Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórdís Lofts-dóttir fæddist á Gautshamri í Stein- grímsfirði 8. ágúst 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Hólmavík 23. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Loftur Bjarnason á Hólma- vík, f. 17.6. 1883, d. 8.8. 1956, og seinni kona hans Helga Guðbjörg Jóns- dóttir, f. 11.7. 1895, d. 8.9. 1981. Alsystkin Þórdísar eru Gróa, f. 1925, Jón, f. 1927, Sigvaldi, f. 1930, d. 2006, Ingi- mundur Tryggvi, f. 1932, d. 1937, Guðjón, f. 1934 og Karl Elinías, f. 1937. Hálfsystkin hennar, börn Lofts og fyrri konu hans Gróu Einarsdóttur, f. 18.12. 1879, d. 31.1. 1921, eru drengur, f. 1907, látinn sama ár, Gísli, f. 1907, d. 1952, Aðalheiður, f. 1910, d. 2002, Björnstjerne, f. 1911, d. 1913, drengur andvana fæddur 1914 og Gestur, f. 1916, d. 1952. Þórdís var á fyrsta misseri send í fóstur hjá hjónunum á Skarði í Bjarnarfirði, þeim Bjarna Jóns- syni, f. 1873, d. 1948, og Valgerði Einarsdóttur, f. 1872, d. 1932. Uppeldissystkin hennar á Skarði voru Torfi, f. 1905, Soffía, f. 1906, Jón, f. 1907, Ólöf, f. 1909, og Eyjólfur, f. 1912, sem öll eru látin. Þórdís giftist 30.12. 1944 Arn- grími Jóhanni Ingimundarsyni á Svanshóli, f. 25.7. 1920, d. 9.3. 1985. Börn þeirra eru. 1) Erna, f. 1945, gift Baldri Sigurðssyni, f. um ásamt uppeldi barna sinna enda Arngrímur bifreiðastjóri með búmennskunni og því oft á tíðum fjarverandi frá heimilinu yfir sumartímann. Jafnframt tók hún að sér afgreiðslustörf í útibúi KSH á Kaldrananesi sem Arn- grímur sá um og rak. Er börnin urðu eldri og gátu hjálpað til við búskapinn færðust hennar störf meira inn á heimilið enda oft mannmargt í Odda. Ávallt var á borðum kaffi og sætabrauð og enginn gestur kom án þess að vera boðið kaffi eða matur eftir því sem við átti. Ófáar göngu- ferðirnar voru teknar upp af- leggjarann að þjóðveginum, til að afgreiða ferðamenn og fleiri um bensín og olíu á BP-stöðinni er þar var. Þegar börnin voru að mestu leyti vaxin úr grasi vann hún við ræstingar í Klúkuskóla og Gvendarlaug hins góða yfir sumartímann. Bréfhirðinguna í Odda sá hún um í fjölda ára, uns hún var lögð niður. Tók hún þátt í að reka Hótel Laugarhól tvö sumur ásamt öllum húsmæðrum í sveitinni. Þórdís sat oft og prjón- aði á yngri árum enda gott að eiga hosur og vettlinga handa heimilisfólki. En á efri árum minnkaði prjónaskapurinn og fínni hannyrðir tóku við. Við and- lát Arngríms tóku Baldur og Erna dóttir hennar við rekstri meginhluta búsins enda höfðu þau búið félagsbúi í Odda fram að því. Þórdís sneri sér þá ein- göngu að heimilisstörfum og tók þá að sér matseld fyrir ýmsa að- ila er voru við vinnu í Bjarnar- firði af og til. Útför Þórdísar fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Kaldrana- neskirkjugarði. 1934, d. 2008. Börn þeirra Árni Þór, Hafdís, Steinar Þór og Sölvi Þór. Erna á tvö barnabörn. 2) Jón, f. 1946, kvænt- ur Þorsteinsínu Guð- rúnu Gestsdóttur, f. 1948. Börn þeirra Halldóra Þórdís, Helena Ósk og Arn- þór Ingi. 3) Jóhann Björn, f. 1954, kvæntur Sólveigu Hildi Halldórsdóttur, f. 1959. Börn þeirra Halldór Páll og Nína Matthildur. Synir Jóhanns eru Unnar Rafn, f. 1974, d. 2007, og Jóhann. Synir Sólveigar eru Valgeir Örn og Hlynur Þór. Jóhann og Sólveig eiga fimm barnabörn. 4) Ingi- mundur, f. 1957, sambýliskona Þorbjörg Hulda Haraldsdóttir, f. 1958. Synir þeirra eru Arngrím- ur Jóhann, Haraldur Ingi, Erling- ur Daði og Matthías Oddur. Ingi- mundur og Þorbjörg eiga fjögur barnabörn. 5) Guðjón Hjörtur, f. 1963, kvæntur Signýju Her- mannsdóttur, f. 1965. Börn þeirra eru Elsa Guðbjörg, Andri Þór og Hermann Elvar. Guðjón og Signý eiga eitt barnabarn. 