Morgunblaðið - 01.09.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2008 29
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til
20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Skilaboðaskjóðan
Sun 7/9 kl. 14:00
Sun 14/9 kl. 14:00
Lau 20/9 kl. 14:00
Sun 28/9 kl. 14:00
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fös 5/9 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 20:00
Lau 13/9 kl. 20:00
Fös 19/9 kl. 20:00
Lau 20/9 kl. 20:00
Fim 25/9 kl. 20:00
Sun 28/9 kl. 20:00
Engisprettur
Fös 26/9 kl. 20:00
Lau 27/9 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Fim 9/10 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00
Kassinn
Utan gátta
Lau 11/10 frums. kl. 20:00 U
Sun 12/10 kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Lau 18/10 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00
Kúlan
Klókur ertu - Einar Áskell
Sun 7/9 kl. 11:00
Sun 7/9 kl. 12:30
Sun 14/9 kl. 11:00
Sun 14/9 kl. 12:30
Brúðusýning fyrir börn
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl.
10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Fös 5/9 frums kl. 20:00 U
Lau 6/9 kl. 19:00 U
2. kortas
Sun 7/9 kl. 20:00 U
3. kortas
Þri 9/9 aukas kl. 20:00 U
Mið 10/9 aukas kl. 20:00 U
Fös 12/9 kl. 19:00 U
4. kortas
Fös 12/9 ný aukas kl. 22:00
Lau 13/9 kl. 19:00 U
5. kortas
Lau 13/9 ný aukas kl. 22:00
Sun 14/9 aukas kl. 20:00 U
Fim 18/9 aukas kl. 20:00 U
Fös 19/9 kl. 19:00 U
6. kortas
Lau 20/9 kl. 19:00 U
7. kortas
Lau 20/9 kl. 22:30 Ö
8. kortas
Fim 25/9 kl. 20:00 U
9. kortas
Fös 26/9 kl. 19:00 U
10. kortas
Fös 26/9 ný aukas kl. 22:00
Lau 27/9 kl. 19:00 U
11. kortas
Lau 27/9 ný aukas kl. 22:00
Fim 2/10 kl. 20:00 U
12. kortas
Fös 3/10 kl. 19:00 U
13. kortas
Fös 3/10 aukas kl. 22:00 Ö
Lau 4/10 kl. 19:00 U
14. kortas
Lau 4/10 aukas kl. 22:00 Ö
Ath! Takmarkaður sýningarfjöldi. Tryggðu þér miða í áskriftarkortum.
Gosi (Stóra sviðið)
Sun 7/9 aukasýnkl. 14:00 Ö
Sun 14/9 aukasýn kl. 14:00
Sun 21/9 aukasýn kl. 14:00
Sun 28/9 aukasýn kl. 14:00
Síðustu aukasýningar.
Fýsn (Nýja sviðið)
Fim 11/9 fors. kl. 20:00 U
Fös 12/9 frums. kl. 20:00 U
Lau 13/9 kl. 20:00 Ö
2. kortas
Sun 14/9 kl. 20:00 Ö
3. kortas
Fös 19/9 4. kortas kl. 20:00
Lau 20/9 kl. 20:00 Ö
5. kortas
Sun 21/9 6. kortas kl. 20:00
Ekki við hæfi barna. Almenn forsala hafin. Tryggðu þér sæti í áskriftarkortum.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Þri 7/10 forsýn kl. 20:00 U
Mið 8/10 forsýn kl. 20:00 U
Fim 9/10 forsýn kl. 20:00 U
Fös 10/10 frumsýn kl.
20:00
U
Lau 11/10 kl. 19:00
Sun 12/10 2. kortas kl. 20:00
Forsala hefst 24. september, en þegar er hægt að tryggja sæti í áskriftarkorti.
