Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 3 0. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
236. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin í landinu
Komdu
í leikhús
Óvitar >> 45
DAGLEGTLÍF
14 ÁRA KAFARI OG
TÓNLISTARMAÐUR
LISTIR
Hólaráðstefna um
Kolbein Tumason
LESBÓK
„Ég ætla ekki að vera poppstjarna.
Ég ætla mér að þróast,“ segir Emil-
íana Torrini sem sendir frá sér nýja
plötu í næstu viku, nýja plötu með
alveg nýjum tóni.
Eins og frum-
skógartromma
Nýdauðarokk, harðkjarnapönk og
svartmálmur nuddast sæl hvert ut-
an í öðru – og það jafnvel á einum
og sömu tónleikunum – í nýrri teg-
und þungarokks, öfgarokki.
Íslenskt öfgarokk,
eins og Dettifoss
Fyrir fimmtíu árum fékk Vertigo
eftir Alfred Hitchcock blendnar við-
tökur. Núna er hún talin til helstu
meistaraverka hans. Ekki síst fyrir
áhrif hennar á áhorfendur.
Hvaða áhrif
hafði Vertigo?
HVAMMSVÍK í Hvalfirði var eins og suðupottur í verstu vindhviðunum í gær. Úti á víkinni dró fyrr-
um varðskipið Þór akkerin undan óveðrinu. Um tíma var óttast að þetta sögufræga skip kynni að
reka á land eða stranda á nálægu skeri. Skipið er nú í hlutverki hvalbátsins Hrefnu RE 11 í kvik-
myndinni Reykjavik Whale Watching Massacre. Skipið sakaði ekki og dró dráttarbáturinn Magni
það á öruggara lægi fjarri skerjum og klettóttri strönd.
Trillan Grímur, sem einnig er notuð í fyrrnefndri kvikmynd, laskaðist hins vegar nokkuð þegar
óbrotin aldan ruddist inn víkina og lamdi á flotbryggju og bátum áður en hún brotnaði í fjörunni.
Komið var böndum á trilluna og hún dregin á þurrt. | 16
Mikið hvassviðri gekk yfir landið í gær
Morgunblaðið/Frikki
Hvammsvíkin eins og
suðupottur í óveðrinu
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
SÍFELLT fleiri Pólverjar leita
nú á pólsku ræðismannsskrif-
stofuna á Íslandi eftir ráðlegg-
ingum og oftar en ekki aðstoð við
að komast aftur heim til Pól-
lands. Michal Sikorski ræðis-
maður segir að síðustu tvo mán-
uði hafi málum sem koma inn á
borð til hans fjölgað gríðarlega.
Mikill meirihluti þeirra Pól-
verja sem hingað hafa komið síð-
ustu ár er hér aðeins tímabundið
til þess að vinna. Sikorski segir marga þeirra á heim-
leið nú fyrr en þeir höfðu áætlað vegna breytinga á
vinnumarkaði. Þá hafi jafnvel Pólverjar sem fest hafi
rætur á Íslandi ákveðið að snúa aftur heim í ljósi
breyttra aðstæðna.
Ekki lengur þess virði að vinna á Íslandi
„Til mín hefur komið fólk sem hefur búið hér í 7-8
ár, er í góðri stöðu og talar reiprennandi íslensku.
Þau segja það ekki þess virði lengur að vera um
kyrrt, fyrir nokkrum árum hafi þau getað unnið sér
inn fimm- eða sexfalt hærri laun en í Póllandi en nú
eru þau aðeins tvöfalt hærri. Pólskur efnahagur hef-
ur styrkst mjög en þar er enn mun ódýrara að lifa en
hér. Þá finnst þeim ekki þess virði lengur að búa víðs-
fjarri ættingjum og vinum,“ segir Sikorski.
Meðal vaxandi verkefna Sikorskis er að gefa út
vegabréf fyrir Pólverja á Íslandi, bæði til fólks sem er
með útrunnin vegabréf eða hefur týnt þeim, en líka
annarrar kynslóðar innflytjenda sem fæðst hafa hér á
landi. Hann segir fjölgun umsókna um vegabréf vera
til marks um það að Pólverjar hugsi sér til hreyfings.
