Morgunblaðið - 01.09.2008, Page 2
2 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
SKÁKSVEIT Rimaskóla varð í gær Norður-
landameistari grunnskólasveita. Í lokaumferð-
inni vann sveitin öruggan 4-0-sigur á danska
liðinu. Skáksveit Rimaskóla stóð að lokum
uppi með 14½ vinning og sigraði nokkuð
örugglega. Sænska sveitin hlaut annað sætið
með 10½ vinning.
Sveit Rimaskóla var skipuð þeim Hjörvari
Steini Grétarssyni á fyrsta borði, Herði Aroni
Haukssyni á öðru borði, Sigríði Björgu Helga-
dóttur á því þriðja, Degi Ragnarssyni á fjórða
borði og Jóni Trausta Harðarsyni á fimmta
borði.
„Gekk mjög vel hjá okkur“
Sigríður Helga, sem er 15 ára gömul, segir
mótið hafa verið ákaflega skemmtilegt. „Þetta
gekk mjög vel hjá okkur og við vorum líka
mjög vel undirbúin. Við kepptum á Evrópu-
móti fyrr í sumar og undirbjuggum okkur bara
eins og fyrir það.“
Hún segist ennfremur vel geta hugsað sér
að leggja skákina frekar fyrir sig. „Mér finnst
mjög skemmtilegt að tefla og reyni að æfa mig
sem mest.“
„Legg skákina fyrir mig“
Hjörvar Steinn Grétarsson, sem einnig er 15
ára gamall, þykir einn allra efnilegasti skák-
maður landsins og er með 2.299 ELO-stig.
„Þetta gekk afskaplega vel hjá okkur öllum og
ég held við höfum bara staðið okkur mjög vel.“
Hann segist ennfremur tefla af krafti. „Það er
löngu ákveðið hjá mér að ég mun leggja skák-
ina fyrir mig.“
Hann segir lykilinn að þessum frábæra ár-
angri vera mikinn og góðan undirbúning. „Svo
vorum við líka með mjög góða þjálfara og okk-
ur gekk allt í haginn.“ Skáksveit Rimaskóla
sigraði á Íslandsmeistaramóti í skák og var því
fulltrúi Íslands á þessu Norðurlandamóti.
Vel undirbúin og öruggir sigurvegarar
Meistarar Davíð Kjartansson, liðsstjóri, Jón Trausti Harðarson, Sigríður Helgadóttir, Dagur
Gunnarsson, Hörður Aron Hauksson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Helgi Árnason, fararstjóri.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
PIOTR Pawel Jakubek, eigandi
pólsku kjörbúðarinnar Mini-
Market í Breiðholti, segist mjög
verða var við hversu Pólverjum
hefur fækkað hér á landi. „Við-
skiptin hjá mér hafa minnkað um
heil 30% að undanförnu og það
ætti að segja sína sögu.“
Hann segir brottflutning Pól-
verja aftur til heimahaganna að
mestu stafa af stöðu krónunnar.
„Launin hafa hækkað svo mikið í
Póllandi. Og verkamenn þar fá
einfaldlega bara svipuð laun núna
og þeir sem eru hér.“
Hann segir einnig skipta máli
að margir íslenskir verktakar séu
í vandræðum.
„Það hafa svo margir lokað eða
farið á hausinn og mörgum hefur
reynst erfitt að fá vinnu. Þetta
hefur verið mikið vesen. Það tala
margir um að það sé kreppa
hérna á Íslandi en ég held að hún
sé bara rétt að byrja,“ segir
Piotr.
Hann segir jafnframt lífsgæði
og efnahagsástand í Póllandi hafa
farið mjög batnandi að undan-
förnu. „Jújú, þetta er allt annað
líf. En það er mjög erfitt til dæm-
is fyrir mig að flytja aftur þang-
að. Ég er með fjölskyldu hérna og
barn. Þannig að ég held að það
séu alls ekkert allir að fara. Það
eru kannski aðallega verkamenn
sem hafa komið hingað tímabund-
ið og þeir sem eru ekki með fjöl-
skyldur hér á landi.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Búðareigandi Piotr Pawel Jakubek, eigandi kjörbúðarinnar Mini-Market,
segist finna vel fyrir brottflutningi Pólverja frá Íslandi.
„Það er allt annað líf í Pól-
landi frá því sem áður var“
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÉG tel að skóg-
rækt á norður-
hveli sé tvímæla-
laust gott vopn í
baráttunni gegn
hlýnun jarðar,“
segir Brynhildur
Bjarnadóttir, sér-
fræðingur hjá
Skógrækt ríkis-
ins.
Skiptar skoðan-
ir eru um hvort skógrækt á norður-
hveli jarðar sé gott úrræði gegn hlýn-
un. Árni Finnsson lét hafa eftir sér í
Morgunblaðinu sl. laugardag að skóg-
rækt á norðurhveli væri „afar þýðing-
arlítil“ í baráttunni og leggja ætti
áherslu á annað í þessu samhengi.
Í síðustu viku funduðu skógarmála-
ráðherrar Norðurlandanna á Íslandi
og lýstu þá m.a. yfir vilja til að efla
skógrækt á norðurslóðum til að
bregðast við loftslagsbreytingum.
Eigum að nota öll tiltæk ráð
„Við eigum að nota öll tiltæk ráð og
skógrækt er eitt af þeim úrræðum
sem við höfum gegn hlýnun jarðar.
En stjórnvöld hafa lagt áherslu á að
draga úr magni koltvíoxíðs í and-
rúmsloftinu,“ segir Brynhildur. Að-
spurð hvers vegna skiptar skoðanir
eru um þetta segir Brynhildur rökin
gegn skógrækt á norðurhveli byggj-
ast á því að regnskógarnir vaxi hrað-
ar. Skógarnir á norðurhveli vaxi hæg-
ar og bindi þar með koltvíoxíð á minni
hraða.
