, heilbrigða lífi. Öflugt starf for- eldrahúss í tíu ár RÁÐGJAFI Díana Ósk Óskarsdóttir segir starfsemi Foreldrahúss hafa blómstrað síðustu ár og horfir hún björtum augum til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nítján nemendur útskrifast úr tón- listardeild Listaháskóla Íslands nú í vor. Því stendur nú yfir röð útskrift- artónleika en fyrstu tónleikarnir voru 31. mars og þeir síðustu verða 14. maí næstkomandi. Næstu tónleikar í röðinni verða mánudaginn 20. apríl. Þá verða tón- smíðatónleikar í Salnum í Kópavogi. Þar verða frumflutt verkin Norð- austur eftir Harald Rúnar Sverr- isson, Kveðjusöngur eftir Helgu Ragnarsdóttur og Veikleikar eftir Hauk Ísfeld Ragnarsson en þau eru öll að útskrifast í vor með BA-próf í tónsmíðum. Stjórnandi á tónleikun- um er Úlfar Ingi Haraldsson. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20. Útskriftartónleikar Listaháskólans eru kjörið tækifæri til að skyggnast inn í framtíð íslensks tónlistarlífs, en margir þeirra nemenda sem þar koma fram hafa þegar vakið athygli sem efnilegir listamenn, og stefna ýmist að því að hella sér út í atvinnu- lífið, eða í framhaldsnám við virtar erlendar stofnanir. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir en flestir tónleikanna fara fram í Salnum í Kópavogi. Nemar frumflytja verk í Salnum ÚTSKRIFTARNEMAR Haraldur, Helga og Haukur. MERKISATBURÐIR 1872 Jarðskjálftar valda stjór- tjóni á Húsavík. Meira en hundrað manns verða húsnæðislausir. 1903 Eldur kemur upp í hús- inu Glasgow, sem stóð milli Fishersunds og Vest- urgötu í Reykjavík, en það var stærsta hús bæjarins. Ekki varð við eldinn ráðið en fólk bjargarðist með naumindum. 1944 Hermann Jónasson er kos- inn formaður Framsóknar- flokksins í stað Jónasar Jónassonar frá Hriflu. 1971 Magnús Torfi Ólafsson sigrar í spurningaþætti út- varpsins „Veistu svarið?“ Í júní sama ár er hann kjörinn á þing og verður menntamálaráðherra í júlí. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.