Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 52

Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG - 2 VIKUR Á TOPPNUM DARK KNIGHT kl. 6:20 - 8 - 10 B.i. 12 ára STAR WARS: CLONE WARS kl. 1:30D - 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL GET SMART kl. 10:10D LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ísl. tali kl. 2D - 4:10D LEYFÐ DIGITAL WALL• E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI “...WALL E fær óskarinn sem besta teiknimyndin, enda mynd sem fer fram úr því að vera fjölskylduteiknimynd og yfir í að vera fullorðinsteiknimynd.” “...full af nægum sjarma til að bræða hvert steinhjarta”. - L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið ...umhugsunar- og athyglisverðasta teiknimynd í áratugi...” “WallE er aftur á móti frábær afþreying ætluð hinum almenna bíógesti, þá einkum stórfjölskyldunni...” S.V. Morgunblaðið SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI TROPIC THUNDER kl. 3:40 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP SVEITABRÚÐKAUP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ STAR WARS: CLONE WARS kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ GET SMART kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS! - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR- B.S., FBL -S.V., MBL THE DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 B.i. 12 ára THE DARK KNIGHT kl. 2 B.i. 12 ára LÚXUS VIP THE MUMMY 3 kl. 1:30 - 8 B.i. 12 ára WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30D - 3:40D LEYFÐ DIGITAL KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ RÓMANTÍKIN hefur vafalaust ráðið því að hjónaleysin Inga (Nanna Kristín) og Barði (Björn Hlynur), ákváðu að gifta sig í lítilli og afskekktri sveitakirkju. Sú ákvörðun á eftir að draga mjög órómantískan dilk á eftir sér og fer flest úrskeiðis sem farið getur. Væntanlegum áhorfendum er lítill greiði gerður með því að tí- unda þau, en eitt stærsta vandamálið er að enginn er með það á hreinu hvar brúðkaupið á að fara fram annað en að kirkjan er einhvers staðar í vestri. Villta vestrinu þess vegna. Ekki bætir úr skák að gestirnir og brúðhjónin, sem ferðast á tveimur rútubílum, ákveða að stytta sér leið yfir Dragháls og villast í uppsveitum Borgarfjarðar. Innan dyra rútubílanna er sál- arástandið í umtalsverðu ójafnvægi því hver og einn hefur sinn djöful að draga, misjafnlega dramatískan að vísu og lausu skrúfurnar skoppa út um öll gólf. Á prestssetrinu bíður presturinn (Ingvar E.) hinn rólegasti, hann er að horfa á sjónvarpið og á nóg til að væta kverkarnar yfir enska boltanum. Mörkin milli kómedíu og farsa geta verið óljós, Sveitabrúðkaup liggur beggja vegna þeirrar fínu línu. Myndin gerist að mestum hluta í þröngu rými rútubílanna og minnir þar af leiðandi á leiksviðsverk og textinn mun vera spunninn á staðnum af leikstjóranum og klipp- aranum góða Valdísi Óskarsdóttur, ásamt leik- urunum. Þeir koma ófáir úr Vesturport- hópnum sem á að baki Börn og Foreldra, sem báðar höfðu margt og mikið til síns ágætis. Það telst ekki galli, en kvenhlutverkin eru áberandi bragðmeiri og betur skrifuð, hluti af karlpen- ingnum er nánast af nauðsyn á staðnum en fær takmarkað svigrúm til að láta að sér kveða. Það má líta á rúturnar sem umhverfið okkar í hnotskurn, drepið á sígild mein og ágreinings- efni sem þjaka einstaklinga, hjónabönd og þjóðfélagið okkar í heild, þó það sé á gam- ansömum, stundum meinháðskum nótum. Þar eru karlarnir statistar í heimi kvenna, það fer svo sem ekkert illa á því. Hvað sem því líður er Sveitabrúðkaup fyrst og síðast gamanmynd, gerð til að koma áhorf- endum í gott skap og skilja við þá þannig inn- stillta, og það tekst. Vissulega ber nokkuð á of- flæði hugmynda í persónusköpuninni og í örfá skipti eru uppákomurnar við hallærisjaðarinn. En, þetta stóra en, þegar rúturnar virðast vera að velta út af slóðanum með allt heila galleríið innanborðs, tekst Valdísi og félögum að venda þeim upp á réttan vegarhelming á nýjan leik og halda áfram þessu dæmalausa ferðalagi eins og ekkert hafi í skorist. Sem fyrr segir er handritið hópvinna Valdís- ar (sem heyr frumraun sína sem leikstjóri) og leikaranna. Á bestu köflunum eru tilsvörin bráðfyndin og leikhópurinn er yndislegur. Af einhverjum ástæðum, mér óljósum, skilja kvenpersónurnar mun meira eftir sig og þar á Herdís Þorvaldsdóttir stóran hlut að máli og ruplar þeim atriðum sem hún kemur fram í. Önnur af okkar stórleikkonum, Kristbjörg Kjeld, gerir sínu snúna hlutverki frábær skil. Nanna Kristín, í hlutverki brúðarinnar, er kraftmikil og kómísk, sama má segja um Hönnu Maríu Karlsdóttir. Hafa ber enn í huga að hlutverk þessara fínu leikkvenna eru blæ- brigðaríkari en karlleikaranna, sem eru ekki síðra mannval. Hér eru Þröstur Leó (hver treystir sér til að gera kvikmynd án hans?) Björn Hlynur, Sigurður Sigurjóns, Ólafur Darri, Theódór Júlíusson, Árni Gautur Guð- jónsson, og fá tækifæri til að setja svip sinn á myndina, aðrir karlleikarar eiga ekki því láni að fagna. Þá er enn ótalinn Víkingur Krist- jánsson sem er senuþjófur myndarinnar ásamt Herdísi. Víkingur er innilega utanveltu sem náungi sem er ekki með kynhneigðina eða sjálfsmyndina alveg á hreinu og fær frábærar línur tengdar upploginni sálfræðimenntun. Tæknilega er Sveitabrúðkaup í öruggum höndum, klippingin og tónlistin í sérflokki, kvikmyndataka og leikstjórn markviss og lip- ur. Einkum í þrengslum farartækjanna í þess- ari sposku óvissuferð upp að altarinu. Óvissuferð upp að altarinu Fyrst og síðast gamanmynd Ingvar E. og Björn Hlynur í hlutverkum sínum. KVIKMYND Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka, Akureyri, Keflavík og Selfossi Leikstjóri, handrit (m. leikurunum) og klipping: Val- dís Óskarsdóttir. Kvikmyndataka: Anthony Dodd Mantle. Tónlist: The Tiger Lillies. Hljóðmynd: Kjart- an Kjartansson. Aðalleikarar: Björn Hlynur Haralds- son, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Darri Ólafs- son, Nína Dögg Filippusdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Ingvar Eggert Sigurðsson, Gísli Örn Garðarsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir o.fl. 90 mín. Mystery Ísland o.fl. Ísland 2008. Sveitabrúðkaup bbbmn Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.