Fréttablaðið - 18.04.2009, Page 34

Fréttablaðið - 18.04.2009, Page 34
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is VILDARFE OKKAR Fjölskyldan skemmtir sér í KöbenVið hjónin höfðum verið að plana og leggja drögað því að panta hina árlegu utanlandsferð okkar með börnin til sólarlanda þegar við fengum óvæntan tölvupóst þess efnis að hægt væri að fá ferðir með Icelandair fyrir helmingi færri Vildarpunkta en giltu venjulega. Við höfðum verið dugleg að safna Vildarpunktum og ákváðum nú að grípa svo hagstætt tækifæri og koma dætrunum virkilega á óvart. Við pöntuðum því samstundis vikuferð til Kaupmannahafnar og gistingu fyrir fjölskylduna í eina viku og greiddum fyrir þetta allt með Vildarpunktum. Dætur okkar höfðu aldrei farið til annarra landa en sólarlanda og við vorum því mjög spennt að bjóða þeim í þessa ferð til Kaupmannahafnar. Við héldum þessu alveg leyndu fyrir stelpunum þar til við vorum öll komin út í bíl á brottfarardaginn. „Hvert haldið þið að við séum að fara?“ spurðum við dæturnar þar sem þær sátu í aftursætinu, spenntar af tilhlökkun „Í Húsdýragarðinn?“ spurði önnur þeirra. „Erum við að fara í sumarbústað?“ spurði hin. Þær urðu svo sannarlega yfir sig kátar, þegar þær heyrðu að við værum að fara í dýragarð og í flottasta tívolí í heimi, í Kaupmannahöfn, og þarf ekki að orðlengja, að við áttum ógleymanlega viku saman í Köben, í sól og 25 stiga hita alla dagana. Ekki spillti ánægjunni að fyrir flugfarið þurftum við ekki að borga annað en flugvallarskattana og gistingin kostaði ekki krónu, svo við nutum þess, öll fjölskyldan að eiga kost á því að nota Vildarpunktana sem við hjónin höfðum safnað. Ásdís Björg Pálmadóttir og Rúnar Gíslason. U2 í Orlando fyrir Vildarpunkta Eins og allir vita eru horfurnar í efnahagsmálum ekkert sérdeilis spennandi þessa dagana og við hjónin höfðum því ákveðið fyrir nokkru að ferðast innanlands og bíða betri tíma með það að bregða okkur út fyrir landsteinana. Við vorum orðin fullkomlega sátt við þessa ákvörðun þegar vinir okkar, sem eru búsettir í Florída, hringdu í okkur og freistuðu okkar svo um munaði. Þau voru búin að kaupa fjóra miða á tónleika í Orlando með U2 sem verða í haust. Þau sögðu að við yrðum að skella okkur; þetta væri tækifæri sem við mættum ekki sleppa. Við elskum auðvitað bæði Orlando og U2 en fannst við eiginlega ekki hafa efni á svona „lúxus“. Allir eru hálfsvartsýnir á framtíðina vegna efnahagsástandsins. En þá komu Vildarpunktarnir til bjargar – eins og oft áður. Við fórum að kanna hvað við ættum marga punkta og kom í ljós að við áttum saman næga Vildarpunkta fyrir flugfari til Orlando og gistingu allan tímann. Við slógum því til og ætlum að skella okkur á tónleika með U2 í Orlando þrátt fyrir kreppu og barlóm. Ég er sannfærð um að stuðið á tónleikunum verður virkilega hressandi og ferðin til Florida ógleymanleg fyrir okkur eins og allar ferðirnar þangað hingað til. Þetta er enn ein sönnun þess fyrir okkur hjónin að það getur margborgað sig að safna Vildarpunktum í Vildarklúbbi Icelandair. Points.com Ennþá meira val fyrir félaga í Vildarklúbbi Icelandair Vildarklúbbur Icelandair er í samstarfi við points.com, Vildarpunktamiðlun á netinu þar sem fólki bjóðast ótal nýir mögu- leikar til að nýta