Morgunblaðið - 30.08.2008, Side 18
18 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í FYRRADAG var undirritaður
samningur milli ríkisstjórna Ís-
lands, Ástralíu og Bandaríkjanna
um samstarf sem hefur það að
markmiði að auka afrakstur jarð-
hitakerfa og gera átak í þróun
nýrrar tækni í jarðhitanýtingu.
Jarðhitasérfræðingar frá ofan-
greindum ríkjum héldu fyrsta
vinnufund sinn í fyrradag og í gær
þar sem samstarfsverkefnin eru
skilgreind nánar. Gert er ráð fyrir
að fleiri þjóðum verði boðið til
þessa samstarfs á næstu misserum.
Samningur við Ástralíu og
Bandaríkin um jarðhitaþróun
Borgarfjörður | Sunnudaginn 31.
ágúst ætlar Ungmennafélagið Íslend-
ingur að halda upp á 80 ára afmæli
Hreppslaugar. Eftir haustmót félags-
ins þann dag verður haldið upp í
Hreppslaug þar sem boðið er upp á
veitingar og gestum gefst kostur á að
skella sér í laugina og því betra að
taka með sér sundföt. Hreppslaug
var byggð af framsýni og stórhug
fyrir áttatíu árum, og öll vinna við
laugina unnin í sjálfboðavinnu. Laugin er 10x25 metrar og því lögleg
keppnislaug, enda fóru sundmót Ungmennasambands Borgarfjarðar þar
fram í áratugi. Á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar fóru fram end-
urbætur á lauginni, enda var hún meðal vinsælustu sundstaða héraðsins
síðustu áratugi liðinnar aldar. Nú eru velunnarar laugarinnar hvattir til að
mæta á sunnudaginn og stinga sér enn einu sinni til sunds í lauginni góðu
og jafnvel taka eitt boðsund.
Fagna afmæli Hreppslaugar
SVEITARSTJÓRN Dalabyggðar
beinir því til Vegagerðarinnar í
tengslum við fyrirhugaða brú yfir
Laxá í Dölum að gert sé ráð fyrir
umferð gangandi fólks og hesta-
manna yfir brúna en svo virðist
ekki hafa verið gert. Fyrirhuguð
brú er staðsett í jaðri þéttbýlis og
umferð veiðimanna, hestamanna og
annarra gangandi vegfarenda er
umtalsverð.
Gangandi fólk
komist líka yfir
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) hefur gert samning við
heilsuræktarstöðvar World Class
þess efnis að starfsmenn SHS
stundi þar æfingar.
„Gott líkamlegt ástand starfs-
manna er einn af grundvallar-
þáttum þess að sinna krefjandi
starfi og því er mjög mikilvægt að
góð aðstaða til heilsuræktar sé
tryggð,“ segir í tilkynningu.
Fá æfingaaðstöðu
Í DAG, laugardag, verður haldin
árleg uppskeruhátíð Grasagarðsins
í Laugardal kl. 13-16. Slegið verður
upp hlaðborði með ferskum mat-
jurtum. Fólki gefst kostur á að
fræðast um ræktun og bragða á
hinum ýmsu tegundum grænmetis,
kryddjurta og berja sem ræktað
hefur verið í garðinum. Ókeypis er
inn og eru allir velkomnir.
Uppskeruhátíð
STUTT
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ísafjörður | Þrettán nemendur
hefja um helgina meistaranám í haf-
og strandsvæðastjórnun við Há-
skólasetur Vestfjarða á Ísafirði. Þar
með er í fyrsta skipti boðið upp á
staðbundið háskólanám sem alfarið
er kennt á Vestfjörðum. Í tengslum
við setninguna verður haldið mál-
þing um sjálfbæra nýtingu íslenskra
strandsvæða.
„Stjórnun haf- og strandsvæða er
ofarlega á baugi í auðlindastjórnun í
heiminum. Allt land er skipulagt í
þaula en haf- og strandsvæði hafa
orðið út undan,“ segir Sigríður
Ólafsdóttir, fagstjóri meistaranáms-
ins. Hún gefur þá skýringu að erf-
iðara sé að stjórna hafsvæðunum,
meðal annars vegna þess að víða,
eins og til dæmis hér við land, vanti
að vita meira um sjóinn. „Það er
þörf á að fá menntað fagfólk á þessu
sviði, þar með talið á Íslandi,“ segir
Sigríður.
Þrettán nemendur í upphafi
Meistaranámið var auglýst í vor
og sóttu 55 um. 24 nemendum var
boðið en nokkur afföll urðu svo 13
hefja námið í haust. Sigríður segir
að þessi afföll séu ekki óeðlileg og
talan þrettán sé í samræmi við upp-
hafleg markmið. „Við erum að stíga
okkar fyrstu skref og vorum sein
með þetta.“ Hún segir stefnt að
fjölgun á næsta skólaári. Hópurinn
er fjölskrúðugur, í honum eru þrír
Íslendingar og nemendur frá
Bandaríkjunum og nokkrum lönd-
um Evrópu og Afríku. Kennararnir
koma einnig víða að úr heiminum.
Námið er þverfaglegt, alþjóðlegt
nám og telst 120 einingar. Efnt er
til þess í samvinnu við Háskólann á
Akureyri. Kennsla fer fram í
þriggja vikna lotum, á haust-, vor-
og sumarönn og síðan tekur við
verkefnavinna fram að útskrift í
febrúar. Þetta er því samfellt eins
og hálfs árs nám sem er nýjung hér
á landi.
Sjálfbær nýting strandsvæða
Efnt verður til málþings um sjálf-
bæra nýtingu íslenskra strand-
svæða við upphaf meistaranámsins.
