Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Stríð menntamálaráðherra og forsetahjónanna um athygli og ljóma vegna silfursins hefur
vakið kátínu landans.
VEÐUR
Þegar orðskrúðið hefur veriðtálgað utan af ræðu Steingríms
J. Sigfússonar á flokksráðsfundi
Vinstri grænna í Reykholti í gær
stendur eftirfarandi eftir:
Vinstri grænir eruá móti uppbygg-
ingu virkjana og
stóriðju sem gæti
komið hjólum at-
vinnulífsins á hreyf-
ingu á nýjan leik.
Þeir vilja öðruvísi
atvinnuuppbygg-
ingu, segja bara ekki hvers konar.
Vinstri grænir vilja þenja rík-isbáknið út á nýjan leik, auka
umsvif og útgjöld.
Flokkurinn er á móti einkavæð-ingu ríkisfyrirtækja og telur
einkavæðingu bankanna hafa verið
ógurleg mistök.
Hann er líka á móti því að verk-efni séu boðin út til einkaaðila,
til dæmis í heilbrigðiskerfinu, til að
fara betur með fé skattgreiðenda
og auka val þeirra um þjónustu.
Með öðrum orðum sama gamlapólitíkin. Vantaði bara gömlu
ræðuna um úrsögn úr NATO. Af
hverju var hún ekki með?
Vinstri grænir telja Samfylk-inguna hafa gerzt seka um „ein-
hver auvirðilegustu svik á skýru
kosningaloforði sem sést hafa í háa
herrans tíð“ með því að halda ekki
við stefnuna um fagra Ísland.
Steingrímur J. vill að ríkisstjórninsegi af sér. Samt er hann alveg til
í að vinna með hvorum stjórnar-
flokknum sem er að því að fylla þjóð-
ina bjartsýni og baráttumóði á ný.
Hvort vill hann einkavæðing-arflokkinn eða umhverfis-
svikaflokkinn?
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Gamla pólitíkin
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!!"
#
$ $
!"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
$
$
$
$ $
$
$%
%$ $
$
$
$ $
$ $
*$BC
! " # $ %&"'
*!
$$B *!
&#'
(
'
)*
<2
<! <2
<! <2
&( ! + !",- !.
DB
E
<
( )
!* & + , " -
*
"2
' *"
#
.*"
+
! # /
/0 #11 ! ) #2
)+ !"
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
FJÖLDI þinglýstra kaupsamninga
á höfuðborgarsvæðinu 22. ágúst til
og með 28. ágúst 2008 var 82. Þar af
voru 64 samningar um eignir í fjöl-
býli, 14 samningar um sérbýli og 4
samningar um annars konar eignir
en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var
2.341 milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning 28,6 milljónir króna.
Þetta kemur fram á vef Fast-
eignamats ríkisins.
Á sama tíma var 5 kaupsamn-
ingum þinglýst á Akureyri. Þar af
var 1 samningur um eignir í fjölbýli,
3 samningar um sérbýli og 1 samn-
ingur um annars konar eignir en
íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var
139 milljónir króna og meðalupphæð
á samning 27,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamn-
ingum þinglýst á Árborgarsvæðinu.
Þar af voru 2 samningar um eignir í
fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 1
samningur um annars konar eignir
en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var
99 milljónir króna og meðalupphæð
á samning 16,5 milljónir króna.
82 kaup-
samningum
þinglýst
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Það
var ekki laust við
tilhlökkun í svip
gamla skipstjórans
og hafnsögumanns-
ins Runólfs Lár-
ussonar á Sauð-
árkróki þegar
hann bjóst til að
skreppa á sjó, eftir
átján ára hlé. Run-
ólfur, sem bundinn
hefur verið hjóla-
stól hátt á annan
tug ára og lengst-
um verið vistmaður
á Heilsustofnun
Skagfirðinga,
gerði sér dagamun og skrapp á sjó
í vikunni með Hauki Steingríms-
syni í léttri norðankælu. Það var
Geirlaug Jónsdóttir, starfsmaður á
Heilsustofnuninni, sem um langt
skeið hefur gælt við þá hugmynd
að þessi ferð yrði farin og lét hlut-
ina gerast. Með Geirlaugu kom
Runólfur, sem orðinn er 74 ára, á
bryggjuna, en síðan var farþeg-
anum lyft með hafnarkrananum
ofan í bátinn og stólnum komið
fyrir þar sem auðvelt var að renna
færinu.
Runólfur, sem lengstum gerði út
handfærabát frá Sauðárkróki, var
um árabil einnig hafnsögumaður
og tók við því embætti af föður
sínum, Lárusi Runólfssyni. Að
sögn Geirlaugar, sem var með í
för, tókst sjóferðin í alla staði
ágætlega, vissulega var ekki farið
langt, en nægilega langt þó til að
gamli hafnsögumaðurinn, sem
byrjaði að stunda sjóinn tólf ára
gamall, fann vel fyrir sjávarloftinu
og hreyfingum bátsins. „Þessi ferð
var fyllilega á við tvær góðar helg-
ar,“ sagði Runólfur glaðbeittur
þegar hann var kominn upp á
bryggjuna að lokinni sjóferðinni
og bjóst til að halda heim.
Á sjó Runólfur og Geirlaug koma sér fyrir í bátnum.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Runólfur fór aftur á
sjóinn eftir átján ár
AÐGERÐALEYSI stjórnvalda á sinn þátt í að gera
rekstrarskilyrði fyrir sölu og dreifingu olíuvara hér
á landi þau verstu í allri Evrópu og þótt víðar væri
leitað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Olíu-
verzlun Íslands sendi frá sér í gær í tilefna frétta
um að viðskiptaráðherra hafi óskað eftir því við
Samkeppniseftirlit og Neytendastofu að þróun
eldsneytisverðs á landinu verði könnuð.
Í tilkynningunni er bent á að gengisfall krón-
unnar um ríflega 30% og vaxtastig sem nálgast 20%
hafi margfaldað fjármagnskostnað félagsins. „Það
liggur fyrir að ríkið tekur tæpar 75 krónur í sinn
hlut af hverjum seldum lítra á sama tíma og aukinn
rekstrarkostnaður hefur étið upp hlutdeild félags-
ins í eldsneytisverði. Það er verðugt verkefni fyrir
stjórnmálamenn að koma böndum á verðbólgu og
vaxtastigi í landinu, en það verður ekki gert með því
að ráðast með ómaklegum hætti að einstaka at-
vinnugreinum,“ segir í tilkynningunni. „Ég fagna
því að ráðherrann kallar eftir þessari greiningu. Við
hjá N1 höfum í það minnsta ekkert að fela og ótt-
umst ekki þá skoðun. Ef þessi skoðun getur leitt
fram þá staðreynd að verðlagning okkar á olíuvör-
um á Íslandi er með eðlilegum hætti, þá fagna ég
því,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1.
Sér hafi þótt viðskiptaráðherra gefa í skyn að eðli-
legt væri að skoða verðþróunina „til að sýna fram á
að það væri ekkert óeðlilegt“.
Segja ómaklega vegið að olíufélögum
Í HNOTSKURN
»Viðskiptaráðherra, óskaði í fyrradageftir upplýsingum um þróun verðlags á
olíumarkaði frá Samkeppniseftirlitinu og
Neytendastofu.
»Ráðuneytið segir að þangað hafi boristábendingar um að smásöluverð á elds-
neyti hafi ekki fylgt að fullu nýlegum lækk-
unum á heimsmarkaðsverði á hráolíu eða
innflutningsverði á eldsneyti.