Morgunblaðið - 30.08.2008, Page 44
Þar eru karlarnir
statistar í heimi
kvenna, það fer svo sem
ekkert illa á því … 52
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„ALLIR góðir hlutir taka enda,“
segir Egill Ólafsson Stuðmaður
þegar blaðamaður spyr hann hvort
tónleikar Stuðmanna í kvöld séu
þeir síðustu. Í viðtali fyrr á árinu
gaf Egill það mjög skýrt í skyn að
Stuðmenn væru hættir en hljóm-
sveitin spilar í kvöld á árlegum
söfnunartónleikum íþróttafélagsins
Gróttu á Seltjarnarnesi.
„Þetta getur varla talist starfsemi
lengur. Við höfum hist tvisvar á
þessu ári, mest til þess að skemmta
okkur sjálfum,“ segir Egill. „Ég
held að það sé alveg ljóst, og ég lít
þannig á, að þessu samstarfi sé nán-
ast lokið. Ég held líka að það sé
tímabært að við leyfum öðrum að
komast að.“
Höfðu lofað að koma fram
Það hlýtur samt að gleðja dygg-
ustu aðdáendur Stuðmanna að Egill
slær nokkra varnagla og honum
þykir fullmikið að kalla tónleikana í
kvöld lokatónleika Stuðmanna. „En
ég held það sé alveg víst að ég
starfa ekki með hljómsveitinni leng-
ur og ég lít svo á að þetta sé meira
til gamans gert frekar en að kalla
megi Stuðmenn starfandi hljóm-
sveit. Við erum ekki að búa til tón-
list og ekki að fara að gefa út plöt-
ur.“
Stuðmenn hafa í nokkur ár komið
fram á Gróttu-tónleikunum, og Eg-
ill segir hljómsveitina hafa verið
búna að lofa fyrir löngu að spila á
þessum tónleikum áður en sú
ákvörðun var tekin að hægja ferð-
ina. „Íbúar Seltjarnarness hafa
mætt vel á þessa tónleika sem kalla
má litla þjóðhátíð,“ segir Egill en
hagnaðurinn af dagskránni rennur
til íþróttastarfs í bæjarfélaginu.
Lokatónleikar Stuðmanna?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sælla minninga Eru Stuðmenn að hætta?
Egill Ólafsson segir samstarfinu „nánast lokið“
Halda árlega tónleika sína á Seltjarnarnesinu í kvöld
Í Lesbók Morgunblaðsins í dag
er að finna ýtarlega umfjöllun um
gróskumikla öfgarokkssenu lands-
ins. Þar að auki er að finna mynd-
skeið því tengt á vefvarpi mbl.is,
rætt við tvær sveitir sem fara mik-
inn í senunni um þessar mundir,
Celestine og Muck. Sveitirnar
ræða þar um heima og geima en
sérstaka athygli vekur athugasemd
Axels, söngvara Celestine, um að
sveitin sé nýkomin úr Evróputúr og
dreymi nú um að spila úti á lands-
byggðinni. Þetta kallar maður að
vera með þjóðarhjartað á réttum
stað, því að flestir láta sig hafa það
að hjakka um landið en dreyma
þess í stað um Evróputúr. Við hér á
Morgunblaðinu verðum eiginlega
að gefa fullt hús rokkstiga fyrir
svona auðmjúkan og uppbyggileg-
an hugsunargang. Þetta er orgínal!
Landsbyggðin heillar
öfgarokkarana
Það má með sanni
segja að það sé nóg
að gera hjá Baltas-
ar Kormáki um
þessar mundir. Eins
og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær er
hann nýkominn heim frá Banda-
ríkjunum þar sem hann skrifaði
undir samning við James Newton
Howard um tónlistina í nýjustu
mynd sína, Run For Her Life, sem
verið er að klippa um þessar mund-
ir. Þá sér Baltasar um dreifingu á
Mýrinni á Englandi og í Frakk-
landi, er að ljúka við vinnslu á
Reykjavík-Rotterdam sem hann
leikur aðalhlutverkið í, og að gera
sig kláran í tökur á stórmyndinni
The Bird Artis sem hann mun lík-
lega gera í haust eða vetur, auk
fleiri verkefna. Geri aðrir betur!
