Morgunblaðið - 30.08.2008, Side 25

Morgunblaðið - 30.08.2008, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 25 hann ekki fljótlega þá verð ég að íhuga að gefa honum minn. Það er fáránlegt að ég sé með orðu en ekki hann. Hann er algjör snill- ingur. Book of Disquiet eftir Fernando Pessoa er merkileg bók eftir höfund sem hefur sterkt ímyndunarafl. Fólk á að lesa Pessoa en af- neita ekki hinum sýnilega veruleika eins og hann gerir. Man Without Qualities eftir Ro- bert Musil er bók sem ég er afar hrifinn af. Musil eyddi öllu lífi sínu í að skrifa þetta verk en fékk nánast enga viðurkenningu. Hver einasta setning í bókinni er sönn og það er einmitt það sem við biðjum um í bók- menntum. Short History of Myth eftir Karen Arm- strong heillar mig og sérstaklega kenningin um að bókmenntirnar séu bestu trúarstofn- anirnar því þar finnum við sannleikann á fal- legan hátt. Svo mæli ég með The Fountain- head eftir Ayn Rand fyrir ungt fólk Þetta eru allt bækur sem ég elska. Svo eru Laxness og Þórbergur. Vefarinn frá Kasmír er í sérstöku uppáhaldi.“ Mikilvægt heilsufarstékk Hvernig sérðu framtíðina? „Ég sé hana ekki. En þessi ferð til Peking og síðustu sex ár hafa styrkt mig í þeirri trú að ef maður dregur hluti að sér af virkilegum krafti, ef maður trúir á gildi þess sem maður vill og nýtir jákvæðnina innra með sér þá getur draumurinn orðið að veruleika. En maður verður að vita hvað maður vill og fara þá leið sem manni finnst réttust. Svo tekur maður öðru hvoru vistfræðitékkið, eins og ég kalla það. Spyr: Ef ég ætla mér að ná þessu markmiði er það í lagi gagnvart konunni og börnunum eða eyðileggur það eitthvað fyrir þeim sem ég elska? Þetta er eina tékkið sem maður þarf að gera fyrir utan heilsufar- stékkið en þá spyr maður sig: Ef ég geri þetta verð ég þá stressbolti sem verður lagð- ur inn á sjúkrahús eftir þrjú ár með maga- sár? Það er mikilvægt að gleyma hvorki heilsu- farstékkinu né vistfræðitékkinu.“ Ætlarðu að halda áfram sem fyrirliði landsliðsins? „Ég leyfi þeirri ákvörðun að svífa í loft- inu.“Morgunblaðið/Golli » Ef það semmaður stefnirað er fyrir það ytra, ef það kemur ekki innan frá og er ekki hreint og tært, þá tapar það gildi sínu. Ef þú segir við sjálfan þig: „Ég ætla að vinna medalíu til að fara nið- ur Laugaveginn í opn- um vagni svo allir geti dáðst að mér og til að ég fái fríkort hjá hin- um og þessum fyr- irtækjum“ þá ertu að keppa á röngum for- sendum. Og þá nærðu líklega ekki árangri. Ég lít svo á að leiðin að árangri sé þroska- leið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.