Vildarpunktana sína. Þar er t.d. hægt að nota Vildarpunkta hjá Icelandair til að greiða fyrir flugfar með bandarískum flugfélögum eins og Delta, American Airlines og Aeroplan, greiða fyrir gistingu um allan heim og bílaleigu eða kaupa t.d. gjafabréf hjá Amazon, Best Buy, giftcertificates.com og margt fleira. Félagi í Vildarklúbbi Icelandair skráir sig inn hjá points.com og tilgreinir um leið hjá hvaða samstarfsaðila hann safnar Vildarpunktum, í þessu tilfelli Icelandair, og síðan er ekkert því til fyrirstöðu að njóta ávaxtanna af Vildarpunkta-söfnun í gegnum points.com. Kynnið ykkur málið betur á www.points.com VILDARPUNKTAR Í SAGA SHOP Félagar í Vildarklúbbi Icelandair fá Vildar- punkta þegar þeir versla í Saga Shop, tollfrjálsri verslun Icelandair, um borð í vélum Icelandair, í verslun Saga Shop í Leifsstöð eða á vefsíðu Saga Shop. Fjöldi punkta ræðst af fjárhæðinni sem verslað er fyrir og má sjá töflu yfir punktafjöldann á vefsíðu Vildarklúbbsins. Klúbbfélagar geta einnig notað Vildarpunktana sína til að greiða fyrir tilteknar, valdar vörur í Saga Shop. Þessar Vildarvörur, sem sjá má hverju sinni á vefsíðu Vildarklúbbsins, www.sagashop.is, verður að panta fi mm virkum dögum fyrir brottför og aðeins er hægt að afhenda rétthafa Saga- kortsins Vildarvörurnar. Vildarpunktar verða teknir af korthafa á frísvæði við Keflavíkur- flugvöll stuttu fyrir brottför. Saga Shop á netinu Við viljum benda á að allar vörur, sem eru í boði í Saga Shop, er hægt að panta fyrir- fram á vefsíðu Saga Shop og fá þær afhentar um borð í Icelandairvél eða í Saga Shop versluninni í Leifsstöð þegar farið er um Keflavíkurflugvöll. Panta þarf í síðasta lagi 72 klukkustundum fyrir afhendingu vöru um borð en fimm virkum dögum áður en vara er sótt í verslun Saga Shop í Leifsstöð. Athugið að vörurnar á netinu eru ekki allar til um borð í flugvélum Icelandair. Hilton Hhonors GISTING Á GLÆSIHÓTELUM FYRIR VILDARPUNKTA Vildarklúbbur Icelandair hefur í samstarfi við Hilton Hhonors opnað ótal nýja gistimöguleika erlendis þar sem hægt er að nota Vildarpunka til greiðslu. Félagar í Vildarklúbbnum, sem hafa einnig skráð sig í fríðindaklúbb Hilton Hhonors, geta þannig flutt Vildarpunkta yfir á punktareikn- inginn sinn hjá Hilton Hhonors og notað þá síðan til greiðslu fyrir gistingu sem pöntuð er í gegnum Hilton Hhonors. Hægt er að sækja um aðild að fríðindaklúbbi Hilton Hhonors á heimasíðu Hiltonhótelanna og eftir að sótt hefur verið um aðild er hægt að flytja Vildarpunkta til Hilton Hhonors í gegnum heimasíðu Vildarklúbbs Icelandair. Hægt er að flytja að lágmarki 5.000 Vildarpunkta í einu og verður fjöldi Vildarpunkta að hlaupa á 5.000. Við mælum eindregið með að félagar kynni sér verð og framboð á heimasíðu Hilton Hhonors áður en punktar eru fluttir yfir. Það þarf um það bil 30.000 Hilton Hhonors punkta (breytilegt eftir hótelum) fyrir eina gistinótt á Hilton hótelunum. 5.000 Vildarpunktar samsvara 10.000 Hilton Hhonors punktum. 10.000 Vildarpunktar samsvara 20.000 Hilton Hhonors punktum. 15.000 Vildarpunktar samsvara 30.000 Hilton Hhonors punktum. 20.000 Vildarpunktar samsvara 40.000 Hilton Hhonors punktum. Kynnið ykkur möguleikana á www.vildarklubbur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.