„Rannsóknir Skógræktar ríkisins á
Íslandi sýna hins vegar ótvírætt
aukningu kolefnisbindingar í landi
þar sem skógur vex. Það staðfestir að
koltvíoxíð er að bindast,“ segir Bryn-
hildur.
Árni Finnsson hefur bent á að ef
menn vilji virkilega beita sér fyrir því
að efla bindingu kolefnis með skóg-
rækt sé mun vænlegra til árangurs að
styrkja baráttuna gegn eyðingu regn-
skóganna. Brynhildur segir að bar-
áttan gegn eyðingu regnskóga á suð-
urhveli jarðar og skógrækt á
norðurhveli séu hvort tveggja mikil-
væg úrræði sem eigi að nota jöfnum
höndum.
Skógrækt á
norðurhveli er
„gott vopn“
Í HNOTSKURN
»Meðalbinding koltvíoxíðs(CO2) í íslenskum skógum
er talin vera um 4,4 tonn á
hektara á ári, yfir 90 ára
vaxtartíma skógarins.
»Meðalfólksbíll, sem keyrirum 30.000 km á ári, losar á
þeim tíma um 4,6 tonn af kol-
tvíoxíði. Til að vega upp á móti
þeirri losun þarf að gróður-
setja um einn hektara af
skógi, eða sem samsvarar um
það bil 2.500 trjám.
Brynhildur
Bjarnadóttir
ICELANDAIR hefur sagt sextán
flugmönnum til viðbótar upp störf-
um. Á annað hundrað flugmenn flug-
félagsins hafa því misst vinnuna á
árinu. Síðast voru tilkynntar upp-
sagnir átta flugmanna í síðustu viku.
Frekari uppsagnir eru ekki fyrir-
hugaðar, að sögn upplýsingafulltrúa
Icelandair.
„Þetta kom upp [á föstudag]. Það
voru gerðar ákveðnar skattalaga-
breytingar í Venesúela sem gerðu
það að verkum að forsendur leigu-
flugssamnings þar gjörbreyttust.
Venesúelska flugfélagið Santa Bár-
bara sem samningurinn var við sagði
honum því upp. Samningurinn átti
að renna sitt skeið á enda í vor en
lýkur þess í stað í vetur,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair.
Um var að ræða rekstur á Boeing
767-flugvél sem aðallega var flogið á
milli Madríd á Spáni og Caracas í
Venesúela.
Hjá Icelandair störfuðu tæplega
þrjú hundruð flugmenn síðasta vetur
en verða tæplega tvö hundruð í vet-
ur. Á árinu hefur 112 flugmönnum
verið sagt upp störfum, flestum eða
88 í júní sl. andri@mbl.is
Fleiri flug-
mönnum
sagt upp
Skattalagabreyting
að baki uppsögnum
„ÞETTA gekk afskaplega vel,“ segir Jóhanna Kristjóns-
dóttir. Nú um helgina stóð yfir markaður í Perlunni á veg-
um Fatimusjóðs Jóhönnu. Þar var seldur ýmis varningur á
góðu verði og allur ágóði mun renna til fátækra barna og
kvenna í Sanaa í Jemen. Stendur m.a. til að reisa skóla-
húsnæði fyrir börnin.
Á uppboði sem Bjarni Ármannsson stýrði á laugardag-
inn seldust munir fyrir um átta milljónir króna. Hæsta
verðið fékkst fyrir lampa eftir Ólaf Elíasson sem seldist á
2,1 milljón króna. En harðast var barist um landsliðs-
treyju Ólafs Stefánssonar, fyrirliða íslenska landsliðsins í
handbolta. Fór treyjan á eina milljón króna en hún var árituð af öllum liðs-
mönnum silfurliðsins frá Ólympíuleikunum í Peking. Var Ólafur í treyjunni í
úrslitaleiknum og var hún óþvegin.
„Ég setti sem markmið að ná tuttugu milljónum. Við náðum því og vel það,“
segir Jóhanna. Áætlað er að skólinn kosti um þrjátíu milljónir en auk þess
sem safnaðist á markaðnum bárust um tíu milljónir króna í frjálsum fram-
lögum. Það er því ljóst að skólahúsnæðið mun rísa. thorbjorn@mbl.is
Söfnuðu rúmlega þrjátíu
milljónum fyrir börnin
Jóhanna
Kristjónsdóttir
STÓRMEISTARARNIR Hannes
Hlífar Stefánsson og Henrik Dani-
elsen eru efstir og jafnir með 4 vinn-
inga að lokinni
fimmtu umferð
landsliðsflokks
Skákþings Ís-
lands, sem fram
fór í gær. Hannes
vann Þröst Þór-
hallsson og Hen-
rik vann Jón
Árna Halldórs-
son. Alþjóðlegi
meistarinn Jón
Viktor Gunn-
arsson er þriðji með 3,5 vinninga eft-
ir þriðju sigurskákina í röð en í gær
vann hann Þorvarð F. Ólafsson.
Sigurbjörn Björnsson er efstur
með fullt hús að lokinni fimmtu um-
ferð í áskorendaflokki. Sigurbjörn
vann Omar Salama í gær. Sævar
Bjarnason er annar með 4 vinninga.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir heldur
áfram góðu gengi. Hún vann Halldór
Brynjar Halldórsson og er meðal
þeirra sem hafa 3,5 vinninga í 3.-6.
sæti.
Hannes og
Henrik efstir
Hannes Hlífar
Stefánsson