Morgunblaðið - 01.09.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2008 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
KYNNING OG VIÐTÖL
Kynningarfundur 3. september kl. 12.30–13.15
á Radisson SAS Hótel Sögu.
Útflutningsráð heldur kynningarfund með Ruth Bobrich, viðskipta-
fulltrúa við sendiráð Íslands í Berlín, þar sem leitast verður við að svara
eftirfarandi spurningum:
• Hvaða atvinnugreinar eru í mestum vexti í Þýskalandi?
• Hvaða atvinnugreinar eru áhugaverðastar fyrir íslensk fyrirtæki?
• Hvaða væntingar hafa þýsk fyrirtæki til sinna samstarfsaðila?
Fundurinn er ætlaður öllum sem vilja fræðast nánar um þennan markað
eða hafa hug á að stunda viðskipti þar.
Viðtöl
4. og 5. september mun Ruth hitta fulltrúa fyrirtækja sem vilja leita
markaðsráðgjafar á umdæmissvæðum sendiráðsins.
Auk Þýskalands eru umdæmislönd sendiráðsins: Króatía, Pólland og Búlgaría.
Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands, Borgartúni 35, og má bóka
þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Marteinsson, verkefnisstjóri, andri@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson,
forstöðumaður, hermann@utflutningsrad.is.
ÞÝSKALAND – LAND TÆKIFÆRANNA
www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
Ég held að það sé mikluvænlegra fyrir mark-aðinn að búa til fjórðabankann sem er það öfl-
ugur að hann getur náð sér í fjár-
magn á alþjóðlegum markaði og
látið til sín taka,“ segir Agnar
Hansson, bankastjóri Icebank.
Hann telur sameiningu smærri
fjármálafyrirtækja ákjósanlegri
þróun en að þeir renni inn í stóru
viðskiptabankana.
Agnar segir að fjórða aflið á fjár-
málamarkaðnum, auk Glitnis,
Landsbankans og Kaupþings, þurfi
að vera með meira en 100 milljarða
króna í eigið fé og traustan inn-
lánsgrunn. Icebank er með tæpa 11
milljarða í eigið fé.
„Það er ekki hagkvæmt lengur
að vera með mörg lítil fjármálafyr-
irtæki. Allt reglugerðarumhverfið,
samskipti við opinbera aðila eins og
Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið,
gerð MiFID skýrslna og fleira er
kostnaðarsamt. Í góðæri þegar
eignir margfaldast í verði geta fyr-
irtæki staðið undir þessu. Það þarf
hins vegar engan vísindamann til
að sjá eftir að hafa farið ofan í
reikninga nokkurra sparisjóða að
reksturinn hefur gengið afleitlega
undanfarin ár. Það er alveg ljóst að
því mun fylgja einhver sársauki að
rétta reksturinn við,“ segir Agnar.
Sjálfviljugir eða neyddir
Miðað við núverandi ástand telur
Agnar spurninguna í raun vera þá
að annaðhvort ganga menn í þetta
verk sjálfviljugir eða verða neyddir
til þess. „Hvað ætla menn að þrá-
ast við lengi?“ spyr hann.
„Ef sama þróun heldur áfram, og
stærstu sparisjóðirnir verða étnir
upp af stóru bönkunum er spari-
sjóðakerfið búið. Ef við viljum
halda rekstri sparisjóðanna áfram
er hægt að hugsa sér að stór öfl-
ugur sparisjóður eða sparisjóða-
banki verði til á suðvesturhorninu.
Einingarnar úti á landi geta haldið
einhverju sjálfstæði en fá stuðning
frá Reykjavík varðandi flest sem
snýr að rekstrinum eins og áhættu-
stýringu.“
Spurningin sem blasir þá við er
hvort sparisjóðakerfið sé ekki úr
sér gengið og geti ekki tekist á við
þá erfiðleika sem blasa við. Agnar
telur ekki.
„Það eru til sparisjóðir úti um
alla Evrópu og Bandaríkin ennþá.
Sparisjóðakerfið er í prinsippinu
ekkert annað en sjálfseign-
arstofnun þar sem menn í héraði
koma saman og byrja að leggja inn
peninga og lána fólki og smærri
fyrirtækjum. Sparisjóðir eru
kannski ekki aflið til að fara í
magnaða útrás. En geta verið til
sparisjóðir úti um landið? Já, af
hverju ekki? Með stuðningi frá
stórum aðila á höfuðborgarsvæðinu
er það mögulegt.“
Agnar bendir á að sparisjóðirnir
hafi oft lagt peninga í uppbygging-
arverkefni. Þeir eigi til dæmis um
50% í VBS fjárfestingarbanka og
rúm 20% í Saga Capital auk ann-
arra fyrirtækja. Hann vil fátt segja
um mögulegt samstarf eða samein-
ingu þessara aðila.
Sparisjóðir þjappi sér saman
„Það er ekkert óeðlilegt að sjá
fyrir sér að vilji sparisjóðir þjappa
sér saman og reyna að gera eitt-
hvað að þeir horfi á þessi dótt-
urfélög sín og reyni að þjappa þeim
saman. Eru Icebank og VBS besta
fyrsta skrefið í einhvers konar upp-
byggingu á fjórða banka? Ég veit
það ekki alveg,“ svarar Agnar.
Hvort Saga Capital hafi verið
fyrsti kostur segir hann að Saga sé
mjög spennandi félag í ljósi þess að
eiginfjárhlutfallið þar sé mjög hátt.