6) Helga Lovísa, f. 1966, gift Haraldi Vigni Ingólfssyni, f. 1964. Börn þeirra eru Þórdís Adda, Ingólfur Árni, Baldur Steinn og Karen Ösp. Þórdís ólst upp á Skarði hjá fósturforeldrum sínum til 17 ára aldurs. Hóf hún þá sambúð með Arngrími á Svanshóli. Árið 1947 fluttu þau á nýbýli sitt að Odda og bjuggu þar til dauðadags. Þórdís sinnti fyrstu árin bústörf- Elsku mamma mín og tengda- mamma. Stór skörð hafa myndast í fjöl- skyldunni síðasta árið og er því vert að setjast niður og skrifa þessi orð. Við kveðjum þig eftir stutta og erf- iða baráttu við illkynja sjúkdóm. Við vitum núna að þér líður betur og pabbi hefur tekið á móti þér opnum örmum. Það verður tómlegt að koma heim í Bjarnarfjörðinn, engin mamma í Odda til að koma alikálfinum á borð- ið þegar gulldrengurinn hennar kemur í heimsókn. Minningar okkar eru verðmætar og við munum geyma þær í hjörtum okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Við kveðjum þig með miklum söknuði. Þinn gulldrengur, Jón, og Ína. Sit við gluggann á sjúkrahúsinu á Hólmavík, og festi ekki hugann við neitt. Hef sjaldan séð Steingríms- fjörðinn svona sléttan marga daga í einu. Þarna eru Kleifar og Hella á Selströnd, og gárurnar klappa á steinana við tangann. Móðir mín er loksins sofandi eftir spjall okkar í milli og hvílist í sínum erfiðu veik- indum. Þannig má segja að síðustu dagar mínir með mömmu hafi verið í hnotskurn. En minning mín um mömmu er alls ekki um veikindi. Man bara ekki eftir því að henni hafi nokkurn tíma orðið misdægurt. Finnst hún alltaf hafa staðið við eldavélina og eldað góðan mat meðan ég ólst upp. Tala nú ekki um eftir að ég flutti að heim- an og kom í heimsókn með fjölskyld- una, þá var iðulega spurt: „Hvað á ég að hafa í matinn, elskan?“ Ef ég var að vori eða snemma sumars á ferðinni, stóð alla jafna ekki á svari: „Siginn fisk og selspik, steiktan rauðmaga eða selkjöt.“ Þetta voru oft mín fyrstu svör. Það var lostæti sem mamma gat stundum boðið upp á. En ekki snerist nú allt um mat. Hörkulegar ábendingar fékk ég eftir fyrsta fylliríið og þegar ég byrjaði að fikta við reykingar. Nauðsynlegt mér, ungum manni, en ég hlustaði kannski ekki nógu og vel. Alla jafna var hún ekki að setja mikið ofan í við mig, frekar að ég benti henni á hlut- ina. Eins og að hún léti allt of mikið eftir börnunum mínum, gerði þau óþekk með undanlátsseminni. Þetta þekki ég nú sjálfur eftir að hafa eignast barnabarn. Eða þá á rúg- brauðslyktina sem angaði um allt hús á sunnudagmorgni eftir réttar- ball, þegar heilsan hjá mér og fleir- um var ekki alveg í lagi. En þá var mamma í hugulsemi sinni að baka, til að við krakkarnir hennar gætum tekið með okkur heim volgan rúg- brauðsbitann. Eitt var það sem síð- ustu árin borgaði sig ekki að gera. Það var að hringja í hana á þeim tíma sem Leiðarljós var sýnt í sjón- varpinu. Gerði maður það voru svör- in svo gjörsamlega úr samhengi við það sem um var spurt að maður skildi hvorki upp né niður, svo upp- tekin var hún af þessum þáttum. Eitt af síðustu verkum mínum fyrir hana þegar hún var á Akranesi var reyndar að tengja sjónvarp svo hún sæi Leiðarljós. Og þegar ég kom til Hólmavíkur á afmælisdaginn hennar og spurðist fyrir hvar sjónvarpið væri, þá var svarið: „Leiðarljós er komið í frí.