Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 21
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
JOHN McCain, forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins, tilnefndi í gær
Söruh Palin sem varaforsetaefni sitt.
Palin, sem er 44 ára, hefur gegnt
embætti ríkisstjóra Alaska í tæp tvö
ár og var ekki á meðal þeirra sem
taldir voru líklegastir til að hljóta til-
nefningu. Hún er fyrst kvenna til að
hljóta tilnefningu repúblikana.
„Palin er einmitt sú sem ég þarf á
að halda,“ sagði John McCain er hann
kynnti Palin til sögunnar á samkomu
þar sem hann fagnaði einnig 72 ára
afmæli sínu. Hann sagði Palin réttu
manneskjuna til að hjálpa sér við að
„hrista upp í Washington“ svo hjólin
færu að snúast á ný.
Palin ávarpaði einnig samkomuna í
gær og sagði það mikinn heiður að fá
að berjast við hlið McCains. Hún
beindi svo orðum sínum til vonsvik-
inna stuðningsmanna Hillary Clinton
með því að lofa árangur Clinton í lið-
inni forsetaframbjóðendabaráttu
gegn Barack Obama og sagði „banda-
rískar konur ekki hafa sagt sitt síð-
asta.“
Of ung og reynslulaus?
Val McCains er talið geta hjálpað
honum við að kæfa þær gagnrýn-
israddir, sem heyrst hafa úr búðum
demókrata, að McCain hafi lítið nýtt
að færa þjóðinni. Palin þykir í yngri
kantinum og er tveimur árum yngri
en Barack Obama. Liðsmenn úr röð-
um McCain hafa þó sagst óttast að
aldur hennar geti grafið undan rök-
semdafærslu McCains um að Obama
sé of ungur og reynslulaus til að valda
forsetaembættinu.
Palin sætti gagnrýni flokksfélaga
sinna þegar hún beindi athyglinni að
spillingu innan raða repúblikana í
Alaska um það leyti sem hún varð
ríkisstjóri. Nokkuð sem er talið hafa
haft sitt að segja til að vekja athygli
McCains á henni. Palin hefur notið
mikilla vinsælda sem ríkisstjóri og
var með 80% fylgi í skoðanakönnun
sem gerð var í júlí síðastliðnum.
McCain og Palin eru á öndverðum
meiði hvað olíu- og gasboranir í
Alaska varðar. Palin hefur beitt sér
einarðlega fyrir því að gasleiðsla
verði lögð frá Alaska til að blása lífi í
efnahagsástand ríkisins. McCain hef-
ur lýst sig andsnúinn slíkum bor-
unum og hefur það komið illa við
marga flokksfélaga hans.
Palin er andsnúin fóstureyðingum
og er talið að það muni verða til þess
að róa íhaldssama repúblikana. Palin,
sem er fimm barna móðir, valdi að
fara ekki í fóstureyðingu eftir að eitt
barna hennar greindist með Downs-
heilkenni. Þessi afstaða hennar er þó
talin geta fælt frá marga stuðnings-
manna Hillary Clinton
McCain slær nýjan tón
með vali varaforsetaefnis
Reuters
Frambjóðendaparið McCain kynnti Palin til sögunnar sem varaforsetaefni
sitt og sagði hana einmitt þá manneskju sem þjóðin þarfnaðist í Washington.
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
YFIRVÖLD í Georgíu tilkynntu í
gær að þau myndu slíta stjórnmála-
sambandi við Rússland. Tilkynning-
in kemur nokkrum dögum eftir að
Rússland viðurkenndi sjálfstæði
héraðanna Suður-Ossetíu og Abkas-
íu. Fréttir hafa borist af því að Rúss-
ar hyggist auka íhlutun sína í hér-
uðunum, samkomulag sé í
uppsiglingu sem leyfi Rússum að
setja upp herstöðvar í Suður-Oss-
etíu. Rússar höfðu ekki staðfest þær
fréttir í gær.
Fulltrúar Georgíu í Rússlandi
munu yfirgefa landið í dag að sögn
Nato Tsjíkovani, utanríkisráðherra
Georgíu. Rússar hafa gagnrýnt
ákvörðun Georgíumanna. „Lok
stjórnmálasambands Rússlands og
Georgíu eru ekki það sem Moskva
vill og Tíblisi verður að bera alla
ábyrgð á þessari ákvörðun,“ sagði
talsmaður utanríkisráðuneytis Rúss-
lands.
Átökin verði metin hlutlægt
Í viðtali við þýska ríkissjónvarpið
ARD í gær hvatti forsætisráðherra
Rússlands, Vladímír Pútín, Evrópu-
sambandsríkin til að meta átökin á
Kákasussvæðinu á hlutlægan hátt.
Rússum stæði ekki á sama um við-
brögð ESB-ríkjanna. Hann sagði
það ósannindi að Rússland hefði
gripið inn í átökin í Georgíu til þess
eins að koma forseta Georgíu frá
völdum og hindra að landið gengi til
liðs við Atlantshafsbandalagið
(NATO). Væri eitthvað til í því hefðu
Rússar hafið átökin, Georgía hefði
hins vegar ruðst inn í Suður-Ossetíu.
Hann varaði jafnframt Evrópuríkin
við því að þjóna utanríkisstefnu
Bandaríkjanna.
Samkvæmt upplýsingum sem bár-
ust í gær frá skrifstofu Nicolas
Sarkozy, Frakklandsforseta, verður
engin ákvörðun tekin um refsiað-
gerðir gegn Rússum á fundi ESB
sem haldinn verður í Brussel á
mánudaginn. Nokkur landanna vilja
hefja refsiaðgerðir, þ.á m. Pólland.
