Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
MARGIR Skagfirðingar upplifa fyr-
irhugaða háspennulínu þvert yfir
héraðið sem mikið lýti á héraðinu
sem hafi þá ímynd að vera fallegt og
með lítið spillt umhverfi. Landeig-
endur eru hræddir um stöðu sína og
samstaða virðist meðal þeirra um að
hafna alfarið loftlínu.
Flestir landeigendur í Skagafirði
sem fá Blöndulínu 3 inn á sitt land
hafa sent inn mótmæli við tillögu að
matsáætlun sem Landsnet kynnti á
dögunum. Á þetta jafnt við eigendur
lands á hugsanlegum línustæðum á
Efribyggð og svokallaðri Héraðs-
vatnaleið, í Sveitarfélaginu Skaga-
firði og Akrahreppi. Fleiri hafa gert
athugasemdir enda hefur fyr-
irhuguð háspennulína áhrif á alla
íbúa svæðisins, á einn eða annan
hátt. Margir sendu afar efnismiklar
athugasemdir þar sem óskað er eft-
ir skýringum og frekari athugunum
á fjölda atriða. Starfsmenn verk-
fræðistofunnar Mannvits eru að
fara yfir athugasemdirnar og verður
þeim svarað í endanlegri tillögu að
matsáætlun sem áformað er að
senda Skipulagsstofnun í haust.
Ekki ýtt yfir á aðra
Málið hefur borið heldur brátt að.
Álþynnuverksmiðja við Akureyri ýt-
ir á. Starfsmenn Landsnets fóru í
vor á milli bæja til að kynna áform
sín fyrir landeigendum. Margir upp-
lifðu þessa heimsókn þannig að ver-
ið væri að kynna fyrir þeim áform
sem ekki yrði breytt. Þetta var á há-
annatíma og bændur ekki mikið að
spá í svona hluti í sauðburðinum. Þó
gengu landeigendur og ábúendur
við svokallaða Efribyggðarleið, í
gamla Lýtingsstaðahreppi, í það að
mótmæla nýju línustæði þar þegar
kynningarbréf barst frá Landsneti í
júlí. Þegar svo tillaga að matsáætl-
un var kynnt á netinu var farið að
vinna að ítarlegum athugasemdum.
Þá breyttist áherslan og menn töl-
uðu sín á milli um að ekki þýddi að
ýta línunni yfir á aðra heldur yrði að
stuðla að því að hún færi í jörð. Það
er tónninn í fólki nú. Það leggur of-
urkapp á að sú leið verði athuguð
gaumgæfilega áður en ráðist verði í
afdrifaríkari mannvirkjagerð.
Margir hafa á orði að þeir muni
aldrei samþykkja svona mikla loft-
línu um sitt land. Þeir óttast áhrif
jarðrasks, vegagerðar og rafmagns
á bústofn sinn og atvinnurekstur og
að verðgildi jarðanna rýrni, fyrir ut-
an sjónmengunina sem allir tala um.
Bæturnar sem Landsnet býður eru
það lágar að engu máli skiptir í
þessu sambandi.
Þess ber að geta að Landsnet
nánast hafnar jarðstrengskostinum
fyrirfram vegna kostnaðar sem tal-
inn er þrisvar til sex sinnum meiri
en við loftlínu. Þar er miðað við
flutningsgetu fyrirhugaðra loftlína.
Landeigendur telja ekki þörf fyrir
svo mikla flutningsgetu og benda á
að afl Blöndustöðvar sé 150 mega-
wött.
Stuðningur í sveitarstjórnum
Kröfur um jarðstrengi hafa feng-
ið stuðning í sveitarstjórn Skaga-
fjarðar. Fulltrúar minnihlutans
hafna hugmyndum um loftlínur og
meirihlutinn telur að jarðstrengur
ætti að vera fyrsti kostur og hefur
óskað eftir skriflegum viðhorfum
ríkisins til þess. Agnar H. Gunn-
arsson, oddviti Akrahrepps, segir að
háspennulína sem þveri héraðið
verði ægilega ljót og veltir því fyrir
sér hvort það tilheyri ekki nútíman-
um að leggja í kostnað við að koma
henni í jörð.