„Bara í síðustu viku gaf ég út 40 ný vegabréf svo það
er mikið að gera hjá mér.“
Hann bætir þó við að þrátt fyrir þetta flytjist fólk
enn frá Póllandi til Íslands líka, þótt talsvert hafi
dregið úr straumnum, og eins uni margir hag sínum
hér vel og ætli sér alls ekki aftur heim þrátt fyrir allt.
Þessa dagana eru þó margir Pólverjar uggandi um
sinn hag. Sumir hafa sjálfir sagt upp störfum þar sem
þeim þykja kjör sín hafa rýrnað, aðrir óttast að þeir
verði látnir fara fyrstir ef til fjöldauppsagna kemur.
Hópast
heim til
Póllands
Margir Pólverjar sjá sér
ekki lengur hag í vinnu hér
Michal Sikorski
Brást væntingum | 15
„Ég fann mik-
ið fyrir því í
keppninni, sér-
staklega þegar
við strákarnir
vorum að tala
saman, að við
vorum ekki að
spila fyrir pen-
inga, við vorum
að spila fyrir
þjóðina,“ segir
Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins í handknattleik, í við-
tali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur.
Ólafur fer m.a. yfir leiðina að
árangri. „Fyrir leiki horfðum við á
myndir af börnunum okkar og
varðveittum í huganum það besta
sem við eigum. Við hugsuðum um
hvað litlir hlutir geta breytt mörgu
í lífinu og að árangur leiðir oft til
meiri árangurs.“ » 24
Spiluðu ekki fyrir pen-
inga, heldur þjóðina
Ólafur
Stefánsson
„Meirihluti
þeirra á Íslandi,
sem vilja ekki
meiri álver, er
ekki á móti ál-
verunum sem
komin eru, alla-
vega ekki þess-
um tveimur
fyrstu. Þeim
finnst bara þrjú
álver vera nóg.
Þetta fjallar um hlutfall. Ekki vera
smáeyja með fimm stærstu málm-
bræðslur heimsins og ekkert ann-
að,“ segir söngkonan Björk Guð-
mundsdóttir í svari sínu við grein
Jakobs Björnssonar. » 32
Vill ekki fimm stærstu
málmbræðslur heimsins
Björk
Guðmundsdóttir
Sarah Palin
hefur verið til-
nefnd varafor-
setaefni Repúbl-
ikanaflokksins
og kemur sú
ákvörðun Johns
McCains nokkuð
á óvart. Palin er
lítið þekkt í
bandarískum
stjórnmálum. Hún hefur gegnt
embætti ríkisstjóra Alaska í tæp tvö
ár og notið mikilla vinsælda. Óvíst
þykir hvort henni takist að höfða til
vonsvikinna stuðningsmanna
Hillary Clinton. » 21
Ríkisstjóri Alaska valinn
varaforsetaefni McCains
Sarah Palin
UM TÍU starfsmönnum verslunar-
og þjónustufyrirtækisins N1 var af-
hent uppsagnarbréf í gær. Forstjóri
fyrirtækisins gat ekki gefið ná-
kvæmar tölur í gærkvöldi, en sagði
fyrirtækið vera að stilla sig af fyrir
veturinn. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um frekari uppsagnir á
næstunni.
Starfsmönnum vítt og breitt innan
fyrirtækisins var sagt upp, s.s. á
skrifstofu, bensínstöðvum og í vara-
hlutaverslunum. „Þetta eru engin
stórtíðindi, á þessum árstíma er
margt fólk að fara frá okkur í skóla
og aðrir að koma inn. Það er eitthvað
verið að draga saman seglin og stilla
sig af fyrir veturinn,“ segir Her-
mann Guðmundsson, forstjóri N1.
Hann tekur fram að aðeins sé um
árstíðabundnar aðgerðir að ræða,
enda sé sumarið háannatími í ferða-
mennsku. Hann bendir einnig á að
hjá N1 séu um 800 starfsmenn,
þannig að ekki sé um hátt hlutfall að
ræða. andri@mbl.is
Uppsagnir hjá N1
Árstíðabundnar aðgerðir, segir Her-
mann Guðmundsson, forstjóri félagsins