Málþingið verður í Edinborgarhús-
inu á Ísafirði á sunnudag og mánu-
dag en námið verður sett með at-
höfn á sama stað kl. 16 á laugardag.
Meðal efnis á málþinginu eru rann-
sóknir á náttúru og nýtingu strand-
svæða, skipulag á strandsvæðum og
stjórnun þeirra.
Morgunblaðið/RAX
Haf og strönd Þörf er á meiri þekkingu á stjórnun haf- og strandsvæða. Námsleið á þessu sviði hefst um helgina.
Nema haf- og strand-
svæðastjórnun á Ísafirði
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | Skógræktarfélags
Neskaupstaðar fagnaði í vikunni 60
ára afmæli Afmælishátíðin fór fram í
Hjallskógi. Hún þótti takast vel,
enda viðraði vel til útisamkomu.
Fjöldi manns lagði leið sína í skóginn
af þessu tilefni.
Undirritaður var samningur milli
Skógræktarfélagsins og Nesskóla
sem felur í sér að skólanum er út-
hlutaður lundur í skóginum sem
skólinn má nota og útfæra eftir eigin
höfði til hvers konar útikennslu. Er
það von stjórnar félagsins að þetta
efli áhuga og vitund nemenda fyrir
umhverfi sínu og náttúru og verði
skemmtileg og góð viðbót við öflugt
skólastarf í Nesskóla.
Heiðursfélagar
Tólf stofnfélagar voru heiðraðir
við þetta tækifæri, en þar af eru fjór-
ir sem eru ennþá í félaginu. Stefán
Þorleifsson mælti fyrir hönd stofn-
félaga sem voru heiðraðir og kom
fram í máli hans að líklega hafi bjart-
sýnustu menn hafi ekki séð fyrir
þann mikla árangur sem starf fé-
lagsins hefur borið sl. sextíu ár.
Starfið, sem hófst með niðursetn-
ingu nokkurra plantna af birki og
víði um miðja síðustu öld, er nú hvað
mest áberandi í Hjallaskógi, sem er
mikið notaður útivistarskógur við
bæjardyr Neskaupstaðar.
Anna Bergljót Sigurðardóttur for-
maður félagsins var ánægð með vel
heppnaða afmælishátíð. Undanfarið
hefur verið gert átak í að gera skóg-
inn enn meira aðlaðandi. Búið er að
koma upp leiktækjum og grillað-
stöðu. Nýir stígar hafa verið lagðir
og skógurinn hefur verið grisjaður
duglega. Þá hefur tegundum verið
fjölgað markvisst, m.a. framandi
berjaplöntum sem Anna Bergljót
telur að verði spennandi að sjá hvort
beri ávöxt í skóginum í framtíðinni.
Fékk skógarlund að gjöf
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Allir hjálpast að Vinir Hjallaskógar
hittust á þriðjudagskvöld til að
snyrta fyrir afmælishátíðina.
Í HNOTSKURN
»Sextíu ár eru liðin síðanSkógræktarfélag Nes-
kaupstaðar var stofnað.
»Tólf stofnfélagar af 95 eruennþá í félaginu.
»Hjallaskógur, glæsilegurútivistarskógur, ber vitni
um ríkulegan árangur af
starfi félagsins.
FJALLGÖNGUMENNIRNIR Árni
Þór Lárusson og Arnar Ingi Guð-
mundsson klifu á topp Matterhorns,
næsthæsta fjalls Evrópu sem er
4.478 metra hátt, í gærmorgun. Fé-
lagarnir lögðu af stað um klukkan
fimm í gærmorgun að staðartíma
og tók gangan á tindinn um sex
klukkustundir.
Árni og Arnar gengu á Mont
Blanc á sunnudaginn var ásamt Ás-
birni Hagalín Péturssyni, Daníel
Guðmundssyni og Trausta Birni
Ingvarssyni úr Hjálparsveit skáta í
Reykjavík. Þeir fóru allir af stað á
Matterhorn í fyrradag en villtust þá
af leið og urðu að snúa við. Nánar
má lesa um það ferðalag á heima-
síðu Hjálparsveitarinnar
(www.hssr.is).
Ásbjörn Hagalín Pétursson sagði
að þeir þrír sem ekki fóru á Matter-
horn í gær ætluðu að geyma það
verkefni til betri tíma. Þeir ætla að
dvelja í Chamonix í nokkra daga
við sportklifur í þeirri klettaklifurs-
paradís sem þar er og njóta sólar
og síðsumars. gudni@mbl.is
Komust á
Matterhorn
„STARFSAUGLÝSINGIN var skrifuð
fyrir mig, án þess að nokkur vissi af
því,“ segir Sigríður Ólafsdóttir,
fagstjóri meistaranáms í haf- og
strandsvæðastjórnun sem hefst við
Háskólasetur Vestfjarða um
helgina. Hún fann draumastarfið á
Ísafirði.
Sigríður nam jarðfræði og landa-
fræði og síðan umhverfisfræði við
Háskóla Íslands þar sem hún lagði
aðaláherslu á haf- og strandsvæði.
Hún tók til starfa við Háskólasetrið
í upphafi ársins. Auk námsins, sem
er eins og sniðið fyrir þetta starf,
segist hún alltaf hafa áhuga á
kennslustörfum, hún hafi kennt
töluvert á undanförnum árum.
Sigríður segir gott að vera á Ísa-
firði. Háskólasetrið mun nýta kosti
svæðisins. Þannig hefst námið í
næstu viku í þriggja daga segl-
skútuferð um Ísafjarðardjúp og
Hornstrandir.
Fann draumastarfið á Ísafirði