Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 13 VÖRUR Ikea hækka um 20% að jafnaði með nýjum vörulista versl- unarinnar sem út kom í mánuðinum. Vörur hækka þó mjög mismikið og að sögn Þórarins H. Ævarssonar, framkvæmdastjóra Ikea, lækka sumar meðan aðrar hækka mikið og draga meðalhækkunina þannig upp. „Okkar verðmyndun ræðst að stóru leyti af innkaupsverðinu sem við fáum hjá Ikea úti […] og gengið er stór vinkill í þessu þar sem við seljum í krónum en kaupum allt í evrum,“ segir Þórarinn. Einnig hafi „blessuð verðbólgan“ sitt að segja. Hann segir að til að vinna að fullu upp þá þætti sem stuðla að hækkuðu verði hefði verslunin þurft að hækka vöruverð sitt tvöfalt meira. Ikea taki því á sig um helming kostnaðar- hækkunarinnar. „Það hefur verið okkar stefna lengi að velta ekki alltaf öllu beint út í verðlagið, við lítum á þetta sem langhlaup.“ Til langtíma litið segir Þórarinn verð hjá Ikea hafa lækkað. Sett hafi verið saman innkaupakarfa af vin- sælustu vörum verslunarinnar og gerður samanburður. „Karfa sem nú kostar 88.000 kostaði 114.000 fyrir þrettán árum,“ en sé lækkunin fram- reiknuð nemur hún að sögn Þórarins um fimmtíu af hundraði. Að sögn Þórarins hefur stórt hús- næði Ikea hefur gert versluninni kleift að gera hagstæðari kaup en ella, en verslunin er nú í nýju hús- næði í Garðabæ. Ikea hækkar verð um fimmtung að meðaltali                      ! "  #  $%& '! !!( )## *%    + + ! ,!                  !!"#$%  -.-  -.-  +./- +-.- +0.-  +(.-             $%"&%%       &&'"!%%   ! FISKISTOFA svipti sex skip veiði- leyfum sínum í júlímánuði; fimm þeirra vegna afla umfram heimildir. Hafa sum skipin fengið leyfin að nýju eftir að hafa lagfært aflamarks- stöðu sína. Um var að ræða Sæberg HF frá Hafnarfirði, Val ÍS og Gullbjörgu ÍS frá Súðavík, Júlíönu Guðrúnu GK frá Sandgerði og Hildi ST, sem er með skráða útgerð í Reykjavík. Sam- kvæmt tilkynningu Fiskistofu hafa Sæberg og Hildur fengið veiðileyfin að nýju. Þá var Þjóðbjörg GK, sem hefur útgerðaraðila í Borgarnesi, svipt leyfi í viku vegna framhjálönd- unar og afladagbókarbrots. Júlíana Guðrún er sem kunnugt er í eigu Ás- mundar Jóhannssonar, sjómanns í Sandgerði, sem mótmælti kvótakerf- inu með veiðiferðum sínum. Það sem af er ári hefur Fiskistofa svipt 18 skip veiðileyfum sínum. Framan af ári var það aðallega vegna vanskila á afladagbókum sem veiðileyfissvipting átti sér stað. Eftir því sem leið á fiskveiðiárið fór meira að bera á skipum sem lönduðu afla umfram heimildir. Ákvörðun um sviptingu er gerð með vísan til laga um umgengni um nytjastofna sjávar. bjb@mbl.is Sex skip svipt leyfi Fiskistofa svipt 18 skip veiðileyfi í ár MAGNÚS Skúlason, áheyrnar- fulltrúi F-listands, óskaði eftir því á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur- borgar að tekið yrði til alvarlegrar athugunar að nota aðrar tillögur um Listaháskóla en þá sem vann hug- myndasamkeppnina á dögunum. Í greinargerð sem fylgdi tillög- unni segir Magnús að verðlaunatil- lagan virðist ganga gegn áherslum borgaryfirvalda um að viðhalda sögulegu umhverfi og sérkennum Laugavegar. Aðrar tillögur í sam- keppninni hafi sýnt fram á að hægt sé að nýta reitinn við Laugaveg sam- tímis