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Óvitar (LA - Samkomuhúsið )
Fös 5/9 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 15:00
Lau 13/9 kl. 20:00
Fjölskylduskemmtun
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Maddid (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fös 5/9 kl. 20:00 Lau 6/9 kl. 20:00
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fim 4/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 20:00
Fim 11/9 kl. 20:00
Sun 14/9 kl. 20:00
síðustu sýningar
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Dimmalimm (Tjöruhúsið Ísafirði/Ferðasýning)
Mán 6/10 kl. 09:00 F
Gísli Súrsson (Tjöruhúsið/ferðasýning)
Mið 24/9 kl. 11:00 F
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 4/9 kl. 20:00
Fim 11/9 kl. 20:00
Fim 18/9 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Cavalleria Rusticana og Pagliacci
Fös 19/9 frums. kl. 20:00 Ö
Sun 21/9 kl. 20:00
Fim 25/9 kl. 20:00
Lau 27/9 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Sun 5/10 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00
Forsala miða hafin á www.opera.is!
Janis 27
Fös 3/10 frums. kl. 20:00 Ö
Fim 9/10 kl. 20:00
Lau 11/10 kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Lau 18/10 kl. 20:00
Forsala miða hafin á www.opera.is!
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Mammút Tónleikar
Fös 5/9 kl. 20:00
Bergþór , Bragi og Þóra Fríða Tónleikar
Sun 21/9 kl. 16:00
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Duo (Litla svið)
Fim 16/10 1. sýn kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 6/9 kl. 15:00 Ö
Lau 6/9 kl. 20:00 Ö
Sun 7/9 kl. 16:00 Ö
Fös 3/10 kl. 20:00 U
Lau 4/10 kl. 15:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Lau 11/10 kl. 15:00
Lau 11/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 25/10 kl. 20:00
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Drengurinn: Í fyrsta skipti í leik-
húsi. Hann sá Einar Áskel, pabba,
og kisu þegar Bernd kynnti þau á
teiknuðum myndum sem hanga utan
á eftirlíkingunni af leikhússkassa
sem hann hefur byggt upp í Kúlunni.
Já, auðvitað! Það sáu allir sem
þekkja Einar Áskel.
Og þegar tjöldin drógust frá átti
það sem gerðist heima hjá Einari
Áskeli og pabba hans athygli
drengsins alla. Að koma og hverfa,
fela sig á bak við hurð, inni í skáp
vakti ósvikna gleði. Fyrst fann hann
hjá sér þörf til að orða einn og einn
hlut sem hann sá, svo gaf hann sig
leiknum á vald. Það var ekki fyrr en
Einar Áskell fór að smíða þyrluna að
athyglin fór að dvína – þó ekki meira
en það að hann notaði tímann til að
senda með geislandi augnatilliti til
hins fullorðna, og einhvers sem sat á
næsta bekk fyrir aftan, spurn-
inguna: Er þetta ekki gaman? Það
dró örlítið úr gleðinni þegar hring-
sviðið litla opnaði sýn inn í mynd af
hreinum, tærum íslenskum firði sem
feðgarnir svifu yfir. Bílalestin kallaði
þó á viðbrögð. Orð. Þegar feðgar
sneru aftur heim, farið var að sofa,
ljónið kom í skápinn, varð aftur ákaf-
lega gaman hjá drengnum og spenn-
andi, nú var loks gott að príla upp í
fang á öðrum.
Á eftir, á veitingahúsi, undir borði,
var komin kisa sem hvarf og birtist
og sagði: Gúgg, gú. Gúgg, gú.
Amman: Amman er einlægur
aðdáandi Einars Áskels og Bernds
Ogrodniks. Vissulega leið henni vel
meðal glaðra hlæjandi barnanna og
hreifst með þeim. Vissulega fundust
henni Einar Áskell og pabbinn hag-
lega gerðar eftirlíkingar. Kom
reyndar ekki með því hugarfari að fá
að sjá nákvæma eftirlíkingu af bók-
um Gunnillu Bergström; heimi
Gunnillu Bergström þar sem texti og
teiknimyndir dansa létt, fílósófískt
og kómískt í hvítu, óendanlegu rými
og þar sem stundum eru klipptar inn
ljósmyndir, framandi textabrot og
tengingar við annan myndveruleika.
En amman skildi satt best að
segja ekki hvert var sjónarhornið á
heim Gunnillu í þessari sýningu. Og
furðaði sig á því hversu smámuna-
samur, eiginlega lokaður mynd-
heimur Bernds Ogrodniks var;
hversu þröngt var um brúðurnar;
hve smáar þær voru; hve þrengslin
gerðu ferð feðganna á þyrlunni inn í
frumskóginn fátæklega, hve upphaf-
in myndin var sem opnaðist á hring-
sviðinu inn í íslenskt landslag – þar
hefði Gunnilla varla getað stillt sig
um að brjóta upp og klippa inn ljós-
mynd af rafmagnsstaurum, jafnvel
álverksmiðju! En Bernd virðist hafa
lokast inni í ánægjunni af að skera
út.
