Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 35
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
apríl 2009
Þ
að er verið að taka upp
teppi og laga gólf. Stól-
arnir komu úr Regnbog-
anum og voru alls ekki
óþægilegir, en það þurfti
að laga gorma og setur. Það hefur
ekkert verið hugsað um þá. Svo er
bara verið að taka allt í gegn: raf-
magn, klósettin. Þetta er dýr fram-
kvæmd en það er ódýrara en að
byggja frá grunni, fara inn í hrátt
rými og breyta því í leikhús.“
Pabbinn og fleira
Bjarni hefur hin síðari ár lagt
gjörva hönd á margt: hann leik-
stýrði síðla vetrar sýningu í Þjóð-
leikhúsinu og hafði þá um nokkurt
skeið einbeitt sér að samningu og
flutningi einsmannssýninga:
Pabbanum og Hvers virði er ég?
Hann ætlar reyndar um næstu
mánaðamót að setja upp nokkrar
sýningar af Pabbanum. Sýningar
eru orðnar 120 og tíundi hver
Íslendingur hefur séð sýninguna.
Enn fleiri eru kunnugir leikstíl og
kómískum tilþrifum Bjarna af
Hellisbúanum, sem er ein fjölsótt-
asta leiksýning íslensk síðari ára-
tuga. Þetta er vanur maður: hefur
staðið fyrir leiksýningum og sjón-
varpsþáttaframleiðslu hér heima
og víðar um Norðurlönd. Var því
að undra að hann kæmi sér upp
leikhúsaðstöðu?
Dagar Loftkastala
Sú frétt barst út síðla vetrar að
Bjarni Haukur væri búinn að taka
Loftkastalann á leigu. Eigendur
hússins höfðu þá horfið í bili frá
þeim áætlunum að rífa gamla
Sindrahúsið og byggja þar stór-
hýsi með íbúðum fyrir aldraða.
Staðföst ákvörðun Bjarna að hefja
á ný leikhúsrekstur í húsinu kom á
óvart: eftir að Flugfélagið Loftur
rann inn í samsteypuna Leikfélag
Íslands og það fór litlu seinna í
þrot töldu flestir að dagar leikhús-
rekstrar vestur á Seljavegi væru
taldir, þótt Sigurður Kaiser héldi
þar áfram um nokkra hríð. Það
eru rúm tuttugu ár síðan leiksýn-
ingar hófust þar í gamla vélasaln-
um sem gengur vestur úr húsinu:
fyrst fór þangað inn Frú Emelía.
„Ég ætla að láta
reyna á þetta“
Framhald á bls. 4
Það gengur mikið á í starfi Bjarna Hauks Þórssonar
þessa dagana: Selma Björnsdóttir er nú í undirbúnings-
vinnu fyrir æfi ngar á Grease, ásamt samverkafólki
sínu: Þorvaldi Bjarna tónlistarstjóra, Brian Pilkington
leikmyndahönnuði og Maríu Ólafsdóttur búninga-
hönnuði; vinnan fyrir frumsýningu á Grease í Loft-
kastalanum hinn 11. júní er í fullum gangi . Og ekki
nóg með það: í Loftkastalanum, sem varð að fullburða
leikhúsi vorið 1995, er verið að taka húsið í gegn. Þar
ætlar Bjarni Haukur að reka leikhús næstu árin: „Það
er verið að gera húsið aftur boðlegt fyrir fólk.“
MENNING PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Spennandi
hlutverk
Hrólfur Sæmundsson
barítón er kominn með
samning við óperuna í
Aachen. SÍÐA 2
Stærsta leiklistarhátíð
Íslandssögunnar
Þjóðleikur á Austurlandi SÍÐA 6
Menningar-
og listamiðstöð
Hafnarfjarðar.
Strandgata 34
www.hafnarborg.is
Opið alla daga kl. 11 – 17
og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum.
4. apríl – 10. maí
2009
Veðurskrift
Weather Writing
Guðrún
Kristjánsdóttir
Listamannsspjall
sunnudag kl. 15.