Samþykkja aldrei loftlínu
Flestir landeigendur á fyrirhuguðum línustæðum Blöndulínu 3 í Skagafirði gera miklar athuga-
semdir við áform Landsnets Farið er fram á að jarðstrengskosturinn verði kannaður betur
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Umhverfið Mælifellshnjúkur er eitt af helstu kennileitum Skagafjarðarhéraðs, 1138 metra hár. Háspennulína um
Efribyggðarleið myndi þvera héraðið framan við fjallið. Myndin er tekin af veginum um Efribyggð.
!"
#$
%
&
(
Í HNOTSKURN
»Landsnet áformar aðleggja 220 kV háspennu-
línu frá Blöndustöð, í gegnum
Skagafjörð og Eyjafjörð, til
Akureyrar, til að endurnýja
byggðalínuna. Möstrin eru
mikil mannvirki og línan
a.m.k. 110 km löng.
»Til umfjöllunar hafa veriðtvær leiðir í gegnum
Skagafjörð, um Efribyggð eða
eftir Héraðsvötnum. Báðar
leiðir þvera héraðið.
MÆLIFELLSÁ á Efribyggð er ein
af fáum jörðum á landinu sem fengið
hafa vottun fyrir lífræna lamba-
kjötsframleiðslu og bóndinn fær
hærra verð fyrir afurðirnar. Mar-
geir Björnsson og Helga Þórð-
ardóttir óttast áhrif hugsanlegrar
lagningar háspennulínu um land
jarðarinnar á afkomu sína. Þau hafa
ræktað skóg á 30 ha lands og þar
hafa börn þeirra hug á að reisa sum-
arbústaði. Fyrirhugað línustæði er
um skógræktarsvæðið. Margeir seg-
ir að áformin séu í uppnámi, börnin
vilji eðlilega hafa landið óspillt. Helga segir ömurlegt að þurfa að horfa
upp á þetta mikla mannvirki framan við Mælifellshnjúkinn.
Margeir telur það grátlega skammsýni að ekki skuli vera gengið í það að
leggja háspennulínur í jörð. „Hvað gerum við ef það kemur í ljós eftir tíu til
tuttugu ár, eins og ég spái, að rafmagn á loftlínum sé skaðlegt öllu lífi?
Ýmsar rannsóknir hafa jú sýnt fram á skaðsemi rafsegulsviðs, til að mynda
varðandi hvítblæði.“ Þá finnst honum einkennilegt að ekki skuli vera farin
stysta leiðin frá Blöndu og komið niður Kiðaskarð. Þar hafi verið lína í 30
ár og með línu þar um verði komist hjá því mikla raski sem fylgi fram-
kvæmdum í djúpum jarðvegi á Efribyggð. helgi@mbl.is
Áhrif á lífrænan búskap
Mælifellsá Margeir Björnsson og
Helga Þórðardóttir.
STARRASTAÐIR á Neðribyggð eru
það býli sem fer einna verst ef lögð
verður ný háspennulína á Efri-
byggðarleið. Línan myndi skera
landið tvisvar. Að sögn Maríu Reyk-
dal bónda fer línan yfir skógrækt,
yfir stærstu túnin, heitavatnslindir,
sumarbústaðaland og veiðiá. Hún
óttast að heitavatnslindirnar muni
skemmast við jarðraskið en þær hita
meðal annars upp gróðurhús hennar
og fyrirhugaða sumarbústaði. Ótal-
in er þá sjónmengunin sem íbúar
bæjanna verða óneitanlega fyrir. Búið er að fá samþykkt deiliskipulag fyr-
ir sumarhúsabyggð í landi Starrastaða og byrjað er á byggingu eins. Línan
mun koma nánast þar yfir. „Við getum ekki annað en mótmælt,“ segir
María. Hún segir að erfitt sé að færa línuna á þessu svæði því hún muni þá
lenda of nálægt húsum, ýmist á Starrastöðum eða nágrannabæjum. Því
hljóti loftlína að þurfa að fara um núverandi línustæði með Héraðsvötnum.
Best væri að leggja hana í jörðu, það sé framtíðin. helgi@mbl.is
Liggur yfir sumarbústaði
Starrastaðir María Reykdal.
BJÖRN Sveinsson, hrossaræktandi á
Varmalæk, á jörðina Brekkukot á
Efribyggð. Þar gengur stóðið og
hrossin alast upp. Björn er mjög
uggandi um rekstur sinn ef jörðin
verður skorin í sundur með há-
spennulínu. Telur að rask vegna
framkvæmdanna og vegagerð muni
auka aðgengi að svæðinu. Þá segir
hann að ekki hafi verið gerðar full-
nægjandi rannsóknir á því hvaða
áhrif rafmagn og rafsegulbylgjur
hafi á folaldshryssur og raunar allar
skepnur. Þá óttast hann að mannvirkið muni skerða verðgildi jarðarinnar.