Megintilgangur fundarins í Brussel
verði að gera ráðstafanir til að
tryggja að Rússar haldi vopnahlés-
samkomulag í Georgíu sem Frakkar
höfðu milligöngu um.
Fulltrúar Georgíu yfir-
gefa Rússland í dag
Í HNOTSKURN
»Rússland er mesta olíu-vinnsluríki heims.
»Vinnslan nemur nú hátt ítíu milljónum tunna á dag,
sem svarar til ríflega níunda
hluta heimsvinnslunnar.
»Takmörkun á olíufram-boðinu frá Rússlandi
myndi því þrýsta á um verð-
hækkanir á mörkuðum.
»Sú röskun sem varð á olíu-framboðinu frá Kákasus-
svæðinu við upphaf átakanna í
Georgíu hækkaði olíuverðið.
AP
Sambandsslit Utanríkisráðherra
Georgíu tilkynnti um ákvörðunina.
BARACK Obama tók við útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins
með ræðu á lokadegi landsþings flokksins á fimmtudagskvöld. Obama er
fyrsti blökkumaðurinn sem hlýtur slíka útnefningu stóru stjórnmálaflokka
Bandaríkjanna. Það þótti því vel við hæfi að hann skyldi taka við henni ná-
kvæmlega 45 árum eftir að dr. Martin Luther King Jr., holdgervingur rétt-
indabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum, hélt sína frægustu ræðu sem
er þekkt fyrir orðin „ég á mér draum“.
Í ræðu sinni, sem var sú mikilvægasta í kosningabaráttu Obama til þessa,
skerpti hann á þeim málefnum sem hann hyggst berjast fyrir nái hann
kjöri. Þar nefndi hann m.a. bættar aðstæður verkalýðsins, lofaði skatta-
lækkunum fyrir millistéttarfólk og það að draga verði úr þörf Bandaríkja-
manna á olíu frá Mið-Austurlöndum til að mæta hækkuðu bensínverði.
Obama skaut einnig hörðum skotum að keppinauti sínum John McCain
og tengdi hann beint við „mislukkaða forsetatíð“ George Bush. „Ameríka,
við erum betri en síðustu átta ár,“ sagði Obama. Hann gagnrýndi McCain
einnig sem fulltrúa „gamaldags stjórnmála og misheppnaðrar stefnu
repúblikana.“ jmv@mbl.is
Reuters
Tilbúinn í slaginn
Sarah Palin, varaforsetaefni repúblikana, er ríkisstjóri
Alaska og hefur notið mikilla vinsælda í embætti
LENGI var litið svo á að Xingu-
svæðið í vesturhluta Brasilíu hefði
verið ósnert af ágangi manna.
Ný grein í vísindatímaritinu
Science kollvarpar þessari skoðun.
Þannig hafa vísindamenn fundið
merki um þéttriðið net byggða-
kjarna í frumskóginum sem tengdir
voru saman með vegakerfi.
Aðalvegirnir enduðu svo á risa-
stórum torgum, sem ef til vill svipaði
til þess hér er sýnt, sem að öllum lík-
indum hafa verið samkomustaðir
þessa fólks, sem talið er að hafi verið
uppi fyrir um 1.500 árum.
Vísindamennirnir hafa jafnframt
fundið merki um landbúnað, stjórn-
un votlendis og hugsanlega fiski-
rækt, að því er segir á vefsíðu
breska ríkisútvarpsins, BBC. Bæirn-
ir voru stórir, allt að sextíu hekt-
arar. Um þúsund manns eru taldir
hafa búið í stærri bæjunum.
Mike Heckenberger, prófessor við
Háskólann á Flórída, sagðist í sam-
tali við BBC hins vegar ekki líta svo
á að um borgir væri að ræða, fremur
væri um þorp að ræða og einskonar
úthverfi þeirra.
Segir þar einnig að rústir þessara
fornu mannvirkja séu nær ósýni-
legar en að meðlimir Kuikuro-ætt-
bálksins, sem taldir eru vera afkom-
endur fólksins, geti rakið ummerkin
í skógarþykkninu.
Vegirnir sem fornmennirnir
byggðu til torganna snúa allir frá
norðaustri til suðvesturs.
Rannsóknin tók á annan áratug
og notuðust vísindamennirnir meðal
annars við gervihnattamyndir.
Á vef dagblaðsins The Daily Tele-
graph segir að flatarmál hvers
þorps hafi verið um 18.000 fermílur,
eða um 35-falt flatarmál Los Angel-
es-borgar. baldura@mbl.is
Fornmenn byggðu
úthverfi í Amazon
Eitt torganna Talið er að sjúkdómar sem bárust frá Evrópu hafi fellt fólkið.
Palin var fyrsta konan og jafn-
framt yngsta manneskjan sem var
kosin fylkisstjóri í Alaska, 42 ára
að aldri. Hún er því vön að fara
ótroðnar slóðir. Sem fylkisstjóri
þykir Palin hafa sýnt siðferðislega
réttsýni og hefur m.a. barist gegn
spillingu í embættiskerfinu í
Alaska.
Áður en hún varð fylkisstjóri
gegndi hún embætti borgarstjóra í
bænum Wasilla um sex ára skeið,
þar áður gegndi hún starfi íþrótta-
fréttamanns í sjónvarpi.
Palin er með gráðu í fjölmiðla-
og stjórnmálafræði frá háskól-
anum í Idaho. Hún er fimm barna
móðir sem fer gjarnan á hverskyns
veiðar, ekur á vélsleða og borðar
elgsborgara.
Réttsýn kona sem fer gjarnan á veiðar