“ Leiðarljósið kom svo úr fríi, en mamma ekki. Hún fann ann- að ljós, ljósið sem geymir ástvinina, gömlu Bjarnfirðingana og þá sem minningin geymdi. Mamma hafði sagt mér að hún væri stolt af því að hafa komist í fermingu Hermanns sonar míns suður í Garð núna í vor. Það skil ég núna hversu mikið hún hefur þurft að leggja á sig til þess. Eftir þessa daga í sumar minnist ég yndislegra stunda með Ingu á Hóli, sem sýndi svilkonu sinni, nágranna og vinkonu ótakmarkaða umhyggju og hlýju. Starfsfólkinu á Heilbrigðisstofn- uninni á Hólmavík vil ég þakka þol- inmæðina og hlýjuna sem þau sýndu okkur, ættingjum mömmu, meðan á erfiðum veikindum hennar stóð. Guðjón Hjörtur. Elsku mamma. Aldrei hvarflaði það að mér þegar ég keyrði þig á Akranes í lækn- isskoðun að það yrði svona langt ferðalag sem væri verið að leggja upp í. Alvarlegur sjúkdómur hafði náð tökum á þér, þó svo þú hefðir ekki verið að kvarta undan verkjum, heldur bara ónotum sem þú hefðir. Síðan lá leiðin heim í Odda, og aftur á Akranes, svo þaðan á Heilbrigð- isstofnunina á Hólmavík sem varð endastöðin. Á þessum tíma kvart- aðir þú aldrei, enda ekki vön því að vera veik. Síðustu nóttina sem við áttum saman einar þá heimtaðir þú að ég kæmi upp í rúm til þín. Þar sem þér fannst ekki fara nógu vel um mig í stólnum við rúmið, þetta lýsir þér best. Hafðir meiri áhyggj- ur af mér heldur en sjálfri þér. Það er svo margs að minnast. Hvernig þú nenntir að lesa fyrir okkur krakkana á kvöldin eftir lang- an dag. Þó svo syfjan væri að sliga þig og lesturinn orðinn eitthvert bull, þá lastu einn kafla í viðbót ef við báðum um það. Svo hlógum við bara að bullinu í þér. Svo var það með berjabrekkurnar, alltaf að ganga þannig frá þeim eins og þú ætlaðir að koma aftur að þeim. Ber- jatínur voru bannaðar og allt tínt með höndum, þannig voru nú regl- urnar. Eins var það þegar þú hringdir og baðst okkur Hadda að koma og hjálpa þér að hnoða í klein- ur. Þá voru handleggirnir orðnir lúnir og ekki til þeirra verka. Og Baldur mágur sá þá um að steikja kleinurnar. Við Haddi og börnin okkar munum ávallt geyma minn- ingar um þig í hjarta okkar. Guð geymi þig. Helga Lovísa. Elsku mamma og amma. Nú er tómlegt í Odda. Við eigum margar minningar um þig. Erfitt er að setja þær allar í orð á blaði. Hvað þú varst tilbúin að gera allt sem þú gast til að hjálpa og leiðbeina okkur. Nema, þér tókst ekki að kenna okk- ur að baka pönnukökur, hvað sem þú reyndir. Þær voru aldrei eins og þínar. Ófáar stundir áttum við sam- an í berjabrekkunum. En allar spil- astundir okkar og aðrar stundir geymum við saman í hjarta okkar. Þú varst alltaf fljót til ef minnst var á spil eða spilaleiki. Þó að þið Bald- ur ættuð ekki alltaf skap saman við spilin, þá var alltaf jafn gaman. Erf- ið barátta þín síðustu mánuði lýsir þér best, ekki tilbúin að gefast upp eða láta bilbug á þér finna. Og reyna eins og þú gast að láta okkur ekki hafa áhyggjur af þér. En nú ertu búin að fá hvíldina frá þjáning- unum. Við minnumst þín með sökn- uði og ást. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Erna, Árni, Hafdís, Steinar og Sölvi. Elsku amma Dísa. Ég kveð þig hér með söknuði í hjarta. Margs er minnast í okkar sam- skiptum í gegnum ævina. Man ég þá sérstaklega þegar ég var að leika mér í ánni og þegar ég kom inn í Odda var sagt við mig að það væri krókódíll í ánni. Ég er ennþá að leita að honum og hef ekki fundið hann. Alltaf hafði amma áhyggjur af því hvort ég borðaði ekki nóg því ég væri að stækka svo mikið og ekki klikkaði amma á því að gefa stóra stráknum sínum að borða. Það er svo margt sem mig langar að segja en get ekki sagt það allt hér. Elsku amma Dísa, ég kveð þig með þessum orðum: Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Þinn Arnþór Ingi. Elsku amma mín. Mikið verður nú skrítið að fara heim í Bjarnarfjörðinn þegar þú ert ekki þar til að taka á móti mér, því alltaf tókstu á móti mér með opnum örmum. Við