Upptekinn maður
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
PARÍS, London og New York mega fara að vara
sig. Hver þarf Avenue Montaigne og 5. breið-
stræti þegar hann hefur Skólavörðustíginn?
Stígurinn heitir tískusýningin sem í dag fer
fram þriðja árið í röð á Skólavörðustígnum, í
tískustórborginni Reykjavík. „Þetta byrjaði sem
lítil hugmynd um að gera eitthvað til að lífga
upp á Skólavörðustíginn, rífa á hærra plan og
gera eitthvað skemmtilegt í sameiningu,“ segir
Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir, hárstílisti, hönn-
uður og einn skipuleggjenda sýningarinnar.
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og
hefur allt lifnað við á Skólavörðustígnum í þessi
tvö skipti sem tískusýningin hefur verið haldin.
„Það sést að fólki þykir rosalega gaman þegar
eithvað er að gerast í miðbænum og margir sem
leggja leið sína niður í bæ til að fylgjast með,“
segir Þórhildur, Tóta eins og flestir kalla hana.
Spennandi hönnuðir
Auk Þórhildar koma að sýningunni Áslaug
Harðardóttir sem starfrækir tískuverslunina
ER, Auðbjörg Þóra Óskarsdóttir sem heldur ut-
an um skipulagninguna og Sverrir Björnsson
sem sér um útlitshönnun sýningarinnar. „Áslaug
sýnir vöru úr búðinni sinni. Þetta eru flíkur eftir
þýsku hönnuðina Annettae Görtz, Rundholz og
Luana. Svo sýni ég línuna mína, Tóta Design,“
segir Þórhildur. „Við fáum til okkar hljómsveit-
ina Sometime sem komið hefur skemmtilega á
óvart upp á síðkastið og Bakkus býður upp á
freyðivín, sem á vel við á tískusýningu.“
En er það ekki áhættusamt að halda tískusýn-
ingu utandyra, eins og veðurfarið er á Íslandi?
Þórhildur er hvergi bangin og segir nýjustu spár
líta ágætlega út. „En við erum alltaf tilbúin með
plan B ef veðrið er vitlaust,“ segir hún en vill
ekki ljóstra meira upp.
Þórhildur á von á skemmtilegum laugardegi á
Skólavörðustígnum í dag. „Þetta vindur alltaf
upp á sig og verður stærra með hverju árinu. Að-
sóknin hefur verið ofboðslega góð, stígurinn
troðfullur af fólki og umfjöllunin verið bæði mik-
il og jákvæð,“ segir hún.
„Það að hafa sýninguna undir berum himni
gerir þetta svolítið hrátt og skemmtilegt, við
sköpum góða stemningu og fáum flott módel svo
allt er á eins háum standard og hægt er.“
Tískan út á göturnar
Tískusýningin Stígurinn 08 haldin á Skólavörðustíg í dag Lifandi tónlist og
léttar veitingar til að lífga upp á miðbæinn Von á fjölda góðra gesta
Morgunblaðið/Kristinn
Tískuóðar Tóta og Áslaug reka sitt fyrirtækið hvor á Skólavörðustígnum og fengu þá hugmynd að gæða Skólavörðustíginn meira lífi.
Sýningin hefst kl. 16 og er áætlað að hún standi
yfir í 45-60 mínútur. Aðgangur er öllum heimill
og ókeypis. Finna má upplýsingar á Facebook
með því að leita að „Stígurinn 08“.
Gróttu-tónleikarnir eru nú
haldnir í sjöunda sinn, fara
fram í Íþróttamiðstöð Sel-
tjarnarness. Með Stuðmönn-
um koma fram Heiða úr Idol,
Margrét Eir og Margrét
Guðrúnar- og Ásgeirsdóttir.
Magnús Kjartansson bætist
við um miðnætti og hefur
með sér heilan kór flug-
freyja. Húsið verður opnað
kl. 22.
Flugfreyjukór