Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er laugardagurinn 18. apríl, 108. dagur ársins. 5.45 13.27 21.11 5.22 13.12 21.04 He-man hét maður sem var hafður í hávegum í mínu ung dæmi. Garpur, eins og He-Man var nefndur upp á íslensku, var hliðarsjálf krónprinsins Adams sem bjó í konungsríkinu Eilífíu. „I have the power – mitt er valdið,“ voru kjörorð He-Mans, sem var karl í krapinu eins og nafnið gefur til kynna. Reyndar var hann svo mikill harðhaus að hann hélt heim- ili í gráum kastala sem leit út eins og hauskúpa. Af því dró óðalið sjálfsagt nafn sitt, en það hét Grayskull eða Gráskalli. ÉG verð að viðurkenna að ég er ekki vel að mér í skipulags- málum Eilífíu en það kom mér ávallt dálítið spánskt fyrir sjónir að He-Man héldi heimili í haus- kúpu. Þetta er jú frekar óaðlaðandi arkitektúr sem ég á bágt með að trúa að slyppi óhindrað í gegnum grenndar kynningu. Um daginn átt- aði ég mig hins vegar á merking- unni. Þar sem ég stóð með kaffi- bolla við eldhúsgluggann heima og starði yfir á Skúlagötu í steindauð augun á einu steypuferlíkinu sem útséð er um að verði klárað í bráð, rann hið sanna upp fyrir mér. MEISTARAR himingeimsins, en svo hétu þættirnir um garpinn, voru sem sagt allegoría – táknsaga. Erfðasynd He-Mans er drambið; hann ofmetnast en fellur flatt og er dæmdur til að eyða eilífðinni í nöprum dragsúg í hálfköruðum kastala. He-Man er með öðrum orðum íslenskur byggingaverktaki sem spennti bogann of hátt, ákvað að reisa tuttugu hæða lúxusblokk en fór á hausinn í miðjum klíðum og situr uppi með stórhýsi sem er ekki einu sinni fokhelt. ÞAÐ fer sjálfsagt vel á því nú þegar við erum einmitt á kúp- unni, að einhver byggingaverktak- inn, sem að hímenskum sið fann aðeins of mikið til máttar síns, hafi tekið sig til og í ógáti endur- reist Gráskalla á besta stað í borg- inni. Þarna gapir hann við mér á hverjum morgni. Ekki er nóg með að hann sé ófrýnilegur ásýndar, heldur rekur hann upp hrollkalt vein í hvert sinn sem vind hreyfir. Í hressilegri norðanátt breytist veinið í nístandi útburðarvæl, sem smýgur gegnum merg og bein og heldur fyrir manni vöku. ÞETTA er hlutskipti Reykvíkinga á nýrri öld; frá Hverfisgötu og upp Holtið horfum við á híbýlaprýði 20. aldar grotna niður af mannavöldum. Við sjávarsíðuna gapa hins vegar við kveinandi Gráskallarnir sem langvarandi vitnis burður um það þegar við bárum út þær systur Skynsemi, Fyrirhyggju og Ráðdeild. Og Smekkvísi dó af harmi. Gráskalli 350,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.