höfum búið til margar fallegar minningar sem munu fylgja mér ævilangt. Þótt þú hefðir ekki mikinn áhuga á íþróttum, þá spurð- ir þú mig alltaf þegar við hittumst hvort ég væri ekki enn að sprikla. Alltaf var gaman að tala við þig þegar þú fussaðir og sveiaðir yfir því að sjónvarpið sýndi fótbolta í stað þáttarins þíns. Áður en ég fór svo út til Portúgals í sumar þá baðstu mig að koma ekki heim með kærasta og það var það fyrsta sem þú spurðir mig um þegar ég kom heim. En eins og ég lofaði, þá kom ég ein heim og beint til þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Það er alltaf ótrúlega erfitt að kveðja einhvern sem maður elskar. Ég hugga mig við þá hugsun að þér líður betur núna og ert á góðum stað hjá afa Adda. Ég mun sakna þín elsku amma og þú munt ávallt eiga stóran stað í hjarta mínu. Ég elska þig amma mín. Þín Helena. Elsku amma, síðustu daga hafa hinar ýmsu minningar flogið í gegn- um huga minn og hef ég oft verið með bros á vör. Annað er ekki hægt því þessar minningar eru ómetan- legar. Ég hafði þau forréttindi sem barn að fá að vera í sveitinni hjá ykkur afa. Alltaf fékk maður ákveð- ið hlutverk, ef það var ekki að sækja beljurnar þá var það að hlaupa upp að vegamótum og aðstoða við að af- greiða ferðalanga um bensín. Ýmis- legt annað var brallað hér áður fyrr og við þær minningar ætla ég að ylja mér í framtíðinni. Þú sagðir ávallt skoðanir þínar á mönnum og málefnum og við vissum aldrei hverjum við áttum von á. Þar er hægt að nefna t.d. þegar Siggi kynntist þér fyrir fjórum árum og það er óhætt að segja að þú hafir slegið í gegn og var mikið skotið á okkur skötuhjúin. Eftir það fannst Sigga ómetanlegt að komast í Odda og verður aldrei eins að koma þang- að núna eftir að þú ert farin. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Við kveðjum þig í dag með sökn- uði, elsku amma, og ég ber nafn þitt með stolti Halldóra Þórdís og Sigurður. Elsku amma. Nú ertu farin eftir erfiða og stutta baráttu. Það verður sárt að kveðja þig í dag þó svo að við vitum að nú hefurðu fengið hvíld og ert komin á góðan stað. Allar stundirnar sem við höfum átt með þér munum við varðveita vel í hjörtum okkar. Á okkar yngri árum vorum við mikið í Odda og oft kom það fyrir að við vildum ekki fara heim aftur og aldrei var það vandamál að vera eftir hjá þér, þó svo að við höfum ekki alltaf verið ró- leg. Við munum ávallt vera þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og allt það sem þú kenndir okkur. Þú varst alltaf með svör við öllu, jafnvel í formi vísu, en af þeim kunnir þú óteljandi margar. Það var alltaf jafn gaman að hlusta á þig þegar þú byrjaðir og alltaf var beðið um aðra á eftir. Aldrei fellur á þig ryk fyrir innri sjónum mínum. Átt hef ég sælustu augnablik í örmunum sterku þínum. (Þura í Garði.) Elsku amma, í dag kveðjum við þig í hinsta sinn með mörgum minn- ingum en jafnframt miklum sökn- uði. Takk fyrir allt. Þórdís Adda og Ingólfur Árni. Þórdís Loftsdóttir Elsku amma. Alltaf þegar ég fór norður, þá sagði mamma mér að láta ömmu ekki snúast í kringum mig. Og reyndi láta þig ekki gera það. Vonandi hefur það tekist. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert. Ég mun sakna þín mikið. Þinn Baldur Steinn Elsku amma. Þegar ég var lítil vildi ég alltaf fá fisk hjá þér. Þú vild- ir alltaf gefa mér fisk, en einu sinni áttir þú hann ekki til, bara gellur. Þá sagði ég „amma, þetta er svoldið skrítinn fiskur“. Síðasta skiptið sem ég svaf upp í hjá þér var mér illt í eyranu. Þú huggaðir mig. Ég sakna þín mikið. Karen Ösp. HINSTA KVEÐJA Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.