Morgunblaðið - 01.09.2008, Side 16
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
V
oldugar litríkar 19. aldar
byggingar, skreyttar
lágmyndum, í bland við
hreinlínu arkitektúr 20.
aldar – gler, járn, ögr-
andi formmyndun og svo að sjálf-
sögðu finnska viðinn. Þessi undar-
lega stílblanda kann að hljóma sem
hrópandi ósamræmi en virkar engu
að síður og, ásamt gróskumiklum
görðum, stöðuvötnum og sérlega
vingjarnlegum íbúum, á sinn þátt í
sjarmanum sem Helsinki býr yfir.
Og það er verður að segjast að
það er notalegt að rölta eftir Espl-
anadi – lystigarði með skýrum 19.
aldar vísunum í formi laufskála og
glerhýsa á sólríkum sumardegi.
Fram undan blasir syðri höfnin við
og beggja vegna eru þétt setin
kaffihús og veitingastaðir sem flæða
út á gangstéttirnar, ásamt hönn-
unar- og lúxusverslunum sem koma
auðveldlega við létta pyngju. Artek,
Iittala, Arabia og Marimekko, þess-
ir þekktu fulltrúar finnskrar
hönnunarsögu eru vel sýnilegir við
göngugötuna. Stutt ferð um
hönnunarhverfið svo nefnda full-
vissar ferðalanginn hins vegar fljótt
um að þeir eru langt frá því að vera
þeir einu.
Borg postulanna
Það er auðvelt að flakka um mið-
borg Helsinki á tveim jafnfljótum.
Innan miðjunnar rúmast líka vel
flestir ferðamannastaðir þessarar
borgar með sína tæplega 570.000
íbúa. Fyrirframgefnar hugmyndir
mínar voru á þann veg að Helsinki
hlyti að líkjast hinum norrænu
höfuðborgunum, sem hún og gerir –
en aðeins upp að vissu marki. Rúss-
neska fortíðin er nefnilega mjög
ráðandi í miðborginni og skyldi eng-
an undra. Helsinki, eða Helsingfors
eins og hún heitir á sænsku, taldist
varla nema smábær er Rússar náðu
Finnlandi af Svíum árið 1809, fluttu
höfuðstað landsins frá Turku til
Helsinki og byggðu þar upp borg í
anda Sankti Pétursborgar. Borg
sem varð að efnahagslegum og
menningarlegum kjarna Finnlands.
Byggingarnar við Senaatintori-
torgið sem þýski arkitektinn Carl
Ludwig Engel á heiðurinn af – dóm-
kirkjan, háskólinn og ríkisráðshöllin
sem nú hýsir forsetaskrifstofuna
eru líklega þekktustu dæmin um
Sankti Pétursborgarstílinn. Rúss-
nesku áhrifin finnast þó víðar, t.d. í
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni
Uspenski, ráðhúsinu, forsetahöllinni
og fleiri byggingum við Pohjois-
esplanadi göngugötuna.
Hafið bláa hafið
Markaðstorgið við syðri höfnina
dregur að ferðamenn jafnt sem
heimamenn og hlaðin borð af glæ-
nýju grænmeti og litríkum ávöxtum
freista bragðlaukanna. Finnsku
skarti, trémunum og leðri í bland
við hefðbundinn túristavarning er
svo stillt fram á öðrum básum, enda
fjöldi ferðalanga sem á leið um
svæðið. Frá syðri höfninni má líka
taka ferjur til nærliggjandi eyja,
t.d. Korkesaari sem hýsir einn af
elstu dýragörðum í heimi og sömu-
leiðis Suomelinna, eyjaklasa sem
hýsir samnefnt sævirki sem Svíar
hófu að reisa 1748 og er í dag á
heimsminjaskrá Sameinuðu þjóð-
anna.
Virkið hefur í gegnum tíðina
þjónað vörnum Svía, svo Rússa og
loks Finna sjálfra. Burtséð frá allri
hernaðarsögu er þessi 400 manna
byggð einkar hugguleg heim að
sækja. Gamli sænski og rússneski
stíllinn er svo gott sem allsráðandi
og vel þess virði að taka með sér
nesti og slá lautarferð saman við
heimsóknina.
Síbelíusarminnismerkið í Síbelí-
usargarðinum, óperuhúsið og tón-
leika- og ráðstefnuhúsið Finlandia
Talo, sem sjálfur Alvar Aalto á heið-
urinn af, eru einnig vinsælir við-
komustaðir ferðamanna. Ekki
skyldi heldur gleyma Ólympíu-
leikvanginum, einfaldri fúnkisbygg-
ingu sem reist var fyrir Ólympíu-
leikana 1952 og lýst hefur verið sem
einum af fegurri ólympíuleik-
vöngum.