því að tryggja varðveislu húsanna nr. 41, 43 og 45 á meðan verðlaunatillagan uppfylli ekki þær kröfur. Nefnir hann sem dæmi til- löguna sem hlaut 2. sæti. Vill endur- skoða LHÍ Tíu ár eru liðin frá því að Norðurál á Grundartanga tók til starfa. Eins og gerist í öðrum góðum sögum þurfti að takast á við krefjandi úrlausnarefni og yfirstíga hindranir, en allar slíkar fyrirstöður voru yfirunnar með samstarfi og mikilli vinnu. Þessi áratugur í sögu fyrirtækisins ber vitni um þann árangur sem næst þegar áræðnir einstaklingar, traustir samstarfsaðilar og harðduglegt starfsfólk leggst á eitt við að skapa skilvirkt fyrirtæki sem býður örugg störf og reynist aflvaki nýrrar grósku í nærliggjandi byggðarlögum. Við settum markið hátt og stefndum að því að gera Norðurál að best rekna álveri í heimi. Ljóst er að núverandi eigendur, Century Aluminum, hafa hvergi hvikað frá þeirri stefnu og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með metnaðarfullri framþróun Norðuráls undir nýrri forystu. Allt frá upphafi lögðum við ríka áherslu á að sníða framkvæmdir að þörfum íslenska hagkerfisins og fylgja “íslensku leiðinni” sem felst í því að nýta íslenskt vinnuafl og sérþekkingu, starfa í sátt við samfélagið og stuðla að velferð þess. Núverandi stjórnendur hafa einnig fetað þá slóð og staðið myndarlega að framgangi fyrirtækisins í samræmi við þarfir samfélagsins. Það hefur verið mér sönn ánægja að taka þátt í uppbyggingu þessarar farsælu og framsýnu atvinnustarfsemi á Íslandi. Á slíkum tímamótum vil ég þakka öllum sem hjálpuðu til við að láta drauminn um nýtt álver rætast. Ljóst virðist að íslenskt efnahagslíf er sterkara fyrir vikið. Bestu árnaðaróskir frá okkur öllum hjá Columbia Ventures til starfsfólks og stjórnenda Norðuráls í tilefni af merkum áfanga. Hamingjuóskir til Norðuráls á 10 ára afmæli! Ken Peterson, Jr. stjórnarformaður og forstjóri Columbia Ventures Corporation og stofnandi Norðuráls Hvernig áræðin hugmynd verður að öflugum veruleika ÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀ ÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀÀ Kl. 10:00 Perlan o pnar Kl. 13:00 Gosi ske mmtir börnum Kl. 13:30 Boot Ca mp ævintýra-ratle ikur fyrir utan Perluna (fyrir 13 ára og yn gri) Kl. 14:00 Englakó rinn syngur Kl. 15:00 Björn Jö rundur Friðbjörnss on tekur lagið Kl. 16:00 Uppboði lýkur - verk og við burðir slegnir og s eldir! Kl. 18:00 Markaðn um lýkur. Dagskrá: Laugardagu r 30. ágúst Meðal verka á up pboðinu er loftljós eftir Ólaf Elíasson og kjóll af Björk Guðmund sdóttur auk fjölda annarra frábærra atriða. Sjá nánar á www.su k.is Glæsimarkaður í Perlunni, á morgun 30. ágú st kl. 10-18 sunnudaginn 31. á gúst kl. 12-17 Arabísk stemmn ingÆvintýranleg ar uppákomur Flott uppboð Allt milli himins og jarðar                 ! "#$% " ! & #  #'   () *&! +  * & ,   % #-. #/)&  &    $! # 0- % &!1 Prada Karen M iller Sand Gucci Luis V uitton Hver króna rennur óskipt til uppbyggin gar á skóla fyrir börn og konur í Jemen. Jóhanna Kristjónsdóttir er driffjöður verkefnisins. ótrúl egu verði! merk java ra á Styrktaraðilar: verð frá 3 00k r.Al lt á að selja st

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.