Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 18. apríl 2009 17 Umsjón: nánar á visir.is Bermúda hefur skrifað undir átta nýja samninga um upplýsingagjöf í skattamálum. Löndin sem um ræðir eru Dan- mörk, Svíþjóð, Finnland, Græn- land, Ísland, Noregur og Færeyj- ar, auk Nýja-Sjálands. Með þessum samningum er heildarfjöldi skatta- upplýsingasamninga Bermúda kom- inn í ellefu. Í tilkynningu OECD kemur fram að Bermúda hafi verið með fyrstu skattsvæðum til að fallast á alþjóða- reglur um gegnsæi og upplýsinga- gjöf í skattamálum í maí 2000 og meðal ríkja sem komu að gerð sér- staks samkomulags um skattaupp- lýsingar milli ríkja árið 2002. - óká Bermúda semur við Norðurlönd Gangi eftir verðbólguspá IFS greining- ar fyrir aprílmánuð lækkar 12 mán- aða verðbólga í 11,5 prósent og hefur þá ekki verið lægri frá í mars í fyrra. Spáin hljóðar upp á 0,1 prósents hækkun vísi- tölu neysluverðs milli mánaða. „Í mars mældist mesta verðhjöðnun í einstökum mánuði í yfir 20 ár. Ef að spá okkar gengur eftir er 3 mánaða verðbólga núll prósent og hækkun vísitölu neyslu- verðs frá áramótum aðeins 0,6 prósent,“ segir í spánni sem IFS Greining sendi frá sér í gær. „Samkvæmt verðkönnun okkar hækkaði verð á matvælum um eitt pró- sent í apríl sem hefur 0,12 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar. Aðal- lega virðist verð á innfluttum matvælum hafa hækkað auk þess sem að páskasteik- in virðist hafa hækkað nokkuð.“ Fram kemur að kjötvörur hækki oftast fyrir stórhátíðir. Þá er eldsneytisverð sagt hafa tekið nokkurn kipp samhliða lægra gengi krónunnar og hækkað um fimm prósent frá síðustu mælingu. „Á móti hækkun á matvælum og elds- neyti vegur lækkun á fasteignaverði,“ segir IFS greining en í síðasta mánuði lækkaði reiknuð húsaleiga um 5,1 pró- sent. „Við búumst ekki við jafn mikilli lækkun nú og í síðasta mánuði og spáum fjögurra prósenta lækkun.“ Þá kemur fram að verð á fatnaði virðist hafa hækk- að á milli mánaða í kjölfar útsöluloka og er sú hækkun sögð hafa 0,15 prósenta áhrif á vísitölu neysluverðs. Spáð er áframhaldandi hraðri verð- bólguhjöðnun, en hraði hennar ráðist af gengi krónunnar. „Ef gengi krónu verð- ur veikt áfram mun það á endanum hafa víðtækari áhrif á verðlag en nú þegar er orðið. Lækkun verðbólgu gæti því orðið hægari en ef gengi krónunnar hefði hald- ið sér á þeim slóðum sem það var í byrjun mars.“ - óká VIÐ ÆGISSÍÐU Í REYKJAVÍK Verði krónan viðlíka veik áfram og síðustu daga hægir á hjöðnun verð- bólgu að mati IFS Greiningar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þriggja mánaða verðbólga í núllið Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki áður lækkað jafnmikið milli mánaða og gerðist nú í mars frá því byrjað var að reikna vísitölu húsnæðisverðs árið 1994, að því er fram kemur í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands lækkaði verðið um 3,8 prósent milli febrú- ar og mars. „Húsnæðisverð hefur nú lækkað samfellt undanfarna átta mánuði um samtals 8,1 pró- sent,“ segir greiningardeildin og bendir á að frá því húsnæðisverðið náði hámarki haustið 2007 hafi það lækkað um 10 prósent að nafnvirði og 28 prósent að raunvirði. Greiningardeildin segir þróunina ekki koma á óvart enda sé að baki uppsveifla sem drifin var áfram að stórum hluta af hækkun íbúðaverðs. Þá gæti áhrifa offramboðs íbúða og minni greiðslugetu kaupenda. - óká Íbúðaverð lækk- ar meira en áður Í BORGINNI Íbúðaverð hefur ekki lækk- að jafnmikið milli mánaða á höfuðborg- arsvæðinu síðan 1994. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hefja á formlegt nauðasamnings- ferli Teymis 21. þessa mánaðar og ljúka því í júní samkvæmt áætlun sem kynnt hefur verið kröfuhöf- um. Afla þarf meðmæla fjórðungs lánardrottna með því að tilraun verði gerð til samninga. „Vonast er til að nægjanlegur meðmælenda- fjöldi fáist fyrir 25. apríl,“ segir í kynningarefni félagsins. „Nauðasamningsfrumvarpið gerir ráð fyrir að lánardrottnar fái kröfur sínar greiddar að fullu með nýjum hlutum í Teymi hf., eftir að núverandi hlutafé félags- ins hefur áður verið fært niður að fullu.“ Fram kemur að frá því í fyrrahaust hafi skuldir Teymis tvöfaldast meðan virði félagsins hafi lækkað um meira en helm- ing. Skuldir og ábyrgðir félagsins nema 42,4 milljörðum króna. - óká Skuldbindingar 42,4 milljarðar KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 35 Velta: 144 milljónir OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6 224 +0,61% 663+1,13% MESTA HÆKKUN MAREL +6,24% ÖSSUR +0,98% MESTA LÆKKUN BAKKAVÖR -0,88% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic Airways 173,50 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ... Bakkavör 1,13 -0,88% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið 1,00 +0,00% ... Føroya Banki 122,00 +0,00% ... Icelandair Group 5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 54,50 +6,24% ... Össur 92,50 +0,98% GÖNGUM HREINT TIL VERKS Notum skattkerfið til að skapa atvinnu Atvinnuleysi má aldrei festa sig í sessi á Íslandi Viðreisn atvinnulífsins er nauðsynleg til þess að heimilin komist á réttan kjöl. Við eigum að grípa þau tækifæri sem í boði eru. Ísland er ríkt af náttúruauðlindum og vel menntuðu fólki. Okkar leið er að nýta skattkerfið til að hvetja fjárfesta og einnig að veita skattaafslátt til fyrirtækja sem ráðast í nýsköpunar- og þróunarverkefni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.