Hönnun og meiri hönnun …
Það er allt að því illmögulegt að
fjalla um Helsinki án þess að talið
berist aftur og aftur að hönnun og
arkitektúr. Það er eins og borgin og
byggingarnar innan endimarka
hennar krefjist þess einfaldlega.
Kiasma samtímalistasafnið er
gott dæmi um þá frjóu hugsun sem
einkennir finnskan arkitektúr, ekki
síður en Temppeliaukio eða kletta-
kirkjan sem að hluta til er höggvin
inn í klett. Áðurnefnd Finlandia
Talo bygging er þá með þekktari
byggingum Alvars Aaltos og Aalto-
húsið í Munkkiniemi-hverfinu, sem
arkitektinn reisti sem heimili fyrir
sig og fjölskyldu sína, er vel þess
virði að leggja á sig örlítið ferðalag.
Aalto bjó í húsinu í eina fjóra ára-
tugi og er það einstakt minjasafn
um hönnun hans og eiginkvenna
hans, þeirra Aino og Elissu.
Í hönnunarhverfinu svonefnda í
miðbænum er svo að finna hönnun-
arsafnið Designmuseo, sem að mínu
mati olli nokkrum vonbrigðum –
önnur eins hönnunarþjóð og Finnar
gæti örugglega gert betur. Hönnun-
armiðstöðin Design Forum þar sem
finna má verk yngri hönnuða reynd-
ist hins vegar skemmtilegur
bræðslupottur og ljóst að þó að Al-
var og Aino Alto og Maija Isola
kunni að vera nöfnin á vörum ferða-
manna eru yngri hönnuðir engu að
síður uppfullir af frjóum hug-
myndum.
Antik-, hönnunar-, fataverslanir,
gallerí og sýningarsalir í hönnun-
arhverfinu bera þessari sömu sköp-
unargleði einnig skýr merki, fanga
augað og freista buddu á meðan
minnst er með söknuði þess tíma er
evran var bara 83 krónur.
Finlandia Talo Með þekktari byggingum Aaltos. Sólarstopp Esplanadi-garðurinn er vinsæll á sólardögum.Dómkirkjan Rússnesku áhrifin í dómkirkjunni og nálægum byggingum leyna sér ekki.
Morgunblaðið/Anna Sigríður
Súkkulaðiheimar Íslendingar kannast líklega flestir við myntusúkkulaðið
frá Karl Fazer, samnefnt kaffihús og súkkulaðibúð í miðbænum sýnir hins
vegar að því fer fjarri að það sé það eina sem í boði er.
Morgunblaðið/Anna Sigríður
Við höfnina Það er líflegt mannlíf við höfnina og fjöldi fólks sem leggur leið sína til eyjanna fyrir utan.
Hafnarborg með hönnunarsögu
Það er lítið mál að finna góða
veitingastaði í Helsinki, sama
hvað freistar bragðlaukanna.
Kínverska, japanska, líbanska,
kúbanska, nepalska og svo að
sjálfsögðu skandinavíska veit-
ingastaði er víða að finna.
Þetta eru aðeins örfá dæmi …
Demo
Michelinstjörnu staður sem
byggir á nútíma finnskri mat-
argerð.
Uudenmaankatu 9-11
Sími: 00358 (09) 2289 0840
Netfang: demo@restaur-
antdemo.fi
www.restaurantdemo.fi/
contact
Raku Ya
Stílhreinn og fágaður jap-
anskur staður við höfnina.
Eteläranta 14
Sími: 00358 (0)9 675 449
Netfang: rakuya@kolumbus.fi
www.ravintolaopas.net/
rakuya
Kappeli
Á sinn sess í finnskri menn-
ingarsögu. Hér sátu finnskir
19. aldar hugsuðir og lista-
menn á borð við þá Sibelius
og Juhani Aho. Maturinn er
enn góður.
Eteläesplanadi 1
Sími: 09 6812 440
Netfang: kappeli@sok.fi
www.ravintolaopas.net/
kappeli/
Líbanskt,
nepalskt eða
japanskt?
Hún er skemmtileg
blanda austurs og vesturs
þótt líklega væri réttara
að segja að í Helsinki
næðu að tvinnast saman
Rússland 19. aldar og
Norðurlönd þeirrar 20.
www.helsinki.fi
www.hel2.fi
www.suomenlinna.fi
www.alvaraalto.fi
www.designforum.fi
|mánudagur|1. 9. 2008| mbl.is
daglegtlíf