Björn og kona hans, Magnea Guðmundsdóttir, hafa byggt upp aðstöðu
fyrir hrossaræktina og tilheyrandi ferðaþjónustu á Varmalæk og kostað til
tugum milljóna. Þau segjast þurfa á því að halda að hafa næði til að reka
sitt fyrirtæki til að standa undir fjárfestingunni og segist Björn aldrei sam-
þykkja þá eyðileggingu á aðstöðunni sem felist í tillögum Landsnets.
Hrædd um hrossaræktina
Varmilækur Magnea Guðmunds-
dóttir og Björn Sveinsson.
„ÉG er sannfærð um að ekki verður
samið við neinn bónda hér um loft-
línur, samstaðan gegn þeim er það
mikil,“ segir Rósa Björnsdóttir á
Hvíteyrum. Línan af Efribyggð
myndi skera land jarðarinnar en
Rósa telur þó sjónmengunina versta.
Mælifellshnjúkur blasir við frá bæn-
um en línan mun liggja hátt í land-
inu undir honum þar sem hún fer yf-
ir svokallaðar Bungur og þverar
dalinn þar sem hún heldur áfram
austur yfir Eggjar.
Helga Rós, dóttir hennar og
Indriða Sigurjónssonar, segir að allt bendi til þess að raflínur verði lagðar í
jörð í framtíðinni. Hún hefur efasemdir um þann mun á kostnaði við loft-
línu og jarðstreng sem Landsnet gefur upp, segir tölurnar gamlar og mið-
ast við aðstæður erlendis. „Það er mikið tækifæri fyrir Skagfirðinga sem
búa við elsta hluta byggðalínunnar að ríða á vaðið með að fá nýjar línur
lagðar í jörðu,“ segir Helga. Hún bætir því við að þar sem heimsmark-
aðsverð á orku fari hækkandi hljóti iðnaðurinn að geta staðið undir því að
orka sé flutt í sátt við umhverfið. helgi@mbl.is
Ekki samið um loftlínur
Hvíteyrar Rósa Björnsdóttir og
Helga Rós Indriðadóttir.
MINNIHLUTINN í sveitarstjórn Skagafjarðar, fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, hefur gagnrýnt
málsmeðferðina hjá meirihluta sveitarstjórnar, meðal
annars að málið hafi ekki verið rætt í sveitarstjórn og
nefndum hennar fyrr en Landsnet hafði kynnt tillögu
sína að matsáætlun. Sveitarstjórnin fer með skipulags-
valdið. Framsóknarflokkur og Samfylkingin mynda
meirihlutann.
Umræðan hefur leitt í ljós að Landsnet kynnti óform-
lega áform um að endurnýja línuna milli Blönduvirkj-
unar og Akureyrar á fundi með tveimur embættis-
mönnum og tveimur fulltrúum meirihlutams í lok apríl
og aftur í byrjun júní. Hvati fulltrúa sveitarfélagsins var
að tryggja afhendingaröryggi raforku á Sauðárkróki
vegna hugsanlegrar koltrefjaverksmiðju og hófust
fundahöld þeirra og Landsnets um það í lok síðasta árs.
Koltrefjaverksmiðjan er ekki orkufrek en þarf meira ör-
yggi en nú býðst. Fulltrúar sveitarfélagsins hafa meðal
annars rætt um hringtengingu með línu yfir Þverárfjall.
Málið var kynnt skipulags- og byggingarnefnd sem
fundaði um aðalskipulag sveitarfélagsins 14. ágúst sl.
Fulltrúar meirihlutans halda því fram að þar hafi verið
samþykkt að VSÓ Ráðgjöf tæki inn í skýrslu um um-
hverfismat áætlana umfjöllun um allar veitur í sveitarfé-
laginu og þar með þá tvo línumöguleika sem Landsnet
leggur til. Samkvæmt því er hafin vinna við að máta til-
lögur Landsnets við aðalskipulagið.
Þessi málsmeðferð kemur raunar ekki fram í fund-
argerð nefndarinnar og hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins mótmælt túlkun meirihlutans. helgi@mbl.is
Fyrstu skrefin í skipulagsvinnu