Fréttablaðið - 18.04.2009, Side 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Í dag er laugardagurinn 18. apríl,
108. dagur ársins.
5.45 13.27 21.11
5.22 13.12 21.04
He-man hét maður sem var hafður í hávegum í mínu
ung dæmi. Garpur, eins og He-Man
var nefndur upp á íslensku, var
hliðarsjálf krónprinsins Adams
sem bjó í konungsríkinu Eilífíu. „I
have the power – mitt er valdið,“
voru kjörorð He-Mans, sem var
karl í krapinu eins og nafnið gefur
til kynna. Reyndar var hann svo
mikill harðhaus að hann hélt heim-
ili í gráum kastala sem leit út eins
og hauskúpa. Af því dró óðalið
sjálfsagt nafn sitt, en það hét
Grayskull eða Gráskalli.
ÉG verð að viðurkenna að ég
er ekki vel að mér í skipulags-
málum Eilífíu en það kom mér
ávallt dálítið spánskt fyrir sjónir
að He-Man héldi heimili í haus-
kúpu. Þetta er jú frekar óaðlaðandi
arkitektúr sem ég á bágt með að
trúa að slyppi óhindrað í gegnum
grenndar kynningu. Um daginn átt-
aði ég mig hins vegar á merking-
unni. Þar sem ég stóð með kaffi-
bolla við eldhúsgluggann heima og
starði yfir á Skúlagötu í steindauð
augun á einu steypuferlíkinu sem
útséð er um að verði klárað í bráð,
rann hið sanna upp fyrir mér.
MEISTARAR himingeimsins, en
svo hétu þættirnir um garpinn,
voru sem sagt allegoría – táknsaga.
Erfðasynd He-Mans er drambið;
hann ofmetnast en fellur flatt og
er dæmdur til að eyða eilífðinni
í nöprum dragsúg í hálfköruðum
kastala. He-Man er með öðrum
orðum íslenskur byggingaverktaki
sem spennti bogann of hátt, ákvað
að reisa tuttugu hæða lúxusblokk
en fór á hausinn í miðjum klíðum
og situr uppi með stórhýsi sem er
ekki einu sinni fokhelt.
ÞAÐ fer sjálfsagt vel á því nú
þegar við erum einmitt á kúp-
unni, að einhver byggingaverktak-
inn, sem að hímenskum sið fann
aðeins of mikið til máttar síns,
hafi tekið sig til og í ógáti endur-
reist Gráskalla á besta stað í borg-
inni. Þarna gapir hann við mér á
hverjum morgni. Ekki er nóg með
að hann sé ófrýnilegur ásýndar,
heldur rekur hann upp hrollkalt
vein í hvert sinn sem vind hreyfir.
Í hressilegri norðanátt breytist
veinið í nístandi útburðarvæl, sem
smýgur gegnum merg og bein og
heldur fyrir manni vöku.
ÞETTA er hlutskipti Reykvíkinga
á nýrri öld; frá Hverfisgötu og upp
Holtið horfum við á híbýlaprýði 20.
aldar grotna niður af mannavöldum.
Við sjávarsíðuna gapa hins vegar
við kveinandi Gráskallarnir sem
langvarandi vitnis burður um það
þegar við bárum út þær systur
Skynsemi, Fyrirhyggju og Ráðdeild.
Og Smekkvísi dó af harmi.
Gráskalli
350,-