Amman hefur heldur aldrei al-
mennilega skilið hvaða hlutverki
leikstjóri gegnir í sýningum Bernds.
En það er auðheyrt að hér hefur
heyrn hans brugðist. Tónlistin var
stundum of há, það glamraði í stöng-
um. Og þó að leikskólabörn á Íslandi
séu flest þaulvön að umgangast fólk
sem talar takmarkaða íslensku er
ástæðulaust að vera með rangar
beygingar og áherslur. Svo flókinn
er textinn ekki að Bernd (sem í sínu
eigin hylki nær fínu sambandi við
börn) geti ekki lært að koma honum
þannig frá sér að öll orð verði skilj-
anleg – þó ekki væri nema vegna
framvindunnar.
En „gúgg gú!“ segir drengurinn.
Gúgg gú,
gúgg gú
Einar Áskell „En amman skildi satt best að segja ekki hvert var sjón-
arhornið á heim Gunnillu í þessari sýningu,“ segir m.a. í dómi.
LEIKLIST
Gestaleikur Figúru í
Þjóðleikhúsinu
Handrit eftir Bernd Ogrodnik byggt á bók-
unum: Svei-attan, Einar Áskell og Góða
nótt, Einar Áskell, eftir Gunillu Bergs-
tröm. Leikstjóri: Kristján Ingimarsson.
Leikmynd og leikmyndagerð: Bernd
Ogrodnik. Búningahönnun og gerð: Helga
Björt Möller. Brúðuhönnun og stjórn:
Bernd Ogrodnik.
Kúlan, laugard. 30. ágúst 2008, kl. 15.
Klókur ertu, Einar Áskell
María Kristjánsdóttir
KVIKMYNDIN Kjötborg eftir þær
Helgu Rakel Rafnsdóttur og Huldu
Rós Guðnadóttur var valin besta ís-
lenska heimildarmyndin á heimilda-
og stuttmyndahátíðinni Reykjavík
Shorts&Docs sem lauk í gær, og
fékk þar með Silfurrefinn, verð-
launagrip hátíðarinnar. Kjötborg
fjallar um samnefnda hornverslun í
Vesturbæ Reykjavíkur og bræðurna
Gunnar og Kristján sem reka hana.
Það var svo Gjörgæsla eftir Börk
Sigþórsson sem var valin besta ís-
lenska stuttmyndin, en hún er að-
eins einnar mínútu löng.
Nánari upplýsingar má finna á
www.shortdocs.info.
Kjötborg
best
Morgunblaðið/Frikki
Sigurvegarar Þeir Gunnar Halldór
og Kristján Aðalbjörn Jónssynir í
Kjötborg heilluðu dómnefnd.
ALDREI hafa fleiri sótt opið hús
hjá Borgarleikhúsinu en í gær, en
um sjö þúsund manns lögðu leið
sína þangað og kynntu sér vetr-
ardagskrá leikhússins. Fjöldi
skemmtiatriða var í boði, heitar
nýbakaðar vöfflur runnu ljúft ofan
í mannskapinn, boðið var upp á
skoðunarferðir um húsið, auk þess
sem opnar æfingar voru á öllum
sviðum.
Fólk á öllum aldri upplifði töfra
leikhússins, fékk að gægjast bak-
sviðs og fékk forsmekk af þeim
sýningum sem brátt verða á fjöl-
unum.
Í fréttatilkynningu segir að
áskriftarsala sé þegar orðin meiri
nú en undanfarin ár, og til að
mynda hafi selst fleiri áskrift-
arkort í síðustu viku en allt síð-
asta ár. Þá hafi sala á einstakar
sýningar, svo sem Fló á skinni,
slegið fyrri met.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bakari og leikhússstjóri Magnús Geir Þórðarson, leikhússstjóri Leikfélags
Reykjavíkur, bakaði vöfflur fyrir gesti og gangandi í gær.
Sjö þúsund á opnun
www.borgarleikhusid.is