Og það myndi nýtast sparisjóða-
kerfinu mjög vel að fá Sögu inn til
samstarfs.
Í síðustu viku samþykktu stofn-
fjáraðilar BYR sparisjóðs að breyta
rekstrarforminu í hlutafélag og sú
vinna er líka hafin í Sparisjóði
Keflavíkur. Spurningin er hvort
þessir tveir sparisjóðir ásamt Ice-
bank og huganlega smærri fjár-
málafyrirtæki séu grunnurinn að
fjórða stóra bankanum á höf-
uðborgarsvæðinu sem Agnar sér
fyrir sér.
„Ég held að það væri skemmti-
legri þróun fyrir íslenskan fjár-
málamarkað heldur en að Byr færi
inn í Glitni eða Landsbankann og
Sparisjóður Keflavíkur inn í Kaup-
þing. Ef það gerist verður enginn
fjórði banki til. Þetta er líka um-
hugsunarefni ef við ætlum að halda
hér sjálfstæðri mynt og einhverjum
gjaldeyrismarkaði.
Þegar gjaldeyrismarkaður var
opnaður voru níu aðilar á milli-
bankamarkaði. Við erum farin að
eygja það að geta tekið þátt í milli-
bankamarkaðnum en erum samt
með alltof lítinn eiginfjárgrunn til
þess að geta verið alvöruþátttak-
endur. Ég held að það væri gott
fyrir dýptina á markaðnum að
fjórði aðilinn kæmi þar inn. Þrír
eru augljóslega ekki mjög margir,“
segir Agnar.
Eitt besta ár Icebank
Bankastjórinn er sáttur með
rekstur Icebank það sem af er ári
þrátt fyrir erfiðleika á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Hann segir
þetta að sumu leyti besta ár Ice-
bank. „Vaxtatekjur og vaxtamunur
er hærri en hann hefur nokkurn
tíma verið. Vaxtamunurinn er nán-
ast tvöfalt hærri en kostnaðurinn.
Ég veit ekki til þess að nokkur
banki sé að skila því,“ segir Agnar.
Icebank hét áður Sparisjóða-
bankinn. Sérstaða bankans felst í
því að hafa í 25 ár þjónustað spari-
sjóðina, miðlað peningum þeirra og
aflað þeim lána í erlendri mynt.
Agnar segir að sú sérfræðiþekking
sem hafi skapast sé nú nýtt til að
þjónusta önnur fjármálafyrirtæki,
bæði stóru bankana og smærri
verðbréfafyrirtæki. Í Icebank sé
sérstaklega horft til fjárstýringar,
eins og gjaldeyris- og afleiðumiðl-
unar. Þeir keppi ekki í hlutabréfa-
og skuldabréfamiðlun og eru ekki
með neina eignastýringu.
„Þannig að við getum átt við-
skipti við alla án þess að þeim finn-
ist að við séum að troða þeim um
tær eða stela af þeim einhverjum
bitum. Þróunin hefur verið sú að
miklu meiri velta er í gjaldeyrinum.
Árið 2005 og 2006 var veltan frá 30
til 50 milljarðar króna á mánuði. Í
júní veltum við 900 milljörðum
króna,“ segir Agnar.
„Þrátt fyrir að Icebank sé til-
tölulega lítill banki njótum við
þessarar sparisjóðstengingar ann-
ars vegar og að við erum í 25 ár
búin að sjá um öll erlend viðskipti
fyrir sparisjóðina hins vegar. Við
erum með lánalínur að minnsta
kosti úti um alla Evrópu. Stórir
bankar í Japan og Bandaríkjunum
eru með skrifstofur í London sem
við erum í samskiptum við. Þetta
setur okkur svolítið í annan flokk
ef miðað er við önnur lítil fjármála-
fyrirtæki sem hafa verið að ein-
beita sér meira að verðbréfamark-
aðnum.“
Sparisjóðir skulda 30 milljarða
Agnar segir að allri erlendri end-
urfjármögnun Icebank hafi verið
lokið í apríl á þessu ári. Engir
gjalddagar séu fyrr en á næsta ári.
Efnahagsreikningurinn geti sveifl-
ast mikið þar sem fjármögnun Ice-
bank snúist fyrst og fremst um að
búa til peninga fyrir önnur fjár-
málafyrirtæki. Það sem hafi gerst
undanfarið sé að misræmi hafi orð-
ið í eignum og skuldum sparisjóð-
anna inni í Icebank.
Nú skuldi sparisjóðirnir Icebank
um 30 milljarða króna, mest vegna
erlendra skulda. Rúm 70% af efna-
hagsreikningnum séu þannig fyr-
irgreiðslur til annarra fjármálafyr-
irtækja. Ef það kreppi meira að í
fjármögnun sé auðveldara að
bregðast við vegna þessa.
„Við erum búin að byggja upp
mikla sérþekkingu í bankastarfsemi
á Íslandi. Þó að það blási aðeins á
móti núna eigum við auðvitað að
halda áfram,“ segir Agnar Hans-
son, bankastjóri Icebank.
Vill sjá fjórða stóra bankann
Bankastjóri Icebank sér fyrir sér að smærri fjármálafyrirtæki sameinist í stóran banka
Gleypi stóru bankarnir fleiri sparisjóði telur hann sparisjóðakerfið að þrotum komið
Morgunblaðið/RAX
Sófasportisti Agnar Hansson er mikill áhugamaður um íþróttir, horfir mest á þær en stundar líka golf.