Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 29
• Bjartar íbúðir
• Vandaðar innréttingar
• Aukin hljóðeinangrun
• Tvennar svalir
• Aukin lofthæð
• Gólfhiti
• Lyftuhús
• Stæði í bílageymslu
Áhugasamir panti söluskoðun hjá
söludeild ÍAV í síma 540 4200
Mjög stutt í alla þjónustu, miðbæinn og Laugardalinn
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Aðeins 2 stórglæsilegar íbúðir eftir í
Sóltúni 8-12.
www.iav.is
SÓLTÚN – REYKJAVÍK
Íbúðirnar eru 2ja herbergja, 104 fm og 3ja
herbergja, 137 fm. Tilbúnar til afhendingar.
Gráni Eitt sinn hestamaður, ávallt hestamaður.
gervibrunn, fuglahús, verkfærahús
og veggskraut,“ segir Jóhannes sem
lærði trésmíði á fullorðinsárum.
Hann stundaði sjómennsku í mörg ár
og hefur því sterkar taugar til hafs-
ins. Er það merkjanlegt á tréverki er
mótar skútu á einum húsveggnum. Á
bílskúrshurðina hefur hann síðan
mótað hest úr tré enda mikill hesta-
maður. Steinsveppir prýða svo beð í
miðjum garðinum. „Sveppirnir eru
það eina sem ég hef ekki gert. Þá bjó
Marteinn steinsmiður til.“
Ennfremur hangir gamalt vagn-
hjól af dönskum hestavagni á hús-
vegg. Hjólið fann Jóhannes á flóa-
markaði í Danmörku, flutti heim og
gerði upp. „Ég hef verið á eftirlaun-
um í tíu ár og það má segja að smíða-
vinnan spretti af eirðarleysi. Það er
alltaf hægt að hafa eitthvað fyrir
stafni.“ gudrunhulda@mbl.is
Nýtt hlutverk
Danska vagn-
hjólið fann sinn
stað á húsvegg í
Tjarnarflöt.
Blómabeð Marglit blóm og sniðugir steinsveppir prýðir garðinn.
Morgunblaðið/Ómar
a sinnt garði sínum af alúð og snyrtimennsku í fjörutíu ár og
sín. Í bakgrunni er vatnsbrunnur sem Jóhannes smíðaði.
Fuglahús Smáfuglar sækja sér skjól og æti til hjónanna
í Tjarnarflöt allan ársins hring.
Við ákváðum
því að fjar-
lægja átta
grenitré, þrjú
þeirra gáfum
við bænum
sem notaði
þau sem
jólatré.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 29
Nú haustar og kominn er sá árs-
tími þegar mannlífið fellur í fastari
skorður á nýjan leik eftir frjálsræði
sumarsins hjá sumum og miklar
annir hjá öðrum, til dæmis þeim
sem taka á móti og þjónusta ferða-
menn. Hér um slóðir er ferðaþjón-
usta enn sem komið er að mestu
bundin við sumarmánuðina svo nú
fer ferðalöngum fækkandi með degi
hverjum. Þeim fjölmörgu sem dval-
ið hafa í sumarbústöðum á svæðinu
fer þá ekki síður fækkandi.
Einn er sá ferðamaður sem fer
hægar yfir og dvelur lengur á
hverjum stað en aðrir ferðalangar.
Er það Svisslendingurinn Josef Ni-
derberger sem ferðast hefur um Ís-
land í 23 sumur á reiðhjóli og tvö
síðastliðin sumur á litla rauða Su-
zuki-húsbílnum sem er líklega
minnsti húsbíll á landinu og þótt
víðar væri leitað.
Í sumar og fyrrasumar hefur Jo-
sef dvalið töluvert á Kópaskeri og
hér í nágrenninu og ferðamátinn
gerir það að verkum að hann þekk-
ir landið jafnvel betur en innfæddir.
Josef er vinur vina sinna og þeir
eru margir, en þeim sendir hann
gjarnan myndskreytt blómabréf
eða færir þeim sultukrukku. Sult-
una sýður hann þar sem hann er
staddur í það og það skiptið og tínir
að sjálfsögðu berin í íslenskri nátt-
úru sem hann segir vera sambýlis-
konu sína.
Berjaspretta er annars með allra
mesta móti og þegar í móinn er
komið er víðast hvar allt svart og
blátt hvert sem litið er. Nú er bara
að vona að veður gefist til berja-
ferða áfram og að ekki frysti í bráð,
því þó að haustlægðir séu eitthvað
að hrella landann í bili hefur sum-
arið á þessu landshorni verið hag-
stætt á margan hátt hvað veðurfar
snertir. Það er einna helst að miklir
þurrkar hafi sett strik í reikning-
inn. Til dæmis eru hinar eftirsóttu
gulrætur frá Akurseli í Öxarfirði
fyrst núna að koma á markað en
það er heldur seinna en undanfarin
ár sem má meðal annars rekja til
skorts á vætu.
Haustinu fylgir fleira en tínsla
berja, sveppa og fjallagrasa, ekki
má gleyma göngum og réttum sem
eru jafnan tilhlökkunarefni hjá ung-
um sem öldnum og í framhaldinu
kemur sláturtíð, sem hér er oft
miðað við í ýmsu tilliti en slátrum
hefst hjá Fjallalambi 10. september
nk., sjá nánar á www.fjallalamb.is
Um liðna helgi var landskeppni
smalahundafélags Íslands haldin á
Daðastöðum í Núpasveit í blíðskap-
arveðri. Myndir frá keppninni og
upplýsingar um úrslit má finna á
www.123.is/kopasker.
Byggðasafnið á Snartarstöðum
auglýsir opið hús á morgun, sunnu-
daginn 31. ágúst, en það er síðasti
sunnudagurinn sem safnið er opið í
sumar. Af því tilefni verður frítt inn
og kaffi á könnunni en á safninu
stendur nú yfir áhugaverð sýning á
þingeyskum altarisdúkum.
KÓPASKER
Kristbjörg Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Kristbjörg
Smalahundur Þessi glaðlegri seppi
var meðal þátttakenda í lands-
keppni smalahunda á Daðastöðum.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið